Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2011, Blaðsíða 22
22 | Nærmynd 1.–3. apríl 2011 Helgarblað
Inga Lind Karlsdóttir er landsmönn-
um vel kunn enda hefur hún starf-
að farsællega í fjölmiðlum í mörg
ár. Meðfram fjölmiðlaferlinum hef-
ur Inga Lind sinnt námi í listfræði og
áhuga sínum á stjórnmálum. Það var
vegna þess áhuga sem hún sóttist eftir
sæti á stjórnlagaþingi. Hún vildi ekki
breyta stjórnarskránni eða umbylta,
frekar standa vörð um hana eins og
flestir aðrir Sjálfstæðismenn. Inga
Lind er skráð í Sjálfstæðisflokkinn og
hefur verið virk í starfi hans frá unga
aldri. Hún hefur ekki enn tekið skref-
ið og boðið sig fram fyrir flokkinn en
í Háskóla Íslands bauð hún sig fram í
efsta sæti til Stúdentaráðs fyrir hægra
aflið Vöku sem hefur löngum verið
talið nátengt Sjálfstæðisflokknum.
Inga Lind varð að eigin sögn hverft
við hversu margir vilja breyta stjórn-
arskránni og sagði af því tilefni: „Eðli
málsins samkvæmt er því, og á að
vera, erfiðara að breyta stjórnar-
skránni en öðrum lögum. Svona er
fyrirkomulagið af því að það skiptir
máli að festa sé í grundvallarlögun-
um, þeim má ekki vera hægt að breyta
eftir því hvernig vindurinn blæs eða
pólitíkin snýst.“
Trójuhestur inn á stjórnlagaþing
Einhverjir urðu fýldir vegna sigra
hinna frægu í kjöri til stjórnlagaþings
og beindist sú fýla helst að Ingu Lind
sem er í dag sterkefnuð og á auðvelt
með að koma sér á framfæri. Það kom
því þessum sömu gagnrýnisröddum á
óvart þegar hún ákvað að þiggja ekki
sæti í stjórnlagaráði og einhverjir tóku
þann pól í hæðina að Inga Lind hefði
alltaf átt að vera trójuhestur sjálf-
stæðismanna inni á stjórnlagaþingi
til þess að stemma stigu við breyting-
um á stjórnarskránni. Þeir hinir sömu
nefndu að allir einstaklingar á póst-
lista Sjálfstæðisflokksins hefðu fengið
skeyti þar sem sérstaklega var mælt
með frambjóðendum til stjórnlaga-
þings undir yfirskriftinni að þar væri
á ferð fólk sem hefði hógværar skoð-
anir á stjórnarskránni og vildi litlar
breytingar frá því sem nú er. Inga Lind
var meðal þeirra frambjóðenda sem
mælt var með.
Ríkidæmi Ingu Lindar og Árna
Inga Lind er fimm barna móðir og
eiginkona Árna Haukssonar fram-
kvæmdastjóra og saman eiga þau
fimm börn á aldrinum tveggja til átján
ára. Þau tvö má reyndar vafalaust telja
í hópi ríkustu Íslendinga um þess-
ar mundir og hafa byggt saman upp
mikið viðskiptaveldi síðustu ár. Árni
Hauksson er þekktur athafnamaður.
Hann eignaðist Húsasmiðjuna 2002
og þau viðskipti urðu efni í heila bók
fyrrverandi forstjóra, Boga Þórs Sig-
uroddssonar. Í bókinni Fjandsamleg
yfirtaka sakar Bogi Árna og viðskipta-
félaga hans Hallbjörn Karlsson, um
fjandsamlega yfirtöku og óheiðar-
leika.
Nýkrýndir kóngar
Árni og Hallbjörn efnuðust mjög vel
á þessum viðskiptum í gegnum fé-
lag sitt Vogabakka. Þeir seldu Húsa-
smiðjuna til Baugs þremur árum síð-
ar með miklum hagnaði og héldu
arðinum til haga á meðan þeir sáu
teikn á lofti um efnahagsþrengingar.
Árni hefur reyndar verið mjög for-
sjáll í viðskiptum en þegar Inga Lind
starfaði í Íslandi í dag var hann kjör-
inn í stjórn Dagsbrúnar (þá Og Voda-
fone) á hluthafafundi 23. september
2004 og átti í félaginu stóran hlut.
Hann seldi síðan hlut sinn árið 2006.
Inga Lind lét af störfum á sama tíma.
Vísast sá hann þá fyrir vanda Jóns Ás-
geirs og það vill einmitt svo til að nú
eru Árni og Hallbjörn meðal stærstu
hluthafa Haga og eiga 34 prósenta
hlut í fyrirtækinu í gegnum félagið
Búvelli ehf. Þeir félagarnir hafa því
komið vel undan hruni og eru með
þessum kaupum nýkrýndir kóng-
ar hagkerfisins. Hagar er enda lang-
stærsta verslanaveldi á Íslandi með
verslanir eins og Hagkaup og Bónus
á sínum snærum. Með í kaupunum
fylgir jafnframt kaupréttur á 10 pró-
senta hlut.
Gríðarháar arðgreiðslur
Árni og Inga Lind eru gífurlega vel
stödd eftir hrun. Kaupverðið á 34
prósenta hlut í Högum er 4.4 millj-
arðar króna og er heildarvirði félags-
ins rúmlega 24 milljarðar króna.
Þeir greiddu sér samtals 450 millj-
ónir króna í arð í fyrra í gegnum fé-
lagið Vogabakka en í lok hrunársins
2008 var eigið fé félagsins um 9 millj-
ónir evra. Árni greiddi sér einnig 350
milljónir króna í arð út úr eigin félagi
Klapparási ehf.
Umdeild glæsivilla
Foreldrar Ingu Lindar eru Hrafnhild-
ur Konráðsdóttir og Karl Valgeir Jóns-
son. Inga Lind ólst upp í Garðabæ
með foreldrum sínum og býr þar enn í
dag með eiginmanni og börnum. Hún
býr í fallegu einbýlishúsi í Tjaldanesi
á Arnarnesi. Þau hjónin hyggja þó á
flutninga en í ársbyrjun 2008 keyptu
þau 357 fermetra einbýlishús. Þau
létu rífa það og byggja nú rúmlega
helmingi stærra hús. Það verður 786
fermetrar að stærð. Húsið verður tví-
lyft að hluta. Verðandi nágrannar
Ingu og Árna eru ekki sátt við áformin
og lögðu fram kæru. Henni var vísað
frá. Þau eiga að auki stórt hús á Akur-
eyri þar sem þau dvelja oft.
Hélt hún væri þýsk
Árni og Inga Lind kynntust á vinnu-
stað Ingu Lindar, DV fyrir fjölmörgum
árum. Þar vann hann sem fjármála-
stjóri og síðar aðstoðarframkvæmda-
stjóri. Hann spurði félaga sinn hver
þessi dökkhærða stelpa væri. Í við-
tali við Nýtt Líf segir Inga Lind svo frá
kynnum þeirra: „Honum var sagt að
þetta væri hún Ilk, af því að ég skrifaði
undir fréttirnar mínar með skamm-
stöfuninni minni eins og allir aðrir.
Árni tók því hins vegar þannig að ég
væri þýsk og héti Ilke. Hann varð mjög
hrifinn þar sem hann hefur mikið dá-
læti á Þjóðverjum og er mikill áhuga-
maður um seinni heimsstyrjöldina.“
Þau hófu hins vegar ekki samband
fyrr en upp úr slitnaði í sambandi
hennar og barnsföður hennar. Þá bjó
hún ein með dóttur sinni í lítilli íbúð í
Vesturbænum.
Lúxuslíf
Að framansögðu er augljóst að Inga
Lind lifir forréttindalífi. Vinkon-
ur hennar nefna það allar að henni
finnist umræða um eignir þeirra
hjóna og lúxuslíf leiðinleg og að
stundum taki hún umræðuna nærri
sér. Ein nánasta vinkona Ingu Lindar,
Svanhildur Hólm, segir umræðuna
enda ekki snúast um eiginleika
hennar og hvaða manneskju hún
hafi að geyma. „Umræða um eign-
ir Ingu Lindar snúast ekki um það
hver hún er. Inga Lind var eitt sinn
einstæð móðir og bjó í lítilli íbúð í
Vesturbænum. Hún hjólaði bæinn á
enda með dóttur sína til dagmömmu
og til vinnu. Hún var og er hörkudug-
leg og þekkir það vel að þurfa að velta
hverri krónu fyrir sér. Fólk mætti al-
veg vita að Inga Lind myndi alltaf
koma sér áfram á eigin verðleikum.“
Yrði góður rithöfundur
Viðmælendur DV nefna allir að í
náinni framtíð sjái þeir Ingu Lind
hella sér af krafti í stjórnmálin eða
sinna ritstörfum. „Hún yrði góður
rithöfundur,“ segir Áslaug Hulda
Jónsdóttir æskuvinkona hennar úr
Garðabænum. „Hún yrði líka góð-
ur stjórnmálamaður enda er hún
mælsk, heiðarleg og mikil hugsjóna-
kona.“
Inga Lind hefur tekið virkan þátt í
félagsstörfum hvar sem þess var kost-
ur. Hún keppti ötullega í ræðukeppn-
um og var í keppnisliði Fjölbrauta-
skólans í Garðabæ í Morfís. Hún var
fyrsta konan sem var valin ræðu-
maður Íslands. Þar var hún einn-
ig formaður nemendafélagsins. Ás-
laug Hulda var Ingu Lind samferða
í gegnum skólagönguna og segir
áhugasvið hennar hafa orðið áber-
andi snemma. „Við byrjuðum á því
að bera út einhverja kosningabækl-
inga fyrir bróður hennar sem var virk-
ur í Sjálfstæðisflokknum. Við vorum
líklega um 10 ára og tókum hlutverk
okkar afar hátíðlega. Á þessum tíma
gaf Inga Lind út sitt fyrsta blað og á
sinni fyrstu ræðukeppni þurfti hún að
standa uppi á kókkassa svo hún sæist
yfir ræðupúltið. Hún hefur alltaf ver-
ið framtakssöm og sýndi snemma að
hún getur gert allt sem hún ákveður
að taka sér fyrir hendur.“
Eins og Þjóðverji
Svanhildur segir Ingu Lind fyrst og
fremst fyndna, klára og skemmtilega.
„Hún gerir stanslaust grín að sjálfri
sér og sínum og við höfum flissað
okkur í gegnum ótrúlegustu hluti,“
segir hún. „Glasið hjá Ingu er eigin-
lega alltaf hálffullt og það er nátt-
úrulega frábær eiginleiki. Svo er hún
samviskusöm. Ef Inga tekur að sér
verkefni þá klárar hún það og það
er hennar mikli styrkur. Hún hefur
aldrei í lífinu verið með allt niður um
sig. Það er bara þannig. Svo ef ég á að
nefna eitthvað sem einkennir hana
sérstaklega þá er hún stundvísasta
manneskja sem ég þekki. Það hljóm-
ar eins og maður sé að lýsa Þjóðverja
en ef það er mæting í barnaafmæli
klukkan þrjú, þá kemur hún klukk-
an þrjú. Ekki tvær mínútur í eða tvær
mínútur yfir – heldur á slaginu þrjú
og það bregst aldrei.“
Lék sér með byssur og bíla
Áslaug Hulda og móðir Ingu Lind-
ar taka undir með Svanhildi og segja
hana með eindæmum glaðlynda.
„Hún er síflissandi,“ segir Áslaug og
hlær. „En hún er líka afar næm og
ljúf,“ bætir hún við. „Hún er konan
sem mætir upp á fæðingardeild þeg-
ar vinkonur hennar eignast börn og
grætur af gleði. Hún er svolítið væm-
in,“ bætir Áslaug við og skellir upp
úr. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, vin-
kona Ingu Lindar og eiginkona Hall-
bjarnar Karlssonar viðskiptafélaga
Árna, tekur undir þetta. „Þegar ég var
síðast uppi á fæðingardeild var hún
mætt fyrst allra til að lykta af nýfæddu
barninu og gráta.“
Móðir Ingu Lindar segir hana hafa
verið ótrúlega ljúft og geðgott barn.
„Hún var svo ljúf að eftir var tekið.
Hún kom samt mörgum á óvart, lék
sér til að mynda aldrei með dúkkur,
heldur byssur og bíla. Henni fannst
strax, barn að aldri, gaman að veiða
og sótti í að fara í veiðitúra með pabba
sínum.“
Falleg og fiskin fluga
Veiðiáhuginn hefur ekki dvínað. Inga
Lind hefur ennþá gaman af því að
veiða og hún og eiginmaður hennar
Fyndin og harðdugleg auðkona
Aðeins Inga Lind Karlsdóttir, af þeim 25 sem hlutu kosningu til stjórnlagaþings,
þiggur ekki sæti í stjórnlagaráði. Hún telur afgreiðslu og málatilbúnað um skipun
ráðsins óvandaðan og að auki kýs hún að ganga ekki gegn ákvörðun Hæstaréttar.
DV dró af því tilefni upp nærmynd af Ingu Lind. Viðmælendur DV eru á einu máli
um að Inga Lind sé glaðlynd og eldklár. Þeir sjá fyrir sér að í náinni framtíð gæti hún
hugsað sér að hella sér af krafti í stjórnmálin eða sinna ritstörfum. „Hún hjólaði bæinn
á enda með dótt-
ur sína til dagmömmu og
til vinnu. Hún var og er
hörkudugleg og
þekkir það vel að þurfa að
velta hverri krónu fyrir sér.
„En hún er nú samt
eins og rolla.
Kristjana Guðbrandsdóttir
blaðamaður skrifar kristjana@dv.is
Flott fjölskylda Inga Lind er fimm barna móðir og eiginkona Árna Haukssonar fram-
kvæmdastjóra. Fjölskyldan býr í fallegu einbýlishúsi í Tjaldanesi á Arnarnesi. Þau hyggja þó
á flutninga því þau festu kaup á 357 fermetra einbýlishúsi árið 2008.
Góðar vinkonur Hér eru þær Inga Lind og Svanhildur Hólm sem um tíma unnu saman á
Stöð 2. Svanhildur segir að Inga Lind sé hörkudugleg og hún muni alltaf koma sér áfram á
eigin verðleikum.