Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2011, Blaðsíða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2011, Blaðsíða 42
42 | Lífsstíll 1.–3. apríl 2011 Helgarblað Þekktir tískublaðamenn og stílistar streyma til landsins: Stílisti Rihönnu og Sigur Rósar Á fimmtudag hófst Reykjavik Fash­ ion Festival 2011. Hátíðin í fyrra gekk vonum framar og skilaði mikilli já­ kvæðri umfjöllun um íslenska fata­ hönnun og Ísland í fjölmiðlum víða um heim. Í fyrra komst til að mynda Royal Extreme, Unu Kristjánsdóttur, inn á Fashion Week í New York eft­ ir að hafa vakið athygli á RFF. Ragn­ heiður Kristín Pálsdóttir, ein þeirra sem standa að RFF í ár, segir 60 blaðamenn frá erlendum fjölmiðl­ um væntanlega til landsins til þess að fylgjast með hátíðinni. „Í ár koma blaðamenn frá Sunday Times, Dazed and Confused, The Guardian, I­D, þýska Vogue, Teen Vogue, V­maga­ zine og Cosmopolitan. Þá koma einnig um 10 kaupendur á hátíðina, til að mynda frá Top Shop, stílistinn Masha Orlov frá New York er vænt­ anleg og frægir tískubloggarar eins og Susie Bubble.“ Masha hefur unnið fyrir Christian Lacroix, Issey Miyake, Alain Mikli, Je­ remy Scott og Zac Posen og hefur líka unnið sem stílisti Rihönnu, Kim Gor­ don, Chloe Sevigny, Natöshu Khan, Sigur Rósar og fleiri. Susie Bubble rekur viðamikið og vinsælt blogg á stylebubble.typepad.com. Blaðamenn og stílistar hafa um nóg að fjalla en í ár taka 22 hönnuð­ ir þátt í hátíðinni og sýningar þeirra verða föstudags­ og laugardagskvöld í Hafnarhúsinu. 10 hönnuðir sýna á föstudag og 12 á laugardag. Að auki verður fjöldi tónleika í tengslum við hátíðina. Ljóst er að hátíðinni hefur vaxið fiskur um hrygg. Markmið RFF er að styrkja frumkvæði og metnað ís­ lenskra fatahönnuða og greiða leið þeirra að markaðssókn erlend­ is. Ef marka má þennan fjölda sem streymir til landsins mun umfjöllun um íslenska fatahönnun líklega hafa margföldunaráhrif sem bæði hönn­ uðir og ímynd landsins njóta góðs af. kristjana@dv.is Ekki taugaveiklaðir TÖSKUHUNDAR L augardaginn 19. mars fór fram hundasýning í Blómavali en þar sýndu chihuahua­rækt­ endur á vegum HRFÍ tíkur og rakka sem kepptu í öllum flokkum. Sigurbjörg Vignisdóttir, köll­ uð Silla, er meðal áhugasömustu hundakvenna landsins en hún sér­ hæfir sig í ræktun á chihuahua og fór heim með hvorki fleiri né færri en tíu verðlaunabikara af sýning­ unni. Ræktun hennar gengur undir nafninu Himna en hún hafði aldrei átt hund þegar hún hellti sér út í chi­ huahua­ræktun af lífi og sál. Hvernig kom það til að þú fórst að rækta þessa kjölturakka? „Ég keypti mér hundabókina og las spjaldanna á milli. Þegar ég kom að kaflanum um chihuahua, eða tjúa eins og þeir eru kallaðir, varð ég bara ástfangin af tegundinni,“ segir Silla en fyrsti hundurinn hennar, Birta, kemur frá Brjánsstöðum á Skeiðun­ um þar sem eitt sinn var hundarækt. Birta er enn í topp formi og er rétt að verða 12 ára. Hvað áttu marga hunda? „Ég á fimm tjúa hérna heima og einn labrador en svo á ég nokkra sem búa annars staðar. Það er ekki hægt að hafa þá alla heima en ég hef verið dugleg að koma hundum á fóðursamninga,“ segir hún en fóð­ ursamningur kallast það þegar fólk tekur hunda í fóstur frá ræktanda, býr þeim gott heimili og gefur að borða í samvinnu við ræktandann. Ræktandinn sér þá áfram um að para saman tíkur og rakka og koma hvolpum til nýrra eigenda: „Ég er í samstarfi við fullt af ynd­ islegu fólki en mín lausn er sú að leyfa öllum að taka ákvarðanir sam­ an. Það er farsælast,“ segir Silla. Aðspurð hverjar séu helstu rang­ hugmyndirnar sem fólk hafi um chi­ huahua­hunda segir Silla að margir telji þá „taugaveiklaða töskuhunda“ sem séu sígeltandi. „Það er algjör misskilningur. Þetta er í raun bara stór hundur í litlum líkama og tjúar eru alls ekk­ ert taugaveiklaðri en aðrir hundar. Þeir þurfa bara sína hreyfingu eins og aðrir og þurfa að fá tíma með eigendum sínum. Ef hundur fær hreyfingu þá verður hann heil­ brigðari, afslappaðri og ánægðari. Það er bara eins með þá eins og okkur mannfólkið. Við höfum gott af því að hreyfa okkur og bregða á leik. Með því er verið að styrkja heil­ ann, taugakerfið og líkamann allan, svo ekki sé minnst á skapið. Þó að tjúinn sé kjölturakki þá hefur hann ekki gott af því að vera bara í kjöltu.“ Eins og fyrr segir vann Silla til ótal verðlauna á sýningunni í Blómavali en hún fór heim með hvorki fleiri né færri en 10 bikara. Að vonum er hún bæði stolt og ánægð með árangurinn. „Þetta var auðvitað alveg frá­ bært. Hundarnir mínir unnu „best in show“, bæði fyrstu og fjórðu verðlaun, ég fékk bikar fyrir besta ræktunarhóp sýningarinnar, í þriðja sæti var ég með besta öld­ ung sýningar, hana Birtu mína og auk þess átti ég bestu tíkurnar í síðhærðum flokki en þær lentu í fyrsta, öðru, þriðja og fjórða sæti. Tíkin sem fór í það þriðja fékk einnig meistarastig og ég veit ekki hvað og hvað,“ segir Silla full af einlægu stolti og gleði. „Þetta var sannarlega ekkert leiðinleg sýn­ ing.“ margret@dv.is Hundarnir hennar Sillu unnu til tíu verðlauna á Chihuahua-sýningu í Blómavali: Ástfangin af tegundinni Silla segir tjúa vera stóra hunda í litlum líkama. Susie Bubble Susie rekur viðamikið og vinsælt tískublogg á slóðinni style- bubble.typepad.com. Masha Orlov Masha hefur unnið sem stílisti Sigur Rósar, Rihönnu og tísku- drottningarinnar Chloe Sevigny. Stjörnu- hundurinn Boo Eru frægar stjörnur meðal hunda? Stjörnu- hundurinn Boo á 800 þúsund aðdáendur á Facebook og hefur verið til umfjöllunar á stærstu fréttamiðlum heims. Ef þú veist ekki af þessari krúttsprengju máttu spyrja þig hvar þú hafir eiginlega verið. Boo er aðal- málið á vefsíðunni petsugar.com og þar má líka lesa um fleiri stjörnuhunda og mögnuð hugðarefni hundaeigenda. Skegg-egg Nú er Mottumars á enda og kannski saknar karlkynið þess örlítið að skarta mottu meðan flestar stúlkur fagna aprílmánuði og rétta sínum mönnum rakvélina. Það má þó hugga þá meðan þeir syrgja skeggið með því að gefa þeim skegg-eggjahræru í morgunmat. Þetta skegg-eggjamót fæst í vefverslun Urbanoutfitters og kostar aðeins 10 dali. Pop-up mark- aður á RFF Tískudrósir og aðrir kaupglaðir ættu að vera í essinu sínu um helgina því að í tengslum við Reykjavik Fashion Festival verður starf- ræktur pop-up markaður að Laugavegi 91 þar sem hönnuðir selja framleiðslu sína á góðu verði. Markaðurinn verður opinn bæði laugardag og sunnudag og þar ætti að vera hægt að finna góðar gersemar. Þeir sem eiga ekki mávastell þurfa ekki að örvænta. Skartgripahönnuðurinn Guðbjörg Ingvarsdóttir, eigandi Aurum, hannaði fallegan borðbúnað í samstarfi við finnska hönnunarteymið Elinno þar sem gæði og tímaleysi voru höfð að leiðarljósi og hugmyndin sú að eins og mávastellið geti borðbúnaðurinn gengið kynslóða á milli. Borðbúnaðinn er hægt að fá í tveimur línum, Dögg og Heklu, og er framleiddur úr hágæðapostulíni (e. fine bone china) sem er sterkara en venjulegt postulín og þar af leiðandi endingarbetra. Engin eiturefni eru notuð en finnska fyrirtækið Elinno hugar að umhverfinu í allri sinni framleiðslu. Íslenskur, tíma- laus borðbúnaður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.