Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2010, Qupperneq 24
24 FRÉTTIR 16. júlí 2010 FÖSTUDAGUR
Belginn Louis Michel, fyrrverandi
þróunarstjóri ESB og núverandi
þingmaður frjálslyndra á Evrópu-
þinginu, hefur hneykslað landa sína
og Afríkuþjóðirnar sem áður voru
undir belgísku krúnunni, með því að
segja að Leópold 2. Belgíukonungur
hafi verið „hugsjónahetja“. Leópold
2. er nú talinn með einum grimm-
ustu þjóðarleiðtogum allra tíma en
á valdatíma hans stóðu Belgar fyrir
grimmilegu arðráni í afrískum ný-
lendum sínum í Kongó. Er konung-
urinn talinn ábyrgur fyrir dauða
þriggja til tíu milljóna Afríkumanna.
Ummælin þóttu sérstaklega
hneykslanleg í ljósi þess að Austur-
Kongó (Kongó-Kinshasa), áður Belg-
íska-Kongó, heldur í ár upp á 50 ára
sjálfstæði. Fór Albert 2. Belgíukon-
ungur til Kongó vegna þessara tíma-
móta á dögunum til að samfagna
Kongómönnum.
5 til 20 milljónir féllu
„Leópold 2. var sannur hugsjóna-
maður á sínum tíma, sönn hetja,“
sagði Louis Michel í viðtali við belg-
íska tímaritið P-Magazine. „Og ef
það áttu sér virkilega stað einhverj-
ir hræðilegir atburðir í Kongó, hvers
vegna ættum við að fordæma þá?“
Undir lok nítjándu aldar varð
belgíska nýlendan „Fríríkið Kongó“,
sem var skráð sem einkalenda
Leópolds 2., fræg af endemum fyr-
ir þrældóm og grimmilega meðferð
á kongósku þjóðinni. Tölur um þá
sem létust af hendi Belga, á meðan
þeir tæmdu auðlindir landsins, eru á
reiki, en sagnfræðingar telja að fimm
til tuttugu milljónir manna hafi fall-
ið.
Sönn hetja
„Leópold 2. á ekki skilið að sitja und-
ir þessum ásökunum,“ hélt Louis Mi-
chel áfram. Hann er sjálfur kominn
af Belgíukonunginum og handhafi
riddaraorðunnar í Leópoldsregl-
unni, sem er æðsta orðan í Belgíu.
„Belgar lögðu járnbrautir, byggðu
skóla og sjúkrahús og margfölduðu
hagvöxtinn. Breytti Leópold Kongó
í þrælkunarbúðir? Er það virkilega?
Þannig voru hlutirnir bara gerðir í þá
daga. Það er auðvelt að falla í freistni
og ýkja þegar kemur að Kongó. En
það er mín einlæga skoðun að hann
hafi verið sönn hetja, hetja sem vann
metnaðarfullt starf fyrir smátt ríki
Belgíu. Að nota orðið þjóðarmorð
um Kongó er algerlega óásættanlegt
og óviðeigandi,“ segir Louis Michel.
Fer til Kongó á næstunni
Óhætt er að fullyrða að þessi orð hafi
valdið miklum usla í Belgíu. Pol Van
Den Driessche úr Flæmska demó-
krataflokknum hefur sagt að orð Mi-
chels séu „siðlaus“. „Ef við myndum
miða hann við gildi dagsins í dag, er
líklegt að réttað hefði verið yfir Leó-
pold 2. hjá mannréttindadómstóln-
um í Haag,“ segir Van Den Driessche.
Stjórnmálamenn, fræðifólk, trúar-
leiðtogar og almenningur um alla
Evrópu og Afríku hafa fordæmt orð
Michels. Þykir mörgum stinga í stúf
að hann hafi gegnt starfi þróunar-
stjóra ESB sem vinnur náið með Afr-
íkuþjóðum. Og enn skrýtnara þykir
að Michel sé varaforseti þingmanna-
nefndar sem ber á ábyrgð á samskipt-
um við þjóðþing frá Afríku-, Karíba-
og Kyrrahafslöndum. Næsti fundur
nefndarinnar verður í desember í
höfuðborg Austur-Kongó, Kinshasa,
sem áður hét Leópoldville, til heið-
urs Leópold 2. Belgíukonungi.
Verktakar að störfum í hinum ógn-
arstóra grunni Ground Zero í New
York komu niður á fúnar viðarfjalir
sem stingast í beinni röð út úr grárri
leðju á þó nokkru dýpi. Mönnun-
um þótti augljóst að ekki var um að
ræða spýtur á strjáli, þeir sáu strax
að þeir höfðu fundið mikla völund-
arsmíð. „Fjölunum var svo fullkom-
lega uppraðað að þær eru greinilega
hluti skips,“ segir fornleifafræðingur-
inn Michael Pappalardo í samtali við
New York Times, en hann vinnur fyr-
ir hafnaryfirvöld í bandarísku stór-
borginni við varðveislu sjóminja.
Á miðvikudaginn kom endanlega
í ljós hvers konar minjar liggja þarna
í botninum, þar sem World Trade
Center-tvíburaturnarnir stóðu áður.
Stærðarinnar viðarskip liggur þarna
grafið og hefur líklega legið þar í yfir
200 ár.
Hópur fornleifafræðinga var
sendur strax á vettvang enda hefst
tæring fornminja á borð við þessar
um leið og þær komast undir ber-
an himinn. Skipið hefur varðveist í
langan tíma í þykkri leðju. Fornleifa-
fræðingurinn Doug Mackey hrós-
aði happi yfir rigningunni í vikunni.
„Ef sólin hefði skinið þennan dag,“
sagði hann, „hefði viðurinn molnað
um leið. Við ætlum að reyna að skrá
allt niður fyrst og rannsaka minjarn-
ar síðar.“
Á meðan fornleifafræðingarnir
vinna að uppgreftri skipsins halda
framkvæmdir áfram. Unnið er að
gríðarþykkum grunni fyrir hina nýju
turna sem rísa munu á Ground Zero
í stað tvíburaturnanna sem hrundu
hinn 11. september fyrir níu árum.
helgihrafn@dv.is
Louis Michel, þingmaður á Evrópuþinginu, segir að Leópold 2. Belgíukonungur
hafi verið hetja og hugsjónamaður. Sagnfræðingar telja að Leópold 2. hafi verið einn
grimmasti nýlenduherra Afríku á sínum tíma, en talið er að fimm til tuttugu milljónir
Kongómanna hafi fallið vegna ásælni hans í náttúruauðlindir landsins.
EINN ALRÆMDASTI
FJÖLDAMORÐINGI
SÖGUNNAR „HETJA“
Grimmur herra Leópold
2. (1835-1909) stýrði
nýlendunni Belgísku-
Kongó með harðri hendi
og skilgreindi landið sem
einkaeign sína.
HELGI HRAFN GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is
Breytti Leópold Kongó í þrælkun-
arbúðir? Er það virkilega?
Þannig voru hlutirnir
bara gerðir í þá daga.
Fyrrverandi þróunarstjóri „Leópold
var hetja.“ Louis Michel var áður æðsti
embættismaður ESB í þróunarmálum.
Hann mun ferðast til Kongó í desember.
Verktakar að störfum í grunni World Trade Center í New York:
Fundu 200 ára gamalt skip
Gríðarstór grunnur Framkvæmdir eru langt á veg komnar í grunni hinna föllnu
tvíburaturna.
Þrjú ár fyrir lygi
Tuttugu og tveggja ára bresk kona
var í dag dæmd í þriggja ára fang-
elsi fyrir að ljúga að sér hefði verið
nauðgað. Konan, Leyla Ibrahim,
vildi kenna vinum sínum ærlega
lexíu fyrir að yfirgefa sig þegar þau
voru úti að skemmta sér. Fjórir voru
handteknir þegar nauðgunarkæran
kom inn á borð lögreglu. Þar af voru
tveir piltar undir sextán ára aldri.
Þeir voru allir vistaðir í fangageymsl-
um þar sem þeim var haldið í tæpa
þrjá sólarhringa.
Leyla, sem er ólétt og komin sjö
mánuði á leið, veitti sér sjálf líkam-
lega áverka kvöldið örlagaríka, hún
reif utan af sér fötin og gaf sjálfri sér
glóðarauga – allt í þeim tilgangi að
kenna vinum sínum lexíu.
Furðusveppi
kennt um dular-
full andlát
Eftir fimm ára rannsóknastarf
hafa vísindamenn kennt sak-
leysislegum sveppi, sem þekktur
er undir nafninu „litli hvíti“, um
hundruð dularfullra dauðsfalla
í suðvesturhluta Kína á undan-
förnum árum. Enginn vissi hvað
hefði valdið Yunnan-heilkenn-
inu sem fólk á öllum aldri lést
fyrirvaralaust úr. Talið er að 400
manns hafi látist á þennan hátt
á síðustu þrjátíu árum. Nú hefur
úrvalsteymi kínverskra lækna og
vísindamanna, nefnd sem skipuð
var af Kínastjórn, komist að því
að furðusveppurinn er sökudólg-
urinn í málinu. Vísindamennirnir
fundu eiturefni í sveppategund-
inni sem virðist þó ekki vera ban-
vænt. Kínversku sérfræðingarnir
ætla að reyna að einangra eitrið
til að komast að því hvort það geti
valdið hjartaáfalli. Sjúkdómurinn
herjar á einangruð þorp á dreif-
býlissvæðunum í fjallendi Yunn-
an-héraðs á hverju sumri. Yfir-
gnæfandi meirihluti þeirra látnu,
lést í júlí og ágústmánuði.
Lofuðu að hjálpa
Haítí en lítið um
efndir
Nú hálfu ári eftir að jarðskjálfti reið
yfir á Haítí með þeim afleiðingum að
um 220 þúsund manns létust, hafa
sárafá ríki reitt fram það fé sem þau
lofuðu til endurreisnar og annarra
verkefna í landinu. 300 þúsund slös-
uðust í skjálftanum og milljón heim-
ili voru í rúst. Á sérstökum neyð-
arfundi í mars samþykktu fulltrúar
fjölmargra ríkja að verja jafnvirði
665 milljarða króna, til þess að koma
þjóðlífinu á Haítí af stað á ný. CNN
segir frá því að efndir þeirra loforða
séu ekki miklar. Það eru einungis
Brasilíumenn, Norðmenn, Eistlend-
ingar og Ástralar sem hafa staðið við
loforð sín. Þegar þetta var skrifað
hafði DV ekki komist að því hvernig
Ísland hefur staðið sig.