Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2012, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2012, Síða 12
12 Fréttir 4.–10. apríl 2012 Páskablað Innkalla frostpinna n Inniheldur sojalesitín G rænir frostpinnar frá Allra hafa verið innkallaðir úr búðum þar sem ofnæmis- og óþols- valdar eru ekki merktir á um- búðum vörunnar. Í tilkynningu segir að Kaupás hf. hafi, í samráði við matvæla- eftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavík- ur, ákveðið að innkalla Allra græna frostpinna, þar sem ekki komi fram í innihaldslýsingu að varan innihaldi sojalesitín sem er á lista yfir ofnæm- is- og óþolsvalda. Frostpinnarnir hafa verið til sölu í verslunum Krón- unnar, Nóatúns og Kjarvals. Tekið er fram að varan sé skaðlaus fyrir þá sem ekki eru viðkvæmir fyrir soja eða afurðum úr því. Þeir neyt- endur sem hafa umrædda vöru und- ir höndum og eru viðkvæmir fyrir soja eða afurðum úr soja eru beðnir um að farga henni eða hafa samband við Krónuna, Nóatún eða Kjarval. Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is Opið virka daga 10–18, laugard. kl. 11–16, sunnud. 14–16 Erum að taka á móti verkum á næsta uppboð Áhugasamir geta haft samband í síma 551-0400. Listmuna uppboð Gallerís Foldar Vefuppboð á verkum lýkur 11. apríl Guðmundur frá Miðdal Guðmundar frá Miðdal Gallerí Fold í 20 ár 1992–2012 Lokað frá 5. – 9. apríl (yfir páskana) Nærri 2 milljarða eiNstakliNgsþrot B ú athafnamannsins Daní- els Þorsteinssonar hefur verið gert upp með rúm- lega 1.730 milljóna króna afskriftum. Þetta kem- ur fram í Lögbirtingablaðinu. Bú Daníels var tekið til gjaldþrota- skipta síðla árs 2009 en skiptunum á því lauk ekki fyrr en í byrjun mars á þessu ári. Skiptastjóri búsins var Sigríður Kristinsdóttir en engar eignir fundust í búinu. Daníel stundaði meðal annars fasteignaviðskipti í Belgrad í Serbíu fyrir hrunið árið 2008, líkt og DV greindi frá í fyrravor. Árið 2007 keypti hann, ásamt Hallgrími Bogasyni, 2.300 fermetra fasteign í miðborg Belgrad í gegnum eign- arhaldsfélagið SCS Holding. Þeir Daníel og Hallgrímur voru kærð- ir til lögreglunnar á höfuðborgar- svæðinu haustið 2010 út af við- skiptunum með fasteignina. Þrír menn, Guðjón Jónsson, Hallur Jón- as Gunnarsson og Friðrik Atli Sig- fússon, lögðu kæruna fram. Kærður til lögreglunnar Þremenningarnir töldu að Hall- grímur og Daníel hefðu gerst sekir um brot í viðskiptunum með fast- eignina í Belgrad, meðal annars fjárdrátt, umboðssvik, skjalafals og fjársvik, auk brota á lögum um einkahlutafélög, lögum um bók- hald og lögum um ársreikninga. Kærendurnir í málinu telja að Hall- grímur og Daníel hafi hlunnfarið sig með því færa eignarhlut þeirra í serbn eska eignarhaldsfélaginu Te- kig Invest AD yfir til annarra aðila með ólögmætum hætti. Lögreglu- stjórinn á höfuðborgarsvæðinu áframsendi kæruna til efnahags- brotadeildar ríkislögreglustjóra. Í kærunni til lögreglunnar, sem DV hafði undir höndum þegar fjallað var um málið í fyrra, sagði meðal annars um þetta atriði: „Tveir þeirra, ofangreindir Hall- grímur Bogason og Daníel Þor- steinsson, hafa með ólögmætum hætti tekið fjármuni og verðmæti undan félaginu og aflað sér ólög- mæts ávinnings með því að hafa yfirfært annars vegar 40,51% hluta- fjár SCS Holding í félaginu Tekig In- vest, að markaðsverðmæti 135.519. EUR í hendur viðskiptafélaga þeirra ytra, þ.e. yfir á félagið Yugit Company D.O.O, Belgrad, og hins vegar að afhenda Novo Djonovic 33,34% hlutafjár í félaginu, að and- virði u.þ.b. EUR 109.044,71. Ekkert endurgjald kom fyrir eignarhlutinn til SCS Holding eða lánardrottna þess.“ Fjárfestar töpuðu fjármunum DV hafði samband við Sigríði Krist- insdóttur fyrir helgi til að spyrja hana út í þrotabúið, kröfulýsing- arnar í búið og annað í þeim dúr. Sigríður er hins vegar í leyfi fram yfir páska og gat DV því ekki fengið umræddar upplýsingar. Þegar DV fjallaði um fasteigna- verkefnið í Serbíu í fyrra kom hins vegar fram í máli þeirra sem DV ræddi við að nokkrir Íslending- ar hefðu tapað háum fjárhæð- um á því að leggja peninga í verk- efnið í Serbíu. Eiríkur Stefánsson var einn þeirra. Eiríkur sagðist hafa lagt tíu milljónir króna í verkefnið árið 2007 og ekki hafa fengið þær til baka. „Þú verður að athuga það, vinur minn, að þessir menn, Daníel Þorsteinsson og Hallgrímur Boga- son, eru búnir að hafa fé af fullt af fólki... Þú munt ekki ná að tala við nema brot af þeim sem þeir hafa vélað. Fólk skammast sín svo mikið fyrir þetta,“ segir hann. Eiríkur sagði þá að fjárfestingar- verkefnið í Serbíu hefði verið kynnt fyrir sér árið 2007 með þeim hætti að hann ætti að fá 20 milljónir króna til baka tveimur mánuðum síðar. „Ég lét inn í þetta tíu milljónir í nóvember 2007 á þeim forsendum að þeir myndu borga mér 20 millj- ónir til baka í febrúar 2008. Víxill- inn var svo bara framlengdur aftur og aftur og stendur núna í 39 millj- ónum.“ Eiríkur sagði að frá því að þegar hann hefði lagt peningana í verk- efnið hefðu þeir Daníel og Hall- grímur lofað að greiða honum víx- ilinn til baka en þeir hefðu ekki staðið við það. „Þetta eru ekkert annað en fjársvik,“ sagði hann. Hugsanlegt er því að einhverjir af meðfjárfestum Daníels í verk- efninu í Serbíu hafi lýst kröfum í bú hans. n Fjárfesti í Serbíu n Einstaklingar töldu sig svikna„Fólk skammast sín svo mikið fyrir þetta. Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Byggt í upphafi síðustu aldar Fasteignin í Belgrad stendur við götuna Krajl Petar og er gegnt höfuðstöðvum seðlabankans í Serbíu. Hér sést byggingin á mynd sem tekin var vorið 2007. Húsið var byggt í upphafi síðustu aldar. Inniheldur ofnæmisvald Pinnarnir innihalda sojalesitín sem veldur ofnæmi. Í Svartfjallalandi Daníel Þorsteinsson sést hér á hótelherbergi í Svartfjallalandi árið 2007 en hann stundaði meðal annars viðskipti í gömlu Júgóslavíu. Bú hans hefur nú verið gert upp með nærri tveggja milljarða króna afskriftum. Sólning seld fyrir 440 milljónir Hömlur ehf., dótturfélag Lands- bankans hf., hefur selt fyrirtækið Sólningu Kópavogi ehf. til Gunnars Justinussen sem átti hagstæðasta tilboðið í opnu söluferli. Heildar- virði félagsins í viðskiptunum er 440 milljónir króna. Gunnar rekur fyrirtækið Pitstop hér á landi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbankanum. Sólning Kópavogi ehf. er hjól- barðaverkstæði og innflutnings- fyrirtæki með langa sögu að baki. Félagið rekur í dag fjögur verk- stæði; á Smiðjuvegi í Kópvogi, Fitjabraut Njarðvík og Gagn- heiði á Selfossi og verkstæði undir merkjum Barðans í Skútuvogi í Reykjavík. Lager er starfræktur á Smiðjuvegi 11 þaðan sem megn- inu af heildsölustarfsemi félagsins er sinnt. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbank- ans hafði umsjón með söluferlinu sem hófst 31. janúar. Söluferlið var opið öllum áhugasömum fjárfestum sem stóðust hæfismat og gátu sýnt fram á fjárfestingargetu að upphæð 100 milljónir króna. Margir sýndu fyrirtækinu áhuga og skilaði 21 inn óskuldbindandi tilboði og þar af fengu 5 aðgang að gagnaherbergi til að afla sér frekari upplýsinga. Fjármálaráðgjöf Deloitte var ráð- gjafi kaupanda, að því er fram kemur í tilkynningu frá Lands- bankanum. Helgi gaf yfir 200 páskaegg Helgi Vilhjálmsson, betur þekktur sem Helgi í Góu, hefur ákveðið að gefa Mæðrastyrksnefnd yfir 200 páskaegg og Sinalco nú fyrir páskana. Helgi mætti með eggin í eigin persónu til Mæðrastyrks- nefndar á þriðjudag til afhending- ar. „Það er skelfilegt að vita til þess hvað mörg börn geta ekki fengið páskaegg um páskana vegna fá- tæktar,“ segir Helgi um ástæðuna. Í könnun sem verðlagseftirlit ASÍ stóð fyrir á dögunum kom fram að langflest páskaegg hefðu hækkað í verði á milli ára. Gjaf- mildi Helga mun því væntanlega gleðja mörg börnin.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.