Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2010, Blaðsíða 30
30 viðtal 2. júlí 2010 föstudagur
Íris Kristinsdóttir hefur sagt skilið við
sveitaballastemninguna. Hún er sest á
skólabekk eftir 17 ára fjarveru og lætur
drauminn rætast með leiklistarnámi.
Íris varð mamma aðeins 18 ára. Hún
missti vinnuna þegar hún kom úr fæð-
ingarorlofi með yngsta barnið sitt og fór
þá í gegnum erfiða tíma sem einstæð,
atvinnulaus, þriggja barna móðir. Hún
segist aldrei hafa misst móðinn og í
dag er hún hamingjusöm í sambúð með
manni sem gæti ekki verið ólíkari henni.
tónlistin er skemmtileg-ur bransi en batteríin mín kláruðust. Ég hafði spilað um hverja helgi í fimm ár,
meðfram fullri vinnu, og var orðin
ansi þreytt,“ segir Íris Kristinsdóttir
móðir, nemi og söngkona.
Íris er sest aftur á skólabekk eftir
17 ára hlé og líkar vel enda að láta
gamlan draum rætast. Hún er að
læra leiklist í Kvikmyndaskóla Ís-
lands og mun útskrifast sem leik-
kona í desember. Hún hefur þegar
komið fram á hvíta tjaldinu, í litlu
hlutverki í kvikmyndinni Bjarnfreð-
arson og sakamálaþáttunum Réttur
2. „Þetta voru lítil hlutverk en engu
að síður ómetanleg reynsla fyrir
mig og ég lærði helling,“ segir Íris
en bætir við að þótt hún sé hætt að
syngja opinberlega sé hún alltaf að
semja texta og lög á bak við tjöld-
in. „Það er eitthvað sem ég get gert
heima. Leiklist og söngur eru tíma-
frek fög og á meðan ég er að koma
mér á framfæri sem leikkona er
leiklistin í fyrsta sæti.“
Í hljómsveit með
Kærastanum
Írisi kom fram á sjónarsviðið árið
1999 þegar hún söng lagið Orgin-
al ásamt Stefáni Hilmarssyni. Þá
hafði hún verið í sveitinni Írafár
um tveggja ára bil en fljótlega eft-
ir Sálar-ævintýrið gekk hún til liðs
við hljómsveitina Buttercup. Íris og
meðlimur Butterup, Valur Heiðar
Sævarsson, voru um tíma eitt heit-
asta par landsins en þegar sam-
bandinu lauk yfirgaf Íris Buttercup
og stofnaði hljómsveitina Ber. Í dag
eru sjö ár síðan Ber lagði upp laup-
ana svo Íris hefur verið fjarverandi
á sveitaböllum í langan tíma.
Um tímann með Buttercup seg-
ir hún: „Ég var ung og bara rétt að
byrja að feta mig í ástarlífinu – og
lífinu yfirhöfuð. Eins fallegt og
mér fannst að syngja fyrir fólk varð
maður stundum fyrir vonbrigðum
því oft fannst manni eins og fólk
hefði meiri áhuga á einkalífi okkar
og skandölum en tónlistinni,“ seg-
ir hún en hljómsveitin var að vinna
að nýrri plötu þegar samband
þeirra Vals endaði.
Þar sem parið hafði verið dag-
legur gestur á síðum dagblaðanna
ákváðu þau að halda sambands-
slitunum út af fyrir sig af ótta við að
fréttirnar kæmu niður á sölu plöt-
unnar. „Það getur verið erfitt að
umgangast fyrrverandi þegar sam-
band rennur út í sandinn en þetta
gekk ágætlega hjá okkur. Samt yfir-
gaf ég bandið að lokum og veit að
það var besta ákvörðunin.“
ófrÍsK 17 ára
Íris var aðeins 18 ára gölmul þegar
hún eignaðist sitt fyrsta barn, Krist-
in Frey sem í dag er 16 ára. Hún við-
urkennir að það hafi verið henni
erfitt að vera fjarri syninum vegna
vinnunnar en segist alltaf hafa
reynt að halda jafnvægi milli fjöl-
skyldulífs og bransans. „Sunnudag-
ar voru alltaf heilagir dagar hjá okk-
ur Kristni. Ef við vorum úti á landi
keyrðum við til baka um nóttina
svo við gætum eytt deginum sam-
an. Honum fannst þetta spennandi
heimur og var stoltur af mömmu
sinni en ég var alltaf með smá sam-
viskubit. Ég reyndi samt að láta það
sem minnst á mig fá og reyna frekar
að sameina þessa tvo heima því ég
veit að það er vel hægt að vera bæði
mamma og söngkona.“
Faðir Kristins Freys var æsku-
ást Írisar en þau voru aðeins 15 ára
þegar þau byrjuðu saman. „Í raun-
inni fannst mér ekkert voðalegt
áfall að komast að því að ég væri
ófrísk 17 ára. Ég setti bara hausinn
undir mig og tók því fagnandi en
ef ég hugsa til baka þá var ég bara
krakki. Ég bar strax virðingu fyrir
þessu lífi sem var að vaxa inni í mér
og ákvað að takast á við þetta verk-
efni,“ segir hún en samband henn-
ar við pabba Kristins gekk ekki upp.
„Við erum góðir vinir í dag og að
sama skapi er samband okkar Krist-
ins Freys ótrúlega gott. Hann er að
verða 17 ára og það er svo gaman að
fylgjast með honum. Þetta er góður
og yndislegur strákur og ég er ofsa-
lega heppin með hann,“ segir Íris
sem á tvö önnur börn, Emilíu Þóru,
4 ára, og Ólaf Styrmi, 2 ára, en sam-
band hennar við föður þeirra gekk
heldur ekki upp.
féll fyrir andstæðu sinni
Í dag er Íris í sambúð með Gretti
Adolf Haraldssyni, byggingar-
tæknifræðingi og húsasmíðameist-
ara. Þau Grettir kynntust í fyrra-
sumar og Íris segir að eins ólík og
þau eru þá eigi þau mjög vel saman.
„Við kynntumst fyrir tilviljun í partíi
sem hvorugt okkar var á leiðinni í
en ákváðum svo bæði að kíkja í.
Mér leist rosalega vel á hann
fyrst þegar ég sá hann og líkar enn.
Ég tók strax eftir honum en heyrði
hann tala um einhverja konu og
Yfirgaf poppið
fyrir leiklistina
Ég var orðin 34 ára þegar
við kynnumst og hélt
að allir bestu bitarn-
ir væru farnir. Ég sá
strax að þetta væri
vandaður strákur
og varð strax mjög
skotin en ég var líka
pínu hrædd.