Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2010, Síða 50
50 LÍFSSTÍLL UMSJÓN: INDÍANA ÁSA HREINSDÓTTIR indiana@dv.is 16. júlí 2010 FÖSTUDAGUR
EYÐA
FÓSTRINU
VEGNA
ÓGLEÐI
Í bandarískri rannsókn kemur
fram að 15 prósent þeirra kvenna
sem upplifa afar svæsna morg-
unógleði láta eyða fóstrinu, jafnvel
þótt meðgangan hafi verið skipu-
lögð. Sérfræðingar telja lækna mjög
varkára þegar kemur að lyfjagjöf í
tengslum við mjög slæma morg-
unógleði vegna sögunnar en lyfið
Thalodo mide sem konum var gefið
á sjöunda áratug síðustu aldar, olli
hræðilegum fæðingargöllum hjá
börnum þeirra mæðra sem tóku
lyfið snemma á meðgöngu. Flestar
konur upplifa lítils háttar flökur-
leika en 2 prósent kvenna þjást gíf-
urlega og halda engu niðri og þurfa
að leggjast inn á sjúkrahús til að fá
vökva og næringu í æð.
SIGRASTU
Á ÓGLEÐ-
INNI
Hafðu hafrakex við rúmið og
borðaðu nokkrar kökur um leið
og þú vaknar svo eitthvað sé í
maganum þegar þú ferð á ról.
Passaðu að þú fáir nóg prótein.
Súptu á kjúklingaseyði svo þú fáir
smá kaloríur auk vökvans.
Haltu þig við kaldan mat - heit-
ur matur lyktar meira sem getur
kveikt á ógleði.
Taktu inn B6-vítamín.
Borðaðu laufgrænmeti því
það er ríkt af K-vít-
amíni sem virðist
hjálpa.
Borðaðu brún
hrísgrjón.
Íhugaðu nálastung-
ur.
Hreyfðu þig.
Stundaðu hugleiðslu
til að minnka andlegt
álag en stressaðar konur
eru líklegri til að þjást af
morgunógleði.
Talaðu við lækni.
ÁSTAR-
LÖG
HJÁLPA
ÁSTAR-
LÍFINU
Rómantískir tónar geta hjálpað
þér í ástarlífinu, samkvæmt rann-
sókn sem greint var frá í tímarit-
inu Psychology of Music. Franskir
vísindamenn skiptu hópi kvenna í
tvennt. Í öðrum hópnum hlustuðu
ungar konur á þekkt frönsk ástar-
lög en í hinum hópnum hlustuðu
konurnar á „venjuleg“ lög. Konun-
um var svo komið saman við hóp
ungra karlmanna sem reyndi að
næla í símanúmer þeirra og bjóða
þeim á stefnumót. Konurnar sem
höfðu hlustað á ástarlögin voru
mun viljugri til að gefa upp síma-
númer sín en hinar eða
52 prósent á móti
28 prósentum.
Sambönd batna með árunum því við
eigum auðveldar með að fyrirgefa
og virða hvort annað þegar við eld-
umst. Þetta kemur fram í rannsókn
sem framkvæmd var af Purdue Uni-
versity.
„Eldri einstaklingar greina frá
betri hjónaböndum, sterkari vináttu-
samböndum og færri árekstrum við
börn og systkini,“ segir dr. Karen Fin-
german sem stóð fyrir rannsókninni
og bætir við: „Á meðan líkamlegri og
andlegu getu hnignar með aldrinum
verða samskiptin betri.“ Fingerman
segir að þetta sé að þakka vitneskj-
unni um að tími okkar sé takmark-
aður, vilja til að fyrirgefa og þeirri
afstöðu að koma fram við aðra af
virðingu.
Fingerman og Susan T. Charles
prófessor við University of Californ-
ia hafa gert aðra rannsókn, sem birt-
ist í Current Directions in Psychol-
ogical Science. Þar kemur fram að
eldra fólk er ólíklegra en yngra fólk til
að bjóða andstæðingi sínum birginn
þegar það reiðist.
„Þeir sem vita að þeir eiga ekki
langt eftir vilja ekki eyða tímanum í
rifrildi við fólkið í kringum sig,“ seg-
ir Fingerman sem segir þetta ekki
aðeins eiga við gamalt fólk heldur
einnig þá einstaklinga sem vita að
þeir muni ekki sjá hvor annan vegna
breyttra aðstæðna, sama á hvaða
aldri þeir eru. „Það sama á við þeg-
ar fullorðin börn neita að ræða erfið
mál við aldraða foreldra sína af ótta
við að tíminn sem þau eigi eftir með
þeim sé svo takmarkaður.“
Eldri einstaklingar eiga auðveldara með að fyrirgefa en þeir yngri:
Batnar með aldrinum
Batnar með árunum Sambönd batna
með árunum því við eigum auðveldara
með að fyrirgefa og virða hvort annað
þegar við eldumst.
1Segðu góðan daginn við ókunnuga manneskju í lyftu.
2 Borgaðu líka fyrir bílinn á eftir þér þegar þú ferð í gegnum Hvalfjarðargöngin.
3 Taktu þér tíma til að vísa útlendingi veginn þótt þú sért að flýta þér.
4 Skrifaðu bréf til barns sem þarf á auka athygli að halda. Börn elska að fá bréf.
5 Bjóðstu til að fara í búðina fyrir aldraðan nágranna, sérstaklega í slæmu veðri.
6Gefðu róna afgangspítsuna sem þú ætlar með heim í „doggie bag“.
7Segðu „ég elska þig“ við einhvern sem þú elskar.
8Settu klink í útrunninn stöðumæli fyrir einhvern sem þú þekkir ekki.
9Hjálpaðu móður með barnavagn yfir þröskuld, niður tröppur eða haltu hurð opinni fyrir hana.
10Gefðu hjálparstofnun flík í hvert skipti sem þú færð þér nýja.
11Bjóðstu til að keyra krakkahópinn á æfingu þótt annað foreldri ætti í rauninni þetta skipti.
12Færðu aðstoðarmanni þínum kaffi.
13Sendu vini blóm án tilefnis.
14Segðu „takk“ og meintu það.
15Bjóddu gömlu fólki og ófrískum konum sætið þitt í strætó.
16Ekki trufla þegar einhver er að útskýra sig og hegðun sína.
17 Hleyptu öðrum fram úr í umferðinni.
18 Bjóðstu til að passa fyrir einstæða foreldra.
19 Settu innkaupakerruna aftur á sinn stað.
20 Hringdu eða skrifaðu kennaranum sem breytti lífi þínu.
21 Komdu með
smákökur á skrifstofuna.
22 Fyrirgefðu syndir vina þinna og minnstu aldrei á þær framar.
23 Hlustaðu á aðra með athygli.
24 Skrifaðu yfirmanni einhvers sem gerði þér gott og útskýrðu hversu vel sá
einstaklingur er að sinna vinnunni sinni.
25 Biddu afsökunar þegar þú gerir eitthvað rangt.
26 Hentu ruslinu þínu í ruslatunnuna – og rusli þeirra sem eru með þér líka. Hvort
sem þú ert í bíó, í útilegu eða í verslunarferð.
27 Hvettu þann sem er niðurdreginn.
28 Bjóðstu til að hugsa um gæludýr nágrannans eða vinar á meðan hann fer í sumarfrí.
29 Bjóddu fram krafta þína þegar vinur þinn þarf að pakka niður fyrir flutninga.
30 Spurðu: „Hvernig hefur þú það?“ - og hlustaðu virkilega á svarið.
31 Bjóddu fram klink þegar manneskjan fyrir framan þig á ekki fyrir vörunum sínum í
búðinni.
32 Gefðu vini þínum uppáhaldsuppskriftina þína og mynd af ykkur saman ef hann er að
flytja í burtu.
33 Gefðu þjóninum þjórfé.
34 Nuddaðu vin sem kvartar yfir vöðvabólgu.
35 Lánaðu frábæra bók sem þú varst að enda við að lesa.
35
GÓÐVERK
SEM LÁTA ÞÉR LÍÐA VEL