Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2010, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2010, Blaðsíða 19
FÖSTUDAGUR 16. júlí 2010 FRÉTTIR 19 101 gæðastund suðrænir smáréttir – allir drykkir á hálfvirði frá kl. 17.00 til 19.00 alla daga hverfisgata 10 sími. 5800 101 101hotel@101hotel.is www.101hotel.is SELJA LÆKNINGU VIÐ MND OG KRABBAMEINI þá eru allar líkur á að meðferð- in muni hafa áhrif. Aldrei er lofað lækningu! Meðferðin felst þá í því að berja niður vírusinn og á sama tíma styrkja og upplýsa ónæmis- kerfið um vandamálið,“ segir á vef- síðunni. „Samt ná þeir að hjálpa“ Óson læknar ekki alla sjúkdóma að því er fram kemur á íslensku vefsíð- unni. Því er haldið fram að óson, þvagsprauturnar, þungmálma-, kandída- og silfurmeðferðir ráði við meirihluta ólæknandi og krón- ískra sjúkdóma. Mataræði og fé- lagslegt umhverfi skipti máli sem annaðhvort veiki eða styrki ein- staklinginn. „Óson-meðferð er freklegt inngrip í atburðarás sem við í mörgum tilvikum hefðum getað haft áhrif á sjálf, ef við hefð- um gert það í tíma. Mjög algengt er að fólk komi til William Hitt Center þegar allt annað er þrotið, og samt ná þeir að hjálpa þeim,“ er fullyrt á vefsíðunni. Á öðrum stað á vef- síðunni kemur þetta fram: „Þess má í lokin geta að Dr. William Hitt hefur einnig sett saman víruseyð- andi meðferð með hjálp Ósons og bólusettninga sem byggja á þvagi viðkomandi til að vinna bug á mörgum af þeim ólæknandi sjúk- dómum sem hrjá okkur mennina. Má þar helst nefna: Gigt, Lúpus, Herpes, Lifrabólgu C, MS, Sykur- sýki, Síþreytu, Ofnæmi, Astma, Krabbamein og fjölmarga aðra ónefnda sjúkdóma.“ Svar hjónanna „Sæll Jóhannes, Okkar reynsla af William Hitt Center er stórkostleg, bæði hvað okkur varðar og fjölda fólks sem við þekkjum og höfum hitt. Við vonum að þér gangi vel að afla upplýsinga frá þeim sjálfum, þú getur hringt í klinikið og beðið um Dr. Humison eða Dr. Hitt. Kveðja, Ólafur Einarsson og Björg Marteinsdóttir“ Í bréfi sem Guðjóni Sigurðssyni, for- manni MND félagsins, barst 21. júní þar sem Óson- og þvagspautumeð- ferðin er kynnt er hann hvattur til að kynna sér meðferðina. Í bréfinu er tekið sérstaklega fram að boðið sé upp á sérstaka meðferð fyrir MND sjúklinga, „...hún tekur tvær vikur og þeir segja að árangur hafi verið mjög góður,“ segir í bréfinu. Örvæntingarfull leit Guðjón sem greindist með MND eða hreyfitaugahrörnun árið 2004 segir að þetta sé í annað skipti sem þessi meðferð er kynnt fyrir hon- um. „Í fyrra skiptið var hringt í mig fyrir nokkrum árum og þá fór ég svo langt að skoða þetta alvarlega. Ég vildi hins vegar fá fullvissu fyr- ir því að ég myndi læknast, en ein- hver kona tók af skarið og dró til baka að MND sjúkdómurinn hefði verið læknaður á þessari stofnun í Mexíkó. Þetta var þegar ég var ný- greindur og þá var ég til í allt,“ segir Guðjón en einstaklingar sem grein- ast með langvinna eða ólæknandi sjúkdóma eru oft í örvæntingarfullri leit að lækningu. „Þeir sem grein- ast með MND og aðra ólæknandi sjúkdóma trúa því ekki að eitthvað sé ekki læknanlegt og leita alls stað- ar, á netinu og víðar. Þeir grípa í öll hálmsstrá sem í boði eru. Skynsem- in hjá fólki hverfur þegar slík tilboð um lækningu koma fram.“ Nýta sér neyð fólks Guðjón er formaður MND félags- ins á Íslandi og einnig formaður al- þjóðasamtaka MND félaga. Hann hefur heyrt margar sögur af ný- greindum MND sjúklingum sem hafa reynt ýmislegt í leit sinni að lækningu á sjúkdómnum. Hann gefur lítið fyrir mexíkósku stofn- unina. „Þetta er óþverri vegna þess að þarna notar fólk neyð einstakl- ingsins til að plokka af honum fé. Fólk hefur prófað ýmislegt og lát- ið glepjast af alls konar meðferðum sem eru byggðar á einhverju rugli,“ segir Guðjón en þegar hann var ný- greindur með MND leitaði hann sér óhefðbundinna lækninga. „Ég fór til einhverrar galdrakerlingar í Sviss sem sagðist vera í samstarfi við hátæknisjúkrahús þar í landi. Ferðin kostaði stórfé og var algjör- lega gagnslaus. Það kom svo í ljós að sjúkrahúsið var í engu samstarfi við þessa konu,“ segir Guðjón og held- ur áfram: „Ég fékk einhvern mjöð frá jurtalækni á Íslandi sem kostaði mig ekkert. En ég endaði hinsveg- ar á spítala með óstöðvandi niður- gang eftir að hafa drukkið mjöðinn.“ En Guðjón hefur einnig fengið boð frá svokölluðum Moonistum. „Þeir voru tilbúnir til að borga undir mig en lækningin fólst í bæn og ef það dugði ekki þá bað maður ekki nógu heitt. Ég fór aldrei í þá ferð.“ Skítalabbar í kjöllurum „Ég fékk upplýsingar um kínverskt töfralyf og átti bara eftir að panta fyrsta skammtinn. Ég bað hinsveg- ar íslenska sendiráðið í Peking að komast að því hvar spítalinn væri til húsa í borginni. Sendiráðið komst að því að heimilisfangið sem var gefið upp var ekki til og öll sam- skipti fóru í gegnum Kanada þar sem þrjótarnir voru staðsettir,“ segir Guðjón en upp á síðkastið hafa fjöl- margir boðið honum að taka þátt í stofnfrumumeðferðum. „Við nánari athugun eru þetta skítalabbar í enn skítugri kjöllurum sem vilja hafa af fólki fé.“ Peningaplokk Guðjón segist hafa orðið reiður þeg- ar honum var boðin þessi meðferð í seinna skiptið. „Þetta er bara pen- ingaplokk og það er verið að hafa fólk að fíflum. Ég vísaði málinu til landlæknis og lögreglustjóra í von um að þeir gætu gert eitthvað til að koma í veg fyrir svona starfsemi. Ég vil að þetta verði umsvifalaust bannað og viðkomandi kærðir fyrir glæpinn og látnir svara til saka eins og lög leyfa,“ segir Guðjón. Skrifaði bréfið Víðir Sigurðsson skrifaði bréfið til Guðjóns. Hann segist hafa trú á meðferðinni í Mexíkó og hann vilji opna fyrir umræðuna. „Ég er ekk- ert að lofa einhverri lækningu – ég er bara að benda á möguleika,“ seg- ir Víðir. Tengsl fjölmiðla og lyfjageirans Spurður hvers vegna engar fréttir hafi komið fram af góðum árangri stofnunarinnar í meðhöndlun sjúk- dóma sem eru ólæknandi svarar Víðir því þannig til að það séu tengsl á milli þeirra sem stjórna fjölmiðl- um í heiminum í dag og lyfjageir- ans. Þess vegna berist ekki fréttir af árangri stofnunarinnar. „Það eru svo gríðarlegir hagsmunir hjá lyfja- geiranum og hjá læknum að þeir vilja ekki opna fyrir þennan mögu- leika,“ segir Víðir sem að öðru leyti vildi ekki tjá sig um málið við DV. johanneskr@dv.is Formanni MND félagsins á Íslandi var boðið að kynna sér Óson- og þvagsprautu- meðferð í Mexíkó. Í bréfinu er sagt að árangur af meðferðinni gegn sjúkdómnum sé góður og kosti hún um hálfa milljón króna. Sá sem kynnti meðferðina fyrir Guðjóni segist hafa trú á henni. Þetta er óþverri vegna þess að þarna notar fólk neyð einstaklingsins til að plokka af honum fé. Fólk hefur prófað ýmis- legt og látið glepjast af alls konar meðferð- um sem eru byggðar á einhverju rugli. „Þetta er bara pen- ingaplokk“ Vill banna starfsemina Guðjón Sigurðsson, formaður MND félagsins og alþjóðasamtaka MND félaga, vill að meðferðin í Mexíkó verði bönnuð. Hann hefur sent erindi til Landlæknis og lögreglustjórans í Reykjavík. MYND SIGTRYGGUR hverjum og einum einstaklingi að velta því fyrir sér hvort það sé líklegt að raunveruleg lækning hafi fund- ist við alnæmi. Ef það væri raunin myndi ég segja að nóbelsverðlaun- in væru handan við hornið. Í mínum augum dæma svona yfirlýsingar sig sjálfar.“ Ákvörðun einstaklinga „Að mínu mati á MND félagið sjálft að vekja athygli á þessu og koma þeim skilaboðum til félagsmanna að þessi meðferð sé ekki kynnt með stuðningi félagsins. Félagið ætti að hvetja félagsmenn til að íhuga slík tilboð vel áður en þeir taka ákvörðun um að taka þátt í slíku. Að lokum er það einstaklingurinn sjálfur sem tek- ur ákvörðun,“ segir Geir. johanneskr@dv.is Landlæknir skoðar nú starfsemi mexíkósku stofnunarinnar og setur spurningamerki við trúverðugleikann: Trúir ekki á kraftaverkalækningar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.