Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2011, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2011, Blaðsíða 25
Umræða | 25Helgarblað 1.–3. apríl 2011 Skoraði flautukörfu Þórir Guðmundur Þorbjarnar- son körfuknattleiksmaður í 7. flokki KR skoraði ótrúlega flautukörfu með langskoti yfir endilangan völlinn þegar liðið varð Íslandsmeistari í sínum flokki um helgina. Körfuna má sjá á DV.is en sjón er sögu ríkari. Hver er maðurinn? „Þórir Guðmundur Þorbjarnarson, körfu- knattleiksmaður í KR.“ Hvernig er tilfinningin að vera Íslands- meistari? „Það er frábært en maður er svolítið vanur því. Ég er fjórfaldur Íslandsmeistari í körfu og einu sinni í fótbolta.“ Hvað ertu búinn að æfa körfubolta lengi? „Síðan ég var sjö eða átta ára en ég verð 13 ára á þessu ári.“ Stundar þú fleiri íþróttir? „Ég spila fótbolta og svo keppi ég stundum á skíðum.“ Hversu oft æfirðu í viku? „Ég er svona átta sinnum í viku á æfingum í körfubolta og þrisvar til fjórum sinnum í fótbolta. Ég er annars eiginlega alltaf úti í KR.“ Hvaða stöðu spilarðu á vellinum? „Shooting guard [skotbakvörður, innsk. blm.].“ Hvernig gekk þér í leiknum? „Bara vel. Ég skoraði 14 stig held ég.“ Áttu þér fyrirmynd í körfuboltanum? „LeBron James í NBA en hérna á Íslandi er það Brynjar Þór Björnsson, leikmaður KR.“ Hvernig myndirðu lýsa síðustu sekúnd- unum? „Það voru um tíu sekúndur eftir þegar Keflavík var í sókn. Þeir skoruðu þegar fjórar sekúndur voru eftir af fyrri hálfleik og inn- kastið var tekið þegar tvær sekúndur voru eftir. Ég sleppti boltanum þegar innan við ein sekúnda var eftir af leiktímanum.“ Var þetta ekki bara heppni? „Nei, ekki alveg. Ég er mikið fyrir langskot og æfi þau mjög mikið. Ég reyndi að miða og það tókst í þetta skiptið. Ég hef bara skorað frá miðju áður í leik.“ „Ég held að ég fari í foreldrahús í Borgar- nesi.“ Elín Elísabet Einarsdóttir 18 ára, nemi í MH „Ég ætla að skrifa ritgerð og vinna.“ Gréta Sigríður Einarsdóttir 21 árs, nemi „Um páskana ætla ég að vera að vinna.“ Sigurður Einarsson 37 ára, pylsusali „Vinna, éta, æfa og sofa.“ Sölvi Hrannar Óðinsson 26 ára, vinnur í sundlaug „Ekkert búinn að plana það.“ Svavar Þór Sævarsson 29 ára, í atvinnuleit Maður dagsins Hvað ætlar þú að gera um páskana? Nóg að gera Hafnarstarfsmenn í Sandgerði höfðu í nógu að snúast þegar ljósmyndara DV bar að garði í vikunni. Veiðieftirlitsmenn stóðu ábúðarfullir á svip og at- huguðu hvort allt færi ekki örugglega fram samkvæmt settum reglum. MYND RÓBERT REYNISSON Myndin Dómstóll götunnar L ítil sæt frétt í vikunni er áhuga­ vert dæmi um hvernig flók­ in mál eru einfölduð úr hófi fram og svo matreidd með tilteknum afmörkuðum hætti ofan í fjölmiðla og almenning í óskyldum pólitískum tilgangi. Þannig skakk­ lappast sum mál í mismiklum rang­ færslum fram í þjóðmálaumræð­ unni, oft og tíðum einungis lítillega tengd samhengi sínu. Sjaldnast hirðir nokkur um að afrugla málið og setja í samhengi. Ég hef hingað til reynt að hlífa lesendum þessa dálks við sérviskulegu og nördalegu rausi af mínu fræðasviði, Evrópufræðum, en nú ætla ég að gera undantekningu. Þótt málið sé í sjálfu sér léttvægt þá varpar það áhugaverðu ljósi á mun stærri deilu á alþjóðavettvangi og svo er bráðskemmtilegur innanlands­ pólitískur vinkill á því sem gerir að verkum að ýmsir sjá sér hag í að snúa einvörðungu afmarkaðri hlið málsins að fólkinu í landinu. Málarekstur Kanada (ekki Noregs) Á þriðjudag sendi sjávarútvegs­ ráðuneytið frá sér fréttatilkynningu um viðbrögð Íslands við viðskipta­ banni ESB á selaafurðum. Þar seg­ ir að Ísland hafi lýst yfir „stuðningi sínum við Noreg og Kanada“ í máli þeirra gegn ESB. Forsaga málsins er sú að Kanada hefur um nálega tveggja ára skeið gert athugasemdir við bann Evrópusambandsins á inn­ flutningi á selaafurðum í markaðs­ skyni sem ríkisstjórn Kanada telur að brjóti í bága við alþjóðareglur sem takmarka möguleika ríkja á að setja upp viðskiptahindranir. Á fundinum í deilunefnd heimsviðskiptastofnun­ arinnar (WTO), sem sjávarútvegs­ ráðuneytið vísar til í tilkynningu sinni, fór Kanada fram á að sett yrði á laggirnar sérstakt pallborð (e. panel) til að skoða nánar bann ESB á inn­ flutningi selaafurða. Málið varðar Ísland að því leyti að tapi ESB málinu þá gæti bann þess á hvalaafurðum einnig verið í uppnámi. Af því höfum við Íslendingar hagsmuni. Fulltrú­ ar Íslands í fastanefndinni hjá WTO lýstu því yfir að Ísland nýtti þann rétt sinn að taka sér stöðu sem svokall­ aður þriðji aðili máls (e. third­party rights). Það sama gerðu Bandaríkin, Japan, Kína, Kólumbía, Mexíkó og Noregur. (Sá misskilningur kemur fram í féttatilkynningu sjávarútvegs­ ráðuneytisins að Noregur reki málið ásamt Kanada.) Samningsafstaða Ríkisstjórn Íslands hefur haft þá grundvallarafstöðu að nýta megi sela­ og hvalaafurðir eins og aðr­ ar afurðir dýra sem eru ekki í út­ rýmingarhættu. Sú stefna er í andstöðu við tiltekin náttúruvernd­ arákvæði Evrópusambandsins eins og til að mynda kemur skýrt fram í greiningar skýrslu framkvæmda­ stjórnar ESB vegna aðildarumsókn­ ar Íslands sem gefin var út í febrúar í fyrra (Analytical Report, bls. 36–37) og í frammistöðuskýrslunni frá því í nóvember (Iceland 2010 Progress Report, bls. 61–62). Í þessu mái eru Ísland og ESB einfaldlega ósammála. Með þeirri afstöðu sem felst í bókun­ inni um að taka sér stöðu sem þriðji aðili máls í deilu Kanada við ESB er Ísland einkum að stilla sér upp nýt­ ingarmegin fyrir komandi aðildar­ samninga við ESB í málefnakafl­ anum um umhverfismál (kafli 27). Þessi afstaða Íslands er í samræmi við langvarandi stefnu og svona bók­ anir eru eiginlega daglegt brauð. Pólitískt notagildi Nú er auðvitað sjálfsagt að sjávar­ útvegsráðherra sem er andvígur að­ ild Íslands að ESB taki til máls og bendi á að þessi stefna okkar Íslend­ inga stangist á við stefnu ESB og að hugsanlega verði okkur við ESB­að­ ild gert að undirgangast bannið. Þvert á stefnu landsins. Það á hann vitaskuld að gera og rétt að hvetja hann til þess. En í stað þess að lýsa þessu skýrt og skorinort yfir kaus ráð­ herrann sem sé fremur að senda út framanvitnaða tilkynningu um mál sem rekið er á forræði utanríkisráðu­ neytisins. Maður þarf ekki að vera svo ýkja djúpt lesinn í kremlarlógíu íslenskra stjórnmála til að skilja hvað klukkan slær. Ekki laust við að maður brosi út í annað – ekki vegna afstöðu ráðherrans (sem ég raunar deili með honum) heldur vegna málatilbúnað­ arins sem ætlaður var til pólitískra nota hér innanlands. Að vísu eru fjölmörg dæmi um að fagráðuneyti hafi forsvar í stórum utanríkispólitískum álitamálum en hér er ekki um slíkt að ræða. Þessi fundur var bara busines as usual. Skýringin bak við fréttina á þriðju­ dag og hvernig hún birtist fólki felst í átakalínum innan ríkisstjórnarinn­ ar. Vegna þeirra átaka sendi sjávar­ útvegsráðherra frá sér fréttatilkynn­ ingu á meðan utanríkisráðherra þagði. – Já, svona geta íslensk þriðju­ dagsstjórnmál verið hreint ískrandi skemmtileg. Lítil sæt selafrétt „Maður þarf ekki að vera svo ýkja djúpt lesinn í kremlarlógíu ís- lenskra stjórnmála til að skilja hvað klukkan slær. Kjallari Dr. Eiríkur Bergmann
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.