Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2011, Blaðsíða 56
Stuð á
Starbucks!
Silfrið á Skoda
n Sjónvarpsmaðurinn Egill Helga-
son, sem sér um Silfur Egils og bók-
menntaþáttinn Kiljuna hjá Ríkis-
sjónvarpinu, er sagður vera kominn
á Skoda Octavia-bifreið. Þetta ritar
fjölmiðlamaðurinn Eiríkur Jónsson á
bloggsíðu sína á Eyjunni. Eiríkur segir
Egil hafa áður ekið um á bleikrauð-
um Benz en vera nú kominn á Skoda.
Eiríkur segir stökkið úr
Benz í Skoda vera
álíka og fara af
breska ríkisútvarp-
inu BBC og yfir á ís-
lenska útvarpsstöð.
Hvað sem því
nú líður
má ætla
að Egill
uni hag
sínum
vel á
nýja
bílnum.
Fast skotið á
nýjan formann
n „Það er álíka viðeigandi að SES sé
formaður VR og ef ég væri formaður
sóknarnefndar Seljasóknar,“ segir
Matthías Ásgeirsson, einn vinsælasti
bloggari landsins og fyrrverandi
formaður Vantrúar, um kjörið til
formanns VR sem kunngjört var
á miðvikudag. Viðskiptasiðfræð-
ingurinn Stefán Einar Stefánsson var
sem kunnugt er kjörinn formaður.
Vísir greindi frá því á miðvikudag að
margir félagsmenn VR hefðu haft
samband við Bandalag
háskólamanna til að
kanna hver staða
þeirra væri ef
þeir skiptu um
stéttarfélag. Virðast
því ekki allir vera á
eitt sáttir um nýja
formann-
inn.
„Við erum auðvitað hæstánægð með
að hafa tryggt okkur þennan samn-
ing,“ segir tónlistarmaðurinn Val-
geir Guðjónsson sem hefur tryggt sér
rekstrarsamning við alþjóðlegu kaffi-
húsakeðjuna Starbucks. Valgeir hef-
ur ásamt eiginkonu sinni, Ástu Krist-
rúnu Ragnarsdóttur, unnið hörðum
höndum við að koma 4. hæð við
Tryggvagötu 11 í viðunandi horf, svo
opna megi fyrsta útibú Starbucks á Ís-
landi sem fyrst.
„Við sjáum gífurlega möguleika
í þessu samstarfi,“ segir Valgeir og
Ásta tekur í sama streng. „Við verð-
um auðvitað með hefðbundna drykki
Starbucks sem margir kannast við
af ferðalögum sínum. Þar má nefna
karamellumacchiato, vanillulatté,
Tazo chai-te, frappucino og svo mætti
lengi telja. Þá verðum við vitanlega
með muffins, samlokur og pönnu-
kökur – alla frægustu Starbucks-rétt-
ina.“ Valgeir bætir því við að Starbucks
ætli sér að prufukeyra nokkrar nýj-
ungar í nýja útibúinu í Reykjavík. „Við
ræddum við fulltrúa Starbucks hér á
landi en þeir hrifust strax af því hve al-
þjóðlegt andrúmsloft ríkti hér í mið-
borg Reykjavíkur. Þeir stungu upp á
því að við yrðum þess heiðurs aðnjót-
andi að verða fyrsta Starbucks-útibú-
ið í heimi til að bjóða upp á svokall-
aða andoxunarsmárétti.“ Mexíkóinn
Jorge Mendez þróaði réttina en hann
samdi við Starbucks fyrr á þessu ári
um fjöldaframleiðslu og dreifingu.
„Þessir réttir eru meinhollir og við
getum staðfest að þeir eru hið mesta
hnossgæti,“ segir Ásta og bætir því við
að í dag, föstudag, bjóði þau Valgeir
gestum og gangandi að smakka úrval
kaffidrykkja frá Starbucks, auk nýju
andoxunarréttanna, sér að kostnað-
arlausu. „Það er sjálfsagt að bjóða að
smakka,“ segir Valgeir og brosir út í
annað. Opið verður fyrir gesti í dag frá
11–14 á Tryggvagötu 11.
Stuðmaður fær rekstrarleyfi fyrir kaffihús:
Starbucks opnað á Íslandi
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HelgarblaÐ 1.–3. apríl 2011 39. tbl. 101. árg. leiðb. verð 595 kr.
Valgeir Guðjónsson Hefur unnið dag og nótt
til að koma Starbucks á koppinn. Mynd SiGtryGGur ari
„Fulllangt gengið“
n „Auðvitað má deila um hvernig
einhverjir aðilar hafa öðlast sína
„frægð“ hér á landi en mér finnst
þetta nú fulllangt gengið,“ segir út-
varpsmaðurinn Heiðar austmann
á Facebook-síðu sinni. Eins og DV
greindi frá á miðvikudag sendi fjöl-
miðlakonan Þorbjörg
Marinósdóttir
forsvarsmönn-
um Grapevine
harðort bréf.
Þar gagn-
rýndi hún
greinarhöfund
blaðsins sem
fór ófögrum
orðum um nokkra
einstaklinga sem
verið hafa áberandi í
fjölmiðlaumfjöllun
undanfarin misseri,
þar á meðal Þor-
björgu. „Þetta er
blað sem fjöldinn
allur af erlendu fólki
les og þetta finnst
mér ekki vera til út-
flutnings frá Grape-
vine,“ segir Heiðar.
Grunnur að góðri máltíð
www.holta.is
Kjúklingapylsur
Kjúklingapylsurnar frá Holtakjúklingi eru framleiddar úr besta hráefni
sem völ er á. Því geta þeir sem hugsa um hollustuna nú gætt sér á þjóðarrétti
okkar Íslendinga með góðri samvisku. Hvort sem þeir vilja hann með hráum,
steiktum, tómat, sinnepi eða bara beint af grillinu.