Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2010, Blaðsíða 48
„Minn uppáhaldslitur er galla-
buxnablár. Hann er svo sumarleg-
ur og æðislegur og passar við allt,“
segir Ingibjörg Egilsdóttir fyrirsæta
sem starfar fyrir tískugúrúinn Karl
Berndsen en Kalli hefur hafið inn-
flutning á vinælum vörum frá Lon-
don. „Þessar vörur heita Nails Inc
og eru nagla- og handalína og hafa
það fram yfir önnur merki að bjóða
upp á mjög mikið litaval,“ segir Ingi-
björg og bætir við að „france mani-
cure“ sé ekki lengur málið. „Það er
algjörlega búið. Í dag eru það lit-
ir, litir og aftur litir! Bæði á nöglum
fingra og tása.“
Ýmsar stórstjörnur eru kennd-
ar við naglalökk Nails Inc, eins og
Lady Gaga, Rihanna, Íslandsvinkon-
an Mel B, Mariah Carey og Britney
Spears. „Þær hafa allar valið sér lit til
að bera á tónleikaferðalögum og lit-
irnir eru kenndir við þessi stóru nöfn.
Lady Gaga notar hvítt og matt lakk
og Rihanna ljósgrátt. Þessi lökk eru
rosalega vinsæl sem og lakkið Jer-
myn Street sem er hvað vinsælast en
það er beisgrátt.“
Auk naglalakka eru einnig augn-
hár í nýju línunni. Sjálf segist Ingi-
björg óhrædd við að nota gerviaugn-
hár. „Ég nota þau mikið þegar ég fer
fínt. Margar konur halda að það sé
eitthvað erfitt að nota augnhár en
ef þú færð réttu kennsluna frá upp-
hafi er þetta bara eins og að setja á
sig varalit.“
Karl Berndsen tískufrömuður flytur inn naglalökk stjarnanna:
flytur inn litrík naglalökk
RauðhæRð-
aR stunda
mest kynlíf
Í þýskri rannsókn kom í ljós að
rauðhærðar konur eru virkari en
aðrar konur þegar kemur að ástar-
leikjum. „Ljóshærðar konur skemmta
sér kannski best en það eru þær
rauðhærðu sem stunda mest kynlíf,“
segir Christine Baumanns, höfundur
könnunarinnar. Í rannsókninni
kom einnig fram að þær konur sem
höfðu litað á sér hárið rautt voru
venjulega í makaleit. „Ástæðuna
er ekkert endilega að finna hjá
konunum sjálfum. Rauði liturinn
er litur ástríðunnar og margir
karlmenn telja að rauðhærðar konur
séu ekkert að gaufa við hlutina
heldur komi sér beint að verki,“ segir
Baumanns.
ÞRiðja hveR
feikaR Það
Þriðja hver kona feikar að fá það
reglulega, samkvæmt nýlegri
breskri könnun. Þar kemur fram
að meðalkonan stundar kynlíf
99 sinnum á ári en í 34 skipti
endar ástarleikurinn ekki á full-
nægingu fyrir hana. Konur eru
sannfærðar um eigin leiklistar-
hæfileika því um 90% þeirra eru
vissar um að makinn geti ekki
gert greinarmun á milli þess
þegar þær fá það raunverulega
eða feika það. Fullnægingar-
leysið virðist þó taka sinn toll en
rúmlega 20% segjast hafa minni
áhuga á kynlífi fyrir vikið. Sami
fjöldi viðurkennir að þær hugsi
um aðra menn á meðan á ást-
arleiknum stendur í von um að
æsast meira. Hins vegar segjast
yfir 80% frekar velja góðan mann
sem sé lélegur rekkjunautur en
villtan fola sem veiti þeim enga
athygli.
48 lífsstíll umsjón: indíana ása hreinsdóttir indiana@dv.is 2. júlí 2010 föstudagur
17 meRki Þess
að Þið séuð
ekki paR
1. Þið hittist aldrei
fyrir klukkan 22.
2. Þið hafið farið
út saman en aldrei
út að borða, bara til
að fá ykkur í glas.
3. Þú veist ekki
fullt nafn hans, eða
hvar hann á heima.
4. Eini staðurinn þar sem þið eruð
ein er uppi í rúmi.
5. Þú hefur alltaf samband að fyrra
bragði, nema þegar hann hringir
seint um kvöld.
6. Þið sofið saman en hafið aldrei
sofið hlið við hlið.
7. Þið fáið ykkur aldrei morgunmat
saman.
8. Það er minna en vika síðan þið
hittust.
9. Það er liðin meira en vika síðan
þú heyrðir í honum.
10. Hann læðist út um miðjar nætur
án þess að kveðja.
11. Einu samskipti ykkar eru í gegn-
um SMS.
12. Öll deitin ykkar hafa farið fram í
gegnum Skype.
13. Hann skilur eftir seðlabúnt á
náttborðinu þínu.
14. Þegar þú biður hann um að vera
lengur getur hann það ekki því hann
á stefnumót.
15. Þið kaupið ykkur drykki í hvort
í sínu lagi.
16. Hann veit ekki hvernig kaffi þú
drekkur.
17. Hann er giftur.
Falleg Ingibjörg er fyrirsæta og starfar
einnig fyrir tískugúrúinn Karl Berndsen.
Hennar uppáhaldslitur er gallabuxna-
blár.
Sminkan og fyrrverandi þulan anna rún Frímannsdóttir eignaðist sitt þriðja barn
fyrir mánuði. Anna Rún nýtur þess að vera í fæðingarorlofi í góða veðrinu og fer dag-
lega í langa göngutúra með barnavagninn.
Þriðja meðgangan
sú lengsta
„Það er dásamlegt að vera í fæðing-
arorlofi yfir sumartímann, ég gæti
ekki beðið um betri tíma,“ segir Anna
Rún Frímannsdóttir, sminka og fyrr-
verandi þula, en hún eignaðist lítinn
dreng þann 25. maí. Anna Rún hefur
verið dugleg að nýta sér góða veðr-
ið það sem af er sumri. „Ég finn mik-
inn mun að eiga á þessum árstíma
en stelpan mín fæddist í lok desem-
ber og því leið dágóður tími áður en
ég fór að fara með hana út í vagnin-
um því ekki rýkur maður með nýfætt
barn út í frostið. Núna fer ég hins
vegar daglega í langa göngutúra með
barnavagninn sem er alveg yndis-
legt.“
nafnið leyndó
Anna Rún átti tvö börn fyrir, Daníel
Huga sem verður níu ára í vikunni
og Birtu Dís sem er fimm ára. „Þau
þurftu að bíða dálítið eftir litla bróð-
ur þar sem ég gekk tvær vikur fram
yfir og undir lokin voru þau því orðin
ansi óþreyjufull, greyin. En þau eru
alveg að springa af stolti, eru mjög
góð við hann og dugleg bæði tvö að
hjálpa til,“ segir hún og bætir við að
sá nýfæddi hafi ekki enn fengið nafn.
„Nafnið er nokkurn veginn ákveð-
ið og við erum svona þessa dagana
að máta það við hann. Það er erfitt
að finna skírnardag svona yfir sum-
artímann þegar allir eru í fríi hér og
þar svo hann verður örugglega ekki
skírður fyrr en í ágúst,“ segir hún en
bætir við að þau passi sig vel á því að
missa ekki nafnið óvart út úr sér. „Ég
er svo gamaldags að því leytinu og vil
alls ekki að nafnið spyrjist út fyrr en í
skírninni. Þangað til höldum við því
út af fyrir okkur.“
Anna Rún segir meðgönguna
hafa gengið eins og í sögu. „Það má
kannski segja að það erfiðasta hafi
verið að ganga svona lengi með en
ég var orðin ansi spennt undir lokin
enda bjóst ég við að eiga nær settum
degi. Eldri strákurinn kom í heim-
inn tveimur dögum fyrir settan dag
og með stelpuna gekk ég fjóra daga
fram yfir. Það er því ansi öfugsnúið
að þriðja meðgangan hafi verið sú
lengsta,“ segir hún hlæjandi og bætir
við að sá stutti sé mjög vær og góð-
ur. „Hann bara drekkur og sefur eftir
pöntun. Algjört draumabarn. Maður
gæti ekki verið heppnari.“
Barnasprengja á rÚV
Anna Rún starfaði sem þula þar til
í apríl þegar starfið var svo eftir-
minnilega lagt niður. Aðspurð hvað
hún ætli að leggja fyrir sig eftir fæð-
ingarorlof segist hún ekki hafa mikl-
ar áhyggjur af framtíðinni. „Ég vinn
enn hjá RÚV þó ég sé hætt í þul-
unni en ég hef unnið í sminkinu þar
í rúm þrjú ár. Einnig er ég sjálfstætt
starfandi í faginu og ég mun örugg-
lega halda áfram að taka að mér
skemmtileg verkefni eftir fæðingar-
orlofið. Það er voða gott að stjórna
vinnutímanum þegar maður er
með lítið barn. Þegar prinsinn minn
verður svo nógu stór til að fara á leik-
skóla finn ég mér eitthvað spenn-
andi að gera,“ segir hún.
Tvær aðrar þulur voru einnig
barnshafandi á síðustu metrunum
í starfinu, þær Katrín Brynja Her-
mannsdóttir og Matthildur Magnús-
dóttir, og Anna Rún segir stelpurnar
duglegar að halda sambandinu. „Við
þulurnar og sminkurnar erum sam-
an í saumaklúbbi og hittumst reglu-
lega, þær voru til dæmis nokkrar hjá
mér í löns um daginn. Katrín Brynja
eignaðist strák í febrúar og Matthild-
ur á von á sér í lok júlí. Ég held að
það hafi sjaldan verið jafn margar
RÚV-stelpur barnshafandi á sama
tíma og stefnum við að því að hafa
okkar eigin mömmuklúbb þegar all-
ar eru búnar að eiga,“ segir hún að
lokum. indiana@dv.is
Ég held að það hafi sjaldan verið
jafnmargar RÚV-stelp-
ur barnshafandi á sama
tíma og stefnum við að
því að hafa okkar eigin
mömmuklúbb þegar all-
ar eru búnar að eiga.
Fór tvær vikur fram yfir Anna Rún
átti tvö börn fyrir, Daníel Huga sem
verður níu ára í vikunni og Birtu Dís
sem er fimm ára. með þann stutta
gekk hún tvær vikur fram yfir og
voru eldri systkinin orðin ansi
óþreyjufull.
Jermyn street Ingibjörg segir gallabuxnabláalitinn í uppáhaldi.