Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2011, Blaðsíða 8
8 | Fréttir 1.–3. apríl 2011 Helgarblað
Stjórnarformaður DV kallaður fyrir héraðsdóm:
Horn vill dagsektir
Fjárfestingarfélagið Horn, sem er í eigu
Landsbankans, krefst þess nú fyrir
dómi að DV verði beitt dagsektum þar
til meint gögn, sem blaðamaður DV á
að hafa undir höndum, verði afhent. Í
síðustu viku samþykkti Sýslumaður-
inn í Reykjavík kröfu um lögbann á
umfjöllun DV um fjárfestingarfélagið
Horn, sem er í eigu Landsbankans. Sig-
ríður Eysteinsdóttir, deildarstjóri hjá
Sýslumanninum í Reykjavík, fyrirskip-
aði jafnframt DV að skila inn til sýslu-
manns gögnum sem málinu tengjast.
Ritstjórar DV höfnuðu því að afhenda
heimildir blaðsins.
Lögmaður Horns krefst þess „... að
stefnda verði gert, að viðlögðum dag-
sektum samkvæmt mati dómsins, að
afhenda stefnanda fundargögn sem
tekin voru saman vegna stjórnarfund-
ar stefnanda þann 25. febrúar 2011 og
stefndi hefur í fórum sínum.“
Lilja Skaftadóttir, stjórnarformað-
ur DV og einn af stærstu eigendum
fyrirtækisins, er kölluð fyrir Héraðs-
dóm Reykjavíkur vegna málsins. Sam-
kvæmt því virðist félag Landsbankans
fara fram á að eigendur blaðsins krefji
blaðamann um meint gögn, en mæti
ellegar fjárhagslegum viðurlögum af
hálfu yfirvalda. „Stjórnarformaður-
inn vill taka fram að hún stendur með
blaðamönnum sínum í þessu máli.
Lýðræðið felst ekki í upplýsingunum
sjálfum heldur í aðgengi almennings
að þeim,“ segir Lilja.
Lögmaður Horns fer fram á að DV
verði alfarið bannað að birta upp-
lýsingar, sem fengnar eru úr hinum
meintu fundargögnum fjárfestingar-
félagsins. Í kröfunni kemur fram að
gögnin varði „... mikilvæg viðskipta- og
einkamálefni stefnanda og félaga sem
hann á hlut í eða á í viðskiptum við.“
Dótturfélag Landsbankans hefur
kært málið til lögreglu. Farið er fram
á að lögreglan upplýsi hvernig DV á
að hafa komist yfir hin meintu gögn
félagsins. Ekki er ljóst á þessum tíma-
punkti í hvaða farveg málið fer hjá lög-
reglunni.
„Ég hef bara aldrei sætt svona að-
förum á ævinni. Þetta var bara mjög
dónalegur maður,“ segir Elísabet S.
Albertsdóttir, íbúi í Kópavogi, sem
vaknaði við háværar innheimtuað-
gerðir starfsmanns Orkuveitunnar á
dögunum.
Galaði inn um bréfalúguna
„Ég vaknaði upp við þvílík læti og
vissi ekkert hvað gekk á. Það var bar-
ið á útidyrnar hjá mér, síðan var farið
bak við húsið og barið þar á glugga
og síðan var farið aftur hringinn og
barið á útidyrahurðina. Svona gekk
þetta í smátíma þangað til ég fór
fram og þá var þar maður og galaði í
gegnum póstlúguna: „Halló, halló!“
Ég svaraði: „Halló!“ og þorði varla
að opna hurðina því ég vissi ekkert
hvaða maður þetta væri,“ segir hún.
Innheimtumaðurinn sem hafði
ekki kynnt sig sem starfsmann Orku-
veitunnar hótaði því, að hennar
sögn, að lokað yrði á rafmagnið um
kvöldið ef hún borgaði ekki skuld
sína við fyrirtækið. Elísabet seg-
ist hafa skuldað Orkuveitunni sex
þúsund krónur. „Hann sagði að ég
skuldaði þeim fullt af peningum og
þegar ég spurði hann að nafni hreytti
hann því í mig en vildi ekki segja mér
eftirnafnið. Ég spurði hann hvort
honum þætti ekki dónalegt að rjúfa
svona friðhelgi heimilisins, labba á
alla glugga og svona. Þá sagði hann
að honum þætti nú dónalegt að ég
svaraði ekki strax þegar hann byrjaði
að banka.“ Elísabet segist hafa náð að
skrapa saman peningum fyrir reikn-
ingnum en þar sem þetta var í enda
mánaðarins hafi hún ætlað að fá að
borga skuldina um mánaðamótin.
„Ég veit að Orkuveitan er gjaldþrota
og það er spurning hvort þeir séu
búnir að herða svona innheimtuað-
gerðir,“ segir Elísabet og hlær.
Skýrar heimildir
Orkuveitan skuldar rúmlega tvö
hund ruð milljörðum meira en öll
sveitarfélög í landinu samanlagt
en Reykjavíkurborg, Akraneskaup-
staður og Borgarbyggð hafa sam-
þykkt aðgerðaráætlun fyrir Orku-
veitu Reykjavíkur í tilraun til að
mæta lausafjárvanda fyrirtækisins.
Áætlunin felur meðal annars í sér 12
milljarða króna lánveitingu frá sveit-
arfélögunum til fyrirtækisins.
Hjámar Eiríksson, upplýsinga-
fulltrúi Orkuveitunnar, segir inn-
heimtuferli fyrirtækisins mjög skýrt
skilgreint og segir leiðinlegt ef kon-
an hafi upplifað vinnubrögð starfs-
mannsins sem dónaskap. „En ég
þekki ekki þetta tilvik og á erfitt
með að fella einhverja dóma um
það með þessa frásögn eina en okk-
ar heimildir eru mjög skýrt skil-
greindar og það er alveg ljóst að þar
eru ákveðin mörk sem menn fara
ekki yfir.“ Eiríkur neitar því að aukin
harka hafi færst í innheimtuaðgerð-
ir vegna bágrar fjárhagsstöðu Orku-
veitunnar.
n Vaknaði við högg á hurð frá innheimtumanni Orkuveitunnar
n Upplýsingafulltrúi segir ekki aukna hörku í innheimtu
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
Varð bylt við Elísabet S. Albertsdóttir
segist hafa upplifað dónaskap frá starfs-
manni Orkuveitunnar. MYND SIGTRYGGUR ARI
RUKKAÐ Í GEGN-
UM BRÉFALÚGU
Rannsóknin
langt komin
Rannsókn lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu á Geirmundi Vil-
hjálmssyni, forstöðumanni fang-
elsisins að Kvíabryggju, er langt
komin. DV greindi fyrst frá málinu í
nóvember síðastliðnum en þá var
rannsóknin á byrjunarstigi. Geir-
mundur var leystur frá störfum í
sama mánuði grunaður um að hafa
notað fé ætlað til reksturs fangelsis-
ins til einkanota.
Ríkisendurskoðun var fengið til
að rannsaka fjárreiður Geirmundar
og var niðurstaðan send innanríkis-
ráðuneytinu og Fangelsismálastofn-
un í byrjun ársins. Þetta staðfestir
Friðrik Smári Björgvinsson, yfirmað-
ur rannsóknardeildar lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu, við fréttastofu
Ríkisútvarpsins. Hann telur að rann-
sókn málsins ljúki á næstu vikum.
Kannabis í
Grafarvogi
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
stöðvaði kannabisræktun í húsi
í Grafarvogi. Við húsleit fund-
ust 20 kannabisplöntur á lokastigi
ræktunar. Húsráðendur, tveir karlar
á þrítugsaldri, voru yfirheyrðir á
vettvangi og játuðu þeir aðild sína.
Málið telst upplýst, að því er segir í
tilkynningu frá lögreglu.
Fyrrnefnd aðgerð er liður í að
hamla gegn sölu og dreifingu fíkni-
efna en sem fyrr minnir lögreglan á
fíkniefnasímann 800-5005. Í hann
má hringja nafnlaust til að koma
á framfæri upplýsingum um fíkni-
efnamál. Fíkniefnasíminn er sam-
vinnuverkefni lögreglu og tollyfir-
valda og er liður í baráttunni við
fíkniefnavandann.
L A U G A V E G I 1 7 8
Sími: 568 9955 - www.tk. is
Opið: mánud-föstud.12-18 - laugard.11-16 - sunnud. LOKAÐ
Einnig mikið úrval af
fermingargjöfum
Erum flutt að
Laugavegi 178
(næsta húsi við frægustu bensínstöð landsins)
BRÚÐKAUPSGJAFIR
GLASADAGAR
20 teg. Söfnunarstell
20 teg. Söfnunarhnífapör
20 teg. Söfnunarglös
iittala vörur - hitaföt o.fl.
Mikið úrval af glösum
á tilboði
Fusion
Palio
Vilja sekta DV Fjárfestingarfélagið Horn,
sem er í eigu Landsbankans, krefst þess fyrir
dómi að DV verði beitt dagsektum. Steinþór
Pálsson er stjórnarformaður Horns og
bankastjóri Landsbankans.