Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2010, Qupperneq 36
36 viðtal 2. júlí 2010 föstudagur
Bragi Guðbrandsson, for-stöðumaður Barnavernd-arstofu, segir að þar sem Götusmiðjan sé einkarekið
meðferðarheimili sem Guðmundur
Týr Þórarinsson, eða Mummi eins
og hann er oftast kallaður, eigi sé erf-
itt að nálgast málið. „Við erum með
þjónustusamning við Götusmiðj-
una sem fær 110 milljónir á ári. Sam-
kvæmt samningum og samkvæmt
lögum höfum við yfirumsjón og eftir-
litsskyldu með heimilinu. Mér barst
svo vitneskja um það í vetur að þarna
væri ekki allt með felldu og fram á
vor bárust mér reglulega tilkynning-
ar um það frá starfsfólkinu. Við gerð-
um þá úttekt á meðferðarárangri og
niðurstöðurnar voru að hann færi
versnandi. Aðeins einn þriðji af
skjólstæðingum Götusmiðjunnar út-
skrifaðist sem þýðir að tveir þriðju
þeirra hlaupast á brott áður en með-
ferð lýkur. Það hefur eitthvað með
vanhæfi stjórnendanna að gera.“
Ófremdarástand
í Götusmiðjunni
Í maí barst Braga bréf frá starfsmönn-
um og skrifuðu tíu af fjórtán und-
ir. „Þar kom fram að ástandið væri
mjög slæmt og svo slæmt að það ríkti
í raun ófremdarástand. Starfsemin
fór vel fram framan af en svo virð-
ist sem áhugi eigandans hafi dvínað
á síðustu misserum. Hann hætti að
starfa þarna sjálfur og eftir því sem ég
kemst næst gátu liðið nokkrir mán-
uðir á milli þess sem hann kom inn á
heimilið. Starfsmenn kvörtuðu samt
undan einstökum og ófyrirséðum af-
skiptum sem höfðu truflandi áhrif á
starfið og meðferðarandann. Starfs-
menn sökuðu hann líka um einelti
gagnvart ákveðnum starfsmönnum.“
Í kjölfarið hætti Barnaverndar-
stofa að senda börn í þetta úrræði og
Bragi boðaði Mumma á fund. „Hann
hafði þá dvalið erlendis um skeið.
En á þessum fundi kom fram að það
væri gagnkvæmur vilji beggja máls-
aðila að ná samkomulagi um starfs-
lok. Þannig að við vorum að vinna
að starfslokasamningi. Við ætluðum
að taka mánuð í það og útbúa til-
lögu að starfslokasamningi sem báð-
ir aðilar gætu sætt sig við. Á meðan
var Mummi beðinn um að skipta sér
ekki af starfseminni til þess að friður
og ró gæti ríkt á heimilinu. Sjö krakk-
ar voru eftir á heimilinu og þeir voru
að ljúka sinni meðferð.“
ÓviðeiGandi leynifundur
Hann segir að allt hafi gengið sam-
kvæmt áætlun þar til Mummi hafi
mætt skyndilega og rekið einn starfs-
manninn fyrirvaralaust. „Þann sem
hafði líklega haft forgöngu um að
senda bréfið. Þessi starfsmaður
var virtur og vinsæll, bæði á meðal
annarra starfsmanna og barnanna.
Réttlætiskennd þeirra var misboð-
ið og það varð mikil ólga á heimil-
inu. Krakkarnir heimtuðu skýringu á
þessu því þeim þótti vænt um hann
og höfðu tengst honum sterkum
böndum. Þar sem enginn vissi fyrir
hvað hann var rekinn var því beint
til Mumma sem hélt einkafund með
krökkunum. Þessi leynifundur var til
marks um óskaplega óeðlileg vinnu-
brögð, ekki síst í ljósi þess að sum
barnanna þekktu hann ekki. Hann
var ekki á gólfinu með þeim. Á fund-
inum fór hann niðrandi orðum um
starfsmanninn og í lokin lét hann
þau orð falla að allt sem fram hefði
komið væri trúnaðarmál. Hann lagði
blátt bann við að nokkuð fréttist frá
þessum fundi og meinaði börnun-
um að tala við foreldra sína eða aðra
starfsmenn. Sem er mjög á skjön við
þá meðferð sem þarna var boðið upp
á. Hann lét líka orð falla sem að mati
unglinganna mátti túlka sem hót-
un um líkamsárás. Það stríðir gegn
siðferðisreglum og þeim lífsgildum
sem stuðla að heilbrigðu lífi. Þetta
kom mér einkennilega fyrir sjónir.
Ég hef alltaf reynt að styðja Mumma
í gegnum öll þessi ár, hann veit það.
En þetta er ekki sá Mummi sem ég
þekkti. Það er alveg ljóst. Þetta er
annar Mummi en sá sem ég þekkti
fyrir nokkrum árum.“
ekki svo valdamikill
Bragi segir að börnin hafi upplif-
að vanlíðan og kvíða eftir fundinn.
Þegar Barnaverndarstofu hafi verið
greint frá málinu hafi henni sem eft-
irlitsaðila verið skylt að ganga í málið.
„Við fórum á staðinn með fulltrúum
frá barnaverndarnefnd Reykjavík-
ur og barnaverndarnefnd Kópavogs
sem eru sjálfstæðar stofnanir, Barna-
verndarstofu og óháðum aðila. Það
var samdóma álit þessara aðila að
það væri ekkert annað í stöðunni en
að taka börnin af heimilinu. Þetta var
ekki ákvörðun sem ég tók einn og
sér. Það er enginn svo áhrifamikill að
hann geti ákveðið að fjarlægja börn
úr meðferðarúrræði einn og sér. Ég
gæti ekki gert það og myndi ekki gera
það. Enda hef ég ekki einu sinni völd
til þess. Þannig að þetta eru fráleit-
ar ásakanir sem eiga ekki við rök að
styðjast. En ég veit að það eru rík-
ir fjárhagslegir hagsmunir í húfi hjá
Mumma. Og ég kippi mér ekki upp
við það þótt eitthvað sé sagt um mig.
Ég er bara að vinna vinnuna mína.
Ég orðinn gamall í hettunni og með
þykkan skráp. Ég er bara hissa á því
að það sé hægt að bjóða fólki og fjöl-
miðlum upp á svona skýringar sem
eru alveg út í bláinn. Það er eins og
margir séu alltaf tilbúnir að trúa því
versta upp á fólk. En það er ekki á
færi eins manns að gera svona hluti.“
réttur barnanna
Fleira kom til en þessi leynifundur.
„Staðurinn var undirmannaður. Fáir
starfsmenn með reynslu voru eft-
ir og enn fleiri ætluðu sér að hætta
á næstu dögum. Ef þetta hefði ver-
ið ríkisrekið úrræði hefði verið hægt
að vísa forstöðumanninum frá en þar
sem Mummi á Götusmiðjuna var ekki
hægt að gera það. En það er réttur
barnanna að það sé gripið til aðgerða
þegar svona mál koma upp. Þetta er
ekki í fyrsta skipti sem Barnavernd-
arstofa hefur afskipti af meðferðar-
stofnun þó að inngripið hafi aldrei
áður verið jafn afdráttarlaust. Þetta
er fordæmalaust mál og fyrsta skipt-
ið þar sem gripið er til þeirra ráða að
fjarlægja börn af heimilinu. Hingað til
hefur okkur alltaf tekist að klára mál í
sátt við málsaðila og það stefndi allt í
að okkur tækist það líka núna. Allt þar
til málið tók óvænta stefnu, sem ég
harma. En við gátum ekki boðið börn-
unum upp á þetta og látið þau sitja
undir því þegar það var verið að brjóta
grundvallarreglur í meðferð sem á að
byggja á heiðarleika og virðingu. Það
er verið að kenna þeim að bera ekki út
róg um aðra eða hóta fólki þannig að
þarna skaut skökku við. Eins er verið
að hjálpa þeim að takast á við leynd-
armálin og losna við þau. Það má alls
ekki búa til ný leyndarmál í meðferð.
Það er ekki mannrækt.“
HverGi banGinn
Verið er að rannsaka málið og Bragi
vill ekki segja mikið meira í bili.
Hann segir samt að enn sé ýmis-
legt að koma í ljós og málið muni
upplýsast að fullu. Það muni líka
skýrast á næstu vikum hvort samn-
ingi verði rift eða ekki, en fylgja þarf
ákveðnum reglum til þess að hægt
sé að gera það og enn er ekki búið
að ganga frá því. „En við höfum eng-
in áform um að senda börn aftur á
Götusmiðjuna. Því miður fór þetta
svona. Ég harma það. Það var okk-
ar einlægi vilji að ljúka starfseminni
í friði.
Ég veit að Mummi vonaðist til að
ráðuneytið færi yfir verkferla okkar
og kannaði heimildir okkar. Hann
telur að við höfum farið offari í mál-
inu. Það er réttur hans. Ef hann telur
að það hafi verið brotið á sér á hann
hiklaust að kvarta við ráðuneytið. Ég
fagna því að hann gerði það. Þá get-
ur ráðuneytið lagt mat á það hvort
við höfum virt rétt hans að vettugi
eða ekki. Ég kvíði því ekki.“
ÓHentuGt rekstrarform
Í ljósi reynslunnar setur Bragi spurn-
ingamerki við einkarekin meðferð-
arúrræði. Fram til ársins 1995 voru
öll meðferðarheimili ríkisrekin en
eftir það var skipt um stefnu og síð-
an hafa þau flest verið einkarek-
in. „Þetta mál vekur upp áleitnar
spurningar. Ég tel ekkert óskynsam-
legt að hverfa frá þeirri stefnu. En
ekki bara út af þessu máli. Umhverf-
ið hefur líka breyst. Hlutfallslega
færri börn fara í stofnanameðferð
núna en þau eiga oft við alvarlegri
og flóknari vandamál að stríða en
áður. Og það hefur bara sýnt sig að
svona rekstrarform hentar illa þegar
þarf að hafa afskipti af starfinu. Sem
gerir það að verkum að það verður
erfiðara að fyrirbyggja að svona mál
geti þróast.“ ingibjorg@dv.is
bragi Guðbrandsson vísar því á bug að
hann hafi staðið fyrir árásum á Götu-
smiðjuna. Hann sé ekki svo valdamikill
að hann geti ákveðið það einn og sér að
fjarlægja börn af meðferðarheimili en það
hafi verið réttur barnanna að gripið væri
til aðgerða og samdóma álit rannsóknar-
nefndar. Þeim hafi verið ljóst að hálfgert
ófremdarástand ríkti í Götusmiðjunni.
arctictrucks.is
Arctic Trucks . Kletthálsi 3 . 110 Reykjavík . Sími 540 4900
Góða ferð í fríið!
með hágæða ferðavörum frá INNO
Farangursbox
Toppgrindabogar
Reiðhjólafestingar
Veiðistangafestingar
Þetta eru frá-leitar ásakan-
ir sem eiga ekki við
rök að styðjast.
það ríkti í raun
ófremdarástand