Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2010, Qupperneq 42
42 skrýtið umsjón: helgi hrafn guðmundsson helgihrafn@dv.is 2. júlí 2010 föstudagur
Vinalegt, og svolítið töff kameldýr reykir sígarettur. Krúttlegur hund-ur drekkur bjór í sólinni umkringd-ur fallegum konum. Þannig auglýstu
stórfyrirtækin R.J Reynolds og Budweiser vör-
ur sínar, sígarettur og bjór, á síðustu áratugum
tuttugustu aldarinnar.
Kameldýrið Joe Camel var helsta andlit
Camel-sígarettanna frá 1987 til 1997. Hund-
urinn Spud McKenzie var lukkudýr Budweis-
er-bjórsins til ársins 1992, eftir að þrýstihópar
höfðu harðlega gagnrýnt auglýsingarnar með
hundinum, sem þóttu ósæmilega barnvænar.
frægari en mikki mús
Joe Camel var viðkunnanlegt kameldýr. Hann
birtist í ýmsum líkjum í auglýsingum á tíunda
áratugnum þar sem hann sást ýmist sem eit-
ilharður töffari með Ray Ban-sólgleraugu á
blæjubíl, flugmaður orrustuþotu í Top Gun-stíl
eða stórkostlega leikinn rafmagnsgítarleikari.
Tóbaksfyrirtækið R.J. Reynolds auglýsti gríðar-
lega mikið í sjónvarpi, dagblöðum og á auglýs-
ingaskiltum.
Árið 1991 birti bandarískt læknablað niður-
stöður rannsóknar sem sýndi að fleiri fimm og
sex ára börn þekktu andlit Joe Camel en Mikka
mús og Fred Flintstone.
R.J. Reynolds var í
kjölfarið sakað um að
beina auglýsingum sín-
um til barna, en fyr-
irtækið kannaðist alls
ekki við það og neitaði
að hætta að nota Joe
Camel í auglýsingum
árið 1997.
stórgræddu á
unglingum
Í ljós kom að þriðjungur
sígarettupakka sem seld-
ir voru kaupendum und-
ir aldri í öllum Bandaríkj-
unum voru af gerðinni
Camel. Í kjölfarið var R.J.
Reynolds stefnt þar sem
bent var á að unglingar
hefðu keypt Camel-sígar-
ettur fyrir um 500 milljón-
ir dollara árið 1992. Hefði
sami aldurshópur keypt Camel fyrir aðeins sex
milljónir dollara árið 1988, áður en Joe Camel
kom á sjónarsviðið. Eftir löng réttarhöld og
mikinn þrýsting frá læknum, hætti R.J. Reyn-
olds að nota Joe Camel í auglýsingum.
Krúttlegi Bud-hundurinn
Hundurinn Spud MacKenzie var af holdi og
blóði, ólíkt Joe Camel. Hann var af tegund
enskra vígahunda (e. Bull Terrier) og birtist
ávallt í auglýsingum með bros á vör, krútt-
legur að sjá, í fyndnum fötum. Hann var not-
aður í bjórauglýsingum Budweiser frá 1986
til 1992. Stuttu eft-
ir að hann varð fræg-
ur upphófst þó nokkuð
hneyksli, því í ljós kom
að Spud var ekki karl-
kyns, eins og gefið hafði
verið út. Hann, eða öllu
heldur hundurinn sem
lék hann, var tík og hét
réttu nafni Honey Tree
Evil Eye. Sagt er að Spud
hafi vakið mikla athygli
á tegund sinni og í kjöl-
farið hafi fjöldi hunda
af tegundinni marg-
faldast vestanhafs. Þeg-
ar Spud McKenzie var á
hátindi ferilsins var hægt
að kaupa ótrúlegt úrval
minjagripa, stutterma-
boli og glingur merkt
hundinum í bak og fyrir.
Tekinn úr umferð
En Spud, var líkt og Joe, afar umdeildur. Árið
1992 sökuðu ýmis heilsuverndarsamtök, þar
á meðal Samtök mæðra gegn ölvunarakstri,
Budweiser um að beina bjórauglýsingum sín-
um til barna með hvuttanum. Eftir mikið japl,
jaml og fuður ákvað stórfyrirtækið að hætta að
nota hundinn í auglýsingaherferðum sínum,
en viðurkenndi þó ekki að hafa haft börn í huga
í markaðssetningunni. Tíkin Honey Tree Evil
Eye lést árið eftir, í faðmi eigenda sinna í Illin-
ois-fylki.
Kameldýr í teiknimyndastíl keðjureykti með bros á
vör í sígarettuauglýsingum. Lifandi hundur drakk
kalt öl í bjórauglýsingum. Slíkt markaðsstarf þykir
ekki við hæfi í nútímanum því margir telja að það
geti höfðað til barna og hvatt þau til að herma eftir
dýrunum vinalegu. Það er ástæðan fyrir því að Joe
Camel og spud mcKenzie eru ekki lengur meðal vor.
auglýstu bjór og sígarettur
Vinaleg dýr
Árið 1991 birti bandarískt lækna-
blað niðurstöður rann-
sóknar sem sýndi að fleiri
fimm og sex ára börn
þekktu andlit Joe Camel
en Mikka Mús og Fred
Flintstone.
Hugmynd sem aldrei varð að veruleika:
„Risavaxna hringekjan sem mun verða reist ofan á pýramídunum,
þegar egypsk stjórnvöld hafa gefið leyfi fyrir henni, er stórkostlegt
verkefni. Verkfræðingarnir hönnuðu hringekjuna svo ferðamenn
gætu séð þessi risavöxnu mannvirki í eyðimörkinni úr lofti,“ segir
í grein sem birtist í bandaríska vísinda- og uppfinningatímaritinu
Modern Mechanix í júní 1931. Eintök af tímaritinu ganga nú kaupum
og sölum á vefnum og í safnarabúðum því efnistök blaðsins þykja
sérkennileg og jafnvel spaugileg í nútímanum. Vísindahyggjan sem
varð til í kjölfar hinnar gríðarlegu hröðu tæknivæðingar á fyrri hluta
tuttugustu aldar framkallaði oft hugmyndir sem í dag þykja fáránleg-
ar. Hér er lagt til að eitt helsta menningardjásn mannkynssögunnar,
pýramídarnir, verði í raun eyðilagt með því að reisa gríðarlega stórt
tívolítæki á toppi þess.
Það er mikil mildi að egypsk stjórnvöld skuli ekki hafa gefið grænt
ljós á framkvæmdina, en á þessum tíma var Fuad 1. konungur Eg-
yptalands.
Risavaxin hringekja
ofan á pýramídunum
hringekjan Það er miklu betra að
sjá pýramídana svona, er það ekki?
modern mechanix Vísinda- og uppfinninga-
tímaritið var vinsælt á fjórða áratug liðinnar aldar.
Töffari joe Camel
var vinalegur töffari
sem keðjureykti.
spud mcKenzie Í ljós kom að
bjórhundurinn spud var tík, öfugt
við það sem gefið hafði verið út.