Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2010, Page 61
FÖSTUDAGUR 16. júlí 2010 SVIÐSLJÓS 61
ÍSLENSK GÆÐAFRAMLEIÐSLA Í 35 ÁR
NORM-X HF | Auðbrekka 6 | 200 Kópavogur | Sími: 565 8899 | Netfang: normx@normx.is
n Okkar verð betra verð
n Yfir 10.000 ánægðir notendur á Íslandi
n Við bjóðum einnig allar lagnir,
nuddkerfi, lok og ljósabúnað
Spænska stjörnuparið Penelope Cruz og Javi er Bardem gekk í það heilaga fyrr í mánuðinum. Þau hafa verið saman í þrjú ár en athöfnin fór fram á heimili vina þeirra á Bahamaeyjum. Um var að ræða lát-
lausa athöfn þar sem einungis fjölskyldumeðlimir voru
viðstaddir. Sögusagnir hafa verið uppi um að hjónin
eigi von á barni en talsmaður þeirra hefur neitað því.
Penelope sem er 36 ára og Javier sem er 41 árs hafa
leikið saman í þremur kvikmyndum í gegnum tíðina.
Þær heita Jamón, Jamón, Live Flesh og nú síðast í
mynd Woodys Allen, Vicky Cristina Barcelona.
Þessa dagana er Penelope við tökur á fjórðu mynd-
inni í seríunni Priates of the Caribbean, On Stranger
Tides og er sú væntanleg næsta sumar. Að þessi sinni
leita Jack Sparrow og félagar að brunni eilífrar æsku.
NÝGIFT
EN ENGAR BARNEIGNIR
Penelope Cruz og Javier Bardem gengu í það heilaga:
FALLEG Penelope var einu
sinni kærasta Toms Cruise.
JAVIER BARDEM OG
PENELOPE CRUZ Eru einir
þekktustu leikarar Spánar. BIEBER
Á LEIÐ TIL
ÍSLANDS?
Kanadíska ungstirnið á leið í Evróputúr:
Sam-kvæmt vefsíðunni bieberuni-verse.weebly.
com er stórstjarnan Justin
Bieber hugsanlega á leiðinni til
Íslands. Um er að ræða gríðarlega
vinsæla aðdáendasíðu kappans sem tengist
honum þó ekki beint. Ef heimildir síðunnar eru
réttar er Ísland á meðal áfangastaða í Evróputúr
Biebers sem hann leggur í á næsta ári.
Fréttin hefur vakið mikla athygli á síðunni og
ekki síst hjá íslensk-
um unglingsstúlkum
sem ólmar vilja vita
hvort fréttin sé sönn
eða ekki. Fjölmargar
hafa skrifað athuga-
semd við fréttina þar
sem Bieber er grát-
beðinn um að kíkja á
Klakann.
Hvort af því verð-
ur mun ekki skýrast
fyrr en opinberir
tónleikadagar verða
gefnir út.
Justin Bieber Er
gríðarlega vinsæll.
Ræður ekki við sig Ung-
lingsstúlkur halda bókstaf -
lega ekki vatni yfir Bíbba.