Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2011, Blaðsíða 23
Nærmynd | 23Helgarblað 1.–3. apríl 2011
Fyndin og harðdugleg auðkona
stunda laxveiði og njóta þess mikið.
Svanhildur segir þau bæði vera mikl-
ar veiðiklær. „Það er meira að segja
til fluga sem heitir Inga Lind sem er
mjög fiskin. Það var laxveiðimaður
sem hnýtti hana og nefndi í höfuðið á
henni og þetta er bæði falleg og fisk-
in fluga.“ Áslaug segir Ingu Lind fá-
ránlega fiskna. Ég hef verið með Ingu
þegar hún rétt svo kíkir á karlana að
veiða. Hún stoppar í smástund og tek-
ur aðeins í stöngina og er svo búin að
veiða meira en þeir allir til samans
eftir smástund.“
Eins og Davíð Oddsson
Inga Lind upplýsti í skemmtiþætti
Loga Bergmann á Stöð 2 að hún væri
ljót, tannlaus og með ómögulegt hár
sem líktist hári Davíðs Oddssonar.
Inga Lind ákvað að ræða um sjálfs-
mynd sína vegna þess að hópur fólks
hélt því fram að hún hefði verið kos-
in vegna ytri fegurðar. Vinir hennar
segja að það hafi henni í fyllstu alvöru
þótt algerlega óskiljanlegt. Svanhild-
ur sagði Loga að ræða þessa rugluðu
sjálfsmynd við Ingu Lind í sjónvarps-
þætti sínum. „Það er mjög erfitt að
telja til einhverja galla Ingu. En hún
er stundum með skrýtna sjálfsmynd.
Maður tekur þessu eins og hverri ann-
arri vitleysu, það er ekki eins og hún
sé í einhverju þunglyndi yfir þessu.
Henni finnst hún stundum vera ljót.“
Og það sagði Inga Lind í þætt-
inum Hjá Loga. Hún sagði frá því að
hún væri með gervitennur og að síð-
asta sumar hefði hún meira að segja
misst eina þeirra á tröppurnar á
heimili sínu. Þá sagði hún frá því að
við ákveðin veðurskilyrði hrykki hár
hennar í þá stöðu að vísa beint út til
hliðanna.
Áslaug Hulda segir sjálfsmynd
hennar vera þessa og hún hafi reynd-
ar oft mikinn húmor fyrir henni. „Hún
er svo miklu meira en sæta konan,
það er óþolandi þegar fólk fellur í þá
gryfju að einblína á útlit kvenna öllu
framar. Inga Lind hefur miklu meira
að bjóða. En hún er nú samt eins og
rolla,“ gantast Áslaug með. „Enda
rímar Lind við kind. Þegar hún fer út í
rigningu þá snarkrullast á henni hárið
og líkist hári Davíðs Oddssonar þegar
hann var upp á sitt besta. Við hlæjum
öll að þessu og hún hæst.“
Samband Árna og Ingu
Hrafnhildur, móðir Ingu Lindar, tel-
ur lán að hún sé gift Árna Haukssyni.
„Hann er góður og heiðarlegur og ég
hefði valið mér hann hefði ég mátt
velja mér tengdason,“ segir hún.
Allir viðmælendur DV sögðu að
þau væru góð heim að sækja. Þau
væru alþýðleg og félagslynd og miklir
vinir. Svanhildur segir heimili þeirra
vera svolítið eins og brautarstöð svo
mikill sé gestagangurinn. „Ég er viss
um að heima hjá þeim hittir maður
fleiri en maður gerir á annasömum
degi á Kaffitári í Bankastræti. Þann-
ig er því best lýst. Á heimili þeirra er
mikill gestagangur og þau taka vel á
móti gestum sínum.“
Áslaug Hulda tekur undir þetta.
„Inga Lind er mögnuð húsfreyja. Hún
var á unglingsaldri þegar hún byrj-
aði að safna pottasetti undir rúminu
sínu. Ég meina, hver gerir það?“ seg-
ir hún og hlær. „Svo fór hún að halda
tupperware-boð og biðja mig um
að mæta. Ég hafði nú takmarkaðan
áhuga á því en hún lét sér ekki segj-
ast og hefur verið að lauma að mér
stöku tupperware-boxi og lofa nytin
í þessu.“
Svanhildur segir þau bæði vera
nörda. „Þau eru miklir félagar og
bæði eru þau miklir nördar. Það er
kostulegt að fylgjast með þeim ves-
enast með iPodana sína. Þá verð ég
að nefna að Inga getur snarað fram
ferskeytlu og gerir það þá með rétt-
um bragarháttum, og nefndu það.
Það er með ólíkindum.“ Áslaug segir
allar vinkonurnar eiga eftir hana fer-
skeytlu. „Þær eru sumar ekki birting-
arhæfar!“
Kallar töskuna sína Kristján
Viðmælendur DV segja að Árni sé
duglegur að gefa Ingu Lind falleg-
ar gjafir. Hann á að hafa gefið henni
forláta glæsibifreið og svo gefi hann
henni oft skart. „Hann er flinkur í að
gefa henni gjafir en reyndar er hún
alltaf ánægð með hvað það er sem
hún fær,“ segir Svanhildur. „Svo er
hún líka svolítið fyndin sjálf,“ nefnir
Áslaug. „Hún gaf til að mynda Árna
jakkaföt sem henni fundust mjög
flott. Hann vildi þau ekki, þannig að
hún gaf honum þau næstu þrjá af-
mælisdaga.“
Þorbjörg Helga tekur í sama
streng: „Hún er líka fyndin með eigin
kaup. Hún á það til þegar hún kaupir
eitthvað fallegt að nefna hlutina ein-
hverjum nöfnum.Hún á til dæmis
tösku sem hún kallar Kristján.“
Góð móðir á stóru heimili
Móðir Ingu Lindar segist aðspurð
hvort hún sjái það fyrir sér að Inga
Lind helli sér út í stjórnmálin að hún
haldi að hún hafi nóg að gera við að
annast stórt heimili. „Það er ekki öll-
um gefið að hugsa vel um sína, en
hún gerir það afskaplega vel og er góð
móðir. Þetta er stórt heimili og mik-
ið um að vera. Ég veit ekki hvort hún
hyggur á frama í stjórnmálum.“
Inga frænka
Vinkonur Ingu hafa hins vegar trölla-
trú á því að það taumhald sem hún
hefur á heimilinu geti vel farið saman
við frama í stjórnmálum eða hverju
öðru sem hún ákveður að taka sér
fyrir hendur. „Hún getur allt hún
Inga Lind,“ segir Svanhildur. „Ef hún
ákveður að leggja fyrir sig stjórnmál
þá gerir hún það. Hún er líka frábær
mamma. Ég fékk hana til þess að vera
guðmóður Brynhildar minnar sem
er nú að verða fimm ára. Brynhild-
ur kallar hana alltaf Ingu frænku og
hreinlega dáir hana. Það gera líka
öll börn því hún er með endemum
barngóð. Hún er dugleg að sjá til
þess að börnin sinni áhugamálum
sínum, er ljúf en hefur samt á þeim
gott taumhald.“
Prinsippmanneskja
Um þá ákvörðun hennar að þiggja
ekki sæti í stjórnlagaráði eru vinir
hennar allir sammála um eitt. Hún
er prinsippmanneskja. „Hún ákvað
að fara í þetta á ákveðnum forsend-
um. Þegar þær forsendur eru ekki
lengur fyrir hendi þá tekur hún
ekki þátt. Þetta er einkennandi fyr-
ir hana,“ segir Áslaug. Svanhildur
tekur undir með Áslaugu. „Hún
er ekkert að frekjast, hún leyfir
öðrum að halda sínum sjónar-
miðum á lofti og kemur sínum
áfram af mikilli næmni.“
Fáránlegt fimleikabrölt
En klikkar Inga Lind þá
aldrei? „Jú, hvort hún gerir,“
segir Svanhildur. „Í þessu fá-
ránlega fimleikabrölti sem
ég er alfarið á móti. Mér
finnst hún vera orðin full-
gömul og stirð til þess að
standa í þessarri vitleysu.
Enda kom það í ljós í vetur
þegar hún fótbrotnaði og þurfti að
skjögrast út um allt í miðri kosninga-
baráttunni. Hún bara tekur engum
sönsum.“
„Það er alveg rétt, hún tek-
ur engum sönsum,“ segir
Þorbjörg Helga. „Ég mætti
í einn tíma og sá hana
hoppa eins og gorm og
vissi ekki hvert ég ætl-
aði. Svo fótbrotnaði
hún auðvitað og þá
töldum við vinkon-
urnar mál okkar
fullsannað. Nýja
dellan hennar er
tennis en henni
er líklega óhætt
þar,“ segir hún
og hlær.
„Það er líka
eitt annað sem
hún klikkar á,“
segir Þorbjörg
Helga. „Það er
að við stönd-
umst ekki sam-
anburð. Það er
bara ekki sjens
að við náum
að koma því í
verk sem hún
gerir.“
„Maður tekur þessu
eins og hverri
annarri vitleysu, það er
ekki eins og hún sé í
einhverju þunglyndi yfir
þessu. Henni finnst hún
stundum vera ljót.
Úr fátækt í
gríðarlegan
auð Vinkonur
Ingu Lindar taka
það fram að hún
taki umræðu um
eignir og lúxuslíf
þeirra hjóna nærri
sér. Hún þekki enda
vel þess hlutskiptis
að velta hverri krónu
fyrir sér.