Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2011, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2011, Blaðsíða 38
38 | Lífsstíll 1.–3. apríl 2011 Helgarblað S nyrtifræðingarnir Elísa Anna Hallsdóttir, hjá snyrtistofunni Mizu, og Lóa Hrönn Ing- valdsdóttir, sjálfstætt starf- andi á Victoria Salon, eru sérhæfðar í brasil ískri vaxmeðferð en svo kall- ast það þegar öll hár eru fjarlægð af kynfærum og í kring með sérstöku heitu vaxi. Nú leita þær stöllur að karlkyns sjálfboðaliða sem er tilbúinn að láta vaxa pung og nára meðan Lóa kennir Elísu réttu handtökin. Konur hafa löngum sótt þessa þjónustu á snyrtistofur en undanfar- in ár hefur það færst mjög í aukana að fólk vilji láta fjarlægja hár af þessu svæði. Körlum hefur svo jafnt og þétt fjölgað í hópi viðskiptavina. „Það færist mjög í aukana að karl- menn sæki fjölbreytta þjónustu á snyrtistofur og brasilíska vaxið er engin undantekning,“ segir Elísa en eins og margir vita eru margir nú- tímamenn orðnir vanir því að snyrta sig að neðan. Spurðar að því hvernig karlmenn það séu sem komi í svona vax segir Lóa þetta alls konar karla úr öllum stéttum: „Viðskiptavinir mínir eru aðal- lega bara venjulegir heimilisfeður með ágæta vinnu. Sá yngsti er tutt- ugu og tveggja en elsti er rétt rúmlega fertugur. Strákar sem keppa í fitness eru líka duglegir að mæta og þá sér- staklega fyrir keppnir,“ segir Lóa sem hefur nú framkvæmt brasilískar vax- meðferðir á körlum í nokkur ár. Nú vita flestir að pungurinn er mjög teygjanlegt fyrirbæri... er ekki erfitt að vaxa þennan líkamshluta? „Nei, þetta á ekki að vera neitt mál. Strákarnir hjálpa auðvitað til við að strekkja og svona,“ segir Lóa og bætir við að þetta sé ekkert í líkingu við atriðið í kvikmyndinni um tísku- hommann Bruno þar sem hann brá sér í brasilískt vax. „Það eru nokkrir hommar í hópi viðskiptavina minna en enginn þeirra vill brasilískt vax. Þeir vilja bara láta taka af baki og bringu en allir sem koma í brasilískt eru gagnkynhneigðir!“ Elísa byrjaði að gera brasilískt vax á konum fyrir þremur árum og seg- ir vinsældirnar aukast með hverjum mánuðinum. Hún segir kostina um- fram raksturinn vera marga. „Meðal annars mýkist hárrótin og hárin verða lengur að vaxa aftur auk þess sem þeim fækkar með tíman- um.“ Hvað kostar brasilísk vaxmeðferð og í hverju felst þetta? „Margir halda að brasilískt vax þýði að gersamlega öll hár séu tekin burt en það er misskilningur. Marg- ar konur skilja t.d. eftir þríhyrning og það sama á við um karlana. Svo eru sumir sem vilja ekki að hárin milli þjóhnappanna séu tekin,“ svarar Lóa og bætir við að meðferðin hjá sér kosti 4.900 fyrir fyrsta sinn en fastir viðskiptavinir fái 500 króna afslátt. En af hverju koma karlar í slíkar meðferðir? Lóa er ekki sein að svara enda hef- ur hún boðið körlum vaxmeðferðir í rúmt ár: „Þeim finnst þetta bara geggj- að upp á kynlífið að gera. Svo finnst þeim þetta miklu betra en að raka sjálfir. Þeir eru oft klaufalegir við raksturinn. Fá útbrot og önnur eymsli á eftir. Þegar þeir hafa einu sinni próf- að vax er ekki aftur snúið. Þeir koma alltaf aftur,“ segir hún. Spurð að því hvort strákarnir séu ekkert feimnir segir hún reyndar að svo sé: „Þeir sem eru að koma í fyrsta sinn eru oft hræddir við að fá standp- ínu en um leið og þeir finna hvað þetta er einfalt og afslappað róast þeir strax niður og þetta verður ekk- ert mál. Hingað til hefur enginn þurft að glíma við hold ris. Bæði karlar og konur eru feimin í fyrsta sinn sem komið er í brasilískt vax en fólk finn- ur samt fljótt hvað þetta er eðlilegt og lítið vesen,“ segir Lóa blátt áfram. „Ég hef heldur aldrei verið feimin við þetta. Hvorki þegar ég geri vax á konum né körlum. Það er bara spjall- að um daginn og veginn og tíminn er fljótur að líða.“ Áhugasamir sjálfboðaliðar geta sent tölvupóst á mizu@mizu.is. Óska eftir manni í brasilískt vax Gagnkynhneigðir heimilisfeður á öllum aldri: „Sumir eru hræddir við að fá standpínu. Lín Design Laugavegi 176, gamla sjónvarpshúsið Sími 533 2220 www.lindesign.is Mjúka fermingargjöfin Úrval fermingargjafa á tilboði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.