Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2010, Blaðsíða 62

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2010, Blaðsíða 62
Hinn magnaði trommuleik- ari hljómsveitarinnar Mínuss, Björn Stefánsson, komst inn í leiklistarskólann Teater Hold- berg í Danmörku. Björn ætti að eiga auðvelt með að slá í gegn í leiklistinni því hann hefur sýnt ótrúlega takta þegar hann hefur troðið upp í gervi Micks Jagger með ábreiðuhljómsveit sinni, Stónes. Þar hefur hann þótt ná Jagger jafnvel betur en Jagger sjálfur. Björn býr í Danmörku ásamt konu sinni og barni. Kærastan hans mun samkvæmt facebook-síðu sinni hafa landað draumavinnunni sinni og því augljóslega mikil hamingju hjá þeim hjúum.  Svokölluð Samkeppni Samúels, vef- rits sem byggir á grunni tímaritsins fræga með sama nafni, hefur verið hleypt af stokkunum. Um er að ræða módelkeppni og þegar þetta er skrif- að hafa sjö ungar konur verið kynnt- ar til leiks en stúlkurnar eru kynntar smátt og smátt til ágústloka. Ein af þessum sjö er Móeiður Skúladóttir sem á Samúelssíðunni er sögð vera stúlkan framan á um- töluðum fermingarbæklingi Smára- lindar frá árinu 2007. Ritstjóri Sam- úels staðfesti það við blaðamann DV í vikunni. Þegar bæklingurinn kom út héldu sumir því fram að stúlk- an væri í kynferðislegri stellingu, fremst í þeim flokki var Guðbjörg Hildur Kolbeins, kennari í fjölmiðla- fræði við Háskóla Íslands, á meðan aðrir sögðust vart hafa heyrt aðra eins vitleysu. Móeiður pósar einmitt á sama hátt á einni myndinni. Þeg- ar blaðamaður hafði svo samband við hana í vikunni sagði Móeiður það hins vegar ekki rétt að hún væri Smáralindarstúlkan umtalaða. Hún hefði setið fyrir í einhverjum auglýs- ingabæklingum Hagkaupa, en ekki hinum umtalaða fermingarbæklingi Smáralindar árið 2007. Samkeppni Samúels fer annars fram á Broadway í september og á meðal þess sem sigurvegarinn fær í verðlaun er ársafnot af nýrri bif- reið af tegundinni iQ, krýningarstól- inn Regínu og módelmyndatöku í „spennandi stórborg“. kristjanh@dv.is Ekki SmáralindarStúlkan BjöSSi í lEikliStar- Skóla Keppandi í SamKeppni SamúelS Sagður vera fermingarmódel SmáralindarbæKlingS: Vala Grand er í forsíðuviðtali nýjasta Monitors. Þar talar hún meðal annars um að hún vilji taka þátt í fegurðarsamkeppn- inni Ungfrú Ísland eftir að hafa gengist undir langþráða kynleið- réttingaraðgerð. Vala segist ætla sækja um þáttöku þegar hún er „ búin að láta setja júllur“ á sig. „Það yrði ótrúlega góð staðfest- ing á mínum réttindum ef ég fengi að taka þátt. Þá er ég búin að sanna allt og staðfesta fyrir sjálfri mér að ég er kona. Hvern- ig gætu þeir sagt að ég sé ekki kona þegar ég er komin með píku? Ef það verður eitthvað kjaftæði, þá verða vandræði og vesen, ég er ekki að grínast.“ Vala í Ungfrú íSland 62 fólkið 2. júlí 2010 föstudagur Móeiður Í hálfgerðri fermingarstellingu a la Smáralindarbæklingurinn. Smáralindarbæklingur Fermingarbæklingurinn frægi sem miklar umræður spunnust um árið 2007. „Þessi mynd var öll skrifuð og tekin fyrir hrunið, fyrir utan einhver nokk- ur stúdíóatriði og fleira smálegt. Þá gerðist þetta hrun og mótmælin hóf- ust og við vorum bara vá! Þetta datt bara í hendurnar á okkur fyrir sögu- þráðinn í myndinni,“ segir Darri Ing- ólfsson sem bæði leikur aðalhlut- verkið og er einn meðframleiðenda nýrrar íslenskrar kvikmyndar sem heitir Boðberinn. Myndin verður frumsýnd næsta miðvikudag og segir frá því þegar pípulagningamaðurinn Páll fer að fá ákveðnar sýnir, eða vitranir. „Pál langar að verða listmálari og er að reyna að komast inn í Listaháskól- ann,“ segir Darri um karakterinn sem hann leikur. „Svo fer hann að fá þessar vitranir um að það sé eitthvað samsæri í gangi hjá yfirstéttinni, peningamönnunum og stjórnmála- mönnunum, sem hrindir af stað at- burðarás sem veldur smá kaosi.“ Darri kveðst ekki geta neitað því að smá spádóm um það sem seinna gerðist megi finna í söguþræðinum. „Það eru líka fleiri litlir hlutir, fleiri svona hliðstæður, sem gera þetta ennþá skrítnara. Til dæmis leikur Þráinn Bertelsson pólitíkus hjá okk- ur, og svo varð hann pólitíkus. En flestir þeirra sem eru með sæmilega opin augun voru nú samt farnir að sjá eitthvað af þessu fyrir, áður en allt skall á er það ekki? Það voru viðvör- unarljós hér og þar, til dæmis allar þessar einkaþotur á Reykjavíkurflug- velli,“ segir Darri og hlær. Hjálmar Einarsson heitir leik- stjóri og handritshöfundur Boðbera. Darri segist ekki vita hvort hann sé með einhvers konar spádómsgáfu. „En hann er alla vega eitthvað skrít- inn,“ segir Darri í léttum dúr. Á meðal annarra leikara í myndinni má nefna Ísgerði Elfu Gunnarsdóttur, Pétur Einarsson, Jón Pál Eyjólfsson, Magn- ús Jónsson, Móeiði Júníusdóttur og Gunnar Eyjólfsson. Þá er nokkuð um stórtækar tæknibrellur, meðal ann- ars er Alþingishúsið sprengt, og er maðurinn á bak við þær Þórður Karl Einarsson. Í kjölfar þess að Páll fer að fá áður- nefndar vitranir tekur hann til sinna ráða. Í stiklu myndarinnar, eða „trai- ler“, sést hann skjóta mann og annan úr íslensku yfirstéttinni með skotum sem innihalda blóðeitrandi glerbrot og mannaskít. Þeir sem ekki hafa séð sjónvarpsþættina Mannaveiðar og vilja ekki láta ljóstra upp fyrir sér hver morðinginn þar var ættu ekki að lesa lengra. En þeir sem sáu þættina muna kannski eftir Darra sem morð- ingjanum þar. Darri hlær við þegar blaðamaður spyr hvers vegna hann sé sískjótandi fólk í sjónvarps- og kvikmyndahlutverkum sínum. „Ég veit ekki hvernig stendur á þessu. Ég sem er ótrúlega kammó gaur! Ég hef líka verið að leika mik- ið úti í London eftir að ég útskrifaðist úr leiklistarskóla þar og þá hef ég líka fengið hlutverk einhverra nettra sós- íópata,“ segir Darri, afar undrandi. Hann bætir við að hann sé ennþá að bíða eftir hlutverki í rómantískri gamanmynd. „Ég er viss um að ég yrði pottþéttur í svoleiðis hlutverki!“ Hjálmar leikstjóri lærði í Tékk- landi þar sem hann vann svo við gerð auglýsinga og tónlistarmyndbanda auk þess að gera stuttmyndir. „Þetta er fyrsta stóra verkefnið hans, fyrsta myndin alla vega í fullri lengd,“ seg- ir Darri. „Hann hefur lagt alveg óg- urlega vinnu í myndina síðustu tvö og hálft ár og á heiður og verðlaun skilið fyrir að koma þessari mynd til skila með því litla fé sem hann hafði á milli handanna.“ kristjanh@dv.is boðberi heitir ný, íslensk kvikmynd sem frumsýnd verður í næstu viku. Hún segir frá manni sem fer að fá vitranir um spillingu á meðal íslenskra peningamanna og pólitíkusa og tekur í framhaldinu málin í sínar hendur. myndin var nánast öll tekin fyrir hrun. lEikUr alltaf SóSíópata Ný, ísleNsk myNd frumsýNd: Hjálmar Einarsson Er leikstjóri og handritshöfundur myndarinnar en þetta er hans fyrsta kvikmynd í fullri lengd. Darri Ingólfsson Leikur pípar- ann Pál sem fer að fá vitranir um spillingu yfirstéttarinnar. Hann tekur í kjölfarið til sinna ráða.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.