Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2011, Blaðsíða 2
2 | Fréttir 20.–26. apríl 2011 Páskablað
480 milljónir áttu
að fara í mútur
Starfs-
maður á
vegum fjárfestis-
ins Róberts Wess-
mann, Haukur
Harðarson, ræddi
um það, í skýrslu
um fasteignaverk-
efni í Murcia í suð-
austurhluta Spán-
ar í byrjun árs 2005, að múta þyrfti
spænskum embættismönnum til að
fá byggingarleyfi á tæplega tveggja
ferkílómetra landsvæði sem Róbert
keypti með Björgólfi Thor Björgólfs-
syni og fjárfestingarbankanum Burð-
arási. Þetta kemur fram í gögnum á
ensku um viðskiptin sem DV hefur
undir höndum. Greiðslurnar áttu að
hraða því að deiliskipulag og bygg-
ingarleyfi fengjust fyrir svæðið.
Black Pistons fær
liðsauka
Outlaws-meðlimurinn og for-
sprakki Black Pistons á Íslandi,
Jón Trausti Lúthersson, var staddur
hér á landi um helgina þegar íslenski
mótorhjólaklúbburinn Berserkir í
Hafnarfirði var tekinn formlega inn
í áhangendasamtök Black Pistons.
Klúbbinn er að finna víðs vegar um
heiminn en hann er talinn einn af
hættulegustu klúbbunum í undir-
heimum Íslands.
Framsóknarmenn
styðja stjórnina
DV greindi
frá forvitni-
legri stöðu sem
komin er upp eftir
flokksþing Fram-
sóknarflokksins.
Strax í upphafi
þingsins var ljóst
að þátttakan var
óvenju slök. Jafn-
framt benti margt til þess, meðal
annars ræða formannsins, að sleg-
inn hefði verið nýr og þjóðernislegri
tónn en áður. Frjálslyndir framsókn-
armenn sem og meirihluti ungliða
fella sig illa við þessar nýju áherslur
og finna sig ekki í þessu andrúms-
lofti samkvæmt heimildum DV. Fjórir
af níu þingmönnum flokksins fylgdu
formanninum ekki að máli í van-
trauststillögunni sem borin var upp á
Alþingi á dögunum.
Fréttir vikunnar í DV
1
2
3
Viðurkenndar
stuðningshlífar
í úrvali
Opið virka daga kl. 9 -18
og á laugardögum kl. 11 - 16
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • www.eirberg.is
Skemmdarvargar
í Herjólfi
Svo virðist sem skemmdarvargar hafi
verið um borð í Herjólfi þegar skipið
var á leið til Vestmannaeyja þann 12.
apríl síðastliðinn. Lögreglan greinir
frá því að óprúttnir aðilar hafi tekið sig
til og hent björgunarhringjum, sem
voru á dekki skipsins, í sjóinn. Ekki er
vitað hverjir þarna voru að verki en
lögreglan óskar eftir upplýsingum frá
farþegum sem voru í fyrri ferð skipsins
frá Þorlákshöfn þennan dag um hvort
þeir hafi orðið varir við að átt hafi verið
við þennan öryggisbúnað skipsins. At-
vikið er litið mjög alvarlegum augum
enda er nauðsynlegt að öryggisbúnað-
ur skipsins sé í sem bestu lagi.
Falsaðir seðlar
í umferð
Undanfarnar vikur hefur nokk-
uð borið á því að fölsuðum fimm
þúsund króna peningaseðlum hafi
verið komið í umferð á höfuðborg-
arsvæðinu. Samkvæmt lögreglu
hefur í fæstum tilvikum uppgötv-
ast að um falsaða seðla sé að ræða
fyrr en við uppgjör á sjóðvélum
eða við innlegg í banka. Hefur
flestum þessara seðla verið komið
í umferð á veitingastöðum þar
sem auðvelt getur reynst að láta
blekkjast þegar mikill erill er. Lög-
reglan vill beina þeim tilmælum til
afgreiðslufólks að vera á varðbergi
vegna þessa og hvetur jafnframt til
þess að þeir sem eru í afgreiðslu-
störfum kynni sér helstu öryggis-
þætti íslenskra peningaseðla á
heimasíðu Seðlabanka Íslands.
Hætt komnir
við Húnaflóa
Tveir menn á litlum fiskibát voru
hætt komnir eftir að vél bilaði í
bát þeirra við Húnaflóa aðfaranótt
þriðjudags. Bátur þeirra, Kópanes frá
Hvammstanga, hóf að reka í norð-
austur í átt að Óðinsboða. Samkvæmt
fréttastofu Vísis kölluðu mennirnir á
hjálp og var björgunarskip frá Skaga-
strönd kallað út ásamt fiskibátum frá
Djúpavík og Norðurfirði. Þá var þyrla
Landhelgisgæslunnar einnig kölluð
út. Um sexleytið á þriðjudagsmorg-
un kom annar fiskibáturinn að bát
mannanna og tók hann í tog. Einn
maður meiddist í andliti í björgunar-
leiðangrinum og var þyrlan notuð til
að ferja hann til byggða.
„Íbúðin er til sölu,“ segir Kristján
Kristjánsson, upplýsingafulltrúi
Landsbankans, um 260 fermetra
lúxusíbúð við Pont Street í hjarta
London sem bankinn leysti til sín
árið 2008. Íbúðin var áður í eigu at-
hafnamannsins Hannesar Smára-
sonar. Eignin sem er metin á um 7,5
milljónir punda, jafnvirði um 1.400
milljóna króna, hefur verið til sölu
síðan haustið 2009.
Að sögn Kristjáns hafa ekki bor-
ist nægjanlega góð tilboð í íbúðina
að mati bankans og því sé hún enn
óseld í umsjá bankans.
„Íbúðin var hluti af skráðum
eignum Hannesar þegar gamli
bankinn gerði við hann samninga
vegna mikilla skulda. Þá komst þessi
íbúð í eigu gamla bankans. Hún
var síðan látin fylgja með félaginu
Fjölnisvegi 9 inn í Landsbankann
haustið 2008,“ segir Kristján um
eignina sem er á besta stað í dýrasta
hverfi London.
Gullslegin lúxuseign
Landsbankinn leysti til sín félagið
Fjölnisveg 9 ehf. í mars 2008. Félagið
var í eigu athafnamannsins Hann-
esar Smárasonar en í því félagi var
meðal annars að finna glæsihýsið
Fjölnisveg 11 og téða lúxusíbúð við
Pont Street. Greint var frá því í októ-
ber 2009 að íbúðin í London hefði
verið auglýst til sölu og svo er enn.
DV greindi frá því í desember síðast-
liðnum að Hannes leigi nú húsið við
Fjölnisveg 11 af Landsbankanum en
sex ára leigusamningur var gerður
í mars 2008 eftir að bankinn hafði
leyst til sín fyrirtækið. Sá samningur
er enn í gildi.
Íbúðin við Pont Street, sem er
á tveimur hæðum, er 261 fermetri
og hefur öll verið tekin í gegn. Þrjár
svefnherbergissvítur eru í húsinu og
stórglæsilegt baðherbergi í hverri
þeirra. Gullsleginn hringstigi ligg-
ur á milli hæða og fullkomið eldhús
með öllu því flottasta er þar að finna.
Í engu til sparað.
Steinsnar frá dýrustu
íbúð Bretlands
Til að setja lúxusinn í samhengi þá
sögðu breskir fjölmiðlar frá því í vik-
unni að gengið hefði verið frá kaup-
um á penthouse-íbúð í One Hyde
Park byggingakjarnanum. Kaup-
verðið er 136 milljónir punda, eða
sem nemur rúmlega 25 milljörðum
króna og er þetta því að sögn breskra
fjölmiðla dýrasta íbúð Bretlands.
Óviðjafnanlegan lúxus er að finna í
húsnæðinu sem er á besta stað þar
sem bakgarðurinn er í raun Hyde
Park-almenningsgarðurinn í hjarta
höfuðborgarinnar. Og aðeins stein-
snar frá þessari dýrustu íbúð Bret-
lands stendur einmitt íbúðin sem
áður var í eigu Hannesar, en er nú í
eigu Landsbankans. Aðeins þarf að
ganga stundarkorn í norður frá Pont
Street, upp Sloane Street að Knig-
htsbridge, þar sem One Hyde Park
lúxusblokkirnar standa á horninu.
Fleiri víkingar á besta stað
Hannes er þó ekki eini útrásarvíking-
urinn sem hreiðraði um sig í þessum
dýrasta hluta Lundúna. Skammt frá
Pont Street á Lýður Guðmundsson,
fyrrverandi aðaleigandi Bakkavarar
og Exista, hús við Cadogan-torg. Það
hús var á sínum tíma metið á hátt í
2,4 milljarða króna. Húsið var í kjöl-
far hrunsins fært yfir á eiginkonu
Lýðs.
Það er þó tilefni til bjartsýni hjá
Landsbankanum varðandi sölu á
gömlu íbúðinni hans Hannesar. Þrátt
fyrir að kreppan í Bretlandi hafi kom-
ið illa niður á fasteignamarkaðnum
almennt hefur fasteignaverð á dýr-
ustu eignum á besta stað í London
haldið sér mjög vel.
n Glæsileg lúxusíbúð Hannesar Smárasonar við Pont Street í London er enn í eigu
Landsbankans n Hún hefur verið til sölu síðan 2009 og er metin á 1.400 milljónir
n Steinsnar frá dýrustu íbúð Bretlands sem seld var á dögunum fyrir 25 milljarða
Illa gengur að selja
lúxusíbúð Hannesar
„Aðeins steinsnar
frá dýrustu íbúð
Bretlands stendur einmitt
íbúðin sem áður var í eigu
Hannesar Smárasonar.
Sigurður Mikael Jónsson
blaðamaður skrifar mikael@dv.is
Gullsleginn lúxusstigi
Eins og sjá má skortir ekki
flottheitin í íbúðinni í hjarta
dýrasta hverfis Lundúna.
Íbúðin var áður í eigu Hann-
esar Smárasonar. Mynd KniGHtS
FranK FaSteiGnaSaLan
Stofan Glæsileg stofa með arni og
öllum þægindum ríka og fína fólksins í
Lundúnum. Mynd KniGHtS FranK FaSteiGnaSaLan
Í engu til sparað Hannes Smárason lifði hátt á árunum fyrir hrun eins og íbúð hans við
Pont Street sýnir.