Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2010, Blaðsíða 48
Guðrún Tara Sveinsdóttir er
23 ára nemi í fatahönnun við
Listaháskóla Íslands. Hönn-
un hennar hefur vakið athygli
fyrir öðruvísi mynstur og fal-
leg snið. Mynstrin teiknar
hún upp sjálf og handþrykk-
ir á fötin. Línan stendur af 10
stykkjum, þremur gerðum
af heilklæðnaði. „Ég hand-
blandaði alla litina og þrykkti
á hvítt efni. Ég teiknaði og
tússaði upp upprunalega
og það er eiginlega mesta
„trikkið“ að ná akkúrat rétta
litnum. Ég gerði það fyrst og
síðan blandaði ég í dós fata-
litnum og prentaði síðan á
efni. Það tókst rosalega vel að
ná litunum sem ég vildi upp-
runalega hafa,“ segir Guðrún
og bætir við að á planinu sé
að setja línuna í framleiðslu.
„Ég get ábyggilega gert efni
núna í sömu verksmiðju og
Mundi (fatahönnuður) fram-
leiðir í. Svo langar mig líka að
gera sundföt í þessum sama stíl. Svo-
lítið svona 50‘s fyrir konur og 20‘s fyr-
ir karla. Í þá þessu svipaða mynstri
og litum.“
Feminísk klæði
„Hugsunin var að gera sexí föt fyr-
ir konur, föt sem myndu lengja þær
og gera þær tignarlegri án þess að
sýna hold. Ég er frekar mikill fem-
ínisti þannig séð. Mér finnst alveg
hræðilegt að sjá hvað ungar stelp-
ur eru farnar að klæða sig afgerandi
og vita samt ekkert hvað þær eru
að gera. Samfélagið er bara búið að
segja að þær eigi að vera svona. Oft
eru þær með skoru niður á maga eða
eitthvað, alveg hræðilegt,“ segir Guð-
rún Tara um hugsunina á bakvið föt-
in. „Ég vildi samt ekk-
ert segja það þegar ég
var að gera fötin því ég
vildi hafa það sem svona
undirliggjandi skilaboð í
fötunum og þau komist
áfram án þess að það sé
beint sagt.“
Smáatriði mikilvæg
Hún segir mikla vinnu
liggja að baki línunni.
„Þetta var stanslaus
vinna í 5 vikur. Þetta
var mikill bútasaum-
ur, þetta voru eiginlega
engin snið heldur bara beint eft-
ir teikningum. Ég þurfti að prenta á
efnið eftir því hvernig það lá. Þetta er
ofinn bómull sem teyg-
ist bara í aðra áttina. Það
var rosa mikið púsluspil
að setja þetta saman.“
Guðrún Tara er hrif-
in af smáatriðum og
það fékk að njóta sín
í aukahlutum línunn-
ar. Smáhnýttur kragi
og spennur. „Þetta eru
pinku litlar hnýtingar úr
svona borðum sem eru
notaðar í svona skreyt-
ingar. Ég gerði spennur
með sömu aðferð í hár-
ið á þeim öllum. Ég var
á hverjum einasta degi í 5 vikur að
hnýta eitthvað smá,“ segir hún hlæj-
andi en henni finnst synd að hand-
verk sé á undanhaldi í hönn-
un. „Föt í dag eru svo einföld,
í gamla daga var lagt svo mik-
ið í allt. Ég væri alveg til í að
gera þessi föt sem ég hef ver-
ið að gera nema með alls kon-
ar smáatriðum, bróderíi og
fleira. Mér finnst handverk
mjög mikilvægt og fárán-
lega mikil synd að það sé að
hverfa. Það er til dæmis einn,
bara einn, staður í allri París
þar sem hægt er að læra bród-
erí. Það er fáránlegt.“
Innblástur í tónlist
Hönnun Guðrúnar Töru hef-
ur vakið athygli víða og með-
al annars orðið innblástur
fyrir tónlistarsköpun. „Mr.
Silla var að spila á tónleikum
í gær í gallanum. Það var al-
veg „heavy“ flott. Hún notaði
gallann sem innblástur til að
semja tónlistina sem hún var
að spila. Þetta var ótrúlega
skemmtilegt því þetta spilaði
svo vel saman tónlistin og hönnun-
in,“ segir Guðrún Tara sem er und-
ir miklum tónlistarlegum áhrifum í
sköpun sinni. „Ég er miklu meira að
hlusta á tónlist heldur en skoða tísku
svo ég er undir miklu meiri áhrifum
frá tónlist en tísku.“
Sýning í haust
Það er nóg að gera hjá Guðrúnu Töru
sem ásamt því að hanna föt vinnur í
Kron Kron og hjá Munda fatahönn-
uði með skólanum. Hún segir það
vera á planinu að halda áfram að
hanna og vonandi framleiða línuna
sem fyrst. „Ég ætla allavega að gera
eitthvað meira og vonandi halda ein-
hverja sýningu i haust.“
viktoria@dv.is
48 útlit umsjón: vIktoría hermannSdóttIr viktoria@dv.is 16. júlí 2010 föstudagur
Ekki
missa af...
Flóamarkaður Hins hússins verður
haldinn á Austurvelli á föstudag frá
14-18. Þar mun ungt fólk á aldrin-
um 16 til 25 ára tæma úr skápum
sínum og skúffum. Þar má búast við
að finna föt, plötur og ýmislegt gagn-
legt sem leynist í hirslum ungmenn-
anna. Mikið fjör verður á Austurvelli
þennan daginn þar sem uppskeru-
hátíð Götuleikhússins fer fram á
sama tíma. Ekki láta þetta fjör fram
hjá þér fara.
tískusíðan
myvintagevogue.com
Yndislega fallegar „vintage“
tískumyndir frá fyrri áratugum
síðustu aldar. Eigandi síðunn-
ar hefur safnað tískumyndum
frá barnsaldri og deilir dýrðinni
með lesendum síðunnar. Algjört
augnakonfekt.
fata-
markaðir
Eitt besta kreppuráðið fyrir tísku-
óða einstaklinga er að skella sér
á fatamarkaði. Í sumar virðast
allir vera að tæma skápana sína
og því tilvalið að gera góð kaup.
Eins manns drasl er annars
manns gull eins og skáldið sagði.
Kolaportið er fullt allar helgar af
básum þar sem fólk er að selja
bæði dýrgripi og drasl og oft er
hægt að gera stórgóð kaup. Síðan
hefur það verið að aukast að fólk
sé með fatamarkaði í garðinum
eða bílskúrnum hjá sér og víða í
portum bæjarins má sjá fólk að
selja föt eða annað góss. Í gamla
sirkusportinu bak við Hemma og
Valda eru til dæmis oft básar þar
sem fólk er að selja gömul föt á
góðu verði.
Röndóttar, blómóttar, stór-
mynstraðar, smámynstraðar –
næstum hvaða mynstur sem er
gengur upp. Mynstraðar buxur
eru algjörlega málið um þessar
mundir.
Sniðin eru líka mörg og mis-
munandi. Bæði þröngar og víð-
ar og nánast allt þar á milli geng-
ur upp. Ekki vera hrædd við að
blanda saman mynstrum en
passaðu þig að ganga ekki of langt
því það er fín lína þar á milli. Bux-
ur með mynstri draga athygli að
neðri hluta líkamans og ef hann
er ekki það sem þú ert sáttust við
þá skal forðast að velja of þröng
snið, veldu frekar víðar buxur.
Hægt er að nota þær bæði fínt og
hvers dags. Þá dressar maður þær
annað hvort upp með háum hæl-
um og fínni bol eða dressar þær
niður með flatbotna sandölum
eða skóm og hversdagslegri bol.
Falleg mynstur og klæðileg snið eru áberandi í hönnun Guðrúnar töru. Mikil hugsun
liggur að baki hönnuninni sem á að vera kynþokkafull án þess að sýna of mikið bert hold.
KynþoKKafull
feminísk klæði
d
v
-m
yn
d
J
ó
I k
Ja
rt
a
n
S
Buxur með alls kyns mynstri