Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2010, Side 51
föstudagur 16. júlí 2010 sviðsljós 51
Ármúla 40 • 2. hæð • Sími 553 9800 • www.golfoutlet.is
Nýjar vörur á betra verði
Fullt af golfdóti, frábært verð
Pro Quip regn- og vindfatnaður,
notaður af Ryder liði Evrópu
Jakkar frá aðeins 18.900
Buxur frá aðeins 14.900
Vindjakkar og vesti frá 10.800
Barna- og unglingagolfsett
í standpoka frá 23.500
Stakar kylfur frá 3.900
Driver 5.900
hanskar, pokar
og kerrur.
Rafmagnsgolfkerra
Powerhouse Freedom frá Bretlandi,
28 AH geymir 69.900
Með uppblásnum dekkjum 79.900
Rescue kylfur og driverar
verð frá aðeins 7.900
Driverar dömu frá 8.900
John Letters Driver 27.900
Hippo XXL Driver 22.900
Golfskór
Verð frá 10.900
Hi-tec frá 12.900
Hi-tec unglinga 10.500
Golfboltar á góðu verði
Teitleist, Nike, Pinacle,
Wilson o.fl.
Verð 15 stk. frá 2.490
John Letters
Golfsett, stakar kylfur, pokar og fleira
frá þessum þekkta framleiðanda.
Standpokar 12.900
Kerrupokar 24.900
Golfkerrur frá 6.990
Þriggja hjóla kerrur frá 18.500
Tri Cart á mynd 19.900
Clicgear 42.900
Golfsett í poka 10% afsl.
Heilt sett karla og kvenna frá 44.550
Hálft sett í poka frá 24.750
Almennur
opnunartími
virka daga
11 til 18
G O L F V Ö R U R
lime við
þynnku
Lime er ekki bara gott í kokteila því
það er líka áhrifaríkt daginn eftir.
Það ku vera frábært við slæmum
timburmönnum. Gott er að blanda
saman 2 teskeiðum af ferskum safa
úr lime-ávextinum og 1/4 úr te-
skeið af sykri. Þessu er svo bætt út í
stórt glas af vatni. Best er að drekka
drykkinn um leið og maður vaknar
og drekka hann hægt. Lime hjálpar
lifrinni að vinna úr áfenginu og syk-
urinn kemur blóðsykrinum aftur í
samt lag eftir mikla drykkju. Algjört
töframeðal sem kemur í veg fyrir
ónýtan dag vegna of margra drykkja
kvöldið áður.
Hlífðu
Hárinu
Á sumrin er mikilvægt að hlífa
hárinu vel fyrir geislum sólarinn-
ar. Sterkir geislar hennar þurrka
og upplita hárið. Ef planið er að
liggja á sundlaugarbakkanum í
sumar þá er mjög mikilvægt að
hlífa hárinu því fátt fer eins illa
með það og klórið í sundlaug-
unum. Ef konur eru með sítt hár
þá er sniðugt að taka hárið upp í
snúð eða fléttu og vefja klút yfir
það. Ef hárið er styttra má notast
við fallega sumarhatta eða klúta. Í
sundlaugunum er líka sniðugt að
vera með sundhettu því hárið lýs-
ist fljótt upp. Næring er líka mjög
mikilvæg fyrir hárið á þessum
tíma. Bæði er hægt að fá hárnær-
ingu sem maður notar í sturtu og
skolar úr og svo er líka sniðugt að
nota næringu sem maður úðar í
hárið.
Einnig er gott að bera djúp-
næringu í hárið til að viðhalda
rakanum.
svona halda þau sér í formi
Dansar sig í form Gwyneth Paltrow
elskar dansleikfimi og þegar hún var að
æfa fyrir myndina Iron Man 2 dansaði
hún í allt að tvo tíma á dag.
Real Ryder Rihönnu Söngkonan
Rihanna æfir mikið á tæki sem kallast
Real Ryder. Tækið, eða hjólið öllu heldur,
gefur æfingu fyrir allan skrokkinn.
Brennir bæði og byggir upp styrk og þol.
Hleypur eins og vindurinn Lance
Armstrong hjólreiðameistari heldur sér í
formi á klassíska mátann. Hann elskar að
fara út að skokka.
Þröngar armbeygjur Tina Fey er ávallt
í góðu formi. Hún heldur mikið upp á
chaturanga-armbeygjur sem er tegund
af þröngum armbeygjum.
Vinnur með líkamann Kim Kardashian
er dugleg í ræktinni og hún vinnur mikið
með hnébeygjur og fram- og afturstig.