Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2011, Side 33
Ættfræði | 33Helgarblað 1.–3. apríl 2011
Til hamingju!
Afmæli 1.–3. apríl
Föstudagur
30 ára
Merita Haxholli Asparfelli 12, Reykjavík
Paulo A. Gomes De Almeida Dvergholti 27,
Hafnarfirði
Eyrún Ósk Ingólfsdóttir Flétturima 26, Reykjavík
Eva Dögg Guðmundsdóttir Digranesvegi 73,
Kópavogi
Sunna Ragnarsdóttir Sigluvogi 16, Reykjavík
Hrund Pétursdóttir Raftahlíð 1, Sauðárkróki VIP
Oddgeir Guðmundsson Þórðarsveig 20, Reykjavík
Sævar Valur Sveinsson Álfatúni 29, Kópavogi
Inga Hrönn Ketilsdóttir Tröllagili 29, Akureyri
40 ára
Zoran Veskovic Framnesvegi 5, Reykjavík
Andrus Veski Dalsbúi 2, Mosfellsbæ
Sevinj Aliyeva Goðabyggð 7, Akureyri
Benedikt Gísli Guðmundsson Lambhaga 32,
Selfossi
Jón Reynir Harðarson Álagranda 8, Reykjavík
Sigríður Björg Tómasdóttir Brávallagötu 14,
Reykjavík
Bryndís Björnsdóttir Jórufelli 2, Reykjavík
Hlín Bjarnadóttir Geislalind 15, Kópavogi
Jóhanna Elsa Axelsdóttir Hraunbæ 16, Reykjavík
Þórður Gunnarsson Dalseli 6, Reykjavík
Magnús Þór Þorbergsson Óðinsgötu 13,
Reykjavík
50 ára
Zeljko Popovic Ásbraut 11, Kópavogi
Teodor Ernest Swietek Norðutanga 1, Ólafsvík
Friðrik Ragnar Eggertsson Daggarvöllum 4b,
Hafnarfirði
Sigurlaug Erla Hauksdóttir Álftamýri 12,
Reykjavík
Árni Valur Árnason Gvendargeisla 128, Reykjavík
Anna Sigríður Sigurjónsdóttir Þórkötlustöðum
3, Grindavík
Sólveig Baldursdóttir Norðurvangi 16, Hafnarfirði
Valdimar Ómar Ingólfsson Steinási 22, Reykja-
nesbæ
60 ára
Gunnar Gíslason Stekkjarbergi 4, Hafnarfirði
Gunnar B. Gunnarsson Safamýri 38, Reykjavík
Anna María Ólafsdóttir Maríubakka, Kirkju-
bæjarklaustri
Margrét Þormar Lokastíg 22, Reykjavík
Sævar Benedikt Hafsteinsson Grænlandsleið
30, Reykjavík
Sólveig Jónsdóttir Heiðvangi 26, Hafnarfirði
Helga Sigurðardóttir Eystri-Torfastöðum 1,
Hvolsvelli
Ólafur Ólafsson Frostaskjóli 111, Reykjavík
Kristín Hauksdóttir Kópavogsbraut 104, Kópavogi
Hrönn Ágústsdóttir Heiðarhrauni 33b, Grindavík
Skarphéðinn Pétursson Hrísum, Dalvík
70 ára
Daníel Gunnar Sigurðsson Nýbýlavegi 104,
Kópavogi
Einar Júlíusson Melseli 5, Reykjavík
75 ára
Margrét Jóhanna Heinreksdóttir Árholti,
Akureyri
María Ólöf Magnúsdóttir Breiðuvík 21, Reykjavík
Eggert Karlsson Ársölum 1, Kópavogi
Aðalbjörg Edda Guðmundsdóttir Vífilsgötu
10, Reykjavík
Jóhanna Jakobsdóttir Ársölum 1, Kópavogi
Pétur Karlsson Hrafnhólum 2, Reykjavík
Sigríður Zebitz Espigerði 4, Reykjavík
80 ára
Inga Helgadóttir Eyrarflöt 6, Akranesi
85 ára
Margrét Ólafsdóttir Sléttuvegi 7, Reykjavík
Jón Hjörleifsson Kimbastöðum, Sauðárkróki
Guðni B. Guðnason Boðaþingi 6, Kópavogi
Áslaug Einarsdóttir Álfaskeiði 71, Hafnarfirði
Sigurður Leifsson Lækjarseli 13, Reykjavík
95 ára
Guðni Ólafsson Hraunvangi 7, Hafnarfirði
Laugardagur
30 ára
Svana Yen Doan Kleppsvegi 96, Reykjavík
Elís Pétur Elísson Hraunhvammi 6, Hafnarfirði
Díana Gylfadóttir Rekagranda 2, Reykjavík
Valdimar Ellertsson Skútahrauni 7, Mývatni
Sunna Jóhannsdóttir Kleppsvegi 24, Reykjavík
Sigrún Jóna Jónsdóttir Stóra-Hálsi, Selfossi
Lilja Margrét Olsen Arnarási 14, Garðabæ
Hildur Björg Jónasdóttir Laufásvegi 6, Reykjavík
Daníel Sigurðsson Glad Brekkubraut 13, Akranesi
Damian Tomasz Michalik Laugarholti 7c, Húsavík
Bjarki Guðbjartsson Feigsdal, Bíldudal
Sigríður Ólafsdóttir Nátthaga 3, Sauðárkróki
Ágúst Jensson Butru, Hvolsvelli
40 ára
Valgerður Eiríksdóttir Langholtsvegi 94,
Reykjavík
Guðni Hafsteinsson Kleifakór 12, Kópavogi
Ólöf Dagfinnsdóttir Stekkjarflöt 18, Garðabæ
Eydís Grétarsdóttir Norðurstíg 3, Reykjanesbæ
Kristín Björk Leifsdóttir Sunnuvegi 8, Skaga-
strönd
Magnea Sverrisdóttir Eyjabakka 2, Reykjavík
Ólöf Eir Guðmundsdóttir Norðurgötu 26, Akureyri
Hafdís Grétarsdóttir Æsuborgum 3, Reykjavík
Baldur Stefánsson Asparholti 10, Álftanesi
50 ára
Sigrún Hauksdóttir Tunguvegi 86, Reykjavík
Fríða Björk Ólafsdóttir Bergþórugötu 7, Reykjavík
Elna Tove L Þorbjörnsdóttir Hraunbæ 136,
Reykjavík
Guðmundur Jónsson Skrauthólum 3, Reykjavík
Elsabet Sigurðardóttir Laufengi 2, Reykjavík
Agnar Sveinsson Lindasmára 30, Kópavogi
Hildur Harðardóttir Skerseyrarvegi 3, Hafnarfirði
60 ára
Franklín Georgsson Fannafold 113, Reykjavík
Guðrún Valdimarsdóttir Birkimörk 9, Hveragerði
Jónas Sigurður Hreinsson Skeiðarvogi 121,
Reykjavík
Einar Jónsson Reykjabakka, Flúðum
Þórlindur Ólafsson Dofraborgum 42, Reykjavík
70 ára
Sjöfn Stefánsdóttir Melbæ 16, Reykjavík
Kristín Matthíasdóttir Hraunbæ 20, Reykjavík
Yoko Arai Þórðarson Smyrlahrauni 66, Hafnarfirði
75 ára
Alda Ármanna Sveinsdóttir Logafold 46,
Reykjavík
Jóhann Theodór Þórðarson Kríuási 15, Hafnar-
firði
Þór Vigfússon Straumum, Selfossi
Ingveldur Stefánsdóttir Móaflöt 45, Garðabæ
Agnes O. Steffensen Hæðargarði 7c, Reykjavík
Margrét Árnadóttir Skeiðarvogi 39, Reykjavík
80 ára
Ingibjörg Rafnsdóttir Gilsbakka 1, Seyðisfirði
Þórir S. Hersveinsson Klapparstíg 1a, Reykjavík
Áróra Tryggvadóttir Þykkvabæ 7, Reykjavík
Bergur V. Jónsson Skildinganesi 54, Reykjavík
Guðfríður Hermannsdóttir Austurbrún 4,
Reykjavík
Hörður Sumarliðason Tindaflöt 5, Akranesi
85 ára
Gíslína Sumarliðadóttir Fossheiði 58, Selfossi
Þórunn Samúelsdóttir Arahólum 4, Reykjavík
Jón Erlendsson Hraunbæ 103, Reykjavík
90 ára
Sesselja Óskarsdóttir Suðurgötu 50, Akranesi
Sunnudagur
30 ára
Bartlomiej Marcin Kurek Hafnargötu 75, Reykja-
nesbæ
Sigurrós Eiðsdóttir Eggertsgötu 6, Reykjavík
Árný Björg Ísberg Álfkonuhvarfi 23, Kópavogi
Ellen Ellertsdóttir Andrésbrunni 11, Reykjavík
Tómas Arnarson Kórsölum 3, Kópavogi
Sigurður Ágúst Einarsson Melbrún 7, Reyðarfirði
Daði Sveinsson Ásgarði 69, Reykjavík
Kristrún Ósk Karlsdóttir Njálsgötu 110, Reykjavík
Rakel Pétursdóttir Efstalandi 6, Reykjavík
40 ára
Guðbjörg Rósa Guðjónsdóttir Háabergi 37b,
Hafnarfirði
Halldór Sævar Birgisson Bogaslóð 14, Höfn í
Hornafirði
Magnús Þór Hallgrímsson Borgarholtsbraut
69, Kópavogi
Gréta Júlíusdóttir Múlasíðu 42, Akureyri
Helga María Þórarinsdóttir Tröllagili 11, Akureyri
Geir Vilhjálmsson Kvisthaga 16, Reykjavík
Kjartan Freyr Vilhjálmsson Flétturima 34,
Reykjavík
Guðjón Sigurjónsson Selvaði 11, Reykjavík
50 ára
Páll Kristján Svansson Holtsgötu 12, Reykjavík
Árni Jóhann Óðinsson Bjarkaseli 7, Egilsstöðum
Gunnar Rafn Helgason Einholti 2a, Akureyri
Bjarni Júlíusson Leiðhömrum 20, Reykjavík
Salómon Jónsson Grundarsmára 4, Kópavogi
Vigdís Silja Þórisdóttir Vallarbraut 4, Akranesi
Hólmfríður G. Guðjónsdóttir Espigerði 2,
Reykjavík
60 ára
Elías Jón Héðinsson Holtaseli 45, Reykjavík
Selma Skúladóttir Þverási 17, Reykjavík
Sigrún Jóna Baldursdóttir Úlfarsbraut 36,
Reykjavík
Steinunn Sigurðardóttir Jörundarholti 43,
Akranesi
Páll Biering Nýlendugötu 27, Reykjavík
Matthías Hagvaag Þórðarsveig 1, Reykjavík
Stella Gunnarsdóttir Ásbraut 17, Kópavogi
Guðjón Bergsson Hamrafossi, Kirkjubæjarklaustri
Klara Sæland Þjóðólfshaga 3, Hellu
Þorsteinn Hauksson Stakkhömrum 5, Reykjavík
70 ára
Erla Ellertsdóttir Löngulínu 2, Garðabæ
Helga G. Zoéga Þinghólsbraut 70, Kópavogi
Hörður Guðmundsson Reynigrund 47, Kópavogi
Brynjúlfur Sæmundsson Álandi 13, Reykjavík
Guðrún Sigurveig Jóhannsdóttir Hörðalandi
16, Reykjavík
Málfríður Konráðsdóttir Vesturgötu 52,
Reykjavík
75 ára
Jenný Marta Kjartansdóttir Frostafold 20,
Reykjavík
Anna Steinbjörnsdóttir Glósölum 7, Kópavogi
Guðmundur Rúnar Einarsson Grund, Mosfellsbæ
Eyþóra Valdimarsdóttir Fremristekk 6, Reykjavík
Erla Sigurjónsdóttir Arnarhrauni 29, Hafnarfirði
Magný Kristinsdóttir Áslandi 1, Mosfellsbæ
80 ára
Viðar Þorsteinsson Grænlandsleið 53, Reykjavík
Elís Jónsson Bröttuhlíð 6, Mosfellsbæ
Gísli Guðmundsson Skólagerði 41, Kópavogi
Sesselja J. Helgadóttir Hjarðarholti 3, Akranesi
Garðar Aðalsteinsson Brekkugötu 38, Akureyri
Regína Vilhelmsdóttir Sævarlandi, Sauðárkróki
85 ára
Dagný Þorsteinsdóttir Höfðavegi 17, Vest-
mannaeyjum
Jón G Guðlaugsson Hafnarstræti 23, Akureyri
Steinþóra Þórisdóttir Hringbraut 50, Reykjavík
95 ára
Bjarni Guðmundsson Dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi
Jónína Ófeigsdóttir Næfurholti, Hellu
E rna María er fædd í Þingholt-unum en ólst upp á Melunum í Reykjavík. Að loknu stúdents-
prófi frá Menntaskólanum í Reykja-
vík fór hún til náms í innanhúss-
arkitektúr í Leicester á Englandi,
lauk þaðan prófi 1966, flutti síðan til
Liverpool þar sem hún lagði stund á
typo grafíu. Leiðin lá aftur til Íslands
1968, þar sem hún fór að vinna sjálf-
stætt að ýmsum hönnunarverkefn-
um á Teiknistofunni Garðastræti 17
í Reykjavík sem hún stofnaði ásamt
fyrrverandi eiginmanni sínum, Gesti
Ólafssyni arkitekt og skipulagsfræð-
ingi. Vann hún við innanhússhönnun
fyrir heimili og fyrirtæki, auk bóka- og
grafískrar hönnunar. Á þessum árum
vann hún m.a. samkeppni um skjald-
armerki Seltjarnarness sem síðar
var tekið sem merki sveitarfélagsins.
Árið 1982 fór Erna til Parísar til frekara
náms og tók próf í iðnhönnun 1989
auk náms í listasögu áður en hún
kom aftur til Reykjavíkur 1990. Þar
kenndi hún m.a. iðnhönnun og tók
þátt í samsýningu húsgagna- og inn-
anhússarkitekta í Perlunni í Reykjavík
og í Bella Center í Kaupmannahöfn.
Erna fór til náms á Arken Bibel
Center í Stokkhólmi 1993 þar sem
hún nam biblíu- og kristniboðsfræði
ásamt sálusorgun, með áherslu á
meðferð fyrir börn og unglinga, og
listrænt skapandi starf til lækninga og
trúariðkunar. Hún flutti síðan til Finn-
lands þar sem hún bjó og vann að
sálusorgun og hönnun. Hún flutti aft-
ur til Íslands 2002 og hefur að mestu
búið í Hveragerði þar sem hún hef-
ur m.a. unnið sem lífsstílsleiðbein-
andi og að þróun eigin fyrirtækis á
sviði menningarmiðlunar. Fékk hún
m.a. styrk frá Menningarráði Suður-
lands 2009 til hönnunar menningar-
tengdra ferða er byggja á lífshlaupi
föður hennar, Eyrbekkingsins Ragn-
ars Jónssonar forstjóra: „Á Röltinu
með Ragnari í Smára“.
Erna María hefur gegnt ýmsum
trúnaðarstörfum á sviðum málefna
kvenna, umhverfis- og menningar-
mála og fjölmiðla. Hún átti m.a. sæti
í útvarpsráði og í Framkvæmdanefnd
um kvennafrí 24. október 1975. Hún
sat í stjórn Kvenréttindafélags Íslands
og ritstýrði tímariti félagsins, 19. júní,
í nokkur ár. Erna var um tíma vara-
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins
í borgarstjórn Reykjavíkur þar sem
hún var virk á sviði umhverfismála.
Hún tók þátt í stofnun félagsins Líf
og land 1974 og var formaður Félags
húsgagna- og innanhússarkitekta um
nokkurra ára skeið. Hún var á fram-
boðslista Íslandshreyfingarinnar Lif-
andi lands 2007 og Borgarahreyf-
ingarinnar tveimur árum síðar fyrir
Suðurland.
Fjölskyldan
Erna María giftist 1963 Gesti Ólafs-
syni, f. 8.12 1941, arkitekt og skipu-
lagsfræðingi. Þau skildu 1984. Hann
er sonur Ólafs Hjálmarssonar, f. 26.8.
1903, d.1986, efnisvarðar hjá Olíu-
félagi Íslands í Reykjavík, og Ragn-
heiðar Guðmundsdóttur, f 25.10 1902,
d.1991, húsmóður.
Synir Ernu og Gests eru Ragnar
Kristján Gestsson, f. 4.8. 1964, smíða-
kennari og myndlistarmaður, kvænt-
ur Hildi Jónsdóttur, f. 7.6. 1970, mynd-
listarkonu og húsmóður, og eiga þau
Hrefnu Björgu, f. 15.6. 1995, Símon
Gest, f. 9.9 2001, Sindra Immanúel, f.
18.9. 2003, Agnesi Ástu, f. 28.6. 2005,
Gideon Leo, f. 3.2. 2007, Jóhönnu
Naomi, f. 3.2. 2009, og Joshúa Eldar, f.
13.2. 2011; Ólafur Hrólfur Gestsson, f.
4.12. 1969 tölvunarfræðingur, en sam-
býliskona hans er Jódís Bjarnadóttir
félagsráðgjafi en börn hans eru Erna
Kristín Hrólfsdóttir, f. 6.5. 1990, og
Eva María Hrólfsdóttir, f. 8.7. 1999, en
börn hennar eru Bjarni Jóhannsson, f.
27.9. 1995, og Hlynur Jóhannsson, f.
17.9.1996.
Systkini Ernu eru Auður Guð-
rún Ragnarsdóttir, f. 28.7. 1942, líf-
eindatæknir og næringarfræðingur
í Reykjavík, eiginmaður hennar var
Davíð Helgason véltæknifræðingur
og dreifingaraðilli, d. 4.12. 2004; dr
Jón Óttar Ragnarsson f. 10.8. 1945,
kvæntur Margréti Hrafnsdóttur at-
hafnakonu, búsett í Los Angeles.
Hálfsystkini Ernu, samfeðra, eru
Edda Ragnarsdóttir, f.17.3. 1931, d.
2.3. 2007, húsmóðir, var gift Árna
Guðjónssyni lögfræðingi í Reykjavík
d. 15.2. 2004; Valva Ragnarsdóttir, f.
8.6.1935, verslunarstjóri, gift Tomas
Fuller véltækni en þau búa í Jackson-
ville í Flórída.
Foreldrar Ernu voru Einar Ragnar
Jónsson, f. 2. 1904, d. 11.7. 1984, for-
stjóri bókaforlagsins Helgafells, og
Björg Ellingsen, f. 10.12. 1916, d. 7.5.
1997, húsmóðir og snyrtifræðingur.
Ætt
Ragnar var sonur Jóns, hreppstjóra
í Mundakoti Einarssonar, b. á Heiði
á Síðu Bjarnasonar. Móðir Einars á
Heiði var Rannveig, systir Gísla í Gröf,
föður Þórunnar grasalæknis, móður
Erlings, búfræðings og grasalæknis,
föður Ástu Kristínar grasalæknis, og
Gissurar, þýðanda og fyrrv. umdæm-
isstjóra, afa Sigurðar Rúnars (Didda
fiðlu), föður Ólafs Kjartans óperu-
söngvara. Annar bróðir Rannveigar
var Eiríkur, faðir Sveins, pr. í Ásum,
föður Gísla alþingisforseta. Móð-
ir Jóns í Mundakoti var Ragnhildur,
systir Jóns, langafa Jóns Helgasonar,
fyrrv. ráðherra, en systir Ragnhild-
ar var Guðlaug, amma Ástu, ömmu
Davíðs Oddssonar, ritstjóra Morgun-
blaðsins. Ragnhildur var dóttir Jóns,
b. í Heiðarseli, bróður Rannveigar.
Móðir Ragnars í Smára var Guðrún
Jóhannsdóttir, formanns og verslun-
armanns í Mundakoti, bróður Guð-
mundar, afa Guðna Jónssonar pró-
fessors, föður prófessoranna Bjarna
og Jóns. Jóhann var sonur Þorkels, b.
í Mundakoti, bróður Hannesar, lang-
afa Sigurjóns Ólafssonar myndhöggv-
ara og Gísla bakarameistara, föður Er-
lings leikara, föður Benedikts, leikara,
leikstjóra og leikritahöfundar. Þor-
kell var sonur Einars, spítalahaldara
í Kaldaðarnesi, bróður Bjarna, afa
Bjarna Sæmundssonar fiskifræðings.
Systir Bjarna fiskifræðings var Mar-
grét, amma Guðlaugs Þorvaldssonar
ríkissáttasemjara. Annar bróðir Ein-
ars var Jóhann, langafi Helga Péturs-
sonar, tónlistarmanns og fyrrv. borg-
arfulltrúa. Einar var sonur Hannesar,
ættföður Kaldaðarnesættar. Móðir
Jóhanns í Mundakoti var Guðrún
Magnúsdóttir, formanns í Mundakoti
Arasonar, í Neistakoti Jónssonar, á
Grjótlæk Bergssonar, ættföður Bergs-
ættar Sturlaugssonar. Móðir Guðrún-
ar í Mundakoti var Elín Símonardóttir,
smiðs og formanns á Gamla-Hrauni
Þorkelssonar.
Af móðursystkinum Ernu má
nefna Othar Edvin Ellingsen, for-
stjóra O. Ellingssen hf., Erling Ell-
ingsen, framkvæmdastjóra og fyrsta
flugmálstjóra Íslands, og Liv, móð-
ur Óttars Péturs Halldórssonar verk-
fræðiprófessors.
Björg var dóttir Othars Peters Jæ-
gers Ellingsen, slippstjóra og kaup-
manns í Reykjavík, og Marie Johanne
Ellingsen, dóttur Anders Bergs, verk-
fræðings og verksmiðjueiganda í
Kristiansand í Noregi.
Erna María Ragnarsdóttir
Innanhússarkitekt
70 ára á laugardag
Örlygur Ívarsson
Tæknifræðingur og kennari á Akureyri
A ron fæddist í Vestmannaeyj-um og ólst þar upp. Hann var í Barnaskóla Vestmannaeyja.
Aron byrjaði þrettán ára til sjós og
hefur stundað sjómennsku síðan,
nánast eingöngu á bátum frá Vest-
mannaeyjum.
Fjölskylda
Systkini Arons eru Gyða Arnórsdóttir,
f. 12.9. 1975, hjúkrunarfræðingur við
Sjúkrahúsið í Vestmannaeyjum; Dav-
íð Arnórsson, f. 15.12. 1979, bakara-
meistari í Reykjavík; Orri Arnórsson, f.
8.11. 1986, bakari í Vestmannaeyjum;
Örvar Arnórsson, f. 29.1. 1994, bakari
í Vestmannaeyjum.
Foreldrar Arons eru Arnór Her-
mannsson, f. 23.11. 1954, bakara-
meistari í Vestmannaeyjum, og Helga
Jónsdóttir, f. 11.8. 1955, starfrækir
bakaríið Arnór bakari og kaffihúsið
Vinaminni, ásamt Arnóri, eiginmanni
sínum.
Aron Arnórsson
Sjómaður í Vestmannaeyjum
30 ára á laugardag