Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2010, Síða 14
14 | Erlent 22.–26. desember 2010 Jólablað
Þrátt fyrir að framtíð Julians Assange,
stofnanda uppljóstrunarsíðunnar
Wikileaks, er með öllu óráðin um
þessar mundir, má hann samt prísa
sig sælan þessi jól. Þeim mun hann
eyða á ríkulegu sveitasetri í Nor-
folk á Englandi ásamt velunnurum
og vinum. Því er hins vegar ekki að
skipta hjá manninum sem er að öðr-
um ólöstuðum, maðurinn á bak við
frægð Assange og frama. Sá maður
heitir Bradley Manning, óbreyttur
hermaður sem lak trúnaðargögnum
bandaríska hersins og bandaríska
utanríkisráðuneytisins til uppljóstr-
unarsíðunnar frægu. Manning situr
sem fastast í einangrun í herfang-
elsi í Virginíu-fylki, þar sem hann
þarf að þola hreint ömurlegar að-
stæður – svo ekki sé meira sagt. En
hver er þessi maður sem hefur hrist
svona duglega upp í utanríkismál-
um Bandaríkjanna og alþjóðasamfé-
laginu öllu?
Ætlaði sér alltaf að verða
hermaður
Bradley Manning fæddist í smábæn-
um Crescent í Oklahoma, þann 17.
desember 1987 – sem þýðir að hann
fagnaði 23 ára afmæli á föstudag-
inn. Faðir hans starfaði fyrir banda-
ríska flugherinn og kynntist hann
móður Manning þegar hann gegndi
herþjónustu í Wales, en þaðan kem-
ur móðir hans. Foreldrar Mannings
skildu þegar hann var 13 ára gamall
og fluttist hann í kjölfarið til Wales
með móður sinni. Þar gekk honum
illa að aðlagast nýjum stað og átti í
erfiðleikum í skóla. Hann fluttist aft-
ur til Oklahoma 16 ára að aldri, hætti
í skóla og hóf störf á pítsustað. Vin-
ir hans segja að hann hafi talað um
að gerast hermaður strax í grunn-
skóla, en um leið og hann náði 18 ára
aldri skráði hann sig í landgöngulið
bandaríska hersins.
Erfitt að vera samkynhneigður
í hernum
Vinir Mannings segja að þrátt fyr-
ir að honum hafi gengið vel í her-
num til að byrja með, hafi það reynst
honum æ erfiðara eftir því sem tím-
inn leið að leyna kynhneigð sinni
– en Manning er samkynhneigður.
Manning fékk stöðu við greiningu
upplýsinga hjá landgönguliðinu og
var fljótlega kominn í sína fyrstu ferð
til Íraks. Hann ávann sér stöðu sér-
fræðings og allt virtist leika í lyndi.
Dvölin í Írak og leynimakkið í kring-
um kynhneigð Mannings fór hins
vegar að taka sinn toll. Hann fór að
verða órólegur og var farinn að finna
fyrir kvíðaröskunum. Hann fann
sig ekki félagslega og var að lokum
lækkaður í tign fyrir að ráðast á sam-
starfsmann sinn. Hann missti sér-
fræðingsstöðu sína og varð aftur að
óbreyttum landgönguliða.
Með Lady Gaga inn,
leyniskjöl út
Manning vann sem áður segir við að
greina upplýsingar og hafði þar með
aðgang að gagnabönkum sem höfðu
að geyma trúnaðarskjöl og leyni-
upplýsingar. Um sumarið 2009 mun
hann hafa verið kominn á þá skoð-
un, að margt af því sem hann hafði
séð í starfi sínu ætti skilið að koma
fyrir augu almennings, en ekki „vera
læst inni í dimmri kompu í Washing-
ton,“ eins og hann orðaði það sjálf-
ur. Hann fór að safna að sér gögnum
upp frá því.
Manning komst með gögnin í
gegnum öryggisgæslu með því að
skrifa geisladiska með tónlist Lady
Gaga, sem hann gekk með í vinnuna
á degi hverjum. Þegar hann var hins
vegar kominn fyrir framan tölvu sína
eyddi hann tónlist Lady Gaga og af-
ritaði í staðinn leynigögn, sem hann
gekk svo með út fyrir framan nefið
á öryggisvörðum. „Ég var sennilega
raulandi lagið Telephone allan tím-
ann sem ég hlóð niður gögnunum,“
sagði Manning. „Engan grunaði
nokkurn skapaðan hlut.“
Hafði samband við Assange
Í nóvember 2009 hafði Mann-
ing fyrst samband við Julian Ass-
ange til að reifa þann möguleika
að láta honum í té þær upplýsing-
ar sem hann hafði þá þegar sank-
að að sér. Hann lét þó ekki verða
af því fyrst um sinn. Hann var viss
um að Assange væri í öllu falli rétti
aðilinn til að birta upplýsingarnar,
eftir að Wikileaks birti um 500 þús-
und skilaboð sem send voru innan
bandarísku stjórnsýslunnar daginn
sem árásirnar voru gerðar 11. sept-
ember 2001.
Í janúar á þessu ári var Mann-
ing ennþá að vega og meta stöðuna,
að sögn vinar hans, Tylers Watkins,
sem sagði í viðtali við veffréttaritið
Wired.com: „Hann vildi bara gera
það sem hann taldi rétt. Ég held að
hann hafi háð mikla innri baráttu
vegna þessa.“
Þyrluárás frumsýnd á Íslandi
Það var svo í febrúar sem Manning
lak myndbandi af Apache-herþyrlu
sem hóf skothríð á menn sem virt-
ust vera vopnaðir, og fylgdi því svo
eftir með því að skjóta á óbreytta
borgara sem hlúðu að fórnarlömb-
um. Í árásinni féllu meðal annarra
tveir starfsmenn Reuters-fréttastof-
unnar. Myndbandið og fréttaefni við
hana var að stórum hluta unnið hér
á landi og var til að mynda heims-
frumsýnt í Ríkissjónvarpinu. Mann-
ing var í stöðugu sambandi við Watk-
ins í kjölfar birtingar myndbandsins.
„Hann vildi bara sjá til þess að þeir
sem væru sekir væru dregnir til
ábyrgðar og að svona voðaverk yrðu
ekki framin aftur,“ sagði Watkins.
Mannig lét Wikileaks einnig í té
myndband af annarri þyrlárás sem
var gerð á þorpið Garani í Afgan-
istan, þar sem að minnsta kosti 100
manns létu lífið – meirihluti þeirra
voru börn. Hann útvegaði Wikile-
aks einnig um 260 þúsund skjöl frá
bandaríska utanríkisráðuneytinu,
sem uppljóstrunarsíðan hóf að birta
í síðasta mánuði. Sagt hefur verið að
birting þeirra skjala hafi breytt al-
þjóðasamskiptum til frambúðar.
Tölvuþrjótur kom upp um
Manning
Manning átti erfitt með að halda
leyndarmáli sínu fyrir sjálfan sig, að
hann væri í raun maðurinn á bak
við stærsta leka trúnaðargagna frá
upphafi. Eftir að hafa lesið viðtal við
Adrian Lamo, sem er fyrrverandi
tölvuþrjótur (hacker), var hann viss
um að hafa fundið sálufélaga sinn
í starfi. Hann hafði samband við
Lamo í gegnum tölvupóst og msn-
skilaboð og fór fljótlega að stæra sig
af afrekum sínum. Lamo leist hins
vegar lítið á blikuna og ákvað að
hafa samband við varnarmálaráðu-
neyti Bandaríkjanna sem og Alríkis-
lögregluna, FBI. Lamo var viss um
að lekinn gæti haft áhrif á þjóðar-
öryggi Bandaríkjanna. „Ég hefði
ekki gert þetta ef líf hefðu ekki verið
í hættu. Hann tók bara eins mikið af
trúnaðarupplýsingum og hann gat
og kastaði þeim upp í loftið.“
Á yfir höfði sér 52 ára fang-
elsisvist
Manning var handtekinn undir
lok maímánaðar. Undanfarið hálft
ár hefur honum verið haldið í ein-
angrun í hámarksöryggisfangelsi
í Quantico í Virginíu. Klefi hans
er 180 sentímetrar á breidd og 350
sentímetrar á lengd. Þar þarf hann
að dvelja öllum stundum fyrir utan
einn klukkutíma á dag. Þá má hann
hreyfa sig með því að ganga í hringi
innandyra, algerlega einn síns liðs.
Hann hefur aldrei hitt aðra fanga
og einu samskipti hans á hann við
fangaverði. Í klefa sínum má hann
hafa eina bók, eða eitt tímarit og
fær hann að horfa á sjónvarp í eina
klukkustund á dag, stundum lengur
um helgar. Hann er vakinn klukk-
an 5 á morgnana en eftir það má
hann ekki sofna fyrr en um 8 að
kvöldi. Fangaverðir þurfa að ganga
úr skugga um að hann sé vakandi,
með því að fá munnlega staðfest-
ingu á fimm mínútu fresti.
Erfitt er að ímynda sér að Mann-
ing muni halda gleðileg jól, hann
virðist öllum gleymdur í einangr-
un sinni. Annað er hægt að segja
um Assange, sem er löngu orðin
alþýðuhetja á heimsmælikvarða.
Manning mun sennilega þurfa að
koma fyrir herrétt í apríl næstkom-
andi, þar sem er næsta víst að hann
verður fundinn sekur fyrir land-
ráð. Þegar Manning var handtekinn
mun Wikileaks hafa lofað að borga
fyrir lögfræðiaðstoð. Samkvæmt
ættingjum Mannings hefur hins
vegar ekkert orðið af því enn. Lík-
legt er að hann verði dæmdur í 52
ára fangelsi og gæti hann því losnað
árið 2063.
n Útvegaði Wikileaks trúnaðarskjöl frá bandaríska utanríkisráðuneytinu n Á meðan Julian Assange nýtur
heimsfrægðar virðist Manning öllum gleymdur n Í einangrun í hálft ár n Fær líklega 52 ára dóm
Bradley Manning í
einangrun um jólin
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is
Bradley Manning Hann mun
eyða jólunum í einangrunarklefa.
Mun hafa það náðugt yfir jólin Julian Assange fyrir
utan sveitasetrið þar sem hann mun eyða jólunum.