Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2010, Blaðsíða 27
„Nei, ég er ekki flokksbundinn.“
Birkir ingiBjartsson
24 ára, Nemi í arkitektúr
„Nei.“
Hafþór Örn
26 ára, öryggisvörður
„Nei.“
Hlynur axelsson,
30 ára, Nemi í arkitektúr
„Nei.“
sólrún Ýr guðBjartsdóttir
25 ára, Námsmaður
„Nei, ég er það ekki.“
inga Ævarsdóttir
37 ára, Nemi
Ert þú flokksbundin/n?
aðalHeiður Borgþórsdóttir
er framkvæmdastjóri listahátíðarinnar
Lunga sem fram fer á seyðisfirði um
helgina. mikið verður brallað fyrir
austan þar sem meðal annars Hjálmar
og Hjaltalín spila.
Styrkjaleit
gekk vel
Á miðöldum var lýðræði framandi
hugtak og hafði óljósa skírskotun
til veruleikans. Löghlýðni bænda
og búaliðs undir lénsfyrirkomulagi
var tryggð með valdboði konung-
dæma og lénsherra með fulltingi
kirkjunnar. Valdið var hjá guði og
umboðsmenn hans á jörðu, kirkju-
höfðingjar og aðall, lifðu í skjóli
þessa valds og yfirráða. Í nafni guðs
þrælaði almúginn, sums staðar
undir hótunum og helvítispredik-
unum klerka. Sums staðar lofuðu
klerkarnir útvalningu í himnaríki
ef menn „breyttu rétt“ og fetuðu
þröngan stíg dyggðanna. Dyggðugt
var meðal annars það líferni sem fól
í sér hlýðni við valdið og aflaði vista
á allsnægtaborð höfðingja og kirkj-
unnar þjóna.
Með lýðræðishugmyndinni var
þessari löghelgun valdsins kollvarp-
að enda mætti hún harðri andstöðu
á nítjándu öld. Andstaðan við lýð-
ræði hvarf mikið til Í Evrópu á fyrri
hluta tuttugustu aldar. Hugtakið
varð gildishlaðið, fékk á sig jákvæð-
an blæ, svo að ekki gekk að vera
andsnúinn því. Hin ríkjandi stétt var
vitanlega á móti lýðræði, enda vofði
yfir að hún yrði að afsala sér völdum
og hefðbundnum forréttindum ef
það festist í sessi. Valdastéttin varð
þó yfirleitt að láta í minni pokann
um og upp úr fyrri heimsstyrjöld-
inni. Þessi vendipunktur varð kjöl-
festan að breyttum valdahlutföllum
í Vestur-Evrópu.
sjálfstæðið færir sumum völd
Með líku sniði varð sjálfstæðis-
hugtakið gildishlaðið í framhaldi
af byltingunum 1830 og 1848. Að
þessu sinni kom það sér vel fyr-
ir borgarastéttina í fyrrum nýlend-
um. Þar gat verkalýðsstéttin, einnig
á Íslandi, ekki annað en stutt þessa
hreyfingu til sjálfstæðis.
Öll tuttugasta öldin á Íslandi ein-
kenndist af þessum bælandi gild-
um sjálfstæðisins sem borgaraöflin
höfðu tekið í sína þjónustu og notað
sem valdatæki. Þátttaka í alþjóða-
samtökun krata og komma var álitin
föðurlandssvik. Sama gilti um þátt-
töku í fjölþjóðlegum tollabanda-
lögum eða aðild að alþjóðlegum
mannréttindasáttmálum. Þeim var
brigslað um svik sem fóru með hug-
myndum sínum og málflutningi
gegn heilögu sjálfstæðinu og síðar
flokknum, sem kenndi sig við þetta
sjálfstæði.
Eitt helsta hugðarefni Björns
Bjarnasonar, fyrrverandi dóms-
málaráðherra, var til að mynda
að koma á herskyldu og undirbúa
lög um landráð gegn sjálfstæðinu.
Björn beitti sér enn fremur fyrir því
að Mannréttindaskrifstofa Íslands
fékk ekki ríkisframlög.
Nú bjástrar fyrsta ríkisstjórn jafn-
aðar- og vinstrimanna á Íslandi við
að festa í sessi gildi sem alla síðustu
öld treystu völd pólitískra andstæð-
inga þeirra. Sem dæmi lætur hún
spyrjast um þessa heillum horfnu
þjóð að hún virði ekki tilmæli
mannréttindanefndar Sameinuðu
þjóðanna og traðki á sjómönnum í
þágu útgerðaraðals sem hatramm-
legast allra heldur á lofti sjálfstæð-
isgildum í nafni sérhagsmuna sinna
Sjálfstæðisáherslur Sjálfstæðis-
flokksins hafa um áratugaskeið ofið
saman andstæða hagsmuni og um
leið dregið tennurnar úr verkalýðs-
hreyfingunni hér á landi. Sjálfstæð-
isgildin gegnsýra enn ystavinstrið í
VG og fyrir vikið er það sem verkfæri
í höndum gömlu sérhagsmuna-
gæslunnar.
stolt fram af bjargbrúninni
Nánast allt sem verkalýðshreyfing-
in reynir að þakka sér er afrakst-
ur verkalýðsbaráttunnar í Þýska-
landi og á Norðurlöndum. Hún átti
ekki frumkvæði að neinu öðru en
að flytja inn velferðarkerfi Skand-
inavíu – meira og minna skert. Þrátt
fyrir skylduaðild að stéttarfélögum
eru virkir launamenn innan þeirra
ef til vill aðeins 1 prósent. Skylduað-
ildin hefur komið vinstrimönnum
í eins konar leppstöðu íhaldsins.
Hægrimenn eiga stundum fjórð-
ung fulltrúa í valdastofnunum ASÍ.
Í öðrum löndum, sem ekki skylda
launamenn til stéttarfélagsaðildar,
er þetta hlutfall miklu lægra.
Þessi hrærigrautur lamar ASÍ
sem hreyfiafl gegn ítökum hægri-
manna og sjálfstæðissinna. Sam-
suðan er lamandi samspyrðing
hagsmuna þar sem hallar á launa-
menn á flestum vígstöðvum. Þetta
kemur fram með skýrum hætti í lög-
helguðum ítökum atvinnurekenda í
stjórnum lífeyrissjóða launamanna.
Þessi þjóðfélagsmynd er gerólík
þeirri sem við blasir annars staðar
á Norðurlöndum og víðar um Evr-
ópu. Þessi bitlausa, ógagnrýna og
þaggandi samspyrðing hagsmun-
anna innan verkalýðshreyfingar og
jafnvel innan íslenskra stjórnmála-
flokka, háskóla og fjölmiðla reyndist
meira en lítið afdrifarík fyrir þjóð-
ina. Á meðan hún söng „Hraust-
ir menn“ og „Brennið þið vitar“ fór
hún fram af hengiflugi bankahruns-
ins og þiggur nú súpu úr ölmusueld-
húsum auðmanna meðan mannúð-
in fer í sumarfrí.
Þrælað í nafni sjálfstæðisins
myndin
Hver er konan? „alla Borgþórs.“
Hvar ertu uppalin? „Ég er fædd
í vestmannaeyjum og alin þar upp
til unglingsaldurs. Þaðan flutti ég á
seyðisfjörð og hef búið þar síðan.“
Hvað drífur þig áfram? „Lífið sjálft.“
Hvar vildirðu helst búa ef ekki á
Íslandi? „Ég hugsa að ég myndi vilja búa
í Danmörku.“
Hvaða bók lastu síðast? „Það er orðið
svo langt síðan ég las eitthvað.“
Hvað er lunga? „Lunga er listahátíð
fyrir ungt fólk þar sem gestir fá ekki bara
að njóta, þeir fá líka að gera. Fólk fær að
vera þátttakendur á hátíðinni. á henni
eru þrír aðallhlutar: smiðjur, viðburðir og
stórir tónleikar.“
er þessi hátíð fyrir alla? „Já, tvímæla-
laust. Það er reyndar aldurstakmark í
smiðjurnar en annars er hún fyrir alla.“
Hvað er í boði á lunga í ár? „Það eru
náttúrulega þessar smiðjur og svo er
fatahönnunarsýning þar sem 13 ungir
hönnuðir sýna. síðan eru tónleikar bæði
á föstudags- og laugardagskvöld. á
föstudaginn er sumargleði kimi-records
og svo eru afmælistónleikar á laugar-
daginn.“
Hefur verið erfiðara að skipuleggja
hátíðina en áður? „Jú, auðvitað
eitthvað, kostnaðurinn hefur náttúrulega
hækkað og það er ekki eins gott aðgengi
að styrkjum og vanalega. Þangað sem
við höfum leitað hefur okkur samt verið
tekið vel.“
er eitthvað sem þú mælir sérstak-
lega með í ár? „afmælistónleikarnir á
laugardagskvöldið. Þar spila til dæmis
Hjaltalín, Bloodgroup með strengjasveit,
miro, retro stefson og seabear.“
Hvað kostar svo fyrir fólk sem er í
nágrenninu og langar að kíkja?
„Það kostar 2.000 krónur á afmælis-
tónleikana en ef fólk kaupir armband
fyrir klukkan 19.00 á föstudaginn fá þau
frítt inn á plötusnúð sama kvöld. Þá
kostar líka bara 1.500 krónur á tónleika
Hjálma. annars er hægt að nálgast frekari
upplýsingar á Lunga.is.“
maður dagsins
dómstóll götunnar
kjallari
föstudagur 16. júlí 2010 umræða 27
kosningaskrifstofan rýmd Hún er heldur látlaus, skrifstofan sem var samkomustaður liðsmanna Besta flokksins í kosningabaráttunni. eina auðkenni stjórnmálanna sem
þar var eftir á fimmtudag var poki með merki vinstri-grænna, stjórnarandstöðuflokks í borgarstjórn reykjavíkur. dv-mynd róBert reynisson
jóHann Hauksson blaðamaður og
dr. sÆvar tjÖrvason skrifa