Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2010, Page 8
PungsPörk
Friðbjarnar Orra
n Vefsíðan AMX fer mikinn þessa
dagana gegn einum tilteknum óvini
síðunnar og heimastjórnararms
Sjálfstæðis-
flokksins. Mað-
urinn hefur ekki
verið skynsam-
ur í fjármálum
sínum síðast-
liðin ár og féll
nýlega dómur í
Hæstarétti þar
honum var synj-
að um greiðsluaðlögun með nokkuð
hörðum orðum. Enginn fjölmið-
ill hefur viljað snerta á þessu máli
þar sem um er að ræða mannlegan
harmleik. AMX fjallar hins vegar um
málið ítrekað og spyr meðal ann-
ars hver kaupi eiginlega þjónustu
af gjaldþrota ráðgjafa og sendir þar
með sneið til hans. Friðbjörn Orri
Ketilsson, AMX-maður, nýtir því
hvert tækifæri til að sparka í pung-
inn á manninum ógæfusama og er
það væntanlega gert í þeirri von að
maðurinn láti af andstöðu sinni við
heimastjórnarminn ellegar hljóti
hann enn verra af.
FOrmaður
lögmanna í stríði
n Formaður lögmannafélagsins,
Brynjar Níelsson, á þessa dagana í
stríði við Höllu Gunnarsdóttur, tals-
mann Femínistafélagsins. Brynjar
og Halla skiptast á að senda hvoru
öðru pillur í fjölmiðlum. Þrætuepli
þeirra er hvort réttarhöld yfir vænd-
iskaupendum eigi að vera lokuð eða
opin. Halla vill að réttarhöldin séu
opin en Brynjar, sem er verjandi í
málinu, vill það ekki. Þykir Brynj-
ar tala nokkuð niður til Höllu en á
hinn bóginn hefur Halla ekki farið
mjúkum höndum um Brynjar og
meðal annars talað um „hringavitl-
eysu“ hans. Á það hefur verið bent
af lögmönnum að ekki sé heppilegt
að formaður samtaka þeirra eigi í
slíkri orðræðu á opinberum vett-
vangi þar sem hætta sé á að lesend-
ur telji skoðanir hans vera skoðanir
Lögmannafélags Íslands.
lárus í leiFsstöð
n Lárusi Welding, fyrrverandi
bankastjóra Glitnis, sást bregða
fyrir í Leifsstöð á sunnudaginn var.
Glitnismaður-
inn var að koma
frá heimili sínu
í London þar
sem hann hefur
alið manninn
að mestu frá
bankahruninu
árið 2008. Ekki
er vitað í hvaða
erindagjörðum Lárus er hér á landi
og ómögulegt er að ná í hann eins
og flestir fjölmiðlamenn vita. Báð-
um farsímum hans hefur verið lok-
að. Lárus hefur farið því sem næst
huldu höfði síðastliðin tvö ár og ekki
gefið neinum fjölmiðlum færi á sér.
Þess vegna væri mikill akkur í því ef
einhver fjölmiðill næði honum í við-
tal til að spyrja hann spjörunum úr
en ljóst er að Lárus hefur ýmislegt á
samviskunni ef marka má samskipti
hans við Jón Ásgeir Jóhannesson
sem vitnað er til í nýlegum Glitnis-
stefnum.
sandkorn
8 fréttir 16. júlí 2010 föstudagur
Brúðkaups
gjafir
FU
RS
TY
N
JA
N
Söfnunarstell 13 teg. á lager - Pöntum inn í enn fleiri stell
Hnífaparatöskur
f/12m. 72 hlutir
margar
gerðir
Hitaföt - margar gerðir
Líttu á www.tk.is
FALLEGUR KRISTALL
K r i n g l u n n i - S í m i : 5 6 8 9 9 5 5
40
ára
Vörur á verði fyrir þig
Ótrúlegt glasaúrval á frábæru verði
Verum vinir á
AuglýsingAstjóri
í dAgskrárráðinu
Einar Logi Vignisson, auglýsinga-
stjóri RÚV, situr einnig í dagskrárráði
Rásar 2 og hefur þar nokkur áhrif
samkvæmt heimildum DV. Hið sama
á við um markaðsstjórann Þorstein
Þorsteinsson sem situr í dagskrárráði
Sjónvarpsins.
Fram til þessa hafa flestir fjöl-
miðlar lagt ríka áherslu á skilin milli
auglýsinga og dagskrár. Undanfarin
misseri hefur umræða um aðkeypt
efni þeirra farið vaxandi og kastljósið
einna helst beinst að útvarpsstöðv-
unum, þar með talið Rás 2, og dæg-
urmálaþáttum sjónvarpsstöðva, til
að mynda Íslandi í dag á Stöð 2. Dag-
skrárstjórar þeirra hafa keppst við að
hrinda frá sér fullyrðingum um að
hægt hafi verið að kaupa tíma und-
ir efni í dagskrá fjölmiðlanna. Það
hefur Sigrún Stefánsdóttir, dagskrár-
stjóri RÚV, meðal annars gert.
Gap á milli
Sigrún staðfestir þó að auglýsinga-
og markaðsmennirnir, Einar Logi
og Þorsteinn, sitji í dagskrárráðun-
um en vísar á bug gagnrýni á setu
þeirra þar. Hún segir þetta gert með
hagræðingu og tímasparnað í huga.
„Einar Logi situr í dagskrárráði sem
fulltrúi markaðsdeildar og það var ég
sjálf sem óskaði eftir því að þetta væri
svona. Verkefni hans er að fylgjast
með svo markaðsdeildin geti verið í
takt við það sem við erum að plana.
Þannig getur markaðsdeildin vitað
af því hvað er í gangi hjá okkur, til
að einfalda upplýsingaflæðið. Þetta
býður upp á eðlileg tjáskipti, styttri
boðleiðir og er eiginlega bara tíma-
sparnaður,“ segir Sigrún.
„Ef maður vill mála skrattann upp
á vegg þá ég skilið gagnrýnina en ég
óskaði sjálf eftir að þetta væri svona
því mér fannst þarna gap á milli og
að markaðsdeildin vissi ekki allt-
af hvað við værum að plana. Það er
alveg eins sjónvarpsmegin þar sem
Þorsteinn situr til að fylgjast með því
sama. Þetta er bara hagræðing fyrir
báða aðila. Ég stjórna dagskránni og
hef dagskrárráðið mér við hlið. Auð-
vitað gæti þetta haft þau áhrif að dag-
skrá kunni að stjórnast af auglýsing-
um en ég læt það ekki gerast.“
Dyr á veggnum
Þorgrími Gestssyni, formanni Holl-
vinasamtaka RÚV, líst illa á það fyr-
irkomulag að blanda svona sam-
an deildum auglýsinga og dagskrár.
Sjálfur kýs hann frekar togstreitu
þar á milli. „Sem gömlum hundi í
þessum bransa finnst mér þetta fyr-
irkomulag algjörlega fráleitt. Ég er
vanari að sjá frekar togstreitu þarna
á milli, á milli auglýsinga og ritstjór-
na. Þannig á það frekar að vera finnst
mér og þessu á ekki að blanda sam-
an,“ segir Þorgrímur.
Þorbjörn Broddason, prófessor í
fjölmiðlafræði við Háskóla Íslands,
telur sérkennilegt að auglýsinga-
deild sé boðið sæti í dagskrárráði.
Almennt segir hann miður hversu
mjög auglýsingar eru farnar að flétt-
ast inn í dagskrá fjölmiðla. „Að aug-
lýsingastjóri sitji í dagskrárráði tel
ég brot á þeirri grundvallarreglu að
auglýsingadeild komi ekki nálægt rit-
stjórnum. Þar á að vera brunaveggur
á milli þó svo að því miður virðist sá
veggur oft á tíðum vera hálf hruninn.
Það þarf ekki að hlusta lengi á flest-
ar útvarpsstöðvar til að heyra aug-
lýsingum troðið inn í ritstjórnarefni.
Það nær engri átt og er alveg afleitt.
Ef síðan beinlínis er tekin ákvörðun
um að auglýsingastjóri sitji í dag-
skrárráði er bara verið að setja falleg-
ar dyr á brunavegginn, með karmi og
öllu saman,“ segir Þorbjörn.
Einar Logi Vignisson, auglýsingastjóri RÚV, situr einnig í dagskrárráði Rásar 2.
Markaðsstjóri stofnunarinnar, Þorsteinn Þorteinsson, situr hins vegar í dagskrár-
ráði Sjónvarpsins.
trausti HaFstEiNssON
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Sigmar Guðmundsson, ritstjóri
Kastljóssins á RÚV, gagnrýndi í
viðtali við DV í mars hversu auð-
veldlega auglýsendum reynist að
kaupa sig inn í dagskrá fjölmiðla.
Talaði hann þar sérstaklega um Ís-
land í dag á Stöð 2 og Rás tvö og
fékk skammir fyrir frá yfirmönnum
RÚV. „Ísland í dag hefur markað sér
léttari stefnu og það hefur geng-
ið vel hjá þeim að fara þá leið. Við
viljum blanda saman fréttum, fróð-
leik og skemmtun en ekki breytast
í skemmtiþátt og því eru áherslur
okkar aðrar. Þess utan hefur maður
heyrt af, og tekið eftir, að auglýsend-
ur virðast geta keypt sig inn í Ísland
í dag. Fyrir stuttu var þar umfjöll-
un um eitthvert hraðþjónustufyrir-
tæki sem sendir páskaegg útí heim
og var öll umfjöllunin útbíuð í lógói
fyrirtækisins. Mér virtist þetta vera
hórerí af verstu sort og gegn þess-
ari þróun eiga allir fjölmiðlamenn
að berjast því þetta grefur undan
ritstjórnarlegu sjálfstæði miðlanna.
Ísland í dag er því miður ekki eina
dæmið um þetta, því Rás tvö hef-
ur tekið þátt í þessu. Og mér finnst
ljótt að heyra hórerí á Rás tvö eða
sjá það í Íslandi í dag því það geng-
isfellir annað efni, sem yfirleitt er
prýðilegt, hjá þessum miðlum. Með
þessu er auglýsingum laumað aftan
að áhorfendum, hlustendum eða
lesendum, sem standa í þeirri trú að
þeir séu að skoða efni sem byggir á
ritstjórnarlegri ákvörðun. Slíkt aug-
lýsingavændi kemur ekki til greina
í Kastljósi á meðan þessi hópur er
í þættinum því það á ekki að ráð-
ast á einhverri auglýsingadeild
hvert innihald fjölmiðla er. Það er
svo engin afsökun við þessu að fjöl-
miðlar séu blankir í kreppunni því ef
þeir geta ekki staðið vörð um svona
grundvallaratriði, hvernig er þeim
þá treystandi í öðrum og stærri sið-
ferðismálum?“ trausti@dv.is
Hórerí fjölmiðlanna
Auðvitað gæti þetta haft þau
áhrif að dagskrá kunni
að stjórnast af auglýs-
ingum en ég læt það
ekki gerast.
Brostinn eldveggur Þorbjörnsegiraf-
leitthversumjögauglýsingarerufarnar
aðblandastinnídagskrárefnifjölmiðla.
Hannsegirveruauglýsingastjóraí
dagskrárráðiopnadyráeldveggsem
ættiaðveratilstaðar.
Einfaldar boðleiðir Sigrúnsegistsjálfhafaóskaðeftirþvíaðmarkaðsmennirnir
sitjiídagskrárráðumhjáRÚVtilaðstyttaboðleiðirogsparatíma.Húngætirþessað
auglýsingarnarhafiekkiáhrifádagskrá.