Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2011, Blaðsíða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2011, Blaðsíða 54
54 | Fólk 1.–3. apríl 2011 Helgarblað Slakar á fyrir tónleika í Danmörku: BieBer hvílir sig á íslandi Ofurstjarnan Justin Bieber er sam- kvæmt heimildum DV á Íslandi en þessi sautján ára gamli poppsöngv- ari er ein allra skærasta stjarna heimsins í dag. Bieber lenti með einkaþotu á Reykjavíkurflugvelli á fimmtudagskvöld og var ekið rak- leiðis á Hótel Hilton við Suðurlands- braut. Hann var að koma frá Eng- landi þar sem síðustu tónleikar hans voru. Bieber er á miklu tónleikaferða- lagi og á hann að syngja á tónleikum í Herning í Danmörku í kvöld, föstu- dag. Hann ákvað þó að nýta þennan eina frídag sinn í langan tíma til þess að slaka á. Samkvæmt heimildum DV ætlar Bieber að koma við í Bláa Lóninu í dag, föstudag, og taka því rólega þar áður en hann flýgur beint til Herning með einkaþotu sinni. Það er nóg að gera hjá Bieber þessa dagana en eftir tónleikana í Herning flýgur hann rakleiðis til Berlínar þar sem hann á að koma fram á tónleikum í O2-höllinni á laugardagskvöldið. Eftir það verða svo tónleikar í Madríd, Barcelona og Zürich. Síðastliðið ár hefur frægðar- stjarna Justins Bieber risið hærra og hærra en fyrir stuttu kom í kvik- myndahús bíómyndin Never Say Never sem fjallar um hans einstaka líf. Hann er dýrkaður og dáður, þá sérstaklega af ungum stúlkum. Í fyrra þurfti meðal annars að aflýsa tónleikjum hans í Ástralíu þar sem svo mikill múgæsingur myndaðist við tónleikahöllina að talin var hætta á að einhver kynni að slasast. tomas@dv.is Pétur Jóhann með Mið-Íslandi Pétur Jóhann Sigfússon, fyrrverandi fyndnasti maður Íslands, verður gestur á uppistandskvöldi Mið-Íslands hópsins sem stendur fyrir uppistandskvöldum í Þjóðleikhúskjallaranum. Húsfyllir var á fyrstu uppistandskvöldum hópsins og hefur því aukasýningu verið bætt við. Meðlimir hópsins eru þeir Ari Eldjárn, Bergur Ebbi Benediktsson, Halldór Halldórsson og Jóhann Alfreð Kristinsson. Á Facebook-síðu hópsins segir að það sé mikill fengur að fá jafn „leikreyndan mann í liðið“. Katrín Bessadóttir, blaðamaður og eiginkona sjónvarpsmannsins Helga Seljan, er brjáluð út í Þjóðskrá ef marka má stöðuuppfærslu sem hún ritaði á Facebook-síðu sína á miðvikudag. Hún þurfti að stytta millinafn dóttur sinnar niður í einn staf af því að „hitt var of langt“. „KOMMON PÍPÓL! Það er ekki nóg að hringja og vera ægilega sorrí og bljúgur og benda á stjórnvöld – gera eitthvað í málinu!“ segir hún um málið á Facebook. Brjáluð út í Þjóðskrá Einn sá frægasti Justin Bieber verður í Bláa lóninu fram eftir degi. Perla Bláa lónið er vinsæll viðkomu- staður ferðamanna á Íslandi. Þ að líður ekki sá dagur sem ég hugsa ekki um hann,“ segir Sæ-dís Sif Harðardóttir um besta vin sinn, Pétur Kjerúlf Þorvarðarson, sem varð úti við Langafell í Hauksstaða- heiði í maí 2006. Sædís keppir í ár í Söngkeppni framhaldsskólanna fyrir hönd Menntaskólans á Egilsstöðum. Lagið sem hún syngur fjallar um Pétur og er sungið í minningu hans. Í byrjun lagsins er smá rappbútur sem annar æskuvinur Péturs, Brynjar Freyr Þór- hallsson, samdi en söngkeppnin fer fram á Akureyri 9. apríl. „Litla systir mín sem er sextán ára í dag samdi lagið. Hún tók þetta mikið inn á sig eins og allir aðrir. Hún samdi þetta í minningu hans og söng það fyrst sjálf, þá tileinkað mér og Pétri. Svona eins konar hennar sýn á vináttu okkar. Í dag flyt ég þetta í minningu hans,“ segir Sædís. Það var í maí fyrir fimm árum að Pétur Kjerúlf var í gleðskap á Gríms- stöðum á Fjöllum fyrir austan og vildi komast heim. Hann hringdi þá í Sæ- dísi sem var stödd á Akureyri. „Hann var drukkinn og ég hélt að hann væri á einhverjum sveitabæ fyrir utan Egils- staði. Ég sagði honum að rölta út á veg og húkka sér far rakleiðis heim. Seinna um kvöldið hætti mér að lítast á blik- una og hringdi ég þá strax í neyðarlín- una sem tók ekki mark á mér því ég var of ung. Ég hringdi síðan aftur seinna um nóttina og vildi fá samband við lögregluna á Egilsstöðun en fékk ekki. Ég vildi láta þá vita að vinur minn væri á röltinu einhvers staðar en mér varð ekkert ágengt,“ segir Sædís. Það fór svo að Pétur gekk í ranga átt og mun lengra en nokkur taldi að væri mögulegt í því ástandi sem hann var. Í stað þess að ganga í átt að Egils- stöðum gekk hann í átt að Vopnafirði. Pétur hafði gengið tæpa 65 kílómetra og var því leitarsvæðið of þröngt. Hann var týndur í viku áður en hann fannst látinn við Langafell í Hauksstaðaheiði. „Strax morguninn eftir að ég tal- aði við Pétur vaknaði ég við símtal frá móður hans. Ég vissi þá strax að eitt- hvað væri að. Ég átti eftir að vera einn dag til viðbótar á Akureyri en ég talaði mig inn á einhvern strák og fékk far heim. Á leiðinni á Egilsstaði keyrðum við fram hjá Grímsstöðum þar sem ég sá björgunarsveitarmenn úti um allt og mér leið ekki vel. Þegar heim var svo komið var rosaleg samstaða hjá vinum og fjölskyldu. Okkur var öllum hleypt inn í kirkju þar sem við fengum pitsur og fengum að vita um allt sem gerðist í leitinni. Þetta voru mjög erfið- ir tímar,“ segir Sædís sem vill með lag- inu koma áleiðis skilaboðum til ung- linga sem eru að skemmta sér saman. „Krakkar á þeim aldri sem við vor- um á eru allir að drekka, sem er ekkert hægt að stöðva. En í guðanna bænum, þá verða allir að fylgjast með hvar vinir sínir eru, hvort sem það er í partíi eða á balli. Það er algjört lykilatriði að vinir passi hver annan,“ segir hún. Sædís lýsir Pétri sem frábærum pilti sem allir elskuðu. „Við vorum æskuvinir og skólaparið. Hann var rosalega vinsæll á meðal stelpnanna þannig að ég þurfti svolítið að halda í hann. Ég mun aldrei gleyma honum. Í dag held ég aðeins í hann í gegnum Friends-þættina en hann var alveg eins og Joey,“ segir hún og hlær við. „Pétur var einfaldlega fjölskyldumeð- limur. Þetta var góður strákur sem kvaddi alltof snemma,“ segir Sædís Sif Harðardóttir. tomas@dv.is syngur um látinn vin sinn n Sædís Sif Harðardóttir keppir fyrir ME í söngkeppni framhaldsskólanna n Lagið fjallar um besta vininn og fyrrverandi kær- asta sem varð úti 2006 n Hann var ljósið í myrkrinu, segir Sædís en litla systir hennar samdi lagið Sædís Sif Harðardóttir: Syngur um besta vin sinn Sædís Sif Harðar- dóttir tileinkar lagið sem hún syngur í Söngkeppni framhaldsskólanna besta vini sínum sem er látinn. Bestu vinir Sædís og Pétur 16 ára á góðri stundu í lokaferð 10. bekkjar. Pétur Kjerúlf Þorvarðarson Frábær drengur sem var elskaður af öllum og lést langt um aldur fram, segir Sædís.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.