Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2010, Síða 30
EINA BALL SUMARSINS
Á móti sól á Sumargleði Bylgjunnar á
Flúðum á laugardaginn. Í fréttatilkynn-
ingu segir að þetta sé eina ball ÁMS í
sumar og að hljómsveitarmeðlimir hlakki
hrikalega til. Sérstakir gestir verða Raggi
Bjarna,Toggi og Hemmi Gunn. Allir eru
þeir á heimsminjaskrá Unesco, að því er
segir í tilkynningunni.
TODMOBILE Á GRÆNA HATTINUM Einhver magn-
aðasta tónleikahljómsveit landsins, Todmobile, spilar á Græna hattinum
á Akureyri um helgina. Bandið spilar þar á laugardagskvöldið en það er í
fyrsta sinn í töluverðan tíma. Vart þarf að kynna Todmobile fyrir tónlist-
aráhugamönnum. Sveitin var stofnuð árið 1988 af þeim Þorvaldi Bjarna
Þorvaldssyni, Eyþóri Arnalds og Andreu Gylfadóttur og gaf Todmobile
út átta plötur áður en hún hætti störfum 1994. Eftir endurreisn tæpum
áratug síðar hefur hún meira og minna verið starfandi við góðan orðstír.
Tónleikarnir á laugardaginn hefjast klukkan 22 og standa til kl. 1.
Listahátíðin LungA fer fram á Seyðisfirði um helgina:
10 ára afmælishátíð LungA
Í tilefni af tíu ára afmæli listahá-
tíðarinnar LungA verður tónlist-
arveisla hátíðarinnar sérstaklega
glæsileg. LungA, sem stendur fyr-
ir „Listahátíð ungs fólks á Aust-
urlandi“ fer fram um helgina, á
Seyðisfirði sem fyrr. Miðbæjar-
svæði bæjarins verður breytt í eitt
samfellt hátíðarsvæði á laugar-
daginn þar sem tvö útisvið verða
með stanslausa tónlist allan daginn
fram til klukkan eitt eftir miðnætti.
Á afmælistónleikum LungA
koma fram Seabear, Hjaltalín,
Bloodgrup ásamt strengjasveit,
Miri, Helmus und Dalli, Óli Ofur,
Oculus, (Cassette), DJ Flugvél og
Geimskip, Muted/Hypno og Retro
Stefson. Fimmtán ára og yngri fá
aðgang í fylgd með fullorðnum og
fólk fimmtíu ára og eldra fær frítt
inn á tónleikana.
LungA var fyrst haldin árið 2000.
Af því tilefni mun aðeins kosta 2000
krónur á tónleikana, og þeir sem
kaupa í forsölu fá frítt inn á upp-
skeruhátíðina sem hefst klukkan
14.
Auk tónlistarveislu LungA á
laugardaginn eru margir spenn-
andi viðburðir í gangi yfir alla há-
tíðina. Þar má nefna sumargleði
Kimi records, glæsilega fatahönn-
unarsýningu, listasmiðjur, tón-
leika með Hjálmum og margt fleira.
Dagskrána í heild sinni er að finna
lunga.is.
30 FÓKUS 16. júlí 2010 FÖSTUDAGUR
BRUSTAD OG
BRAHMS Á
GLJÚFRASTEINI
Gunnhildur Daðadóttir og Guð-
ríður St. Sigurðardóttir spila á fiðlu
og píanó á stofutónleikum Gljúfra-
steins á sunnudaginn klukkan 16.
Á efnisskránni eru Ævintýrasvíta
Bjarne Brustads og Sónata fyrir fiðlu
og píanó í G-dúr op 87 eftir Johann-
es Brahms. Gunnhildur hefur ver-
ið meðlimur í Sinfóníuhljómsveit
Íslands, Kammersveit Reykjavíkur,
Strengjakvartettinum Loka og Mela-
kvartettinum. Guðríður hefur víða
komið fram, ýmist sem einleikari eða
með öðrum tónlistarmönnum, bæði
hljóðfæraleikurum og söngvurum,
hér á landi sem erlendis. Aðgangs-
eyrir er 1.000 krónur og allir vel-
komnir á meðan húsrúm leyfir.
ÚTGÁFU- OG
AFMÆLISBOÐ
Vilborg Dagbjartsdóttir rithöfundur
fagnar 80 ára afmæli sínu á sunnu-
daginn, 18. júlí. Af því tilefni kemur
út níunda ljóðabók hennar, Síðdegi.
Þessum tvöföldu tímamótum verður
fagnað með útgáfu- og afmælisboði
í Bókabúð Máls og menningar að
Laugavegi 18 á afmælisdaginn milli
klukkan 16-17. Allir velkomnir.
Lungamjúkt stuð
Bloodgroup er á meðal þeirra
hljómsveita sem spila á
afmælistónleikum LungA.
MYND ARNAR ÓMARSSON
BÍTLARNIR,
STONES OG ÁRNI
JOHNSEN
Stokkseyringar boða til Bryggju-
hátíðar í sjöunda sinn nú um
helgina. Fjölbreytt dagskrá er í
boði fram til sunnudags en hátíð-
in hófst á fimmtudaginn.
Ákveðinn hápunktur hátíðar-
innar verður á föstudagskvöld-
ið þegar fjölskylduskemmtun
verður á Stokkseyrarbryggju.
Þyrlusveit Landhelgisgæslunn-
ar kemur í heimsókn og lendir á
bryggjunni, Árni Johnsen stjórnar
bryggjusöng við varðeld eins og
hann hefur gert á öllum hátíðun-
um, hljómsveitin Granít frá Vík í
Mýrdal verður með bryggjuball
þar sem áhersla verður meðal
annars á lög Bítlanna og Rolling
Stones og munu þá þekktir með-
limir bætast í hljómsveitina svo
um munar. Nánar á stokkseyri.is.
Toggi er klæddur svört-um vinnubuxum með grasgrænu í þar sem hann hittir blaðamann á sólríkum degi í mið-
borginni. Ástæðan fyrir grasgræn-
unni er sú að Toggi rekur sitt eigið
fyrirtæki, Hreinir Garðar, sem sér um
almenna garðaumhirðu hjá einstakl-
ingum og fyrirtækjum.
„Ég hef alltaf haft dagvinnu með-
fram tónlistinni en stofnaði nýlega
þetta fyrirtæki með bróður mínum.
Ég vinn frekar mikið, er í vinnunni
á daginn og stúdóinu á kvöldin og
nóttunni. Ég sef svona einu sinni í
viku!,“ segir hann og brosir. Nú á dög-
unum sendi hann frá sér stuðsmell-
inn „Take Me Dancing“ – lagið er að
finna ókeypis á netinu.
„Ég vil auðvitað að sem flestir
hlusti á lagið og heyri það og svona.
Þannig vekur það athygli. Og það
skilar sér í plötusölu. Það er alltaf
einhver fjöldi sem vill eiga diskinn,
ég er þannig, vil eiga diskinn sjálf-
ur, ekki bara einhvern MP3-fæl. Fyr-
ir utan að svona fælar eru ekkert í
sömu gæðum og þú ert að fá á plöt-
unni, þeir eru alltaf þjappaðir. Það
eru reyndar engir peningar í plötu-
sölu heldur eru peningarnir í spila-
mennsku, selja tónlist í auglýsingar,
bíómyndir og sjónvarpsþætti.“
Toggi segist fara víða í textagerð-
inni á nýju plötunni. „Hún er fjöl-
breyttari en síðasta plata, síðasta
plata var mikið unglingsárauppgjör,
ástarsorg og svona. Þessi er beittari.
Aðeins meira blóð á tennurnar í text-
unum. Þetta er framhjáhald, heim-
ilisofbeldi, kynlíf. Á köflum tekur
hún sig ekki jafn alvarlega, ekki jafn
dramatísk. Á öðrum stöðum fer hún
miklu lengra. Textalega er hún miklu
fjölbreyttari, minna persónuleg á yf-
irborðinu en gefur samt betri mynd
af mér, er þrívíðari. Ég er ekkert bara
ljúfur og góður og í ástarsorg. Ég hef
verið mígandi fullur og komið illa
fram við fólk og haldið framhjá –
raunar ekki með núverandi konunni
minni, en áður. Ælt úti í horni og ver-
ið kúkalabbi. En svo hef ég líka verið
mjög fínn. Þessi plata flakkar miklu
meira og lengra. Það eru til dæmis
tvö lög þarna um kjallaranauðgar-
ann í Austurríki,“ segir Toggi.
Engin poppstjarna
Toggi hefur ekki haft sig mikið í
frammi, heldur ekki oft tónleika og
sækist ekki eftir viðtölum í glans-
tímaritum. Það má því geta sér þess
til að honum sé ekkert allt of vel við
að vera þekktur – hvað þá popp-
stjarna með vinsælasta lag ársins.
„Ég er ekki poppstjarna, Páll Ósk-
ar er sá eini sem getur raunverulega
kallað sig poppstjörnu. En mér hef-
ur aldrei heldur þótt það eftirsókn-
arvert. Ég hélt til dæmis að ég myndi
fá eitthvað kikk út úr því þegar fólk
myndi þekkja mig úti í búð eða eitt-
hvað. En tveir eða þrír bensínstöðv-
armenn hafa spurt mig hver ég sé og
mér finnst það frekar óþægilegt bara,
vandræðalegt. Það er heldur ekkert
að hafa upp úr því hérna heima. Til
þess að verða svona einhversskonar
celeb hérna á Íslandi, eins og mörg-
um finnst eftirsóknarvert, yfirleitt
sömu típunum, þá þarftu yfirleitt
að vera annaðhvort einhverskonar
trúður eða frík. Og ég er hvorugt og
hef engan sérstakan áhuga á að troða
mér í þann flokk. En þetta er rosalega
mikið sömu típurnar, sækjast eftir því
að komast í Séð&Heyrt, eru í Innlit/
Útlit og eru bara allsstaðar en hafa í
sjálfu sér ekki neitt fram að færa. Ég
hef engan áhuga á því að taka þátt í
því eða tengja mig sérstaklega við
það fólk.“
Toggi nam bókmenntafræði í há-
skólanum á sínum yngri árum og
þykir bráðfyndinn og beittur penni.
Nú þegar allir virðast gefa út bæk-
ur er forvitnilegt að vita hvort hann
hafi ekki hug á bókarskrifum. „Það
getur vel verið að ég skrifi þegar ég
er búinn að missa röddina og orð-
inn of gamall og feitur og ógeðsleg-
ur. En það er ekkert núna. Það hefur
svolítið verið pressað á mig að nýta
þetta sem plöggtæki, blogga mjög
mikið eða eitthvað svoleiðis til þess
að keyra upp einhvern celebstatus á
mér og ég hef reynt það tvisvar held
ég. Mér fannst það bara eitthvað svo
asnalegt, fólk er alltaf að skrifa um
það sem það er að gera og ég geri
ekki neitt. Ég geri ekkert nema vinna
og vera í tónlist, það er ekkert ann-
að í mínu lífi, ekki neitt. Það er helst
að ég fari í bíó, ég fer ekki á djam-
mið og ég er helst hræddur við að
ef ég færi að blogga eða skrifa eitt-
hvað svona reglulega inn þá komist
bara upp um það hvað ég er í raun
og veru leiðinlegur. Og þess vegna
hélt ég lengi vel svona huldumann-
astatus af því að þá svona hélt fólk já
hann er svona spennandi, úti í horni
og bak við einhverja hulu, við vitum
ekkert um hann. Þá hélt ég svona, að
fólk mundi fara að grennslast fyrir
um mig og finnast ég meira spenn-
andi, þannig fengi ég meiri athygli.
Svo virkaði það í rauninni ekkert sér-
staklega vel, fólk tók bara minna eft-
ir mér. Ég geri ekki neitt nema sinna
tónlist og ég lifi mjög hversdagslegu,
döll lífi svona út á við. Mér finnst það
ekkert leiðinlegt en það væri mjög
leiðinlegt að vera áhorfandi að líf-
inu hjá mér,“ segir Toggi og brosir út
í annað.
Þroskaðist við
að hætta að drekka
Toggi á tvö börn með unnustu sinni
og segir fæðingu barna sinna ekki
hafa umbylt lífinu – en það sé óum-
deilanlega skemmtilegra. „Ég var
einmitt búinn að heyra svo mikið
svona, að þetta umbylti öllu og ég
ætti aldrei eftir að líta lífið sömu aug-
um. Það breyttist ekkert hjá mér, ég
spila ennþá sömu tölvuleikina með
strákana við hliðina á mér. Það er
einna helst að ég get ekki sofið út,
allavega sjaldan og er því almennt
frekar illa sofinn. Og lífið er skemmti-
legra. Fram að því að ég eignað-
ist strákana, þá var ég pínu morbid
eins og það er sagt á ensku, ekki með
dauðaósk en ég var ekkert ósátt-
ur við það ef til þess kæmi. Hugsaði
alltaf með ákveðinni hlýju til þess
að svona einhvern tímann drepst ég
og það verður frekar kósí því þá er
„MEIRA BLÓÐ Á TENNURNAR“
Tónlistarmaðurinn Toggi hefur gefið frá sér glænýja smáskífu af plötu sem er vænt-
anleg í haust. Nýja platan er beinskeytt og textarnir fjölbreyttari en áður, lífið er ekki
bara ljúft og gott í ástarsorg. Toggi segir barneignir litlu hafa breytt í sínu lífi, hann
spili ennþá tölvuleiki - nú með syni sína sér við hlið.
ÁFENGISLEYSI GOTT Toggi segist hafa tekið út mikinn þroska þegar hann hætti
að drekka. MYND HÖRÐUR SVEINSSON