Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2010, Side 42
xxxxxxxxxx
42 skrýtið 16. júlí 2010 föstudagur
stofnandi safnaðarins kallar sig Raël. Hann klæðist öllu hvítu og hefur einkennilegt tákn um háls-inn. Táknið er samsteypa af Dav-íðsstjörnunni og hakakrossinum,
sem virðist nokkuð einkennilegt í sögulegu
samhengi. Þetta er þó í takt við heimspeki
raëlista, því að þeir eru einskærir friðarsinn-
ar og vilja endurreisa hakakrossinn sem frið-
artákn. Þeir trúa því að einungis þegar friður
verður á jörðu muni hinir himnesku forfeð-
ur okkar, æðra kyn úr óravíddum geimsins
sækja okkur heim. Hann kallar þá „Elohim“
og segir menn hafa misskilið orðið á forn-
um tímum, þegar þeir töldu það standa fyrir
einn guð. Orðið þýðir í raun „þeir sem komu
að himnum ofan“ og er í fleirtölu.
PoPPari varð sPámaður
Skírnarnafn Raëls er Claude Vorilhon, en
hann breytti því þegar hann fékk trúarupp-
lifun sína. Áður en það gerðist var hann tón-
listarmaður í Frakklandi, og hafði gefið út
nokkur lítillega vinsæl lög. En það var árið
1973 eftir að tónlistarferill hans hafði farið
í vaskinn að hann átti sinn fyrsta fund við
geimveru. Á fáförnu svæði hitti hann fyrir
veru sem lenti geimfari sínu í grenndinni og
talaði við hann á frönsku. Hún sagði mann-
kynið hafa í gegnum tíðina misskilið skila-
boðin sem himnesku feður þess höfðu sent.
Múhameð, Jesús, Búdda og Móses höfðu
allir verið spámenn frá Elohim, en menn-
irnir voru of frumstæðir til að skilja boðskap
þeirra og afbökuðu skilaboðin. Mannkyn-
ið hafði orðið til þegar geimverurnar, sem
höfðu yfir tugum árþúsunda af vísindaiðkun
að búa, sköpuðu það með erfðavísindum.
Claude átti að breiða út þennan boðskap,
ásamt því að vinna að byggingu sendiráðs
fyrir geimverurnar, sem myndi greiða fyrir
komu þeirra til jarðarinnar.
Heimurinn er atóm og það
eru vísindi
Frumspeki Räels telst mjög merkileg. Hann
segir að heimurinn sé líkt og atóm, hluti af
einhverju stærra, og jafnvel af lifandi veru.
Það gildir að sama skapi um atóm í okk-
ar heimi. Atóm eru aðrir, minni heimar,
sem innihalda svo sjálfir fleiri heima. Þetta
heldur áfram í hið óendanlega stóra og hið
óendanlega litla. Þetta segir hann að forfeð-
ur okkar hafi sannað vísindalega. Tíminn
líður mun hraðar innan þessara litlu heima,
en mun hægar innan hinum stærri. Það má
kalla þetta einfalda eðlisfræðilega ályktun,
því þeir minni eru augljóslega massaminni.
segðu já við klónun
Raël hefur í gegnum árin verið ötull rithöf-
undur, en ein bókin eftir hann heitir „Segj-
um já við klónun manna“ (Oui au clonage
humain). Hún fjallar um það hvernig tækni
framtíðarinnar muni frelsa mennina frá
dauðanum, og að fjöldi kynslóða muni
verða endurlífgaðar með hjálp vísindanna.
Klónun manna, flutningur og afrit hugans
munu gera menn ódauðlega. Með því að af-
rita hugann þinn og færa hann í klón af sjálf-
um þér getur þú orðið endurlífgaður.
vill gera klónun að veru-
leika
Hann stofnaði fyrirtæki árið 1997
sem kallast Clonaid, og hefur það
markmið að klóna menn. Fyrir-
tækið setti hann undir biskup
safnaðarins, Brigitte Boisseli-
er, sem hefur hvorki meira né
minna en tvær doktorsgráð-
ur. Fyrirtækið hefur þó verið
gagnrýnt af vísindamönnum
fyrir innihaldslausar full-
yrðingar. Frá Brigitte hafa
komið nokkrar yfirlýsingar
um að klónun manns hafi
tekist, án þess að sýnt hafi
verið fram á nein gögn
um það. Hún sendi frá sér
yfirlýsingu í lok árs 2002
þar sem hún fullyrti að
stúlkubarn, Eve, hafi
verið klónað. Það hefur
þó ekki sést tangur né
tetur af erfðaefni til að
styðja þetta, né heldur
barnið sjálft.
Margir vísinda-
menn benda á að fyr-
irtækið hafi hvorki
sérfræðiþekkingu né
gögnin sem þarf til
þess að klóna mann.
Því verður að álykta
að draumur Ra-
ëls um klónun
manns sé fjarlæg-
ur draumur, að
minnsta kosti
enn um sinn.
simon@dv.is
atóm eru aðrir,minni heimar,
sem innihalda svo sjálf-
ir fleiri heima.
Sumir kannast ef til vill við raëlista. Þeir halda því fram að mannkynið hafi verið skapað af geimverum
og að við munum verða eilíf – með því að klóna okkur.
Hitti Búdda og
MúHaMeð á
fjarlægri
plánetu
raël vorilHon
Segir klónun leið mann-
kynsins til ódauðleika