Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2010, Blaðsíða 54
54 umsjón: TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON tomas@dv.is 2. júlí 2010 föstudagur
„Fólk hélt að ég kynni ekkert að
þjálfa,“ sagði hin lifandi goðsögn, Di-
ego Armando Maradona, eftir að
strákarnir hans í argentínska liðinu
tryggðu sér farseðilinn í átta liða úr-
slit HM með 3-1 sigri á Mexíkó. Það er
ekki að ástæðulausu að menn héldu
að Maradona kynni ekkert að þjálfa.
Árangur hans var vægast sagt dapur
áður en kom að heimsmeistaramót-
inu. Maradona er trúaður og hjátrúar-
fullur en hann tekur alltaf sömu rútín-
una fyrir alla leiki. Argentína á stórleik
gegn Þýskalandi á laugardaginn en
Maradona þarf aðeins að vinna þrjá
leiki til viðbótar til að komast í hóp
mætra manna sem hafa unnið HM,
bæði sem leikmenn og þjálfarar.
Komst inn með naumindum
Það er ekki að ástæðulausu að menn
sögðu fyrir HM að Maradona gæti
ekki þjálfað. Hann hefur verið meira
en lítið umdeildur í starfi landsliðs-
þjálfara síðan hann tók við og notast
við yfir hundrað leikmenn á stuttum
ferli sínum sem þjálfari. Argentína
rétt svo komst á HM með sigri á Úr-
úgvæ í hreinum úrslitaleik um fjórða
sætið í undankeppni Suður-Ameríku,
síðasta sætinu sem gaf farseðil beint
á HM. Á undan því hafði liðið rétt svo
marið Perú með ólöglegu marki.
Maradona reyndi fyrir fyrir sér í
þjálfun árið 1994 þegar hann tók við
argentínska liðinu Mandiyú de Cor-
rientes ásamt félaga sínum, Carlos
Fren, en þeir voru samherjar hjá Arg-
entinos Juniors í gamla daga. Þeir fé-
lagar stöldruðu ekki lengi við og tóku
nokkrum mánuðum síðar við Racing
Club. Það fór heldur ekki vel og lauk
því þálfaraferli Maradona snögglega.
Skúrkar í gær – hetjur í dag
Þó argentínska liðið beri ekki þess
merki að vera best skipulagða liðið
en það best þjálfaða í orðsins fyllstu
merkingu er engin spurning um
hvaða áhrif Maradona hefur á liðið.
Hann kyssir þá og knúsar, segir þeim
statt og stöðugt að þeir séu bestir og
ber þjóðarstoltið í þá. Maradona nýt-
ur hverrar einustu mínútu á HM og
hefur látið blaðamennina heyra það,
sömu menn og létu liðið ekki í friði
fyrir nokkrum vikum.
„Margir blaðamenn ættu að biðja
leikmennina mína afsökunar,“ sagði
hann á blaðamannafundi eftir síð-
asta leikinn í riðlakeppninni en Arg-
entína fór í gegnum B-riðilinn með
fullt hús stiga. „Ég er ekkert að biðja
neinn um að girða niður um sig en
það væri heiðarlegasti hluturinn að
gera. Þannig gætum við allir náð bet-
ur saman,“ sagði Maradona.
„Ég er að verða fimmtugur og ég er
ekkert bitur maður. Ég verð samt pirr-
aður þegar fólk virðir ekki leikmenn
mína. Það er ekki auðvelt að fara úr
því að vera núll og nix heima fyrir í
það að vinna þrjá leiki á heimsmeist-
aramóti. Á meðan við
vorum að æfa fyrir HM
sögðuð þið allir að við
værum glataðir - versta
lið sem Argentína hafi
nokkurn tíma séð,“ sagði
Maradona og bætti við:
„Nú allt í einu erum
við orðnir frábært lið og
myndarlegustu strák-
arnir í hverfinu. En það
er ekki einu sinni satt.
Við verðum að halda
áfram að berjast því að
mínu mati eru hin liðin
enn líklegri til að vinna
en við. Þegar maður
vinnur leiki er mikil-
vægt að missa sig ekki. Ef
maður tekur bara einn
leik fyrir einu og heldur
fullu sjálfstrausti þá get-
ur maður farið langt.“
Hjátrúarfullur
Maradona er strangtrú-
aður þó hann hafi ekki
alltaf fylgt helstu fyrir-
mælum Guðs almáttugs.
Hann hefur eins og all-
ir vita verið duglegur við
fíkniefnaneyslu, reyking-
ar og drykkju. Maradona
hefur þó ekki verið til neinna vand-
ræða hvað það varðar á HM til þessa
en eitt hefur vakið athygli nokkurra
fjölmiðla. Hjátrúin. Ítalska íþrótta-
blaðið La Gazetta dello Sport gerði
ítarlega grein um hjátrú kappans en
ítalskur blaðamaður hefur fylgst náið
með honum.
Rútínan hefst eftir liðsræðuna á
hótelinu, rétt áður en allir stökkva
upp í rútu og halda á leikstað. Þá byrj-
ar Maradona að syngja í rútunni. Þeg-
ar komið er á leikstað gengur hann
alltaf hringinn í kringum völlinn fyrir
utan hliðarlínuna. Hann tekur síðan
myndir af sér með hverjum og einum
úr fylgdarliði Argentínu áður en hann
heilsar upp á stuðningsmenn argent-
ínska liðsins. Hann hringir síðan allt-
af í dætur sínar, Dölmu og Gianninu,
sem eru upp í stúku en þau símtöl eru
oftast í beinni útsendingu.
Hann endar síðan alltaf á því að
senda kærustunni sinni, Veronicu
Ojeda, fingurkoss í gegnum sjón-
varps vélarnar. Áður en leikurinn hefst
grípur hann svo fast um talnabandið
sem hann heldur á í vinstri hendinni
og sleppir því ekki fyrr en að leik lokn-
um.
Það sem blaðið hefur svo heimild-
ir fyrir er að þegar Maradona heldur
aftur til búningsklefa er honum rétt,
alltaf á sama tíma, afrit af forsíðu eins
argentínska dagblaðsins þar sem ver-
ið er að fagna heimsmeistaratitlinum
sem Argentína vann árið 1986.
næstuleikir
8 liða úrslit
2. júlí - 14:00:
Holland - Brasilía
n Tvö af allra skemmtilegustu
fótboltaliðum sögunnar eru nú
orðin varnarsinnuð, skipulögð og
sækja á fáum
mönnum.
Það er hreint
ótrúlegt að
hugsa til þess
að Holland og
Brasilía séu
orðin lið sem
erfitt er að
brjóta niður.
Bæði lið hafa
verið afar sannfærandi á mótinu
til þessa en Brassarnir þó heldur
sterkari. Í báðum liðum eru margir
leikmenn sem geta gert ótrúlega
hluti og er því vonandi að þetta
verði veisla en ekki leiðindi. Bæði lið
geta stillt upp sínu sterkasta liði, en
Elano hjá Brasilíu er þó meiddur. Lið-
in hafa mæst níu sinnum í landsleik,
Brassar unnið þrisvar, Hollendingar
tvisvar og fjögur jafntefli hafa liðin
gert.
2. júlí - 18:30:
úrúgvæ - gHana
n Bæði lið gátu ekki fengið betri
mótherja og eiga þau jafngóða
möguleika á að komast alla leið í
undanúrslitin.
Öll Afríka
stendur með
Ghana en
það var eina
Afríkuliðið
sem komst
í útsláttar-
keppnina. Úr-
úgvæjar hafa
verið frábærir
hingað til og aðeins fengið á sig eitt
mark. Ghana aftur á móti spilar mjög
skipulagðan leik og er beitt fram á
við. Asamoah Gyan, þriggja marka
maður á Hm, verður með og líklega
Kevin-Prince Boateng líka, sem eru
góðar fréttir fyrir Ghana.
3. júlí - 14:00:
argentína - Þýskaland
n stórleikur átta liða úrslitanna án
nokkurs vafa. Þarna mætast þau tvö
lið sem hafa skemmt áhorfendum
hvað mest.
Þau hugsa
minna um
að verjast og
eru í raun alls
ekkert frábær
í því. Aftur
á móti spila
þau leiftrandi
sóknarbolta
og hefur þessi
leikur alla burði til að verða sá allra,
allra besti á mótinu. Lionel messi
verður hungraður í að skora þar sem
honum hefur ekki enn tekist það,
og verða varnarmenn Þjóðverja því
að passa sig. nú fá Argentínumenn
loksins alvöru mótspyrnu og verður
gaman að sjá hvernig maradona
ræður við hana hana.
3. júlí - 18:30:
Paragvæ - sPánn
n Paragvæjar hafa fengið alla þá
hvatningu sem þeir þurfa. Ein falleg-
asta kona heims, undirfatafyrirsætan
Larissa Riquelme, hefur lofað því að
hlaupa nakin
niður götur
Asuncion vinni
Paragvæ Hm.
Eigi sá draum-
ur að verða að
veruleika þurfa
Paragvæjar
að leggja
Evrópumeist-
ara spánar
sem hafa virkað meira og meira
sannfærandi með hverjum leiknum.
Leikur Paragvæ gegn japan var alls
ekki góður en hérna mætast tvær
þjóðir sem geta haldið boltanum
vel. spánn er miklu sigurstranglegri
en það er spurning um hversu mikið
Paragvæjar vilja sjá Larissu nakta.
Diego Armando Maradona hefur án efa
verið maðurinn á HM fram að þessu. Koss-
ar hans og einlæg fagnaðarlæti birtast á
myndum og í sjónvarpi daginn út og daginn
inn. Hann er loks að sanna að hann geti líka
þjálfað, en það er hjátrú þessa mikla snill-
ings sem hefur vakið einna mesta athygli.
Hjátrúarfullur
snillingur
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Engum líkur
maradona hefur
farið á kostum á
Hm til þessa.
Kossaflens maradona hefur verið duglegur að kyssa leikmenn sína.
Snillingar á snillinga ofan með mann eins og
messi í liðinu getur Argentína farið alla leið.