Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2010, Page 18
18 FRÉTTIR 16. júlí 2010 FÖSTUDAGUR
Það er ekki ódýrt að leita sér lækn-
inga á stofnun Williams Hitt sem
staðsett er í Mexíkó, rétt við landa-
mærin að Bandaríkjunum. Á ís-
lenskri vefsíðu sem kynnir óson- og
þvagmeðferð stofnunarinnar eru
birtar tölur yfir kostnað við meðferð
gegn ýmsum sjúkdómum. Þar kem-
ur fram að meðferð gegn krabba-
meini taki fjórar til sex vikur og geti
kostnaðurinn numið allt að tveimur
milljónum króna. Inni í þessari tölu
er ekki ferðakostnaður eða kostnað-
ur vegna uppihalds og gistingar.
Nafnið ekki á lista verðlauna-
hafa
Miðstöðin heitir eftir Dr. William Hitt,
Bandaríkjamanni sem er á heimasíð-
unni o3.is sagður hafa „margoft ver-
ið heiðraður fyrir störf sín í þágu vís-
inda og læknisfræði“. Hann er sagður
hafa hlotið frönsk verðlaun fyrir full-
komnun í smásjárrannsóknum sem
nefnd eru eftir manni að nafni Van
Leeuwenhoek og verðlaun Eli Lily
fyrir uppgötvun á nýjum „microplös-
mum“.
Þegar leitað er að þessum verð-
launum á netinu er nafn Willi-
ams Hitt hvergi að finna meðal
verðlaunahafa. Á íslensku vefsíð-
unni er einnig fullyrt að William
Hitt hafi sem forsvarsmaður al-
þjóðlegra samtaka geðlækna gegn
kjarnorkustríði hlotið friðarverð-
laun Nóbels árið 1985 ásamt félög-
um sínum. Nafn Williams Hitt kem-
ur hvergi fram hjá samtökunum og
hann er hvergi nefndur á nafn á vef-
síðu Nóbelsverðlaunanna. Á vef-
síðu mexíkósku miðstöðvarinnar er
hvergi minnst á þau verðlaun sem
William Hitt á að hafa hlotið í gegn-
um tíðina, hvorki friðarverðlaun
Nóbels né önnur verðlaun.
Starfaði á Keflavíkurflugvelli
Einn af þremur læknum stofnunar-
innar er John Humiston. Í kynning-
artexta um hann á vefsíðu stofnunar-
innar segir að hann hafi verið læknir
á Keflavíkurflugvelli á vegum banda-
ríska hersins. Umsjónarmenn ís-
lensku vefsíðunnar o3.is vitna í sam-
skipti sín við Humiston hér á Íslandi,
en Íslendingum er boðinn sérstak-
ur afsláttur af meðferð hjá stofnun-
inni og verðið sagt lægra en venju-
legt verð.
Þvag og óson notað
Samkvæmt íslensku vefsíðunni o3.is
gengur meðferð William Hitt-stofn-
unarinnar út á að ósoni er blandað
saman við blóð og því sprautað aft-
ur í líkama manneskjunnar í nokkra
daga eða vikur. Til viðbótar við óson-
meðferðina er þvagmeðferð beitt. Þá
eru unnin efni úr þvagi viðkomandi
og þessum efnum sprautað í líkam-
ann.
Margir sjúkdómar
Á vefsíðu stofnunarinnar í Mexíkó
eru tilteknir þeir sjúkdómar sem
sagðir eru læknanlegir hjá stofnun-
inni. Sjúkdómarnir eru meðal ann-
ars alnæmi, lifrarbólga C, ýmsar teg-
undir krabbameina, einhverfa og
MND auk fjölda annarra sjúkdóma
sem taldir eru erfiðir viðureignar
af nútímalæknavísindum. Læknar
sem DV hefur rætt við telja meðferð
mexíkósku stofnunarinnar varhuga-
verða. Þeir segja að ef meðferð við til
dæmis lifrarbólgu C hafi tekist jafn
vel og af er látið myndi sú vitneskja
vera á allra vitorði í heimi lækna-
vísindanna. Lifrarbólga C er illvígur
krónískur sjúkdómur sem ekki tekst
að lækna nema í litlum mæli.
Íslensk vefsíða
Aðstandendur íslensku vefsíðunnar
o3.is eru hjónin Ólafur Einarsson og
Björg Marteinsdóttir, eigendur gler-
augnaverslunarinnar Sjónarhóls í
Hafnarfirði. Þau segjast halda vefsíð-
unni úti þar sem Björg hafi læknast
af gigt sem hún hafði þjáðst af í níu
ár. Þau hafi farið til meðferðar í Willi-
am Hitt-miðstöðina í Mexíkó þar
sem Björg hafi læknast af gigtinni
þar sem óson- og þvagsprautumeð-
ferð var beitt. „Löngun okkar er að
miðla reynslunni til sem flestra sem
svipað er etv. ástatt með og sem vita
ekki að til er leið til bata frá erfiðum
sjúkdómum. Meðferðin er dýr, sjá
síðuna „Spurt og Svarað“, en til mik-
ils að vinna,“ segir á vefsíðunni.
Loðin loforð
Á íslensku vefsíðunni er margít-
rekað að engin loforð séu gefin um
að lækning sé örugg. Undir liðn-
um Spurt og svarað á vefsíðunni
er hins vegar sett fram spurning-
in: Hvernig veit ég hvort meðferð-
in virkar? Í svarinu segir að stroka
sé tekin úr nefi og send til William
Hitt-miðstöðvarinnar. „Þar er met-
ið hvort um vírus, ofnæmi eða eitt-
hvað annað er að ræða. Ef um vír-
us er að ræða og líkaminn er ekki
að ráða við hann (krónískt ástand)
SELJA LÆKNINGU VIÐ MND OG KRABBAMEINI
JÓHANNES KR. KRISTJÁNSSON
blaðamaður skrifar: johanneskr@dv.is
Íslensk vefsíða hvetur fólk til að leita sér lækninga hjá stofnun í
Mexíkó sem notast við þvag og gastegundina óson til lækninga.
Á meðal sjúkdóma sem sagðir eru læknanlegir með þessum að-
ferðum eru krabbamein, lifrarbólga C, MND, MS og alnæmi.
Til viðbótar við ósonmeðferðina
er þvagmeðferð beitt.
Þá eru unnin efni úr
þvagi viðkomandi og
þessum efnum sprautað
í líkamann.
Stofnandinn Dr.WilliamHitterstofnandimiðstöðvarinnar.ÁskrifborðisínuíMexíkóhefurhannskilaboðfráfyrrverandisjúklingi
aðþvíersegirávefsíðunnio3.is.Skilaboðineruþessi:„Takkfyrir,Dr.Hitt–heilaæxliðsemégvarmeðerhorfið.“
MYND WILLIAMHITTCENTER.COM
Miðla af reynslunni HjóninÓlafurEinarssonogBjörgMarteinsdóttirhaldaúti
vefsíðunnio3.isþarsemfjallaðerítarlegaumóson-ogþvagmeðferðWilliam
Hitt-miðstöðvarinnaríMexíkó.ÁvefsíðunnikemurframaðBjörghafilæknastafgigt
eftirmeðferðíMexíkó.MYND SJONARHOLL.IS
nLæknamiðstöðiníMexíkóbýðurÍslendingumsérstaktverðámeðferðumvið
hinumýmsusjúkdómum.„ÞettaertilboðtilÍslendingaogerlægraenvenjulegt
verð,“segirávefsíðunnio3.is.Boðiðeruppáhópafsláttafmeðferðumogefum
fimmtiltíumannahópaeraðræðaerveittur10til20prósentaaukaafsláttur.
Tekiðerframaðverðiðséfastsvofremiaðekkertóvenjulegtkomiuppáhjávið-
komandi.Verðinsemgefineruupperuánferðakostnaðar,gistingaroguppihalds.
Sjúkdómur Lengd Dollarar Ísl. krónur
Síþreyta(Cronicfatique) 7–12dagar 3.200 395.264
Vefjagigt(Fibromyalgia) 7–12dagar 3.200 395.264
Psoriasis(Psoriasis) 7–12dagar 3.200 395.264
Sjálfsofnæmissjúkdómar 12–16dagar 4.400 543.488
LifrarbólgaC(HepatitisC) 22dagar 5.200 642.304
Krabbameinsmeðferð 4–6vikur 2.600pr.viku 1.280.00–1.920.000
Óson- og þvagsprautumeðferð
Geir Gunnlaugsson landlæknir seg-
ist ekki trúa á kraftaverkalækningar
og segir að málið sé nú skoðað inn-
an embættisins. Það þurfi að fá mun
meiri vitneskju um starfsemi stofn-
unarinnar og hvort búið sé að gera
einhverjar tilraunir með meðferðina
eða framkvæma aðrar rannsóknir. Á
vefsíðu mexíkósku stofnunarinnar er
greint frá því að tekist hafi að lækna
fólk með ólæknandi sjúkdóma, til
dæmis alnæmi og MND. Aðspurð-
ur hvort greint hafi verið frá þessum
árangri stofnunarinnar í fjölmiðlum
segist Geir ekki vita til þess. „Bara
vegna þess myndi ég setja spurn-
ingamerki við trúverðugleikann. “
Trúnaður ríki
Að mati Geirs er mjög mikilvægt að
það ríki gott og traust trúnaðarsam-
band á milli sjúklinga og læknis.
„Sérstaklega þegar um er að ræða
langvinna og erfiða sjúkdóma og í
sumum tilvikum ólæknandi sjúk-
dóma. Ef hinum veika hefur verið
bent á aðrar leiðir til að bjarga sér þá
finnst mér það þáttur í því sambandi
að ræða það við viðkomandi lækni.
Sá læknir á þá að afla sér upplýsinga
um þær meðferðir sem sjúklingur-
inn vill prófa og gefa sitt álit. Það er
svo á valdi hvers einstaklings að taka
ákvörðun á grunni þess og upplýs-
inga sem hann aflar sér annars stað-
ar frá,“ segir Geir.
Leita lækninga
Þeir sem greinast með ólæknandi
sjúkdóma reyna oft í örvinglun
sinni að finna lækningu. „Ég held
að í brjósti allra sem eru með lang-
vinna sjúkdóma og ekki síst þeirra
sem eru með ólæknandi sjúk-
dóma lifi von um að lækning finn-
ist handan við hornið og mér finnst
það ekki óeðlilegt. Það eru eðlileg
viðbrögð í erfiðri stöðu. Í framhald-
inu getum við svo tekið upp hina
siðfræðilegu umræðu um það hvað
liggi á bakvið tilboð um lækningu
sem er bara flugferð og meðferð
í einhverju fjarlægu heimshorni,“
segir Geir.
Fjölmörg tilboð um lækningu
Tilboð um lækningu með óhefð-
bundnum aðferðum er víða að finna
í heiminum í dag. Fjölmargir hafa
komið fram og sagt frá stórkostleg-
um sigrum í baráttunni við erfiða og
jafnvel ólæknandi sjúkdóma. „Sum-
ir gera einfaldlega út á þetta. Við get-
um flutt þessa umræðu í samfélagið
hér heima, en hér er nýjasta umræð-
an um detox Jónínu Ben. Ég veit ekki
betur en með þeirri meðferð sé lof-
að bót margra meina sem læknavís-
indin hafa ekki fundið svar við. Sum-
um finnst þeim hafa himin höndum
tekið og hafa tjáð mér að þeir hafi
læknast af mörgum kvillum. Ég efa
ekki að það sé raunveruleg upplifun.
Aðrir hafa tjáð sig um það að þetta sé
mesta fúsk,“ segir Geir og bætir við:
„Ég fel það raunverulega í hendur á
Landlæknir skoðar nú starfsemi mexíkósku stofnunarinnar og setur spurningamerki við trúverðugleikann:
Trúir ekki á kraftaverkalækningar
Skoðar málið LandlæknirsegistsetjaspurningamerkiviðtrúverðugleikaWilliam
HittstofnunarinnaríMexíkó.HannvillaðMNDfélagiðkomiþeimskilaboðum
áframfæritilfélagsmannasinnaaðþessimeðferðséekkikynntmeðstuðningi
félagsins.MYND RÓBERT REYNISSON