Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2011, Page 9
Fréttir | 9Helgarblað 28.–30. janúar 2011
„Þetta var svikamylla“„Ég hef átt margar
andvökunætur út
af þessu; mér finnst ég
hafa verið blekktur.
Útgerðir töpuðu
miklu Margar íslenskar
útgerðir fóru flatt á
afleiðusamningum sem
gerðir voru við viðskipta-
bankana. Einhverjar
þeirra íhuga nú að leita
réttar síns gagnvart
bönkunum. Myndin
tengist efni fréttarinnar
ekki beint. mynd sigtryggur ari
fjölmörgu viðskiptavini bankans sem
tekið höfðu stöðu með krónunni á
þeim forsendum að verðgildi henn-
ar myndi haldast með þessum hætti.
Þannig hafði Samson aðra hagsmuni
en þeir lántakendur Landsbankans
sem höfðu fjármagnað sig með er-
lendum lánum, oft á tíðum vegna
ráðlegginga starfsmanna Lands-
bankans.
Þessa hugmynd má yfirfæra yfir
á þá viðskiptavini Landsbankans,
meðal annars útgerðarfyrirtæki,
sem gerðu samninga við bankann
sem byggðu á því að krónan myndi
haldast sterk og byggðu þetta mat
sitt á ráðleggingum frá starfsmönn-
um Landsbankans.
innheimta skuldanna
Málsóknir útgerðarfyrirtækjanna
á hendur Landsbankanum byggja
auðvitað á þeirri forsendu að
skuldirnar vegna afleiðusamning-
anna verði innheimtar. DV hefur
hins vegar heimildir fyrir því að
Landsbankinn hafi í einhverjum
tilfellum hvorki innheimt skuldirn-
ar né rætt við skuldarana um upp-
gjör þeirra.
Páll Benediktsson, upplýsinga-
fulltrúi skilanefndar Landsbank-
ans, segir hins vegar í svari sínu
við fyrirspurn DV að til standi að
innheimta allar kröfur vegna af-
leiðusamninganna. „Allar kröf-
ur bankans á hendur fyrrum við-
skiptavinum eru innheimtar, þar á
meðal afleiðukröfur. Bankinn hef-
ur þegar innheimt háar fjárhæð-
ir vegna afleiðusamninga og í nú-
verandi áætlun um verðmæti eigna
bankans er gert ráð fyrir að rúm-
ir 19 milljarðar króna til viðbótar
muni innheimtast vegna afleiðu-
krafna.“ Deilur um innheimtur á
afleiðusamningunum munu því
væntanlega enda fyrir dómi.
Hæstiréttur vísar máli tveggja karlmanna aftur til héraðsdóms:
Flugvallarhlauparar aftur í hérað
Hæstiréttur ómerkti á fimmtudag dóm
Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Hauki
Hilmarssyni og Jason Thomas Slader
og sendi málið aftur í hérað. Þar var
Haukur dæmdur til 60 daga fangelsis-
vistar en Jason Thomas hlaut 45 daga
fangelsi, skilorðsbundið til þriggja ára.
Haukur og Jason voru sakfelldir í
Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að raska
öryggi flugvéla þegar þeir, í júlí 2008,
hlupu inn á akbraut fyrir flugvélar í
þeim tilgangi að koma í veg fyrir að
flogið yrði með hælisleitandann Paul
Ramses úr landi í flóttamannabúðir
á Ítalíu. Fyrir Hæstarétti byggðu verj-
endur Hauks og Jasons á því að vörn
þeirra í málinu hefði orðið áfátt vegna
meðferðar málsins í héraði eftir að
forsendur breyttust við meðferð þess
fyrir héraðsdómi. Á það féllst Hæsti-
réttur og sagði að veita skyldi þeim
Hauki og Jason tíma og aðstöðu til að
undirbúa vörn sína miðað við breytt-
an lagagrundvöll málsins.
Samkvæmt ákæru var tvímenning-
unum gefið að sök að hafa klifrað yfir
girðingu til að komast inn á flugvall-
arsvæðið, hlaupa þar mörg hundruð
metra innan svæðisins og inn á flug-
brautina „Charlie“ og þar með raska
flugumferð og öryggi loftfara, en á
flugvallarsvæðinu voru flugvélar á
leið í áætlunarflug. Stöðva varð flug-
umferð þar til mennirnir voru hand-
samaðir. Við meðferð málsins í héraði
kom hins vegar í ljós að „Charlie“ mun
ekki vera flugbraut heldur akbraut fyr-
ir flugvélar og við það breyttust for-
sendur málsins.
hanna@dv.is