Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2012, Blaðsíða 4
4 Fréttir 4.–10. apríl 2012 Páskablað
Komst ekki í ræktina
n Blindur hárgreiðslumeistari í mál við Kópavogsbæ
H
éraðsdómur Reykjaness hefur
vísað frá máli konu sem krafð-
ist þess að Kópavogsbær veitti
sér ferðaþjónustu í samræmi
við ákvæði laga um ferðaþjónustu fatl-
aðra. Konan, sem er blind en starfar
sem hárgreiðslumeistari, gerði kröf-
ur um að ferðaþjónustan gerði henni
kleift að komast allra sinna ferða með
þeim hætti sem henni hentaði, og á
tíma sem henni hentaði, gegn vægu
gjaldi. Þá krafðist konan einnig að
Kópavogsbær greiddi sér miskabætur
að fjárhæð fimm milljóna króna ásamt
dráttarvöxtum.
Í úrskurði héraðsdóms kemur
fram að konan hafi aldrei notað þá
ferðaþjónustu sem standi til boða hjá
Kópavogsbæ né heldur sótt um slíka
þjónustu. Í nóvember 2011 sótti konan
um að fá allt að 60 mánaðarlegar ferðir
með leigubíl á strætisvagnafargjaldi,
en var synjað um þá umsókn og
jafnframt bent á hvaða ferðaþjónusta
stæði til boða.
Rök konunnar voru þau að vinna
hennar sem hárgreiðslumeistari
væri almennt ekki í föstum
skorðum. Hún færi eftir tímapöntun
viðskiptavina, en einnig væri hún oft
á bakvöktum þar sem hún er kölluð
út með skömmum fyrirvara. Hún
stundi einnig líkamsrækt og krafa
hennar sé að geta stundað vinnu
og líkamsrækt með sambærilegum
hætti og ófatlaðir. Þá kom fram af
hálfu konunnar að félagsþjónusta
Kópavogsbæjar bjóði fötluðu fólki
upp á almenna ferðaþjónustu sem fari
fram á vegum verktakafyrirtækisins
Smartbíla ehf. Þjónustan fari þannig
fram að hinn fatlaði einstaklingur
sé sóttur á fyrirfram ákveðnum
tíma á sérútbúnum bíl fyrir
hjólastólanotendur.
Dómurinn mat málið sem svo að
kröfur konunnar væru óljósar og al-
mennt hafi hún verið að krefjast þjón-
ustu sem henni standi þegar til boða.
Niðurstaða dómsins var því að vísa
málinu frá dómi.
S
teinþór Pálsson, núverandi
bankastjóri Landsbankans
og þáverandi framkvæmda-
stjóri hjá Actavis, seldi hluta-
bréf í Actavis fyrir rúmlega
230 milljónir króna um haustið 2007.
Þá keypti fjárfestingarfélag Björgólfs
Thors Björgólfssonar, Novator, sam-
heitalyfjafyrirtækið. Steinþór átti tæp-
lega 2,6 milljónir hluta í Actavis, bæði
rúmlega milljón hluti sem flokkuð-
ust sem beinn eignarhluti og eins
kauprétti upp á rúmlega 1,5 milljónir
hluta, þegar Novator keypti bréf hans
á genginu 1,07 evrur á hlut, eða 89,53
krónur miðað við gengi þess tíma.
Keypti bréfin á hagstæðu verði
Steinþór hafði eignast þessi bréf með
hagstæðum hætti á árunum þar á
undan en hann hafði starfaði hjá Ac-
tavis samfleytt í 8 ár, frá 2002 til 2010,
þegar hann settist í bankastjórastól
Landsbankans. Bankinn er í meiri-
hlutaeigu íslenska ríkisins. Gengi
hlutabréfa í Actavis var í kringum 10
á hlut árið 2002 þegar Steinþór hóf
störf hjá félaginu.
Í opinberum tilkynningum frá
Actavis um kauprétti starfsmanna
í fyrirtækinu á árunum fyrir hrunið
kemur fram að Steinþór keypti hluta
bréfanna á genginu 38,5 og annan
hluta á genginu 59,5. Mismunurinn á
kaup- og sölugenginu á hlutabréfum
Steinþórs í Actavis var því umtals-
verður.
Ætla má að Steinþór hafi hagn-
ast um að minnsta kosti vel á annað
hundrað milljónir króna þegar hann
seldi bréfin. Þar að auki fékk Steinþór
greitt í evrum en verðgildi evrunnar
miðað við krónuna hækkaði umtals-
vert frá því hann seldi bréfin í ljósi
þeirra erfiðleika sem tóku að steðja
að íslenska fjármálakerfinu í lok árs
2007 og 2008. Ef hann hefur ekki
skipt evrunum strax í krónur, heldur
beðið fram á árið 2008 eða þar til eftir
hrunið, hefur hann því getað fengið
fleiri krónur en ef hann hefði skipt
evrunum þegar hann seldi bréfin.
Umræða um laun bankastjóra
Talsverð umræða hefur verið í samfé-
laginu um laun Steinþórs og annarra
bankastjóra stóru bankanna þriggja.
Steinþór, sem er langlaunalægstur
af bankastjórum stóru bankanna
þriggja, er með rúma milljón króna í
mánaðarlaun. Þetta er einungis um
einn þriðji af launum bankastjóra
Arion og tæpur helmingur af launum
bankastjóra Íslandsbanka.
Haft hefur verið eftir Steinþóri op-
inberlega að hann telji að þessi laun
séu of lág fyrir mann í hans stöðu og
að hann sé bankamaður sem fái hvað
lægst tímakaup miðað við unnar
stundir. „Ég segi oft að ég sé sá banka-
maður á Íslandi sem er með lægst
laun fyrir unna stund. Því það að vera
bankastjóri Landsbankans er talsvert
mikil vinna.“ Þá hefur Steinþór einnig
lýst því opinberlega að laun hans hjá
Actavis hafi verið umtalsvert hærri en
laun hans hjá Landsbankanum.
Bankaráð bundið af kjararáði
Þar sem bankaráð Landsbankans
er bundið af ákvörðunum kjararáðs
um laun stjórnenda ríkisstofnana og
fyrirtækja getur ráðið ekki hækkað
laun Steinþórs með einhliða ákvörð-
un þess efnis. Á nýliðnum aðalfundi
Landsbankans kom hins vegar fram
sú skoðun í tillögum fundarins að
starfskjör bankastjóra ættu „að vera
samkeppnishæf við kjör stjórnenda
í stærri fyrirtækjum og á fjármála-
markaði“. Ljóst er, miðað við þetta
orðalag, að ósamræmi er á milli
launa Steinþórs út frá stefnu kjara-
ráðs og umræddra tillaga.
Þó að deila megi um það hvort
laun Steinþórs séu of lág eða ekki –
vissulega eru þau það þegar litið er
til þess að laun stjórnenda stórfyrir-
tækja á Íslandi eru sjaldnast minna
en 2 milljónir króna og yfirleitt um-
talsvert hærri – þá er nokkuð ljóst að
miðað við hagnað hans af viðskipt-
unum með hlutabréfin í Actavis árið
2007 er hann ekki á flæðiskeri stadd-
ur fjárhagslega.
Ekki náðist í Steinþór við vinnslu
fréttarinnar en bankastjórinn er
staddur erlendis um þessar mundir.
Hagnaðist á hlutabréfum í Actavis
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbank-
ans, hagnaðist um vel á annað hundrað
milljónir króna hið minnsta þegar hann seldi
hlutabréf sín í Actavis árið 2007.
Steinþór Seldi fyrir
rúmar 230 milljónir„Ég segi oft að ég
sé sá bankamað-
ur á Íslandi sem er með
lægst laun fyrir unna
stund.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Tóku orð Dav-
íðs sem hótun
Hæstaréttardómarar túlkuðu
skipun Ólafs Barkar Þorvalds-
sonar og Jóns Steinars Gunn-
laugssonar í embætti hæsta-
réttardómara sem atlögu Davíðs
Oddssonar, þáverandi forsætis-
ráðherra, að réttinum. Þetta
kemur fram í úttekt í nýjasta
tölublaði Mannlífis.
Í tilkynningu frá útgefanda
blaðsins kemur fram að hæsta-
réttardómarar hefðu tekið sig
saman og myndað bandalag
gegn bandamönnum Davíðs
í réttinum og hafi síðan tvær
stríðandi fylkingar tekist á innan
Hæstaréttar, annars vegar þeir
sem styðja Davíð og hins vegar
þeir sem styðja Markús Sigur-
björnsson. Í úttektinni er Davíð
Oddsson sagður hafa veist að
hæstaréttardómurum í kjölfar
dóma í afdrifaríkum málum er
vörðuðu íslenska ríkið, svo sem
Valdimarsdómnum og öryrkja-
dómnum svokölluðu. Sagt er
frá gagnrýni Davíðs á dómana
og því sem hæstaréttardómarar
túlkuðu á þeim tíma sem hótun
hans í sinn garð. Þá er því lýst
hvernig Davíð hundsaði forseta
Hæstaréttar, Guðrúnu Erlends-
dóttur, í að minnsta kosti ár
eftir öryrkjadóminn og yrti til að
mynda ekki á hana við opinber
tækifæri.
Íslendingum
fjölgar
Í byrjun þessa árs voru Íslendingar
319.575 talsins. Það er 0,4 prósenta
fjölgun frá því sem var á sama tíma
á síðasta ári, eða sem nemur 1.123
einstaklingum. Árið 2011 fæddust
4.496 börn, 2.327 drengir og 2.169
stúlkur. Þetta kemur fram á vef Hag-
stofu Íslands í frétt sem birt var á
þriðjudag. Þar kemur einnig fram
að strákarnir sem fæddust á síðasta
ári geta átt von á því að ná tæplega
80 ára aldri en stúlkurnar geta átt
von á því að lifa nokkrum árum
lengur, eða þangað til þær eru orðn-
ar tæplega 84 ára. Í hagtíðindum
Hagstofunnar eru einnig upplýsing-
ar um brottflutta umfram aðflutta.
Árið 2011 fluttust 6.982 einstakling-
ar úr landi en 5.578 til landsins sem
þýðir að brottfluttir umfram aðflutta
voru 1.404 árið 2011.
Kópavogur Konan vildi fá að nýta sér
leigubílaþjónustu á strætisvagnafargjaldi.