Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2010, Qupperneq 62
Vel var mætt á „pub quiz“ sem
haldið var á Karaoke Sports Bar
við Frakkastíg á miðvikudags-
kvöldið. Kvöldið var haldið í
tilefni útgáfu bókarinnar Hver
er maðurinn? eftir dularfullan
mann sem kallar sig Meðal-Jón,
en eins og sagt var frá í DV í vik-
unni er bókin eins konar upp-
talning á fjölmörgum þjóðþekkt-
um Íslendingum ásamt stuttum
upplýsingum um viðkomandi og
skrípamyndum af mörgum sem
fjallað er um. Á meðal þeirra sem
létu sjá sig voru Ármann Reynis-
son, fagurkeri og vinjettuhöfund-
ur, og Björn Blöndal, hirðljós-
myndari tímaritsins Séð og heyrt,
en svo skemmtilega vill til að um
þá báða er fjallað í bókinni.
Spyrlar voru grínistinn Steindi jr.
og Magnús Leifsson, betur þekkt-
ur sem Maggi Noem, en engum
sögum fer af því hverjir urðu
hlutskarpastir í pöbbkvisinu.
„Já hún er í bígerð,“ segir Ásdís Rán
Gunnarsdóttir fyrirsæta aðspurð um
væntanlega ævisögu sína. Ásdís Rán
vill þó ekki fara út í nein smáatriði.
„Þetta er bara í vinnslu. Það er frá-
bær höfundur að leggja drög að henni.
Meira get ég ekki sagt,“ en það verður
af nægu að taka því þrátt fyrir ungan
aldur hefur Ásdís upplifað ýmislegt.
Hún lauk til dæmis nýverið við
myndatöku fyrir hið heimsþekkta
tímarit Playboy og mun prýða for-
síðu búlgörsku útgáfu þess. Þá hefur
hún verið gestur hjá Hugh Hefner á
Playboy-setrinu og skemmt sér með
stórstjörnum á borð við Jerry Bruck-
heimer og Michael Bay. Þá hefur Ásdís
prýtt hverja forsíðuna á fætur annarri í
Búlgaríu og eru vinsældir hennar svo
miklar að búlgarskt par skírði dóttur
sína í höfuðið á henni.
Ásdís hefur lent í ýmsu í einkalífinu
í gegnum tíðina. Þegar hún var ungl-
ingur lenti hún í mjög alvarlegu bíl-
slysi þegar hún varð fótgangandi fyr-
ir bíl. Hún er 70 prósent öryrki vegna
þess. Hún lenti svo aftur í alvarlegu
bílslysi þegar hún var ólétt. Þá lenti
Ásdís í þeirri erfiðu lífsreynslu að fá
góðkynja æxli í kviðarhol sem reif síð-
an gat á annan eggjastokkinn. Ásdís
var þá nýflutt til Búlgaríu og lýsti hún
dvölinni á sjúkrahúsinu sem skelfi-
legri. Herbergið sem hún lá í hefði
helst minnt á fangelsi.
Það verður því af nægu að taka
í ævisögu þessarar mögnuðu fyrir-
sætu.
asgeir@dv.is
Ævisaga á leiðinni
Fagurkeri á
„pub quiz“
Ásdís RÁn legguR dRög að ævisögu sinni:
Fyrirliði íslenska landsliðsins í
handbolta, Ólafur Stefánsson, fór
á fimmtudaginn í aðgerð á hné
vegna meiðsla sem hafa verið að
hrjá hann í nokkurn tíma. Ólafur
er uppalinn Valsari og hjálpuðu
Valsmenn honum um daginn
þegar hann langaði að hreyfa
sig og komast í smá handbolta
fyrir aðgerðina. Var smalað sam-
an nokkrum strákum úr 2. og 3.
flokki Vals sem fengu að æfa með
silfurhetjunni. Var þó ekki farið
hratt yfir á æfingunni heldur áttu
allir að gera alla hluti rosalega
hægt og sjá alla möguleikana í
hverri stöðu en þannig vill Ólafur
Stefánsson spila handbolta.
smalað
Fyrir Óla
62 fólkið 16. júlí 2010 föstudagur
kristrún Ösp Barkardóttir:
Ásdís Rán
Hefur í nægu
að snúast.
Það telst vart til tíðinda að krakkar í
bæjarvinnunni finni gras enda snýst
stór hluti starfs þeirra um að slá og
hirða það. Það var þó öðruvísi gras
og það töluvert dýrara og ólöglegt
sem hópur flokkstjóra í bæjarvinn-
unni á Akureyri fann í vikunni. Einn
af flokkstjórunum er fyrirsætan sem
hefur verið í tygjum við knattspyrnu-
hetjuna Dwight Yorke, Kristrún Ösp
Barkardóttir.
„Krakkarnir sem við erum yfir
voru í fríi þannig að þetta voru við
bara við flokkstjórarnir að vinna. Við
vorum að vinna við BYKO þegar tveir
strákar úr hópnum fundu krukku
innvafða í plastpoka. Þegar þeir opn-
uðu krukkuna komust þeir að því
að þetta væri gras. Við fórum strax
að pæla í hvað við ættum að gera. Á
endanum ákváðum við að hringja á
lögregluna. Hún kom stuttu seinna
og staðfesti að þetta væri gras,“ segir
Kristrún Ösp, en magnið var um sjö
grömm sem myndu kosta á bilinu
25–30 þúsund krónur á götunni.
„Þegar lögreglan sagði okkur hvað
þetta væri mikið hugsuðum við að
við hefðum bara getað selt þetta og
keypt áfengi fyrir starfsmannapartíið
sem er í kvöld [föstudagskvöld innsk.
blm.],“ segir Kristrún kímin. „Við vor-
um nú bara svona að grínast með
þetta á milli okkar en við erum auð-
vitað til fyrirmyndar og hringdum
því á lögregluna.“
Kristrún verður í bæjarvinn-
unni í sumar en í haust flytur hún
til Reykjavíkur þar sem hún ætlar í
skóla að læra að verða förðunarfræð-
ingur. Henni gengur þó illa að finna
íbúð fyrir sunnan. „Þetta er bara ekki
að ganga upp hjá mér. Það er alltaf
eitthvað sem kemur upp á eða mér
líkar ekki,“ segir Kristrún Ösp sem
hefur lagt fyrirsætubransann aðeins
til hliðar á meðan hún klárar námið.
„Það er ekki eitthvað sem mig
langar að gera hér heima. Ég ætla
að klára að læra og svo fer ég klár-
lega eitthvað út. Ég var að pæla í
að fara strax í haust en ákvað nú að
klára námið fyrst,“ segir Kristrún Ösp
Barkardóttir.
tomas@dv.is
Fann gras
í vinnunni
Flokkstjórahópur í bæjarvinnunni á akureyri með fyrirsætuna Kristrúnu Ösp Bark-
ardóttur innanborðs fann töluvert magn af marijúana við skyldustörf í vikunni. Þau
gerðu hið rétta og hringdu á lögregluna.
Heiðarleg Kristrún og félagar fundu
eiturlyf en skiluðu þeim til lögreglunnar.
mynd ÞóRHalluR PedRomyndiR