Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2010, Page 44
Tvídæmdur Til
Kenneth McDuff var bandarískur raðmorðingi sem grunaður var um að hafa myrt að minnsta kosti fjór-
tán manns. Hann dvaldi á dauðadeild árin 1968 til 1972 þegar hann var náðaður. Þremur dögum eftir að
hann var náðaður framdi hann morð.
Kenneth McDuff fædd-ist árið 1946 í Rose-bud, smábæ í Texas, og sýndi fljótlega
af sér andfélagslega hegðun. Í
skóla var hann umtalaður tuddi
og níddist á lítilmagnanum, en
hann var einnig bleyða sem lagði
á flótta undan þeim sem stóðu
uppi í hárinu á honum. Viðleitni
kennara til að hafa áhrif á hegðun
Kenneths var eyðilögð af móður
hans sem trúði því staðfastlega að
hann væri holdgervingur mann-
legrar gæsku.
Skólaganga Kenneths var
ekki löng og hann fór að vinna
með föður sínum í steypuvinnu,
og frítímanum eyddi hann í
drykkju, slagsmál, kvennafar og
hraðakstur sem yfirleitt endaði
með ósköpum. Hann stundaði
innbrot og var dæmdur í fang-
elsi árið 1965, sleppt innan árs og
hafði ekki lært lexíuna. Kenneth
var vinafár og almennt illa þokk-
aður, en átti þó nokkra áhangend-
ur. Einn þeirra var hinn átján ára
Roy Dale Green.
Fyrstu morðin og fyrri
dauðadómurinn
Þann 6. ágúst 1966 óku Kenneth
og Roy stefnulaust um Texas eins
og svo oft áður. Í úthverfi Fort
Worth ráku félagarnir augun í
kyrrstæðan bíl. Síðar hélt Roy því
fram að hann hefði haldið að ætl-
unin væri að angra fólkið sem var
í bílnum. Annað kom á daginn.
Kenneth skipaði ungmennunum,
Robert, vinkonu hans Ednu og
frænda Roberts, Marcus, að koma
út úr bílnum. Síðan voru Robert
og Marcus læstir í farangurs-
geymslu annars bílsins og Edna
í farangursgeymslu hins bílsins.
Síðan var ekið á afvikinn stað
þar sem Kenneth skaut Robert
og Marcus til bana þar sem þeir
báðu sér griða, enn liggjandi í far-
angursgeymslunni. Ednu myrtu
félagarnir eftir að hafa misnotað
hana kynferðislega.
Daginn eftir heyrði Roy fréttir
af morðunum, fékk samviskubit
og gaf sig fram. Hann fékk vægari
dóm fyrir að bera vitni gegn Ken-
neth sem var dæmdur til dauða
fyrir morðið á Robert.
Kenneth fær frelsið að nýju
Hæstiréttur Bandaríkjanna bann-
aði dauðarefsingar árið 1972 og af
þeim sökum styttust dómar fjölda
fanga, þeirra á meðal Kenneths
sem fékk reynslulausn í október
1989, þrátt fyrir að hafa reynt að
múta skilorðsfulltrúa með það
fyrir augum að losna úr fangelsi
fyrr en ella. Þremur dögum síðar
fannst lík Serafiu Parker og þótt
Kenneth hafi aldrei opinberlega
verið tengdur við morðið á henni
er talið að hún hafi fallið fyrir
hans hendi.
Þrátt fyrir að Kenneth væri
á skilorði fór hann aldrei í felur
með að hann var jafn rotinn
og fyrr. Áfram stundaði hann
drykkju og vændishús, varð háð-
ur krakki og með frásögnum af
eigin afrekum tókst honum að
laða að sér áhangendur. Engu
að síður tókst honum að fá inn-
göngu í tækniskóla Texas. Sí og
æ talaði Kenneth um að útvega
skotvopn og drepa fíkniefna-
salana og stela af þeim dópinu.
En þetta var álitið orðagjálfur af
hans hálfu. Sem ekki var raunin.
Vændiskonur hverfa
Í október 1991 ók Kenneth fram
hjá vegatálma í Waco. Lögregl-
an og fleiri vitni sáu að í farþega-
sætinu fram í sat kona sem virtist
vera með handleggina fyrir aft-
an bak. Konan sparkaði ítrekað í
bílrúðuna. Fyrir einhverra hluta
sakir var Kenneth ekki stöðvaður
og síðar kom í ljós að konan var
Brenda Thompson, 37 ára vænd-
iskona. Hún sást aldrei aftur.
Örfáum dögum síðar hvarf
önnur vændiskona, Reginia
Moore, 22 ára, og sást ekki tang-
ur né tetur af henni eftir það.
Þann 29. desember 1991 voru
Kenneth og kunningi hans, Hank
Worley, á rúntinum í Austin í
Texas í fíkniefnaleit. Síðar sagði
Worley að Kenneth hefði nokkr-
um sinnum bent á laglegar kon-
ur og sagst vilja „taka þær“. Þeir
sáu Colleen Reed, 28 ára endur-
skoðanda, þar sem hún þvoði bíl
sinn á þvottastöð. Kenneth greip
hana og neyddi inn í bíl félag-
anna. Vitni sáu til þeirra og köll-
uðu á lögregluna, en það var of
seint. Félagarnir óku út úr bæn-
um þar sem þeir nauðguðu Col-
leen. Worley sagði að Kenneth
hefði síðan slegið hana svo fast
að honum fannst hann heyra
bein brotna og að Colleen hefði
virst annaðhvort dauð eða með-
vitundarlaus. Kenneth losaði sig
við lík Colleen eftir að leiðir hans
og Worleys skildi.
Ekkert lát á morðum
Í stuttan tíma hafði Kenneth
unnið í Quik-Pak-markaðin-
um á háskólasvæði tækniskóla
Texas. Vaktfélagi Kenneths var
Aaron Northrup og vann eigin-
kona Northrups, Melissa, einnig í
versluninni, en á næturvakt. Eftir
að Kenneth hætti störfum í Quik-
Pak hafði hann á orði að hann
vildi ræna búðina og „taka“ kon-
una sem ynni þar á næturvakt.
Þann 1. mars 1992 varð Aaron
áhyggjufullur þegar Melissa kom
ekki heim eftir eina næturvakt-
ina. Við rannsókn fann lögreglan
bíl Kenneths skammt frá versl-
uninni og bíl Aarons nærri skóg-
lendi í Dallas-sýslu. Samkvæmt
framburði vitna hafði sést til
Kenneths bæði í grennd við þann
stað þar sem Melissu var rænt og
ljóst var að um var að ræða sama
mann og hafði rænt Colleen.
Mánuði síðar fann fiskimaður
lík Melissu í malarpytti skammt
frá þeim stað þar sem bíll henn-
ar hafði fundist. Hún var komin
tvo mánuði á leið. Á sama tíma
fannst illa farið lík í skóginum
skammt frá Quik-Pak. Líkið var
af vændiskonu, Valenciu Kay
Joshua, sem hafði síðast sést í
febrúar á háskólasvæðinu í leit
að herbergi Kenneths.
Kenneth handtekinn
í Kansas
Þegar þar var komið sögu var
Kenneth kominn til Texas með
fölsuð skilríki í fórum sínum og
kominn með vinnu í öskunni. Eft-
ir að líkið af Melissu fannst hófst
leit lögreglunnar að Kenneth og
1. maí 1992 var hann settur á lista
yfir þá menn sem lögreglan vildi
hvað helst hafa hendur í hári á.
Strax daginn eftir hafði vinnu-
félagi Kenneths samband við lög-
regluna og Kenneth var stöðvað-
ur þar sem hann ók ruslabílnum
hina hefðbundnu leið.
Fyrst var réttað yfir Kenneth
vegna morðsins á Melissu North-
rup. Framkoma hans við réttar-
höldin var honum ekki til hags-
bóta. Hann var dæmdur fyrir
morðið á henni og síðan hóf-
ust réttarhöld vegna morðsins
á Col leen Reed. Þrátt fyrir að lík
hennar hefði ekki enn fundist
var hann sakfelldur fyrir morð-
ið á henni og vógu vitnisburður
Worleys og sú staðreynd að hár
af Colleen hafði fundist í bíl hans
þungt.
Kenneth McDuff var dæmd-
ur til dauða í annað sinn. Eftir
því sem nær dró stefnumóti Ken-
neths og böðulsins vísaði hann á
hinsta hvílustað Reginiu Moore,
Brendu Thompson og Colleen
Reed.
Stundaglas Kenneths tæmdist
17. nóvember 1998 eftir að hann
fékk banvæna sprautu í Hunts-
ville-fangelsi. Réttlætið sigraði
að lokum.
44 saKamál umsjón: KolbEinn þorstEinsson kolbeinn@dv.is 2. júlí 2010 föstudagur
dauða
Eftir að Kenneth hætti störfum
í Quik-Pak hafði hann
á orði að hann vildi
ræna búðina og „taka“
konuna sem ynni þar á
næturvakt.
Kenneth McDuff og þrjú fórnarlamba hans melissa northrup (efst), Valencia Kay joshua (t.v.) og Colleen Reed (t.h.)