Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2010, Blaðsíða 21
föstudagur 16. júlí 2010 nærmynd 21
GullGrafarinn sem
keypti upp orkuna
Ross Beaty fæddist í Vancouver, Kanada, árið 1951. Hann útskrifaðist með
M.Sc. gráðu í jarðfræði frá University of London með láði árið 1975. Þar lagði hann
áherslu á rannsóknir í leit að steinefnum. Hann útskrifaðist með B.Sc. gráðu í jarð-
fræði frá University of British Columbia árið 1974 og lauk laganámi frá sama skóla
árið 1979. Beaty er giftur Trishu Beaty, lækni við University of British Columbia.
Þau eiga saman fimm börn. Fjórar stúlkur og einn dreng. Þau eru flest uppkomin.
Beaty hefur ferðast mikið í tengslum við nám og starf á lífsleiðinni. Hann er
sagður tala reiprennandi ensku, frönsku og spænsku. Auk þess talar hann nokkra
rússnesku, þýsku og ítölsku. Hann er sagður hafa starfað í fleiri en fimmtíu ríkjum
á lífsleiðinni.
Beaty var einn af stofnendum námufyrirtækisins Pan American Silver Corporat-
ion auk þess sem hann hefur ýtt nokkrum öðrum fyrirtækjum á sviði jarðefnaleitar
úr vör. Pan American Silver er einn af stærstu silfurframleiðendum heims en auk
þess hefur Beaty verið nokkuð umfangsmikill í uppgreftri kopars. Pan American
Silver starfrækir átta námur í dag, í Mexíkó, Bólivíu, Argentínu og Perú.
Beaty þykir vel liðinn meðal kollega sinna í jarðfræðinni vestanhafs og þá
sérstaklega í námustarfseminni. Hann er fyrrverandi forseti Silver Institute í Wash-
ington, Bandaríkjunum, og fulltrúi í Jarðfræðisambandi Kanada og Kanadísku
námastofnuninni. Á þessu ári var Beaty sæmdur Viola MacMillan viðurkenning-
unni sem veitt var fyrir þróun í fyrirtækja og námustarfsemi. Endurskoðunarfyrir-
tækið Ernst og Young sæmdi Beaty viðurkenningu sem frumkvöðull ársins 2008 á
sviði nýtingar náttúruauðlinda til orkuframleiðslu.
Heimsborgarinn ross beaty
fimm BaRna faðiR Ross Beaty þykir lítillátur
maður og starfar í hefðbundnu skrifstofuhúsnæði
í Vancouver. Þar er hann með myndir af fjölskyldu-
meðlimunum uppi á borðum. Að sögn þeirra sem
til hans þekkja skiptir orðsporið Beaty máli.
mynd sigtRygguR aRi