Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2011, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2011, Blaðsíða 46
Það borgar sig svo sannarlega að vera íþróttamaður í heimsklassa. Þrátt fyrir ömurlegt ár í fyrra var Tiger Woods samt tekjuhæsti íþróttamaður heims, áttunda árið í röð. Konurnar fá einnig vel borgað fyrir sín störf en tekjuhæsta íþróttakonan er langt frá efstu karlmönnum. 46 | Sport 1.–3. apríl 2011 Helgarblað Gólfhitakerfi Ekkert brot ekkert flot • Þægilegur hiti góð hitadreifing • Hitasveiflur / Stuttur svörunartími • Aðeins 12mm þykkar hitadreifiplötur • Fljótlegt að leggja • Ekkert brot ekkert flot • Dreifiplötur límdar beint á gólfið • Gólfefni lagt beint á dreifiplötur (flísar, parket) • Hentar vel í eldra húsnæði jafnt sem ný hús og sumarhús • Flooré gólfhitakerfi er einfalt, fljótlegt og þægilegt Skemmuvegur 10 (blá gata) 200 Kópavogur Sími 567 1330 Fax 567 1345 www.hringas.is TekjuhæsTu íþróTT mennirnir Tiger Woods golf Þrátt fyrir hneykslismál í einkalífinu og þá staðreynd að fyrrverandi besti kylfingur heims hefur ekki unnið mót í átján mánuði var Tiger Woods samt tekjuhæsti íþróttamaðurinn árið 2010, áttunda árið í röð. Hann fær auðvitað langstærstan hluta tekna sinna í gegnum auglýsingasamninga en á árinu 2010 var honum sagt upp sem talsmanni AT&T-samskiptafyrir- tækisins, Gatorade og Accenture. Það þarf þó meira til ætli sér einhver að komast yfir Tiger Woods því hann hefur svo sannarlega unnið fyrir sínum aurum í gegnum tíðina. 10,3 milljarðar kr. roger federer Tennis Svissneski tenniskappinn Roger Federer er líklega sá besti í sögunni. Árið 2010 var ekki alveg hans ár því Federer þurfti að horfa upp á helsta keppinaut sinn, Rafael Nadal, vinna þrjú af fjórum risamótum ársins. Hann gerir þó ávallt vel á öllum mótum en það er eins og hjá svo mörgum öðrum, auglýsingasamningar skapa tekjurnar að mestu leyti. Hann er helsti talsmaður Rolex og Gillette svo einhver dæmi séu tekin og þá er hann á risasamning hjá Nike. Phil mickelson golf Það er kannski ekkert svo slæmt að vera næstbestur í golfi þegar litið er á tekj- urnar. Phil Mickelson hefur staðið í skugga Tigers Woods í nokkur ár en það hefur greinilega ekki komið niður á bankabókinni. Hann var duglegur að hala inn tekjur í gegnum vinninga á árinu 2010 auk þess sem hver auglýsandinn á fætur öðrum vildi fá hann til starfa. michael jordan körfubolTi (hættur) Þrátt fyrir að vera hættur fyrir mörgum árum er Michael Jordan tíður gestur á topplistum yfir ríkustu íþróttamenn heims. Það borgar sig svo sannarlega að vera besti körfuboltamaður sögunnar því Jordan- vörumerkið greiddi Michael sjálfum ríflega 45 milljónir dollara í aðra hönd árið 2010. Í dag er hann eigandi Charlotte Bobcats og nýtir krafta sína og fé í sinni heimabyggð. kobe bryanT körfubolTi Það eru ekki alltaf þeir sem vinna titlana sem fá mesta peninginn. Enn eitt árið klikkaði Cleveland Cavaliers í úrslitakeppn- inni og þá sérstaklega LeBron James. Á sama tíma fór Kobe Bryant á kostum og vann NBA-titilinn í fyrra ásamt því að vera valinn mikilvægasti leikmaður úrslitarimmunnar. Það munar ekki miklu á honum og LeBron og má gera ráð fyrir því að svörtu mömbunni, eins og Kobe er kallaður, sé alveg slétt sama. kimi raikkonen kaPPaksTur Þrátt fyrir að hafa ekki keppt í Formúlu 1 árið 2010 nær finnski ökuþórinn Kimi Raikkonen samt inn á topp tíu listann. Hann var lang- launahæsti ökumaðurinn í Formúlu 1 árin 2008 og 2009 og gaf ekki eftir allan samninginn þegar hann hætti og fór að keppa í rallíi. Árið 2010 notaði hann til að keppa í heims- mótaröðinni í rallakstri og fær vel greitt fyrir það. Nafn hans er einnig gríðarlega verðmætt innan kappakstursheimsins því þó hann sé ekki sá fjörugasti í bransanum og gefi lítið af sér á hann aðdáendahóp sem telur milljónir manns. david beckham knaTTsPyrna Knattspyrnugoðið David Beckham er lang-launahæsti leikmaður bandarísku MLS- deildarinnar. Það er þó eins og allir vita ekki ástæða þess að hann fær svo vel greitt. Hann er á samningi hjá fjölda fyrirtækja sem dæla í hann peningum fyrir að auglýsa vörur sínar en hann hefur um langt skeið verið langfrægasti knattspyrnumaður heimsins. Þrátt fyrir að vera orðinn 34 ára og spila í Bandaríkjunum halaði hann inn meiri tekjur en bæði Messi og Ronaldo á árinu 2010 sem báðir voru í kringum 40 milljóna dollara markið. 7,1 milljarður kr. floyd may WeaTher jr. hnefaleikar Vélbyssukjafturinn Floyd Mayweather Jr. fær vel greitt fyrir sín störf. Kannski engin furða þar sem hann er líklega besti hnefa- leikakappi allra tíma, pund fyrir pund. Þessi mikli hrokagikkur hefur aldrei tapað bardaga og lagt hverja hetjuna að velli á fætur annarri. Þó hnefaleikar séu á niðurleið hvað varðar áhorf eru enn miklir peningar í boði fyrir rétta menn og halaði Mayweather inn ríflega 60 milljónir dollara á síðasta ári fyrir sigra og auglýsingasamninga. Mayweather er einnig mikill spilafíkill og veðjar látlaust svakalegum upphæðum á íþróttakappleiki. Bara í þessari viku er hann búinn að græða 100.000 dollara á tveimur körfuboltaleikjum, samkvæmt Twitter-síðu kappans. 6,91 milljarðar kr. 7 milljarðar kr. 5,22 milljarðar kr. 5,19 milljarðar kr. 5,16 milljarðar kr.4,81 milljarðar kr. lebron james körfubolTi Bestu körfuboltamenn heims voru afar jafnir á tekjulistanum þetta árið en LeBron James var fyrir ofan Kobe Bryant árið 2010. Fyrir störf sín hjá Cleveland Cavaliers fékk LeBron 15,8 milljónir dollara þannig að hinar þrjátíu komu í gegnum auglýsinga- samninga. Hann á gott samband við Nike-íþróttavöruframleiðandann og setur nafn sitt við framleiðslu hans. Það borgar sig heldur betur að vera klár í körfubolta. 5,25 milljarðar kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.