Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2010, Qupperneq 35
föstudagur 16. júlí 2010 viðtal 35
einhvers staðar að slaka á. Ef þú ert aleinn þá
þekkir þig enginn nema þú sjálfur,“ segir Ómar
og brosir. „Yfirleitt þegar fólk sér mig er ég á fullu
að gera eitthvað mjög krefjandi. Það heldur því
að ég sé alltaf þannig en það er bara rangt. Það er
einfaldlega ekki hægt.“
Ómar hefur sínar leiðir til þess að slaka á og
jafnvel þó að hann sé að dytta að hinu og þessu
finnur hann mikla afslöppun þegar hann er einn
með sjálfum sér. Hann hefur til dæmis verið að
vinna að því að gera flugvöll uppi á hálendi síð-
astliðin sjö ár og nánast alfarið einn síns liðs.
„Vinnan að honum hefur mestmegnis verið
þannig að ég er aleinn á svæðinu. Þá er ég í burtu
frá öllu öðru og ekkert sem truflar mig. Jafnvel
þótt ég hafi verið að vinna er það hin mesta af-
slöppun og alveg ótrúleg hvíld. Valta völlinn eða
merkja og hafa allt í lagi. Þetta er auðvitað al-
gjör afslöppun,“ en þessi flugvöllur hans sem er
staðsettur á Brúaröræfum fékk starfsleyfi fyrir
skemmstu.
Flugvöllur þessi sem Ómar vinnur að er
merkilegur fyrir margar sakir. Ekki bara þær að
hann hafi nánast einn síns liðs komið honum í
stand og fengið á hann starfsleyfi heldur vegna
þess að hann er á stærð við Reykjavíkurflug-
völl og er nauðlendingarflugvöllur fyrir allan ís-
lenska flotann. „Þetta er náttúrugerður flugvöll-
ur en það þurfti að gera ýmislegt og leita álits
margra aðila til þess að hann fengi starfsleyfi.“
Allt leyfilegt í nAfni kreppu
Ómar hefur alla tíð verið mikill náttúruverndars-
inni og lagt málstaðnum mikið til. Undanfarin ár
hefur hann farið nánast alfarið út í gerð heimild-
armynda sem flestallar fjalla um íslenska náttúru
og þær afleiðingar sem virkjanir eða önnur stór-
iðja muni hafa á hana. Til dæmis barðist Ómar
manna mest gegn Kárahnjúkavirkjun og nú fyr-
ir skemmstu birti hann sláandi myndir af Háls-
lóni þar sem sandfok er svo mikið að það minnir
einna helst á sandstorm í Sahara-eyðimörkinni.
Ómar segir að Íslendingar hafi gert mörg mis-
tök í góðærinu en að hætta sé á að þau verði jafn-
vel enn stærri eftir hrun. „Því miður óttast ég að
hrunið muni skaða náttúru Íslands mun meira
en gróðærið hefur gert. Það var ansi margt orðið
leyfilegt í nafni gróðærisbólunnar en núna, núna
er allt orðið leyfilegt í nafni kreppu.“ Ómar óttast
þá skammtímahugsun sem hafi heltekið marga.
Þar sem einungis er horft til stóriðju og stórfram-
kvæmda.
„Það er alltaf einhver neyð. En getum við
endalaust gengið á rétt komandi kynslóða? Þessi
hugsun um að það sé hægt að græða endalaust
er enn þá við lýði hér á Íslandi. Og sú hugsun
að fara alltaf fljótlegustu og ódýrustu leiðina að
öllu. Það er aldrei horft lengra fram í tímann en í
mesta lagi nokkur ár. „Take the money and run.“
Það er hugarfarið sem leiddi okkur í hrunið og
það er ekki hugarfarið sem mun koma okkur út
úr því.“
Aldrei Afturkræft
Það sem Ómari svíður mest er að náttúruperl-
um Íslands sem er fórnað undir virkjanir sé ekki
gefinn sá möguleiki að sýna sig og sanna sem
ferðamannasvæði. „Rökin til dæmis um það
svæði sem nú er á botni Hálslóns voru þau að
þar hefði nánast aldrei neinn komið. Er svæð-
ið eitthvað minna glæsilegt fyrir vikið? Átti ekki
bara eftir að virkja möguleika þess sem ferða-
mannasvæði? Ísland er mjög ungt land og ekki
síst þegar kemur að ferðaþjónustu. Af hverju
var ekki hægt að gefa þessu svæði 20 ár og sjá
hvort það næði sér á strik sem ferðmannaperla?
Ef ekki þá væri hægt að virkja. Því eftir að það
er búið að virkja þarna og fylla dalinn af drullu
er aldrei hægt að gera neitt þarna framar. Jafnvel
þótt lónið yrði tæmt strax í dag.“
Þá segir Ómar enga röksemd í því hvernig
ríkisvaldið metur verðmæti landsvæða gagnvart
ferðaþjónustu annars vegar og virkjunum hins
vegar. „Það er metið hversu miklum gróða land-
svæðið á eftir að skila eftir að búið er að virkja en
svo er metið hversu miklum gróða svæðið skilar
í núverandi mynd fyrir ferðamennsku. En ekki
hversu miklu það gæti skilað eftir að búið er að
gera það aðgengilegt og auglýsa það sem ferða-
mannasvæði. Þetta er bara röng nálgun og ójafn
leikur.“
SkuldSettur
Líkt og fyrr sagði er Ómar með einar níu heim-
ildarmyndir í vinnslu. Hann ákvað að gerast
sjálfstæður heimildamyndagerðarmaður árið
2001. „Vegna þess hvernig virkjanahugmynd-
irnar hafa dúkkað upp á nýjum og nýjum stöð-
um hef ég þurft að fara af stað og byrja að sanka
að mér efni úti um allt. Þetta er svo mikil og dýr
kvikmyndagerð og erfitt að fjármagna hana. Ég
hef aldrei fengið krónu úr Kvikmyndasjóði og
þrátt fyrir nokkra aðra styrki ná endarnir ekki
saman.“
Ómar er þó ekki bara með myndir um virkj-
anir í smíðum heldur einnig um flugvöllinn
sem hann hefur unnið að og um olíuhreinsi-
stöðina sem reisa átti á Vestfjörðum. „Allt í einu
átti að fara að eyðileggja eitt fallegasta svæði
Vestfjarða með olíuhreinsistöð. Þannig að ég fór
af stað í það verkefni og fór til Noregs að safna
efni í kringum stöð sem er þar. Á Vesturlöndum
hefur engin slík stöð verið reist í aldarfjórðung
af því að enginn vill hafa svona skrímsli nálægt
sér.
Þetta hefur þróast upp í það að vera hlaup-
andi á eftir virkjanaáformunum út um allt. Ég er
með átta myndir af þessu tagi í takinu og allar
eru þær stopp því að ég er kominn í skuld. Sem
er til komin að hluta til út af hruninu. Því fyrir-
tæki fór á hausinn sem ætlaði að styrkja mig við
myndina um Örkina og Hálslón og þar með fuku
sjö milljónir út um gluggann. Ég gat hins vegar
ekki hætt að taka upp því landið var að sökkva.
Ég varð að halda áfram að taka myndir sem ann-
ars hefði aldrei verið hægt að taka.“
Ómar segir þó mikilvægasta verkefnið núna
vera að klára myndina um Gjástykki og Leir-
hnjúk. „Fólk verður að sjá hvað er verið að gera
þar og á að fara að gera. Það sorglega er samt
að þegar ég nefni þessi nöfn spyrja allir: „Hvað
er það?“ Gjástykki er staður sem er alveg á pari
við Öskju og jafnvel merkilegri. En núna erum
við líka með kynslóð sem segir „Askja? Hvað er
það?“
70 fermetrA íbúð og
minnSti bíll lAndSinS
Ómar og eiginkona hans hafa fórnað miklu fyrir
kvikmyndagerðina og hingað til hefur uppsker-
an verið rýr. „Við hjónin settum allar eigur okk-
ar árið 2001 og næstu ár þar á eftir í kvikmynda-
gerðina. Nema flugvélina sem er mér sama virði
og penninn rithöfundi og ég get ekki verið án
eins og gosið í Eyjafjallajökli er gott dæmi um.
Við búum í 70 fermetra leiguíbúð og ég ek um á
minnsta og ódýrasta bíl landsins.“
Ómar segir algjört frost ríkja gagnvart
myndinni Á meðan land byggist. „Ráðandi öfl
í þjóðfélaginu og óttinn í þjóðfélaginu við þessi
öfl skópu þetta frost. Enginn þorði að styrkja
þessa mynd og að lokum varð listinn yfir kost-
unaraðila við frumsýningu sá stysti sem um
getur – aðeins tveir aðilar með samtals 600
þúsund króna styrk vegna myndar sem að öllu
eðlilegu kostaði vart undir 15 milljónum króna.
Kvikmyndasjóður var lokaður og hefur verið
gagnvart mér.“
Ómar segir þó huggun í því að hafa fengið
tvær tilnefningar til Edduverðlauna og hlotið
önnur þeirra. „En það lifir enginn af Edduverð-
launum eða gerir neitt fyrir þau. Í framhaldinu
gerði ég svo myndina í enskri útgáfu undir heit-
inu In memoriam? og nokkrir styrkir gerðu mér
þetta kleift þótt endar næðu ekki saman. Ég von-
aðist eftir gengi á erlendum markaði en þrátt fyr-
ir verðlaun á kvikmyndahátíð á Ítalíu kom í ljós
að það þarf peninga og vinnu til að koma þessu
áfram og vonirnar brugðust.“
Síðan hefur hver af myndunum níu rekið
aðra. „Myndin Örkin hefur verið langerfiðust
þótt ítrasta sparnaðar hafi verið gætt, sofið í bíl-
druslum og alger frumbýlingsháttur viðhafður
til að halda verkinu áfram. Styrkur frá nokkrum
aðilum og aðstoð ómetanlegra vina gerði mér
kleift að klára það mikilvægasta en þegar sjö
milljónir duttu aftan af vegna hrunsins og gjald-
þrots styrktaraðila sitja eftir skuldir upp á meira
en fimm milljónir og allt er stopp.
Styrkur úr Pokasjóði, sem kemur nú til hjálp-
ar til myndar um Leirhnjúk og Gjástykki, liðkar
fyrir svo að hjólin geti farið að snúast með því að
ég klári þá mynd.
Ég stefni að því að frumsýna hana næsta vet-
ur þótt á brattann sé að sækja og sæki styrk í ljóð
Hannesar Hafstein: Ég elska þig, stormur... og
orða það svona:
Láttu ekki mótlætið buga þig heldur brýna
birtuna má aldrei vanta í sálu þína.
Ef hart ertu leikinn svo þú átt í vök að verjast
vertu ekki dapur, njóttu þess heldur að berjast.
lífSförunAuturinn á betrA Skilið
Verst af öllu þykir Ómari að leggja þessar fjár-
hagslegu byrðar á eiginkonu sína sem hef-
ur reynst honum svo vel í gegnum árin. „Verst
finnst mér að hún þurfi að bera þessar byrðar
með mér. Að hún þurfi að leggja svona mikið á
sig með mér.
Mér finnst svo erfitt að sætta mig við það að
kona sem er búin að ala upp sjö börn og skila
svona góðu ævistarfi þurfi að ganga með mér í
gegnum svona mikla erfiðleika sem ég hef þurft
að ganga í gegnum undanfarin ár.“
Hinir vitleySingArnir
Þrátt fyrir allt sem gengur á í kvikmyndagerðinni
ætlar hann þó að tileinka þetta ár skemmtikraft-
inum Ómari Ragnarssyni í tilefni af afmælinu.
„Hinir vitleysingarnir, eins og ég kalla þá, frétta-
maðurinn, dagskrárgerðarmaðurinn, umhverf-
ismaðurinn, pólitíkusinn, kvikmyndagerðar-
maðurinn, tónlistarmaðurinn og fleiri, verða að
víkja aðeins til hliðar á þessu ári og ég ætla að
sinna skemmtikraftinum og ævistarfinu á því
sviði betur. Þeir eru reyndar alltaf allir í gangi
en ég vil kvitta almennilega fyrir þessi 50 ár og
þakka fyrir mig.
Það er svo mikið til eftir mig sem enginn veit
um. Hjá Stefi eru á skrá 300 textar og lög eftir mig
og um flesta þeirra veit almenningur ekki að ég
hafi komið þar við sögu. Ég myndi giska á að það
væru eitthvað í kringum tvö þúsund fyrir utan
þessa 300, sem ekki eru á skrá.“
Ómar segir að það skýrist með haustinu
hvernig nákvæmlega verði unnið úr þessu. „Það
kemur svo margt til greina, skemmtanir, plötur,
myndbönd og bækur.
gifting eftir Stutt SAmbAnd Ómar og Helga kona hans trúlofuðust mánuði eftir að þau kynntust
og gengu í hjónaband skömmu seinna. mynd Hörður SveinSSon