Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2010, Síða 10
10 FRÉTTIR 16. júlí 2010 FÖSTUDAGUR
Mögulegt tap af sölunni á trygginga-
félaginu Sjóvá gæti fallið á íslenska
ríkið, og þar með íslenska skattgreið-
endur, að mestu leyti. Íslandsbanki
er með tryggingafélagið í söluferli og
stendur einn mögulegur kaupandi
eftir samkvæmt Árna Tómassyni, for-
manni skilanefndar Glitnis. Íslenska
ríkið á nærri 80 prósenta hlut í trygg-
ingafélaginu og Glitnir og Íslands-
banki eiga rúm 20 prósent.
Árni vill af skiljanlegum ástæðum
ekki greina frá því hvaða kaupandi
stendur eftir en segir að deilt sé um
verð og önnur samningsatriði. Verð-
ið sem er deilt um er væntanlega þeir
16 milljarðar króna sem núverandi
eigendur Sjóvár þurftu að leggja inn
í tryggingafélagið til að bjarga því frá
gjaldþroti. Þar af lagði íslenska rík-
ið Sjóvá til tæpa 12 milljarða. Heim-
ildir DV herma hins vegar að um sé
að ræða fjárfestahóp á vegum Heið-
ars Más Guðjónssonar, fyrrverandi
starfsmanna Novators, félags Björg-
ólfs Thors Björgólfssonar. Heiðar
Már er búsettur í Sviss um þessar þar
sem hann starfar fyrir vogunarsjóð.
Fall Askar Capital og Avant í vik-
unni breytir þó ekki miklu um fram-
tíð Sjóvár jafnvel þó að hluti þeirra
eigna sem ríkið lagði inn í Sjóvá til að
bjarga því frá þroti hafi verið skulda-
bréf Askar Capital og Avant. Ástæðan
er sú að skuldabréf
Askar og Avant
eru tryggð
með öðrum
bréfum sem
eru með rík-
isábyrgð. Ís-
lenska ríkið
er því alltaf í
ábyrgð fyrir
eignunum
sem voru settar inn í Sjóvá og skiptir
staða Askar og Avant því á endanum
ekki höfuðmáli fyrir Sjóvá þar sem
þessi ríkisábyrgð er fyrir hendi.
Áhættufjárfestingar bjuggu
gatið til
Leggja þurfti Sjóvá til milljarðana
16 því eignarhaldsfélagið Milestone,
eigandi Sjóvár, hafði gengið svo
á eignir félagsins að það uppfyllti
ekki lengur skilyrði Fjármálaeftir-
litsins um gjaldþol tryggingafélaga.
Tryggingafélög þurfa alltaf að
eiga nægilega miklar eignir til að
geta greitt viðskiptavinum sín-
um það tjón sem þeir eru tryggð-
ir fyrir. Milestone hafði hins vegar
notað peninga viðskiptavinanna í
áhættufjárfestingar víða um lönd,
meðal annars í Makaó í Asíu og
eins í Vafningsfléttunni sem nokk-
uð hefur verið rætt um í DV. Þessir
fjármunir töpuðust síðan og mynd-
uðu gat í eignasafni Sjóvár sem rík-
ið, Glitnir og Íslandsbanki fylltu upp
í tímabundið. Ætlun þeirra er nú að
reyna að ná þessum fjármunum til
baka með sölu Sjóvár.
Vonandi fæst rétt verð
Rósa Björk Brynjólfsdóttir, upplýs-
ingafulltrúi fjármálaráðuneytisins,
segir að ekki liggi ljóst fyrir hvaða
áhrif salan á Sjóvá muni hafa á eigna-
safn Seðlabanka Íslands sem heldur
utan um hlut ríkisins í tryggingafé-
laginu. „Seðlabankinn er bara
með þetta inni í sínu eigna-
umsýslufélagi. Þar með er
þetta á hans forræði. Ekki er
hægt að gera sér grein fyrir
því í dag hvaða áhrif salan
á Sjóvá hefur á eignaum-
sýslufélagið. En vonandi
verður kaupverðið það
sem lagt var upp með
þannig að ríkissjóður
tapi ekki á því að hafa
bjargað trygginga-
félaginu,“ segir Rósa
Björk.
Eygló Harðardóttir,
þingkona Framsóknarflokks-
ins, hefur mikið velt fyrir sér
aðkomu ríkisins að Sjóvá eft-
ir inngripið í starfsemi trygg-
ingafélagsins í fyrra og hef-
ur spurt spurninga á þingi
um þessa aðkomu sem og
um áhrif falls Askar og Av-
ant á Sjóvá. Þingkonan vill
að málið verði tekið upp
á fundi í viðskiptanefnd Alþingis
og verður málið rætt á næsta fundi
hennar. „Þegar íslenska ríkið setur
skuldabréf Askar og Avant inn í Sjóvá
virðist vera að þeir hafi gert sér grein
fyrir því að Askar væri illa statt. Þess
vegna setja þeir þessar tryggingar
með skuldabréfunum. Því spyr mað-
ur sig hvort ekki hefði verið eðlilegra
að setja þessi bréf með ríkisábyrgð-
inni inn í Sjóvá frekar en skuldabréf
Askar. Ég átta mig ekki á því af hverju
þetta var gert svona og ætla að fá
svör við þeim spurningum á þessum
fundi í viðskiptanefnd. Ég vil fá að
vita hver ástæðan er fyrir allri þessari
pappírsleikfimi sem mér finnst lykta
óþarflega mikið af 2007,“ segir Eygló.
Erfitt að átta sig á tapinu
Framkvæmdastjóri fjármálasviðs
Sjóvár, Ólafur Njáll Sigurðsson, seg-
ir að fall Askar muni ekki hafa nein
áhrif á tryggingarekstur Sjóvár en að
reyna muni á þær ríkisábyrgðir sem
eru á bak við Askarbréfin sem lög
voru inn í félagið.
Hann segir jafnframt að erfitt sé
að segja til um hvort íslenska ríkið
muni tapa einhverjum fjármunum
með sölunni á Sjóvá en DV leitaði til
hans með þessa spurningu. „Það er
engin leið að átta sig á því. Þar til síð-
ustu bréfin í Sjóvá verða seld og þar
til fyrir liggur hversu mikið fæst fyr-
ir félagið þá er ekki hægt að segja til
um það. Það verður að meta þetta út
frá því hversu mikið fáist fyrir félagið
og hvort það verður svipuð upphæð
og var lögð inn í það. Við starfsmenn
Sjóvár erum annars ekkert inni í
þessu söluferli. Það eru eigendur
félagsins sem sjá um söluna og þeir
verða að ræða um það,“ segir Ólaf-
ur Njáll en fastlega má ætla að rík-
ið, Glitnir og Íslandsbanki ætli sér að
reyna að koma út á sléttu í viðskipt-
unum með tryggingafélagið.
Alls ekki er þó ljóst að af þessu
verði en til marks um það má vitna
til orða Árna Tómassonar í DV fyr-
ir skömmu þar sem hann sagði að
deilt væri „um verð og einhver önnur
samningsatriði“ í viðræðunum um
söluna á Sjóvá.
Bjarni sagði ríkið líklega ekki
tapa
Áhugavert verður að fylgjast með
niðurstöðunni úr söluferlinu á Sjó-
vá og hversu hátt verð mun fást fyr-
ir félagið. Ástæðan fyrir því er meðal
annars sú að þá mun liggja ljóst fyrir
hversu miklu íslenska ríkið mun tapa
á því að hafa bjargað félaginu í kjöl-
far áhættufjárfestinga og taps Miles-
tone.
Í desember í fyrra ræddi DV við
Bjarna Benediktsson, formann Sjálf-
stæðisflokksins, um aðkomu hans
að viðskiptum eignarhaldsfélags-
ins Vafnings og Þáttar Internation-
al - Bjarni veðsetti hlutabréf pabba
síns og frænda í Vafningi fyrir láni frá
Glitni. Sjóvá kom svo einnig að Vafn-
ingsfléttunni en eigendur trygginga-
félagsins, Milestone-bræður, áttu
Vafning með fjölskyldu Bjarna. Þá
var eitt af umræðuefnunum hversu
miklu íslenska ríkið myndi tapa
vegna björgunaraðgerða ríkisins á
félaginu. Bjarni sagði að ekki væri
ljóst hvort ríkið myndi tapa á við-
skiptunum. Þetta var rétt hjá Bjarna
og eiga þessi ummæli ennþá við í
dag. Orðrétt sagði Bjarni: „Hvenær
lagði ríkið fram peninga sem það fær
ekki til baka? Væntanlega mun ríkið
ekki bera neinn skaða af þessu. Þegar
þú segir að ríkið tapi þeim peningum
þá verður það að vera komið í ljós að
ríkið fái þá peningana ekki til baka.
Þegar maður tapar einhverju þá fær
maður það ekki endurgreitt sem
maður lánar,“ en Bjarni var ósáttur
við að fullyrt hefði verið í blaðinu að
íslenskir skattgreiðendur þyrftu að
leggja félaginu til ákveðna upphæð.
Á næstunni mun væntanlega
koma í ljós hvort og þá hversu miklu
íslenska ríkið mun tapa vegna Sjó-
vár og áhættufjárfestinga eigenda
tryggingafélagsins og viðskiptafélaga
þeirra, meðal annars Bjarna Bene-
diktssyni.
Íslenska ríkið gæti tapað einhverju af þeim tæplega 12 milljörðum króna sem lagðir voru inn í Sjóvá í fyrra.
Áhættufjárfestingar knésettu Sjóvá, meðal annars Vafningsviðskiptin. Framkvæmdastjóri hjá Sjóvá segir
of snemmt að spá fyrir um hugsanlegt tap ríkisins og undirstrikar að starfsemi Sjóvár sé tryggð. Upplýs-
ingafulltrúi fjármálaráðuneytisins segir að bíða þurfi eftir að gengið verði frá sölunni á Sjóvá.
TAPIÐ AF SJÓVÁ
GÆTI LENT Á RÍKINU
INGI F. VILHJÁLMSSON
fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is
En vonandi verð-ur kaupverðið
það sem lagt var upp
með þannig að ríkis-
sjóður tapi ekki á því að
hafa bjargað trygginga-
félaginu.
ögurstund
ögmundar
F r j á l s t
, ó h á ð d
a g b l a ð
syngjandi
sýslumaður
á Catalinu
Hetjurnar
í Hornunum
neytendur
Ljúffengar
smákökur
Töpuðu MILLJöRðuM á
LÚXuSTuRNI í aSíu:
:
n uppskriftir að
draumakökum
dv.is
miðvikudagur o
g fimmtudagur
9. – 10. deseMBeR 2
009
dagBlaðið vísi
R 162. tBl.
99. áRg. – veRð k
R. 395
BJARNI
BEN Í
BRASKI
fóLk
yrkir um
ástarsorg
og kLikkun
fóLk
Langaði
að berja atLa
24 SÍðNA SéRBlAð
AKuREyRI
sport
n með umboð frá
föður og frÆn
da
n engeyjarÆtt m
eð Wernersson
um
n sjóvá tapaði 3,
2 miLLjörðum
n fjárfestu í asís
ku Las vegas
vann 14
miLLjónir
í póker
n tvítugur garð
bÆingur
spiLar á nóttu
nni
fréttir
n á varLa afturk
vÆmt
í ríkisstjórnina
Vertu þinn
eigin læknir
fólk
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
Fyrst lúxusturn en svo breskar búðir:
bjarni í
breskri
útrás
dv.is
mánudagur og þriðjudagur 14. – 15. deseMBeR 2009 dagBlaðið vísiR 164. tBl.99. áRg. – veRð kR. 395
n fjárfesting Wernersbræðra
og engeyinga
n Vafningur keypti
litla-baug á 5,4 milljarða
n sjóVá lánaði 10,6
milljarða í útrásina
n bjarni Veðsetti Vafning
fyrir tVeimur lánum
n Vildi stöðVa umfjöllun dV
n þrír menn í bráðri lífshættu á þaki jeppa í straumharðri á
„þakklátur fyrir
að Vera á lífi“
fréttir
ramos
leitar að
eiginkonu
fólk
besta hangikjötið úr
þingeyjarsýslum neytendurn matgæðingardV dæma
gjafmilt actaVis:
tugmilljóna
jólagjafir
kynlíf
til að nálgast
guð
foreldrar
ánægðir með
Verðlaunaféð
fréttir
fréttir
n íslenskur
sértrúarsöfnuður
fréttir
F R J Á L S T , Ó H Á Ð D A G B L A Ð
22. – 24. JANÚAR 2010DAGBLAÐIÐ VÍSIR 9. TBL. – 100. ÁRG. – VERÐ KR. 595
n FORMAÐUR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS FLÆKTUR Í
MILLJARÐAPLOTT UM AÐ TAKA BÓTASJÓÐ SJÓVÁR
n VAFNINGUR ENGEYINGA OG MILESTONE
TIL RANNSÓKNARn SEXTÁN MILLJARÐAR TEKNIRÚR SJÓVÁ Á EINUM DEGI
SVONA TÓKU ÞEIR SJÓÐINN
YFIRHEYRSLUR HJÁ SAKSÓKNARA VEGNA BÓTASJÓÐS SJÓVÁR:
ÞAÐ SEM ÞÚVISSIR EKKI UM STRÁKANA
Draumalíf Anitun PAPPARASSARNIR ERU FARNIR AÐ ELTA ANITU BRIEM Í HOLLYWOOD
TILBOÐ GILDIR TIL 31. JANÚAR 2010 Í SAL OG SÓTT
GRENSÁSVEGI 10 HRAUNBÆ 121 www.rizzo.is
YFIRHEYRÐUR YFIRHEYRÐURBENDIR Á KARL BENDIR Á ÞÓR VAFNINGUR FÉKK LÁN HJÁ SJÓVÁ
UPPSAGNIR RÚV:
SONUR KALLA Í PELSINUM:YFIRHEYRSLAN„SKRÍTINREYNSLA“
SKAPOFSIHANDTEKINN
STJÖRNURFJÚKAn SÍÐASTA VERK ÞÓRHALLS
Sagði ríkið ekki bera skaða
BjarniBenediktssonsagðií
viðtaliviðDVíloksíðastaárs
aðíslenskaríkið,ogþarmeð
íslenskirskattgreiðendur,myndu
væntanlegaekkiberaneinn
skaðaafbjörgunríkisinsáSjóváí
fyrra.Þettaerallsekkivístvegna
þessaðekkiliggurfyrirhvað
Sjóváverðurseltfyrirmikið.
Fall Askar undirstrikar
áhættuna KarlogSteingrím-
urWernerssyniráttuSjóvá
enTryggviÞórHerbertsson
varforstjóriAskarCapital
lengstaf.
9. desember 2009 14. desember 2009 22. janúar 2010