Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2010, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2010, Blaðsíða 22
22 nærmynd 16. júlí 2010 föstudagur „Brú til brottfluttra“ 15. - 18. júlí 2010 „Vinir frá Vík“ Fjölbreytt dagskrá - Söfn, sýningar, þjónusta og afþreying alla dagana - Næg tjaldstæði Allir velkomnir á Bryggjuhátíðina eða í annan tíma - Sjá nánar á www.stokkseyri.is Stokkseyrar- hreppur STOKKSEYRI Bryggjuhátíð á Stokkseyri Prentmet Suðurlands Tímamismunurinn vandamál Beaty leggur áherslu á að fyrirtæki í hans eigu skili góðum arði og þar er HS Orka engin undantekning. Beaty tók sæti í stjórn fyrirtækisins í desember árið 2009 og er þar enn. Hann kemur reglulega til landsins til að sitja fundi. Sú breyting varð á HS Orku nú þegar Magma Energy varð þar kjölfestufjárfestir að fundargerð- ir og skýrslur fyrirtækisins eru nú bæði skrifaðar á íslensku og ensku. Beaty er sagður spyrja mikið út í rekstur fyrirtækisins og á í virk- um tölvupóst- og símasamskipt- um við stjórnendur þess. Honum er þar ekkert óviðkomandi og hef- ur hann meðal annars farið vel yfir fjárfestingarsamskipti HS Orku við viðskiptabanka fyrirtækisins. Mag- ma er jarðhitafyrirtæki og því hef- ur Beaty eðli málsins samkvæmt sýnt verkefnum á því sviði mestan áhuga. Meðal annars hefur hann farið yfir möguleikann á rannsókn- arborunum á nýjum svæðum á Ís- landi. Sjö klukkustunda mismunur er á milli Vancouver og Íslands og því hefur nýja eignarhaldið breytt nokkuð starfsháttum fyrirtækisins. Vegna tímamismunarins þarf oft að funda í lok vinnudags hjá HS Orku. Lítillátur og orðheldinn Beaty er lýst af þeim sem hann þekkja sem lítillátum manni sem sé afskaplega orðheldinn, skarpur og heilsteyptur. Hann sér gjarnan hlutina fyrir sér og hefur ákveðnar hugmyndir um hvernig skuli hrinda þeim í framkvæmd. Hann hlust- ar hinsvegar á rök með og á móti og aðlagar áherslur sínar að þeim. Sagt er að það sé þægilegt að starfa með Beaty og að hann sé sveigjan- legjur í öllu sem tengist rekstrinum. Hann er stoltur af því sem hann hef- ur áorkað í lífinu og hefur gaman af að ræða um þau verkefni sem hann hefur staðið að. „Hann er jarðfræð- ingur, frumkvöðull og skilgreinir sig sem slíkur. Hann er mikill hugsjón- armaður og hefur náð gríðarlegum árangri í sínum störfum. Hann er traustur og vinnur mikið með sama fólkinu. Hann er „die hard“ um- hverfissinni,“ segir einn heimildar- maður blaðsins. Til stendur að Beaty geri sér ferð hingað til lands á næstunni ásamt konu sinni Trishu. Þetta er fyrsta ferð Beaty til landsins sem er ekki á viðskiptalegum forsendum, því þau tvö ætla að taka sér nokkra daga til að skoða landið. Beaty hefur hingað til ekki haft tækifæri til þess þar sem hann hefur alltaf haft þétta dagskrá þegar hann hefur komið til lands- ins. Hann er traustur og vinnur mikið með sama fólkinu. Hann er „die hard“ umhverfis- verndarsinni. n Námustarfsemi í Suður-Ameríku hefur verið gagnrýnd af mannréttindasamtök- um og verkalýðshreyfingum. Í febrúar létust fimm verkamenn í námu í Casapalca þegar hrundi úr göngunum ofan á þá. Í sömu viku létust þrír aðrir námuverka- menn í Raura þegar þeir önduðu banvænum gösum að sér. Í Casapalca er sagt að verkamenn vinni tólf klukkustundir á dag fyrir rétt um 130 þúsund krónur á mánuði. Eftir að viðkomandi fyrirtæki hafði rukkað starfsmennina fyrir svefnað- stöðu, stóðu þeir eftir með um rúmar sjötíu þúsund krónur. Talið er að um 4.500 námuverkamenn hafi verið reknir í Perú fyrir að skrá sig í verkalýðsfélög. Í apríl lögðu námuverkamenn í Huaron, námu Pan American Silver, niður störf. Stjórn fyrirtækisins gagnrýndi verkfallið og taldi það vera ólöglegt. Verkamennirnir voru að mótmæla því að þeir hefðu ekki fengið þá hlutdeild í arði fyrirtækisins sem þeir áttu inni samkvæmt lögum. Stjórnendur Pan American töldu að hagnaður fyrirtækisins árið 2009 hefði orðið fyrir skakkaföllum vegna efnahagshrunsins árið 2008. Talið var að verkfallið myndi hafa neikvæð áhrif á ársframleiðslu fyrirtækisins. Útflutningsverðmæti jarðefna frá Perú nam um 19,2 milljörðum bandaríkjadala árið 2008. Fyrirtækin hafa verið gagnrýnd fyrir það hversu lítið fé renni til nær- samfélagsins í Perú frá starfseminni og að hagnaður námubæja af starfseminni sé takmarkaður. Helst renni féð til höfuðborgarinnar, Lima. Námufyrirtækin hafa nú mörg hver dregið saman seglin í Perú vegna gríðarlegs verðfalls á málmi. Því má segja að Beaty hafi tekið rétta ákvörðun þegar hann seldi sig út úr stórum hluta starfseminnar fyrir efnahagshrunið árið 2008. námur í suður-ameríku Febrúar 2009 Ross Beaty kemur til landsins til að kynna sér jarðhitatæki- færi á Íslandi. Hann hittir þar fjölda aðila sem eru í orkuframleiðslu á Íslandi með áherslu á jarðhita. JúLí 2009 Magma Energy gerir sam- komulag við Geysi Green um kaup á 10,8 prósenta hlut fyrirtækisins í HS Orku. Beaty fundar um sumarið með íslenskum stjórnvöldum til að útskýra hvað hann hafi í hyggju. ÁgúsT 2009 Orkuveita Reykjavíkur og Hafnarfjarðarbær kynna áform um að selja hluti sína til Magma Energy. Orkuveita Reykjavíkur átti 16,5 prósenta hlut í félaginu og Hafnarfjarðarbær tæplega fimmtán prósenta hlut. Nóvember 2009 Geysir Green Energy eignast meirihluta í HS Orku þegar félagið kaupir 34 prósenta hlut Reykjanesbæjar í fyrirtækinu. Þar með átti Geysir Green 57 prósenta hlut í HS Orku. Febrúar 2010 Magma Energy stofnar dótturfélag á Íslandi sem ætlað er að sjá um hlut fyrirtækisins í HS Orku. Ásgeir Margeirsson, fyrrver- andi forstjóri Geysis Green Energy, er ráðinn forstjóri Magma á Íslandi. maí 2010 Magma Energy kynnir áform um að kaupa 52 prósenta hlut Geysis Green í HS Orku. Þar með er fyrirtækið búið að komast yfir 98,5 prósent hlutafjárins í HS Orku. JúLí 2010 Magma Energy efnir til fimm milljarða króna hlutafjárútboðs í Kanada vegna kaupa þess á hlutnum. Fyrirtækið tilkynnir eftir á að þar með hafi fjármögnun á öllum hlutum í HS Orku verið tryggð. hs orka HÁLeiT ÁForm Fyrir Hs orku Í áætlun Magma Energy er gert ráð fyrir að orkufram- leiðsla HS Orku aukist um 200 megavött á næstu fimm árum. Fyrirtækið skiptir megin- máli í framleiðsluáætlun Magma Energy. myNd sigTryggur ari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.