Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2010, Page 53
föstudagur 2. júlí 2010 úttekt 53
Mannréttindi fyrir alla
„Ég er þakklátur og ánægður í hjart-
anu yfir því að þetta skuli vera komið
í gegn,“ segir Guðbergur Garðarsson,
betur þekktur sem annar helmingur-
inn af Begga og Pacas, um nýju hjú-
skaparlögin. „Fyrst og fremst finnst
mér þetta frábært hvað varðar mann-
réttindi fyrir allt mannkyn, burtséð frá
því hvort þau mannréttindi tengjast
samkynhneigð eða ekki. Lögin þýða
réttlæti fyrir alla til að geta lifað í kær-
leikanum. Orðið gifting þýðir að gefa
og af hverju ættu ekki allir að mega
gefa hver öðrum kærleika, sama af
hvaða kyni?“ segir hann og bætir við
að hann hafi ekki fundið fyrir neinum
mótbyr í samfélaginu. „Samfélagið
tekur vel í þetta og mér finnst eins og
þetta hafi bara alltaf átt að vera svona.
Margt af því sem við teljum að séu for-
dómar er stundum bara fáfræði.“
Beggi og Pacas eru ógiftir og Beggi
segir ekkert slíkt á döfinni. „Við erum
svo ofboðslega hamingjusamir í hjart-
anu og líður svo vel saman. Hins veg-
ar hefur þetta áhrif og maður veit
aldrei. Áður en þessi lög tóku gildi
var ég ekkert að hugsa um giftingu,
en hver veit?“ segir hann en þeir Pa-
cas hafa verið saman í átta ár og eru
enn þá jafn ástfangnir og í upphafi
sambandsins. „Eftir allan þennan
tíma er það alveg ótrúlegt,“ segir hann
hlæjandi og bætir við að leyndarmál
þeirra sé gagnkvæm virðing, kær-
leikur og ást. „Það er það sem skipt-
ir máli sem og að lifa í deginum í dag.
Gærdagurinn er búinn, um morgun-
daginn vitum við ekki hvar við mun-
um standa. Lifum í núinu í kærleik og
njótum þess.“
Líður vel saman Beggi og
Pacas eru ekki á leiðinni upp
að altarinu en Beggi segir að
aldrei eigi að segja aldrei.
„Að mínu mati er hjónaband
fyrst og fremst samningur um
ákveðin réttindi,“ segir Bergþór
Pálsson söngvari en bætir við að
með staðfastri samvist hafi þessi
réttindi löngu verið tryggð. „Það
skýtur skökku við að meina presti
með lögum að gefa þá saman sem
vilja eigast, en að sama skapi er
heldur ekki hægt að þvinga prest
til verks, sem honum finnst ganga
í berhögg við sína trú. Mér finnst
þetta góð lausn en þær hug-
myndir að kirkjan hætti að gefa
fólk saman hafa líka komið fram,
líkt og gert er t.d. í Þýskalandi,
þar sem allir fara til borgardóm-
ara eða sýslumanns til að gifta sig
en geta svo farið í kirkju og feng-
ið blessun yfir sambandið. Það
hefði ef til vill verið auðveldari
lausn en þessi er ágæt líka,“ seg-
ir Bergþór sem er hreykinn af ís-
lensku þjóðinni. „Við tökum oft
ótrúlega vel við okkur. Stundum
er sagt að það sé ókostur, þeg-
ar við förum og kaupum okkur
öll það sama á sama tímanum.
Svona eins og með fótanuddtæk-
ið. Í þjóðinni er sterk réttlætis-
kennd í grunninn og þegar okk-
ur finnst réttlætið verða fram að
ganga getur ekkert stoppað okk-
ur,“ segir hann og bætir við að
svo virðist sem kirkjunnar menn
standi líka flestir á bak við lögin.
Bergþór er í sambúð með Al-
berti Eiríkssyni. Hann er bjart-
sýnn á að þeir séu á leið upp að
altarinu. „Ég veit ekki hvar og
hvenær en það hlýtur að koma
að því. Við erum búnir að vera
saman í tólf ár,“ segir hann og
hlær þegar hann er spurður hvort
hann sé að bíða eftir bónorðinu.
„Ætli það sé ekki frekar einhvers
konar tilfinning og samkomulag
sem gerir það að verkum að okk-
ar hjónaband verður að veruleika
frekar en að einhver fari niður á
hnén.“
Bergþór Pálsson söngvari hefur verið í sambúð með Al-
berti Eiríkssyni í tólf ár og segir hjónaband fyrst og fremst
samning um ákveðin réttindi.
Beggi og Pacas hafa verið saman í átta ár og eru alltaf jafn ást-
fangnir. Beggi segir gagnkvæma virðingu, kærleik og ást leynd-
armálið.
Gifting þýðir að gefa
Bjartsýnn á brúðkaup Bergþór Pálsson segir að tilfinning og samkomulag á milli þeirra Alberts ráði því frekar ef
hjónaband þeirra verður að veruleika en að einhver fari niður á hnén.
Hreykinn af
íslensku þjóðinni
Kristín Þórisdóttir og Ína Björk Hannesdóttir eiga þrjú
börn og hafa verið í staðfestri sambúð í sjö ár.
Aldrei að vita nema
ég biðji hennar
Flott fjölskylda Ína Björk, Kristín, Þórir Sólbjartur og Laufey Ebba. Á
myndina vantar Ellert Orra.
í átta ár. Ína hefur dvalið er-
lendis upp á síðkastið þannig
að þær hafa ekki náð að fagna
þessum áfanga saman og að-
spurð segist Kidda ekki vita
hvort þær ætli að breyta sinni
staðföstu sambúð í hjóna-
band. „Við vorum búnar að
vera saman í eitt ár þegar við
giftum okkur svo það var smá
Hollywood-bragur á þessu hjá
okkur. Varðandi hjónaband
höfum við bara ekki fengið
tíma til að ræða málin en það
er aldrei að vita nema ég biðji
hennar,“ segir hún hlæjandi en
bætir svo við: „Við sem búum
á Íslandi erum svo heppin og
það gerir maður sér best grein
fyrir þegar maður ræðir við þá
sem hafa alltaf þurft að berjast
fyrir tilverurétti sínum. Þegar
ég kom út úr skápnum á sín-
um tíma fannst mér ég þurfa
að velja á milii þess eða fjöl-
skyldulífs en í dag vakna ég
á hverjum morgni þakklát
og hugsa: Vá! Ég er samkyn-
hneigð kona í sambandi með
manneskjunni sem ég vil deila
lífinu með og saman eigum
við börn. Lífið gæti ekki verið
mikið betra.“