Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2010, Síða 29
... myndinni Toy Story 3
Allt í myndinni virkar. Pabbar gætu grátið.
... sjónvarpsþættinum
Cougar Town
Konungleg skemmtun.
... myndinni The
A-Team
Hraður
og hávær
Hollywood-
hasar sem
flestir ættu
að geta skemmt sér yfir.
... HM-
stofunni
Frábær þáttur
með frábær-
um þáttar-
stjórnanda og
fótboltafræð-
ingum.
föSTudAgur
n Gusgus á Akranesi
Gusgus og Óli ofur spila í Breiðinni á
Akranesi í kvöld í tilefni af bæjarhátíðinni
Írskum dögum. Þeir sem ekki hafa farið á
tónleika með Gusgus hafa ekki lifað. Og
að sjá Óla ofur er ofurmannleg skemmtun.
Miðaverð 2000 krónur í forsölu, 2500 við
hurð. Forsala í Eymundsson Akranesi og
Mohawks Kringlunni.
n Fönk á Nasa
Tónlistarhátíðin Funk í Reykjavík fer fram
á Nasa um helgina. Á föstudagskvöld
koma fram Dj Honkey and Lynne, Tómas R.
Einarsson, Ojba-rasta, Jagúar og Hjálmar.
Húsið opnar klukkan 19.30, aldurstakmark
20 ára.
n Splash á Goslokahátíð
Splash partí fer fram í Vestmannaeyjum
í kvöld í tengslum við Goslokahátíð. Dj
Óli Geir, Dj Joey D, Kristmundur Axel,
Friðrik Dór, sjóðandi undirfatasýning og
beerbong-keppni svo eitthvað sé nefnt.
Aldurstakmark er 18 ára, miðaverð 1500
krónur.
n 80´s ball á Players
Ef þú elskar ekki 80´s tónlist ertu ófær um
að elska. Þess vegna fer fram 80´s-ball með
diskótekinu Dísu á Players í Kópavogi í
kvöld. Dj Maggi sér um fjörið og athugið,
það er frítt inn.
lAugArdAgur
n Mínus og Agent Fresco á Sódómu
Hljómsveitirnar Mínus og Agent Fresco
munu spila saman á Sódómu. Báðar
sveitirnar eru að vinna að væntanlegum
breiðskífum sínum og munu því tónlistar-
áhugamenn fá að heyra það allra nýjasta í
bland við það eldra. Húsið opnar klukkan
23 og er miðaverð aðeins 500 krónur.
n Speisað fönk
Tónlistarhátíðin Funk í Reykjavík
heldur áfram á Nasa í kvöld. Fram koma
Dj Magic, Boba, Kristín, Africa Lole, Moses
Hightower og Fela Kuti Tribute. Húsið
opnar klukkan 19.30, aldurstakmark 20 ár.
n Nóra í Havarí
Hljómsveitin Nóra var að senda frá
sér sína fyrstu hljómplötu sem nefnist
Er einhver að hlusta?. Til að fagna því
kemur bandið saman í versluninni Havarí
í Austurstræti á laugardaginn og tekur
nokkur lög af plötunni. Lagið Sjónskekkja
af þessari nýju plötu sat nýverið í tvo
mánuði á vinsældarlista Rásar 2. Ókeypis
er á tónleikana sem hefjast klukkan 16.
n Torfæruball Mono í Valaskjálf
Íslandsmótið í torfæru verður haldið á
Egilsstöðum á laugardaginn og af því
tilefni slær hljómsveitin Mono upp ekta
torfæruballi í Valaskjálf. Ballið er opið
öllum 18 ára og eldri. Óvæntur gesta-
söngvari mætir á svæðið.
Hvað er að
GERAST?
Tónleikar til heiðurs Pearl Jam á Sódómu Reykjavík:
Magni verður Vedder
Tónleikar til heiðurs bandarísku
rokksveitinni Pearl Jam verða
haldnir á föstudaginn á Sódómu
Reykjavík. Leikin verða lög af
nánast öllum plötum sveitarinn-
ar ásamt lögum sem hafa ratað í
kvikmyndir. Sá sem ætlar sér að
reyna að fara í hina stóru skó Edd-
ies Vedder er enginn annar en
Magni Ásgeirsson, kenndur bæði
við hljómsveitina Á móti sól og
sjónvarpsþættina Rockstar: Super-
nova.
Pearl Jam á farsælan feril að baki
og hefur verið leiðandi rokksveit
frá upphafsárum sínum í grugginu,
en sveitin er enn í fullu fjöri í dag.
Meðlimir Pearl Jam sögðu nýlega í
viðtali að Ísland væri á óskalista yfir
þá staði sem þeir vildu sækja heim
og spila fyrir. Að sögn aðstandenda
heiðurstónleikanna á Sódómu eru
þeir haldnir til að senda jákvæða
orku til Pearl Jam. Það sé aldrei
að vita nema þeir svari kallinu og
komi fyrr fremur en síðar.
Þeir sem ætla að fremja hinn
vinsæla perlusultuseið á Sódómu
auk Magna eru Franz Gunnars-
son gítar, Haraldur V Sveinbjörns-
son söngur og gítar, Stefán Ingimar
Þórhallsson á trommur og Birgir
Kárason á bassa.
Húsið er opnað klukkan 23, tón-
leikarnir hefjast á miðnætti. Miða-
verð 1000 krónur, eingöngu selt við
dyr.
...
bókinni
Sögu-
staðir
Unun að
lesa þessa
bók og skoða myndirnar,
segir gagnrýnandi.
... mynd-
inni get
Him to the
greek
Stórskemmti-
leg og
krassandi
grínmynd.
föstudagur 2. júlí 2010 fókus 29
Magni Verður hann „magnificent“ á
Sódómu? MYND KArl PeTerSSoN
giftir sig á Íslandi
vampíra sem étur fólk og þá bara varð
ég að læra lagið og varð að fara að
syngja það. Amma sleppti alltaf ljóta
kaflanum og söng bara það fallega.
Hún sá líka alltaf bara það fallega í líf-
inu svo það er viðeigandi fyrir hana,“
segir Hera og augljóst er að hún sakn-
ar ömmu sinnar.
Brúðkaup á Íslandi
Hera stoppar stutt á landinu í þetta
skiptið eða aðeins í sex vikur. Hún er
þó ekki bara komin til að spila því hún
ætlar að ganga í hjónaband með kær-
astanum sínum, Hirti Arasyni. Þau
hafa verið saman í sjö ár og fannst því
kominn tími til að láta pússa sig sam-
an. „Við erum bara á fullu að skipu-
leggja allt núna á nokkrum dögum.
Við giftum okkur ekki í kirkju held-
ur gefur sýslumaður okkur saman
og svo höldum við veislu fyrir vini og
ættingja. Þetta verður ekkert rosalega
hefðbundið. Okkur finnst aðalatriðið
að hafa vini og fjölskyldu með okkur,“
segir Hera og er augljóslega spennt
fyrir stóra deginum.
Hera er mjög hrifin af íslenskri
hönnun og klæðist henni mikið.
Á brúðkaupsdaginn verður engin
breyting þar á því Hera ætlar að hafa
íslenskt fiskiroð í brúðarkjólnum.
Hún vill þó ekki gefa upp of mikið en
finnst mikilvægt að hafa eitthvað ís-
lenskt í kjólnum.
Brúðkaupsferð til Parísar
Fljótlega eftir brúðkaupið halda þau
aftur heim á leið, hinum megin á
hnöttinn. Þau taka samt stutt stopp í
París á leiðinni heim þar sem þau ætla
að eyða hveitibrauðsdögunum. „Ég var
búin til í París og er búin að vera lengi
á leiðinni þangað. Ég ætlaði meira að
segja einu sinni að fá mér tattú – svona
strikamerki sem stæði á „made in Par-
is“ en ég lét nú aldrei verða af því,“ seg-
ir hún hlæjandi. „Ég er mjög spennt
að fara til Parísar og ég vona að ég
geti spilað þar. Það er í vinnslu. Það er
verið að reyna að segja við mig að ég
eigi ekki að vera með tónleika þarna í
brúðkaupsferðinni minni en ég meina
– hvernig get ég farið til Parísar og ekki
spilað? Mér finnst skemmtilegast að
hafa spilað þar,“ segir Hera kankvís.
Nýjasta lagið alltaf uppáhalds
Frá París halda nýgiftu hjónakorn-
in svo heim á leið til Nýja Sjálands
þar sem tveir hárlausir kettir ásamt
foreldrum Heru og litla bróður bíða
þeirra. Planið er svo að sögn Heru að
halda brúðkaup þar líka fyrir vini og
ættingja sem þar búa. „Ég fer út að taka
upp plötu og vonandi líða ekki tvö ár
þangað til að við komum aftur,“ segir
hún brosandi.
Hera er alltaf að og hefur nóg á
sinni könnu. „Ég er alltaf að semja.
Ég tek svona tarnir hvort sem ég er að
taka upp, spila eða semja. Ég er búin
að vera voða mikið að semja núna. Það
kemur yfirleitt alltaf saman lag og texti,
ekki bara lag eða bara texti. Uppá-
haldslagið mitt er alltaf það nýjasta og
þau eru nokkur núna þannig að það er
mjög gaman,“ segir Hera spennt fyrir
tónleikaferðinni um landið og brúð-
kaupinu framundan. viktoria@dv.is