Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2010, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2010, Blaðsíða 44
GRIMMLYNDA LÉNSFRÚIN Darya Nikolayevna Saltykova var rússneskt morðkvendi af aðalsstétt. Hún varð alræmd um miðja átjándu öld fyrir að pynta og myrða yfir eitt hundrað undirsáta sinna. Fórnarlömb hennar voru að stærstum hluta konur og stúlkur. Darya Nikolayevna Saltykova komst inn í rússnesku aðalsstéttina með því að giftast, ung að árum, Gleb Saltykov, foringja af afar góð- um ættum. En hjónaband Daryu, sem sjálf var af almúgafólki komin, varð skammlíft og árið 1756 þegar Darya var aðeins tuttugu og sex ára að aldri varð hún ekkja. En Darya þurfti ekki að kvíða framtíðinni, í það minnsta hvað fjárhag varðaði. Darya varð einn auðugasti land- eigandi Rússlands og bjó á setri sínu ásamt sonum sínum tveimur og hafði yfir að ráða mörg hundruð ánauðugum bændum, en í þá daga var lénsveldi við lýði í Rússlandi. Lénsveldi hafði verið við lýði í Rússlandi svo öldum skipti og einkenndist daglegt líf gjarna af geðþótta lénsherranna og ofbeldi þeirra í garð þrælanna var ekki með öllu óþekkt. En Darya Niko- layevna Saltykova var sá drottn- ari sem gekk lengra en aðrir hvað varðaði grimmd gagnvart þeim sem undir hana voru settir. Ótryggum ástmanni brugguð launráð Darya Nikolayevna Saltykova hneigðist ekki til kvalalosta á yngri árum. Sem fyrr segir var hún af al- múgafólki komin og giftist inn í aðals stéttina. Það var ekki fyrr en hún var orðin ekkja og stóreignamanneskja, með nánast óskorað vald yfir því ánauð- uga fólki sem til- heyrði henni, að hún gerðist harð- úð- ug. Beitti hún undirsáta sína ótrúlegt ofbeldi og virtist vera sér- staklega í nöp við konurnar. Óbeit hennar í garð kvenna var rakin til óendurgoldinnar ástar hennar til landmælingamanns eins, sem hún hafði átt í astarsambandi við, sem kvæntist annarri konu. Darya brást hin versta við og ákvað að fyrir- koma hinum ótrúa ástmanni með sprengju sem var sérstaklega smíð- uð í þeim tilgangi. En ástmaður- inn fyrrverandi slapp með skrekk- inn þegar honum barst nafnlaust bréf þar sem hann var varaður við áformum Daryu. Ungar stúlkur voru ógn Daryu var einstaklega uppsigað við ungar stúlkur sem hún taldi vera ógn við sig sem og plágu mannkyns. Í flestum tilfellum sá Darya sjálf um að pynta stúlkurn- ar og þurfti enga átyllu til. Darya lamdi þær með kökukefli, trékubb- um og straujárni, sem stund- um var heitt. Hún bar eld að hári stúlknanna eða reytti það af höfði þeirra, hún lét dýfa þeim í sjóðandi vatn og reif af þeim eyrun. Sum fórnarlamba hennar voru svelt í hel eða læst utandyra í köld- um veðrum og látin frjósa í hel. Þegar Darya varð uppgefin við pyntingarnar lét hún þjóna sína taka við. Undirsátar lénsherra voru alla jafna ekki í aðstöðu til að bera fram kvartanir en engu að síður komu þeir á framfæri tuttugu og einni kvörtun vegna framferðis Dar- yu. En vegna góðra sambanda við dómstóla voru kvartanir þrælanna lengi vel hundsaðar, og urðu jafn- vel til þess að þeim sem kvörtuðu var refsað. Að lokum fór þó svo að sögur ættingja myrtra kvenna bár- ust Katrínu miklu keisaraynju til eyrna, á meðal þeirra saga Yermolay Ilyin, en þrjár eiginkonur hans höfðu verið pyntaðar til dauða af Daryu. Klefi í klausturkjallara Katrín mikla var á annan bóg- inn hikandi við að fordæma op- inberlega aðalsmanneskju en á hinn bóginn áköf í að vera „móð- ir rússnesku þjóðarinnar“ og und- irstrika að hún færi að lögum. Því tók Katrín þá ákvörðun að rétta opinberlega yfir Daryu og var hún handtekin árið 1762. Ákvörðun Katrínar um opinber réttarhöld styrktist þegar hún hlýddi á vitnis- burð um grimmd Daryu og ofbeld- ið sem hún beitti fólk sitt. Darya Nikolayevna Saltyk- ova var í haldi í sex ár á meðan mál hennar var rann- sakað ofan í kjölinn. Dómstóll Katrínar hlýddi á vitnisburð fjölda vitna og rannsakaði skjöl og skýrsl- ur landareignar Daryu. Rann- sóknin leiddi í ljós að minnsta kosti 138 grunsamleg dauðsföll og var stærstur hluti þeirra eignaður Daryu. Þessi kona hefur pyntað og myrt Darya Nikolayevna Saltykova var sakfelld fyrir að hafa barið og pynt- að þrjátíu og átta þræla til bana, en Katrín mikla var ekki viss um hvernig hún ætti að refsa henni. Dauðarefsing hafði verið afnum- in í Rússlandi árið 1754 og Katr- ín dirfðist ekki að ganga í berhögg við afnámið og dæma Daryu til dauða. Katrín þurfti aukinheldur að tryggja sér stuðning aðalsins. Árið 1768 var Darya reyrð á pall sem komið hafði verið fyrir á torgi í Moskvu. Um háls hennar hékk skilti sem á stóð: „Þessi kona hefur pyntað og myrt“ og múg og marg- menni dreif að til að berja þessa konu augum. Darya var síðan sett í klefa í klausturkjallara, dæmd til lífstíð- arfangelsisvistar, og segir sagan að ekkert ljós hafi komist inn í klefann og eina birtan sem Darya fékk að njóta var kertislogi sem tendrað- ur var þegar hún mataðist. Dar- ya Nikolayevna Saltykova lést árið 1801, sjötug að aldri. 44 SAKAMÁL UMSJÓN: KOLBEINN ÞORSTEINSSON kolbeinn@dv.is 16. júlí 2010 FÖSTUDAGUR Sum fórnar-lamba hennar voru svelt í hel eða læst utandyra í köld- um veðrum og látin frjósa í hel. Darya Nikolayevna Saltykova Breyttist í harðúðugt morðkvendi þegar hún varð ekkja.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.