Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2010, Blaðsíða 46
NafN og aldur?
„Stefán Svan Aðalheiðarson, 31 árs.“
atviNNa?
„GK Reykjavík við sölu- og markaðsmál.“
Hjúskaparstaða?
„Einhleypingur.“
fjöldi barNa?
„Átta systkinabörn.“
Hefur þú átt gæludýr?
„Já, fisk, hamstur og voffa, langar að eiga einn á ný.“
Hvaða tóNleika fórst þú á síðast?
„Í desember með Rafni frænda mínum, múm og Sea-
bear, mjög góðir. Kylie Minogue NYC 2009. Góðir.“
Hefur þú komist í kast við lögiN?
„Já.“
Hver er uppáHaldsflíkiN þíN og af Hverju?
„Sennilega allir fjórir slopparnir mínir. Elska að vera
í slopp.“
Hefur þú farið í megruN?
„Já, á hverjum degi annað slagið.“
Hefur þú tekið þátt í skipulögðum
mótmælum?
„Já, ég held það en það er langt síðan.“
trúir þú á framHaldslíf?
„Æi ég veit það ekki, stundum kannski.“
Hvaða lag skammast þú þíN mest fyrir að
Hafa Haldið upp á?
„Ég er löngu búinn að læra það að maður á ekki að
skammast sín fyrir tónlistarsmekk, ég hækka stoltur
þegar ég heyri Dont Turn Around með Ace of Base.“
Hvaða lag kveikir í þér?
„Fast Love með George Michael.“
til Hvers Hlakkar þú NúNa?
„Að hitta báðar systur mínar og fjölskyldur.“
Hvaða myNd getur þú Horft á aftur og aftur?
„Rauðu akurliljuna og allt með Goldie Hawn.“
Hefur þú látið spá fyrir þér?
„Nei, efast meira með aldrinum.“
spilar þú á Hljóðfæri?
„Því miður ekki, væri til í að spila á kontrabassa.“
viltu að íslaNd gaNgi í evrópusambaNdið?
„Erfiðasta spurningin, ég veit það ekki.“
Hvað er mikilvægast í lífiNu?
„Allir sem þú elskar og heilsan.“
Hvaða ísleNska ráðamaNN myNdir þú vilja
Hella fullaN og fara á trúNó með?
„Auðvitað Davíð Odds, ég elska hann og reyndar
Gísla Martein líka.“
Hvaða fræga eiNstakliNg myNdir þú Helst
vilja Hitta og af Hverju?
„Lindsay Lohan og spyrja hana hvað sé í gangi!“
Hefur þú ort ljóð?
„Já ég hef verið birtur og allt! En það var í gamla
daga.“
Nýlegt prakkarastrik?
„Ætli ég hafi ekki djókað eitthvað í Heiðu minni í
vinnunni. Annars er ég mjög spakur.“
Hvaða fræga eiNstakliNgi líkist þú mest?
„Kristín vinkona mín sagði að ég væri eins og Leon-
ardo DiCaprio en sko í myndinni What´s Eating Gil-
bert Grape!“
ertu með eiNHverja leyNda Hæfileika?
„Já, fullt. Ég er stoltur af því hvað ég er góður öku-
maður.“
á að leyfa öNNur vímuefNi eN áfeNgi?
„Nei, ég er ekki hlynntur því.“
Hver er uppáHaldsstaðuriNN þiNN?
„Í faðminum á mömmu minni.“
Hvað er það síðasta sem þú gerir áður eN þú
ferð að sofa?
„Horfi á þátt af Golden Girls.“
Hver er leið íslaNds út úr kreppuNNi?
„Jákvæðni og strit! “
Stefán Svan Aðalheiðarson er blaðamaður á nýja karla-
tímaritinu Dude Magazine. Hann fer annað slagið í megrun
og hækkar alltaf í útvarpinu þegar hann heyrir lagið Don‘t
Turn Around með Ace of Base. Stefán Svan vildi helst fara á
trúnó með Davíð Oddssyni eða Gísla Marteini.
elskar davíð
oddssoN
46 hin hliðin 2. júlí 2010 föstudagur
M
yn
D
ir
r
ó
b
er
t
re
yn
iS
SO
n
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
OXYTARM
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Allir dásama OXYTARM
Í boði eru 60-150 töflu skammtar
DETOX
30days&
Betri apótekin og Maður lifandi www.sologheilsa.is.
Losnið við hættulega kviðfitu og
komið maganum í lag með því að
nota náttúrulyfin Oxytarm og
30 days saman -120 töflu skammtur -
Vesturvör 30c, Sími 575-1500
Ferð á Kársnesið borgar sig!
www.kvikkfix.issko
ðaðu!
Smyrjum á
nn fyrir
sanngjar
nt verð
Yaris 1,3 árg. 2001 Kr. 4.700
Mazda 3 2,0 árg. 2005 Kr. 5.900
Astra 1,8 árg. 2006 Kr. 5.300
Innifalið í verði er vinna, olía, olíusía,
kaffi og vöfflur með sultu og rjóma.
Ummm.
komdu í áskrift!
512 70 80
dv.is/askrift
frjálst, óháð dagblað