Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2011, Blaðsíða 36
36 | Fókus 1.–3. apríl 2011 Helgarblað
Hvað ertu að gera?
mælir með...
KVIKMYND
Biutiful
„Biutiful sér fegurðina
þar á einstakan hátt.
Því dýrlingur er bara
syndari sem heldur
áfram að reyna að
gera hið rétta.“ Erpur Eyvindarson
TÖLVULEIKUR
Killzone 3 á
PS3 og Xbox
360
„Killzone 3 gerir nákvæmlega það sem hann
þarf að gera, án þess þó að verða einhver
flugeldasýning.“ Einar Þór Sigurðsson
TÖLVULEIKUR
Fight Night
Champion á
PS3 og Xbox
360
„Fight Night Champion gefur fyrri leikjum
ekkert eftir í spilun, grafík eða gæðum en
framfarirnar og breytingar eru litlar og í raun
ekkert rothögg.“ Sigurður Mikael Jónsson
María Heba Þorkelsdóttir leikkona:
Hvað ertu að lesa?
„Fyrir utan skólabækur þá er ég að lesa
bókina Marley and Me. Hún er um kostulegt
samband hunds og eiganda hans. Sjálf á ég
hund sem nagar skó.“
Hvaða tónlist kemur þér alltaf í gott
skap?
„Söngur Sigríðar Thorlacius, á Ljúflingshól.“
Hvað ætlarðu að gera um helgina?
„Ég ætla að fara í leikkonuboð annað kvöld.
Um daginn ætla ég að fara á stofnfund
hollvinafélags barnaheimilisins Óss og á
sunnudaginn ætla ég að halda upp á sex ára
afmæli sonar míns.“
Ertu flink að baka?
„Njah, ég er hins vegar mjög flink að plana
bakstur eiginmanns míns!“
Flink að
plana bakstur
mælir ekki með...
KVIKMYND
Battle: LA
„Eflaust þolanleg
mynd fyrir þá sem
vilja beinlínis ekkert annað en flottar
tæknibrellur og byssuskot. Maður gæti
þó allt eins hoft á stikluna aftur og aftur.
Hún er miklu betri en myndin.“ Jón Ingi
Stefánsson
KVIKMYND
Season of the Witch
„Þessi mynd fær
hálfa stjörnu og það
er fyrir þokkalega
frammistöðu Claire
Foy sem leikur nornina ungu. Annað er
skelfing.“ Ásgeir Jónsson
É
g vinn út frá einhverjum
hjartslætti úr umhverfinu;
það tengist því hverju ég
hef ástríðu fyrir og leiðum
til að tjá það. Ég miðla heimspeki-
legum vangaveltum um umhverfi
mitt, fortíðina, nútíðina og fram-
tíðina. Úr þessu verður einhvers
konar myndlist,“ segir Hrafnhild-
ur Arnardóttir, handhafi Norrænu
textílverðlaunanna þetta árið.
Hrafnhildur, sem býr í New York,
er komin til landsins vegna opnun-
ar á einkasýningunni Á gráu svæði í
Hönnunarsafni Íslands.
„Þetta er grín út af sjálfri mér af
því að ég er gráhærð. Ég nýt þess að
vinna á gráu svæði en það er ekki
alveg hægt að henda reiður á því
hvernig eigi að flokka það sem ég bý
til, sérstaklega þegar það er í sam-
starfi við aðra.“
Það sem hún býr til er meðal
annars: Skúlptúrar, grímur, ljós-
myndir, vídeóverk, veggfóður og
fatnaður. „Ég sýni hvernig þörfin til
að skapa og samvinnuverkefni rata
inn á allavega brautir. Ég leyfi mér
að vinna verkefni sem meika ekkert
endilega sens inn í myndlistarsýn-
ingar hjá mér en veita mér lífsham-
ingju.“
Hrafnhildur útskrifaðist frá
Myndlista- og handíðaskóla Íslands
árið 1993 og ári síðar flutti hún til
New York þar sem hún stundaði
meistaranám í myndlist við School
of Visual Arts.
Hárið
Hrafnhildur var 12 ára þegar hún
ákvað að láta klippa hárið stutt. Hún
var með fléttu sem var klippt af. „Ég
fór hæstánægð í klippinguna en ég
var svo óánægð með útkomuna.
Ég missti alla tilfinningu fyrir því
hver ég var í speglinum og þurfti að
byggja það upp á nýtt. Þá gerði ég
mér grein fyrir hvað hárið er ofboðs-
lega mikið mál og hvað maður not-
ar það í rauninni mikið til að byggja
upp sjálfsímynd sem maður vill sýna
heiminum og að heimurinn skilji.
Mér varð rosalega mikið um þetta.
Ég á fléttuna ennþá pakkaða inn í
kassa með plasti yfir. Ég bjó um hana
eins og lík.“
Hún segist hafa farið á hár-
greiðslusýningar í Reykjavík þegar
hún var unglingur og hún var einu
sinni módel á slíkri sýningu. Hún
talar um hárskúlptúra. „Þetta er
nokkuð sem hefur heillað mig frá því
ég var krakki og ég finn því einhvers
konar farveg í myndlistarformati. Og
hégóma.“
Nokkrum árum síðar vann
Hrafnhildur í versluninni Fríðu
frænku í Reykjavík þar sem seldir
voru gamlir hlutir. „Ég fann litla, eld-
gamla blómagrein unna úr manns-
hári. Mér fannst þetta kynngimagn-
aður hlutur – að maður gæti haldið á
restinni af einhverri manneskju sem
væri löngu farin.“
Hárið fór smátt og smátt að verða
áberandi í myndlistinni. „Ég fór að
blanda gervihári, sem ég fléttaði,
inn í portrettmyndir sem ég teiknaði
með tússlitum.“
Í dag er hár áberandi í verkum
Hrafnhildar. Alvöru hár. Gervihár.
Trúðahár. Hár í öllum regnbogans
litum.
„Hár er líkamsþráður. Nýtanleg-
ur efniviður sem vex á líkamanum.
Stundum snúast verkin um að þetta
er hár en ég finn svo margar ólík-
ar ástæður til að búa eitthvað til úr
þessum efnivið.“
Pensilstrokur úr hárum
Skúlptúrar, grímur, ljósmyndir,
vídeó verk, veggfóður og fatnaður.
Það má líka nefna vatnslitamyndir.
Og svo má nefna að Hrafnhildur hef-
ur byggt listaverk upp eins og mál-
verk – það er bara úr hárum. Það
má kannski segja að um sé að ræða
pensilstrokur úr hárum.
„Ég vinn út frá einhverjum hjart-
slætti úr umhverfinu; það tengist því
hverju ég hef ástríðu fyrir og áhuga
á og leiðum til að tjá það. Ég miðla
heimspekilegum vangaveltum um
umhverfi mitt, fortíðina, nútíðina
og framtíðina. Úr þessu verður ein-
hvers konar myndlist. Sýningin í
Hönnunarsafninu er angalía af þess-
ari myndlist; þessum vangaveltum.
Listin ratar inn í hönnunargeirann,
fatahönnun og sviðsmyndahönn-
un en ég hef líka unnið mikið gjörn-
inga þar sem þetta sameinast mikið.
Ég var með sýningu í Nýlistasafninu
fyrir mörgum árum þar sem ég sýndi
um 340 andlitsmyndir af þeim sem
eru blóðtengdir mér í móðurættina.
Ég teiknaði hárið og skoðaði hvernig
fólk gerði sig tilbúið fyrir myndatöku.
Ég berst fyrir því að það sé hægt að
líta á hégóma sem jákvætt, kreatíft
afl sem gerir það að verkum að fólk
nýtur þess að fegra sjálft sig.“
Mistík og ævintýri
Hún hefur búið til listaverk utan um
afsteypu af hesti. „Hann er dæmi
um þessa væmni í lokkaflóði og það
að bíða eftir prinsinum á hvíta hest-
inum. Hann tengist líka því hvern-
ig manneskjan hefur notað skepn-
una til að upphefja sig og gera sig
valdameiri; setja sig á háan hest.“
Hún nefnir styttur í Evrópu sem eiga
meðal annars að sýna herforingja á
hestbaki.
Hrafnhildur hefur hannað fatn-
aðinn, sem er á sýningunni, í sam-
starfi við Eddu Guðmundsdóttur
sem starfar sem stílisti og hönn-
uður í New York. „Ég fór að vinna
með mín, Victoria Bartlett,
er með hönnunarlínu sem heitir
VPL og hún bað mig að hanna fylgi-
hluti fyrir tískulínu sína sem hún
var að fara að sýna á tískuvikunni
í New York árið 2008 og það hef ég
unnið með Eddu út frá myndlistar-
verkunum mínum.“ Hrafnhildur og
Edda hafa sýnt fylgihluti og fatnað á
sýningum VPL á tískuvikunni í New
York undanfarin 4 ár. „Við ákváðum
fyrst að búa til fylgihluti úr hári: Tösk-
ur, herðaslár og hálsmen sem eru
eins og smekkir. Svo er þetta komið
út í bikiní, samfellur og fleira. Það er
skemmtilegt að nota þennan efnivið
og setja hann annars staðar á líkam-
ann en maður er vanur að sjá hann.
Maður setur hann í myndverkið og
hann verður að nokkurs konar klifur-
jurt; maður býr kannski til ímyndað
plönturíki úr hári. Þetta er mistík og
kannski ævin týri eins og með hest-
inn; ímyndaðar verur og kynjaverur
úr ímynduðum ævintýrum. Það er
talað um leikfléttu. Fléttur í sögum.
Þetta er eitthvað sem vex og þróast.
Maður leikur sér með alls konar hug-
myndafræði sem skilar sér eða skil-
ar sér ekki endilega í verkinu. Það er
bakgrunnurinn hjá mér.“
Hún segir að Lady GaGa hafi
klæðst flík á tónleikum sem hún og
Edda hönnuðu í fyrra fyrir VPL. Sú
flík er nú til sýnis í Hönnunarsafninu.
Hrafnhildur hannaði grímu úr
hári sem Björk var með á mynd sem
er á umslagi plötunnar Medulla.
„Gríman er undir áhrifum af göml-
um hárgreiðsluskúlptúrum sem fólk
gerði í kringum 1970.“ Þá hefur hún
hannað flíkur fyrir söngkonuna sem
hún hefur klæðst á tónleikum.
Grátt svæði
New York. Stóra eplið. Brooklyn.
Þar býr Hrafnhildur ásamt eigin-
manni sínum, Michal Jurewicz upp-
finningamanni, og tveimur börnum
þeirra. Bæði búa þau og starfa undir
sama þaki. Hún með stúdíó og hann
með skrifstofu en hann á fyrirtækið
Mytek Digital Inc. Hjónin stofnuðu
Arnardottir-Jurewicz Art Founda-
tion í Póllandi en þar keyptu þau
gamla byggingu úti í sveit. „Við erum
að byggja upp starfsemi sem verður
dvalarstaður og vinnustofur tíma-
bundið handa listamönnum þar sem
m.a. myndlistarmenn, rithöfund-
ar og tónlistarmenn geta sótt um að
Handhafi Norrænu text-
ílverðlaunanna þetta
árið, Hrafnhildur
Arnardóttir, hefur
opnað sýninguna Á gráu
svæði í Hönnunarsafni
Íslands. Hrafnhildur býr
og starfar í New York,
þar sem hún skapar
vídeóverk, grímur, ljós-
myndir og fleira. Það eru
þó hárskúlptúrar sem
hafa vakið mesta athygli
upp á síðkastið.
Ævintýri
ú hárum
„Ég berst fyrir því
að það sé hægt
að líta á hégóma sem já-
kvætt, kreatíft afl sem
gerir það að verkum að
fólk nýtur þess að fegra
sjálft sig.
Verk eftir
Hrafnhildi
Arnardóttur
„Þetta er
nokkuð sem
hefur heillað
mig frá því
ég var krakki
og ég finn því
einhvers konar
farveg í mynd-
listarformati.
Og hégóma.“