Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2011, Page 6
6 | Fréttir 1.–3. apríl 2011 Helgarblað
Fjárfestingarbankinn VBS eignað-
ist hlutabréf í fjárfestingarfélaginu
FL Group í febrúar og mars 2008
fyrir um 2,5 milljarða króna fyrir til-
stuðlan eins stærsta hluthafa bank-
ans, Sunds/Icecapital, samkvæmt
heimildum DV. Sund/Icecapital
var jafnframt hluthafi í FL Group
á þessum tíma. VBS fjármagnaði
kaupin með peningum frá Trygg-
ingamiðstöðinni, sem var í eigu FL
Group, og seldi fjárfestingarbank-
inn bréfin í FL aftur til félags í eigu
Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, Styrks
Invest, nokkrum mánuðum síðar,
líkt og komið hefur fram í Viðskipta-
blaðinu. Þar kom meðal annars
fram að baksamningur hefði verið
fyrir hendi sem tryggði VBS kaup-
anda að FL-bréfunum þegar þar að
kæmi.
Eigendur Sunds/Icecapital, Páll
Þór Magnússon og Jón Kristjáns-
son, voru jafnframt stórir hluthafar
í VBS-fjárfestingarbanka. Páll Þór
var stjórnarformaður bankans þeg-
ar umrædd viðskipti áttu sér stað.
Grunur leikur á að markaðsmis-
notkun hafi átt sér stað í umrædd-
um viðskiptum sem hafi haft það að
markmiði að halda uppi verði bréfa
í FL Group á tímabili þar sem gengi
bréfa í félaginu hafði hrunið gríðar-
lega frá því það fór í hæstu hæðir á
fyrri hluta árs 2007.
Jón fundaði með
Sundsmönnum
Heimildir DV herma að umrædd
kaup VBS á hlutabréfunum í FL
Group hafi verið rædd á fundi sem
þeir Páll Þór Magnússon og Jón
Kristjánsson áttu með Jóni Þóris-
syni, forstjóra VBS, í byrjun árs
2008. Samkvæmt heimildum DV
voru kaup VBS á hlutabréfum FL
Group því ákveðin af eigendum
Sunds/Icecapital sem aftur komu
þeim tilmælum til Jóns Þórissonar
að VBS skyldi kaupa umrædd bréf.
Líkt og áður segir var svo fyrir bak-
samningur sem gerði VBS kleift að
losna við bréfin til annars kaup-
anda. VBS keypti bréfin svo á hluta-
bréfamarkaði yfir ákveðið tímabil
en ekki af einhverjum einum til-
teknum aðila. Fyrir vikið virtist sem
eðlileg viðskipti með hlutabréf í FL
Group ættu sér stað á markaði og
að einhver eftirspurn væri eftir bréf-
unum.
Þessi flétta með hlutabréfin í FL
Group er gott dæmi um aðkomu
Sunds/Icecapital að fjölmörgum
hlutabréfaviðskiptum á Íslandi á
árunum fyrir íslenska efnahags-
hrunið. Oft á tíðum tengdust þessi
viðskipti félagsins FL Group og
tengdum aðilum en DV hefur með-
al annars nýlega fjallað um kaup
Sunds og tengdra félaga á hluta-
bréfum í Glitni árið 2008, á tíma-
bili þar sem hlutabréfaverð í Glitni
hafði farið hríðlækkandi.
Keyptu og seldu í NTH
Annað sambærilegt dæmi um að-
komu Sunds/Icecapital að starf-
semi FL Group og tengdra aðila var
eignarhald félagsins á hlutabréfum
í ferðaþjónustufyrirtækinu North-
ern Travel Holding, sem átti Ice-
land Express, Astreus og danska
flugfélagið Sterling. DV greindi frá
aðkomu Sunds/Icecapital að þess-
um viðskiptum fyrir skömmu þegar
blaðið sagði frá gjaldþroti eignar-
haldsfélagsins M21 ehf., sem var í
eigu Fons, eignarhaldsfélags Pálma
Haraldssonar.
Í febrúar 2008, um svipað leyti
og viðskipti Sunds/Icecapital áttu
sér stað, veitti Glitnir M21 ehf.
tæplega 3 milljarða króna lán til að
kaupa 22 prósenta hlut, sem áður
hafði verið í eigu Sunds, í North-
ern Travel Holding. Northern Tra-
vel Holding var að mestu leyti í
eigu Fons og FL Group þegar þetta
var. Northern Travel Holding hafði
áður en þetta gerðist tekið aftur
við hlutabréfum Sunds í félaginu
en Sund hafði þá haldið utan um
bréfin til skamms tíma. Einu veðin
sem M21 ehf. lagði fram fyrir um-
ræddu láni frá Glitni voru hluta-
bréfin í Northern Travel Holding.
Með þessu losnaði Nor thern Travel
Holding við stóran hlut í sjálfu sér
yfir til annars félags.
n VBS keypti í FL Group fyrir 2,5 milljarða í ársbyrjun 2008 n Viðskiptin
rædd á fundi eigenda Sunds og forstjóra VBS n Hlutabréfaverð í FL
Group hafði hríðlækkað n Grunur um markaðsmisnotkun
Sund sagði Jóni
að kaupa bréf FL
„Samkvæmt heim-
ildum DV voru
kaup VBS á hlutabréfum
FL Group því ákveðin af
eigendum Sunds/Ice-
capital sem aftur komu
þeim tilmælum til Jóns
Þórissonar að VBS skyldi
kaupa umrædd bréf.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Erfitt að koma FL bréfum í verð Bæði kaup VBS á hluta-
bréfunum í FL sem og kaup M21 ehf. í Northern Travel Holding
eru góð dæmi um aðkomu Sunds/Icecapital að hlutabréfavið-
skiptum tengdum FL Group á árunum fyrir hrunið. Þessi mynd
var tekin á stjórnarfundi FL Group árið 2008.
Eitt ár er síðan nýir eigendur tóku við DV:
Tvöföldun áskrifta
Í dag er eitt ár síðan nýir eigend-
ur, undir forystu kjölfestufjár-
festisins og listaverkasalans Lilju
Skaftadóttur, keyptu DV úr út-
gáfufélaginu Birtíngi. Óhætt er að
segja að árið hafi verið viðburða-
ríkt. Fljótlega eftir kaupin flutti DV
í nýtt húsnæði við Tryggvagötu 11 í
miðbæ Reykjavíkur. Þar hefur blað-
ið aðsetur á annarri hæð.
Mikill viðsnúningur hefur orð-
ið á lestri blaðsins á þessum tólf
mánuðum en nærri lætur að fjöldi
áskrifenda að blaðinu hafi tvöfald-
ast frá því nýir eigendur tóku við.
Vefurinn DV.is hefur vaxið jafnt
og þétt og er nú þriðji mest lesni
fréttavefur landsins. Liðlega 186
þúsund notendur heimsóttu vef-
inn í síðustu viku, innlit voru ríf-
lega 934 þúsund og vefnum var flett
meira en fjórum milljón sinnum.
Lesendum DV.is hefur fjölgað um
33 prósent á einu ári.
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir,
blaðamaður og umsjónarmaður
helgarblaðs DV, hlaut á dögunum
verðlaun Blaðamannafélags Ís-
lands sem rannsóknarblaðamaður
ársins.
Verðlaunin fékk Ingibjörg Dögg
fyrir áleitna og vandaða um-
fjöllun um kynferðisbrotamál og
fyrstu skrif á þessu sviði, svo sem
um biskupsmálið og önnur meint
kynferðisbrot innan kirkju og trú-
félaga.
Þá var ritstjórn DV tilnefnd í
flokknum Blaðamannaverðlaun
ársins fyrir stjórnlagaþingsvef
blaðsins sem haldið var úti í kring-
um kosningar til stjórnlagaþings
sem fram fóru seint á síðasta ári.
baldur@dv.is
Flutt í miðbæinn Lesendum DV.is hefur
fjölgað um 33 prósent á einu ári.
MyNd SiGTryGGur Ari
„Þetta er eitthvað sem við gátum
ekki sætt okkur við. Þeir viðurkenna
að varan er lófatölva en flokka
hana engu að síð-
ur sem afspilara.
Maður hlýtur að
spyrja sig hvort
það sé rökrétt
hugsun að flokka
tölvu með af-
spilunarmöguleika
sem afspilara með
tölvumöguleika,“
segi Sigurður
Thorsteinsson hjá
Apple-umboðinu á Íslandi. Umboð-
ið hefur stefnt íslenska ríkinu vegna
tollflokkunar á iPod Touch-lófatölv-
unni en tollanefnd úrskurðaði að
tækið ætti að flokkast sem afspilun-
artæki en ekki lófatölva. Það hefur í
för með sér að tollar og vörugjöld á
iPod Touch verða samtals 32,5 pró-
sent í stað þess að vera engin eins og
almennt gerist með tölvur.
Páll Rúnar M. Kristjánsson, lög-
maður Félags atvinnurekenda, rekur
málið fyrir Apple. „Þegar Apple leit-
aði til okkar vorum við fljótir að sjá
að ekki var allt með felldu og tókum
við því málið að okkur. Þetta er mik-
ið hagsmunamál fyrir Apple en ekki
síður neytendur sem eru hin raun-
verulegu fórnarlömb í þessu máli.
Við megum heldur ekki gleyma að
umrædd tollaframkvæmd leiðir
eingöngu til þess að sala á þessum
tækjum skilar sér ekki til landsins
og þar af leiðandi ekki sem tekjur í
ríkissjóð.“
Páll Rúnar telur eðlilegt að spurt
sé hvort tæki sem leyfir notanda
þess að vafra um netið, taka á móti
og senda tölvupóst, nota samskipta-
forrit, skipuleggja sig, framkvæma
heimilisbókhaldið og margt fleira sé
ekki hætt að teljast afspilunartæki.
„iPod Touch-lófatölvan inniheld-
ur alla þá þætti sem einkenna lófa-
tölvur almennt. Okkur þykir sjónar-
mið tollstjóra og ríkistollanefndar
einkennandi fyrir staðnað viðhorf.“
Apple stefnir ríkinu:
„Hags-
munamál
fyrir neyt-
endur“
Rau›arárstígur 14, sími 551 0400 · www.myndlist.is
Opið virka daga 10–18, laugard. 11–16, sunnud. 14–16
Næsta listmunauppboð
verður 11. apríl
Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu
Áhugasamir vinsamlegast hafið samband í síma
551-0400, 896-6511 (Tryggvi),
845-0450 (Jóhann)
Erum að taka á móti verkum núna í Galleríi Fold við Rauðarárstíg