Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2011, Blaðsíða 20
20 | Erlent 1.–3. apríl 2011 Helgarblað
Bæði bandarísk stjórnvöld sem og
Atlantshafsbandalagið, NATO, hafa
áhyggjur af viðbrögðum vegna birting-
ar á myndum sem sýna misþyrmingar
bandarískra hermanna á saklausum
borgurum í Afganistan. Þýska tíma-
ritið Der Spiegel birti myndir í blaði
sínu á mánudag af Gul Mudin, 15 ára
bóndasyni í Afganistan, sem banda-
rískir hermenn myrtu sér til skemmt-
unar. Á morðið að hafa verið framið
þann 15. janúar í fyrra. Í frétt DV í dag
sjást tvær myndir sem Der Spiegel birti
en þar stilla tveir bandarískir hermenn
sér upp við hlið líks Guls Mudin.
Hermennirnir tveir á myndunum
sem kölluðu sig „drápssveitina“ (e.
killer team) hafa nú verið ákærðir fyrir
morð í Afganistan ásamt þremur öðr-
um bandarískum hermönnum. Einnig
hafa sjö aðrir verið ákærðir fyrir að taka
þátt í að reyna að hylma yfir morðin.
Eins og myndirnar með fréttinni sýna
var um afar óhugnanlegan verknað að
ræða. Því vekur það enga furðu að bæði
bandarísk stjórnvöld sem og NATO séu
uggandi vegna málsins. Það vekur auk
þess ekki mikla lukku hjá bandarískum
stjórnvöldum og almenningi að þýska
tímaritið Der Spiegel skuli hafa birt
myndirnar á undan bandarískum fjöl-
miðlum.
Litið alvarlegum augum
af bandaríska hernum
Hillary Clinton, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, hefur þegar talað við
samstarfólk sitt í Afganistan um birt-
ingu á myndunum í fjölmiðlum. Tom
Donilon varnarmálaráðgjafi hef-
ur fundað með opinberum aðilum í
Kabúl, höfuðborg Afganistans, en tal-
ið er að birting myndanna sem sýna
morðin á saklausum borgurum sé síst
til þess fallin að bæta samskipti land-
anna. Nú er sem dæmi rætt um að
bandaríski herinn fái varanlegar her-
stöðvar í Afganistan.
Í yfirlýsingu sem bandaríski ofurst-
inn Thomas Collins sendi frá sér kem-
ur fram að nú sé verið að undirbúa rétt-
arhöld yfir tólf manns sem taldir eru
tengjast málinu. Collins baðst afsök-
unar á þeim óþægindum sem mynd-
birtingarnar hafi valdið. „Aðfarirnar,
sem sést á myndunum að hermenn-
irnir hafi beitt, eru andstyggilegar í
allra augum og stangast á við þau gildi
og viðmið sem Bandaríkin telja sig eiga
að fara eftir,“ sagði Collins.
Óttast átök
Æðsta stjórn NATO óttast að til átaka
geti komið í Afganistan á næstu dög-
um og að jafnvel verði ráðist á starfs-
menn eða skemmdaverk unnin á
starfsstöðvum þeirra þar í landi.
„Þetta hefur vakið mikið umtal hér í
Afganistan,“ sagði hershöfðingi hjá
NATO í samtali við Der Spiegel.
„Reynsla okkar sýnir að það gæti
tekið nokkra daga þar til reiði fólks
brýst út fyrir alvöru.“ NATO, undir for-
ystu bandaríska hersins, hafði und-
irbúið birtingu myndanna í nærri 100
daga. Voru samstarfsaðilar í Afgan-
istan með í ráðum og var ætlunin að
reyna að forðast svipuð vandræði og
sköpuðust vegna birtingar Wikileaks
á gögnum í fyrra.
Joe Biden, varaforseti Banda-
ríkjanna, ræddi nýverið við Hamid
Karzai, forseta Afganistans, um mál-
ið. Er það talið sýna hversu alvar-
legum augum bandarísk stjórnvöld
líta málið. David Petraeus, yfirmaður
NATO í Afganistan, átti líka fund með
Karzai. Með því að tjá forseta Afgan-
istans að hinir grunuðu verði ákærð-
ir fyrir morð og dregnir fyrir dóm-
stóla vonuðust bandarísk stjórnvöld
til þess að Karzai myndi ekki gefa út
opinbera yfirlýsingu þar sem hann
myndi fordæma morðin.
Hafa viðurkennt morðin
Jeremy Morlock, sem er 22 ára, við-
urkenndi fyrir þremur mánuðum að
hafa tekið þátt í morðunum. Morlock
mætti fyrir rétt á fimmtudag vegna
málsins. Eins og áður sagði eru 12
bandarískir hermenn sem taldir eru
vera meðlimir svokallaðrar „dráps-
sveitar“ ásakaðir um að hafa tekið
þátt í morðum á saklausum borgur-
um í Afganistan. Eftir morðið á hin-
um 15 ára Gul Mudin eru þeir taldir
hafa reynt að hylma yfir verknaðinn
með því að halda því fram að um
sjálfsvörn hefði verið að ræða. Fórn-
arlambið hefði verið með skotvopn á
sér og ógnað þeim. Einnig hefur því
verið haldið fram að reynt hafi ver-
ið að henda handsprengju í þá. Því
hélt meðal annars hinn 21 árs Adam
Winfield fram í samskiptum við föður
sinn á Facebook.
Fleiri morð
Á myndunum sem sjá má með frétt
sem Der Spiegel birti sjást hermenn
stilla sér upp við lík hins 15 ára Guls
Mudin. Að sögn Der Spiegel fengu þeir
mun fleiri myndir og myndbönd sem
sýna hrottalegar aðfarir bandarískra
hermanna í Afganistan. Annað morð
átti sér stað þann 22. febrúar í fyrra en
þá á einn meðlimurinn í „drápssveit-
inni“ að hafa verið með gamlan rúss-
neskan Kalashnikov-rifill en tók síðan
upp aðra byssu og skaut 22 ára Afgana,
Marach Agha. Þriðja morðið á að hafa
átt sér stað 2. maí í fyrra þegar Mullah
Allah Dad var drepinn en meðlim-
ir „drápssveitarinnar“ héldu því líka
fram að hann hefði reynt að henda
handsprengju í þá. Mennirnir eru líka
áskakaðir um fleiri brot eins og van-
helgun á líkum, ólöglega eign á ljós-
myndum af líkum, vímuefnanotkun
og fyrir barsmíðar á samstarfsmönn-
um í bandaríska hernum.
„DRÁPSSVEIt“ LÉK SÉR
VIÐ AÐ DREPA AFGANA
n Myrtu þrjá saklausa borgara í Afganistan
árið 2010 og tóku myndir n Kalla sig „dráps-
sveitina“ n 12 hermenn dregnir fyrir dóm-
stóla vegna málsins n Vandræðalegt fyrir
NATO og bandaríska herinn„Aðfarirnar sem
hermennirnir hafa
beitt og sjást á mynd-
unum eru andstyggilegar
fyrir allt venjulegt fólk.
Afganistan Myndbirtingarnar eru sagðar vera
vandræðalegar fyrir NATO og bandaríska herinn.
MyNd ReuTeRs
stilla sér upp við hlið líksins Hér má
sjá einn af meðlimum hinnar svokölluðu
„drápssveitar“ stilla sér upp við lík hins 15
ára Guls Mudin. MyNd deR spiegeL
Brosir hringinn Hér má sjá bandaríska
hermanninn Jeremy Morlock brosa framan
í myndavélina þegar hann stillir sér upp við
lík Guls Mudin. MyNd deR spiegeL
Fleiri morð Hér sjást lík afganskra borgara
en myndin er úr fórum hinar svokölluðu
„drápssveitar“. Það er hins vegar ekki réttað
yfir þeim vegna þessa morðs. MyNd deR spiegeL
Annas Sigmundsson
blaðamaður skrifar as@dv.is