Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2011, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2011, Síða 19
Erlent | 19Helgarblað 1.–3. apríl 2011 Irma González er háskólakennari á Kúbu sem var stödd hér á landi í vik- unni til að vekja athygli á máli „fimm- menninganna frá Kúbu“, en González er dóttir eins þeirra. Fimmmenning- ar þessir voru handteknir af banda- rískum yfirvöldum í september árið 1998 og hafa þeir því setið í fangelsi í hátt í 13 ár. Réttarhöldin fóru fram árið 2001 í Miami, en þar höfðu fimm- menningarnir reynt að grafast fyrir um og hreiðra um sig meðal samtaka sem hafa staðið fyrir hryðjuverkum á Kúbu, oftar en ekki með fjárhagsstuðningi Bandaríkjanna. Ríkisstjórn Kúbu hefur viðurkennt að fimmmenningarnir hafi stundað njósnir en telja það hins veg- ar fráleitt að þeim sé haldið föngnum í Bandaríkjunum. Þeir njósnuðu aldrei um bandarísk stjórnvöld, heldur aðeins samtök sem hafa beitt sér fyrir hryðju- verkastarfsemi á Kúbu. Hreiðruðu um sig meðal hryðju- verkahópa Fimmmenningarnir; Gerardo Hernán- dez, Antonio Guerrero, Ramón Lab- añino, Fernando González og René González, náðu að hreiðra um sig meðal samtaka á borð við Alpha 66, F4 Commandos, Cuban American Na- tional Foundation og Brothers to the Rescue. Þessi samtök hafa síðan árið 1959, þegar einræðisherranum Ful- gencio Batista var steypt af stóli, staðið fyrir ýmiss konar skemmdarverkastarf- semi og hryðjuverkum á Kúbu. „Síðan 1959 hafa rúmlega 3.000 manns fall- ið í hryðjuverkaárásum og um 2.000 hafa særst alvarlega. Sprengjum hefur verið komið fyrir á hótelum, veitinga- stöðum og í flugvélum. Fimmmenn- ingarnir voru sendir til Bandaríkjanna til þess eins að geta komist að því hvar næstu árásir áttu að eiga sér stað,“ sagði González í viðtali við DV. Bandaríkin beittu blekkingum Árið 1998 höfðu bandarísk stjórnvöld samband við kúbverska utanríkisráðu- neytið, með það fyrir augum að biðja um hjálp við að handsama hryðju- verkamanninn Luis Posada Carilles. Carilles er eftirlýstur í fjölmörgum lönd- um Mið- og Suður-Ameríku en hann fæddist á Kúbu en flúði eftir brotthvarf Batista. Carilles var lengi vel starfsmað- ur bandarísku leyniþjónustunnar CIA, auk þess að hafa víðtæk sambönd við hryðjuverkasamtök í Miami sem beita sér fyrir aðgerðum, meðal annars á Kúbu. Utanríkisráðherra Venesúela, Nicolás Maduro, hefur látið hafa eft- ir sér að Carilles sé „Osama bin Laden Mið-Ameríku.“ Þegar Bandaríkjamenn höfðu sam- band nýlega höfðu verið sprengdar tvær öflugar sprengjur í miðborg Ha- vana, höfuðborg Kúbu, þar sem mann- fall var gífurlegt. Carilles var talinn eiga aðild að sprengingunum og var kúb- verskum yfirvöldum mjög í mun að hann yrði handtekinn. Treystu þau bandarískum yfirvöldum því fyrir um 200 síðna skýrslu um Carilles sem unn- in hafði verið af fimmmenningunum sem störfuðu þá í Miami. Því hefðu kúbversk yfirvöld betur sleppt, því í stað þess að nota skýrsluna til að hafa hendur í hári Carilles var hún notuð sem átylla til að handtaka fimmmenn- ingana. Næstu 18 mánuðum eyddu þeir í einangrun án þess að fá tækifæri til að skýra mál sitt. Sýndarréttarhöld Ljóst þykir að réttarhöldin, sem fram fóru árið 2001, hafi verið sýndarréttar- höld þar sem sakborningar fengu ekki sanngjarna málsmeðferð. Skýrsluna um Carilles fengu verjendur fimm- menninganna til að mynda aldrei að sjá, enda er bandarískum yfirvöldum mikið í mun að vernda fyrrverandi starfsmann sinn. Dómarinn í réttar- höldunum hvatti einnig öll vitni, en flest þeirra störfuðu einmitt innan sam- taka sem hafa staðið að hryðjuverkum, til að bera fyrir sig fimmtu stjórnar- skrárbreytingunni – sem kveður á um að vitni þurfi ekki að svara spurningum í opinberum réttarhöldum. Augljóst þótti að ef vitnin hefðu sagt sannleik- ann hefði hann reynst bandarískum yfirvöldum óhagstæður. González sagði að í raun hafi fimm- menningarnir aldrei verið ákærðir fyrir neinn tiltekinn glæp. „Það var ekki hægt að ákæra þá fyrir njósnir, þar sem þeir njósnuðu aldrei um bandarísk stjórn- völd. Háttsettir einstaklingar frá utan- ríkisráðuneyti Bandaríkjanna staðfestu í vitnaleiðslum að fimmmenningarnir hefðu ekki stundað njósnir. Þeir voru hins vegar kærðir fyrir samsæri um að ætla sér að stunda njósnir, en engin sönnunargögn bentu til þess að þeir hefðu það í hyggju.“ Þá er ótalið að í Miami býr fjöldi flóttamanna, og afkomenda þeirra, frá Kúbu, sem voru eitt sinn stuðnings- menn Batista. Þessi þjóðfélagshóp- ur er valdamikill í Miami og hafa full- trúar hans komist langt í stjórnsýslu borgarinnar sem og Flórída-ríkis alls. Margir þeirra sem hafa náð langt hafa haft tengsl við samtök sem hafa staðið fyrir hryðjuverkum á Kúbu. Robert Pa- stor, sem starfaði eitt sinn sem ráðgjafi Jimmys Carter um öryggismál, lét hafa það eftir sér að „það væri álíka sann- gjarnt að rétta yfir fimmmenningunum í Miami og ef réttað væri yfir ísraelskum leyniþjónustumönnum í Teheran.“ Lagaleg réttindi brotin í hvívetna „Málið hefur verið langt og erfitt, en það sem er deginum ljósara er að laga- leg réttindi fimmmenninganna hafa verið brotin í hvívetna,“ segir González. „Það eru meira að segja nýleg dæmi þess að njósnarar, alvöru njósnarar til dæmis frá Rússlandi, hafi verið dæmdir í Bandaríkjunum en þá hefur þeim ver- ið vísað úr landi en ekki stungið í fang- elsi. Þetta sannar að málið er eingöngu pólitískt, ef fimmmenningarnir væru ekki frá Kúbu þá væru þeir fyrir löngu komnir til síns heima og væru frjálsir.“ Fimmmenningarnir fengu hins veg- ar allir fangelsisdóm. Árið 2008 voru flestir dómarnir þó „mildaðir“ og telja þeir nú um 15–30 ára fangelsi en eftir stendur að Gerardo Hernández, sem talinn var leiðtogi hópsins, á enn yfir höfði sér tvöfaldan lífstíðardóm með 15 árum í ofanálag – hvernig svo sem það gengur fyrir sig. Mannréttindasamtökin Amnesty International hafa beitt sér í máli fimm- menninganna og lýstu meðal annars „verulegum efasemdum“ um að rétt- arhöldin árið 2001 hafi verið sanngjörn og hlutlaus. Fimmmenningunum hefur einn- ig verið meinað að fá heimsóknir frá sínum nánustu, þó að González hafi reyndar fengið að hitta föður sinn. Það sama á hins vegar ekki við um móður hennar. „Bæði móðir mín og eiginkona Hernández mega ekki ferðast til Banda- ríkjanna þar sem þau eru á lista yfir mögulega hryðjuverkamenn, án þess að hafa nokkuð til saka unnið,“ segir González. Hafa fengið víðtækan stuðning González er nú á ferð um Norður- löndin í fyrsta sinn en hún ferðast með Orlando Sandoval, fyrrverandi starfsmanni kúbverska utanríkis- ráðuneytisins. Þau hittu fyrir alþing- ismennina Valgerði Bjarnadóttur og Birgittu Jónsdóttur sem lofuðu að vekja athygli á málinu. Á ferðalögum sínum undanfarin ár hafa þau hlotið góðan hljómgrunn, alls staðar nema innan Bandaríkjanna. Má þar nefna áskorun sem 110 þingmenn á breska þinginu skrifuðu undir, þar sem skor- að var á bandarísk stjórnvöld að taka mál fimmmenninganna upp aftur. Alls hafa 12 Nóbelsverðlaunahafar frá mis- munandi fræðasviðum gert hið sama. Þar á meðal má nefna friðarverð- launahafana Desmond Tutu og Rigo- berta Manchú, sem og bókmennta- verðlaunahafana Günther Grass og José Saramago. Þrátt fyrir að hafa fengið hljóm- grunn fyrir máli fimmmenninganna víðs vegar um heiminn hefur Gon zález aldrei fengið áheyrn hjá bandarískum stjórnmálamönnum. Bjóst hún við öðru þegar Barack Obama tók við for- setaembættinu? „Já, ég viðurkenni það. En það hefur engin breyting átt sér stað. Við vitum í það minnsta, að hann veit af málinu. Hvort hann geri eitthvað í því er annað mál.“ Tvískinnungur Bandaríkjanna Bandaríski málvísindamaðurinn og samfélagsrýnirinn Noam Chomsky er einn þeirra sem bent hefur á tvískinnung Bandaríkjanna þegar kemur að yfirlýstu stríði þeirra gegn hryðjuverkastarfsemi. Á sama tíma og bandarísk stjórnvöld gefa sig út fyrir að berjast gegn hryðjuverkum í Mið-Austurlöndum hafa þau í raun bæði fjármagnað hryðjuverk og skotið skjólshúsi yfir hryðjuverkamenn, en greinilegasta dæmið er einmitt saga Luis Posada Carilles. Carilles er eftirýstur fyrir hryðjuverk í Venesúela og á Kúbu, en Banda- ríkjamenn hafa haldið yfir honum verndarhendi. Fimmmenningarnir störfuðu fyrir kúbversk yfirvöld á Miami í baráttu gegn hryðjuverkum sem eru algeng á Kúbu og hefur Carilles staðið fyrir fjölda þeirra. Fyrir það sitja þeir í fangelsi. „Háttsettir ein­ staklingar frá utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna staðfestu í vitnaleiðslum að fimm­ menningarnir hefðu ekki stundað njósnir. FANGELSUÐ FYRIR BARÁTTU GEGN HRYÐJUVERKUM n Irma González var stödd hér á landi til að vekja athygli á máli fimmmenninganna frá Kúbu sem hefur verið haldið í bandarísku fangelsi síðan 1998 n Málsmeðferðin hefur verið gagnrýnd um allan heim n Börðust gegn hryðjuverkum en voru fangelsaðir fyrir vikið Irma González Hefur barist fyrir málstað fimmmenn- inganna um árabil og heimsótti nú Ísland í fyrsta sinn. MYND RÓBERT REYNISSON Björn Teitsson blaðamaður skrifar bjorn@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.