Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2012, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2012, Blaðsíða 14
14 Fréttir 4.–10. apríl 2012 Páskablað Iceland Express heldur oftast áætlun: Tafir á flugi fátíðar í mars Icelandair og Iceland Express héldu langoftast áætlun í seinni hluta marsmánaðar. Tafir á milli- landaflugi í byrjun þessa árs hafa verið fátíðar. Þetta kemur fram á vefnum turisti.is. Samkvæmt frétt Túrista hefur ástandið töluvert batnað frá síðasta sumri, þegar Keflavíkurflugvöllur stóðst ekki samanburð við stærstu flugvelli Norðurlanda þegar kom að stundvísi. Um það bil níu af hverj- um tíu vélum í Kaupmannahöfn, Stokkhólmi, Osló og Helsinki fóru þá í loftið á réttum tíma en hlutfallið í Keflavík fór niður í 44,5 prósent í júní í fyrra og hæst upp í rúm 70 prósent í ágúst. Í seinni hluta marsmánaðar í ár fóru hins vegar 94 prósent af vélum Icelandair á réttum tíma og 87 pró- sent hjá Iceland Express. Komu- tímar Icelandair héldu aðeins í um 6 af hverjum 10 tilfellum en tafirnar voru reyndar stuttar í mínútum talið. Túristi hefur fylgst með stundvísi flugfélaganna undanfarna mánuði og hafa stundvísitölur hans sýnt fram á að Iceland Express heldur langoftast áætlun um þessar mund- ir. Fjölgun áfangastaða og ferða í mars hefur ekki haft áhrif á það. Komutímar og brottfarir hjá Ice- land Express héldu í nærri níu af hverjum tíu tilvikum síðastliðnar tvær vikur. Í janúar voru ófærð og snjó- þyngsli orsakir truflana á utan- landsflugi frá Keflavíkurflugvelli. Þá þurftu margir farþegar að gista í Leifsstöð yfir nótt sökum ófærðar- innar. Áfengissala hefur minnkað Áfengis- og tóbaksverslun ríkis- ins seldi á síðasta ári 18.437.968 lítra af áfengi. Þetta er nokkur samdráttur frá metárinu 2008 þegar 20.387.345 lítrar seldust. Árið 2011 er þriðja samdráttar- árið í röð hjá ÁTVR. Áfengis- magnið sem var selt á síðasta ári samsvarar því að allir Íslending- ar, óháð aldri, hafi keypt 57,70 lítra af áfengi. Þar sem allir þeir sem eru á aldrinum 0 til 20 ára mega ekki versla við ÁTVR liggur ljóst fyrir að umtalsvert fleiri lítrar voru seldir á hvern einstakling að jafnaði en þessir útreikningar gefa til kynna. Þ að gengur rosalega vel nema þegar ég kem upp að húsi og heyri hundsgelt þá tekur hjartað stóran kipp. Þá verð ég hrædd,“ segir Lína Sigríður Hreiðarsdóttir sem í maí í fyrra varð fyrir alvarlegri hundaárás í starfi sínu sem blaðberi í Mosfellsbæ. Málið vakti mikla athygli enda slasaðist Lína Sigríður mikið – tvífótbrotnaði og var bitin í magann. Nú er hún hins vegar öll að koma til eftir tæplega ársbaráttu á batavegi og er hægt og sígandi að snúa aftur til starfa hjá Íslandspósti. Bitin og brotin „Þetta var ömurleg lífsreynsla og ég glímdi við þetta allt síðasta ár og var frá það sem eftir lifði árs. Ég á lítið barn sem var eins árs þegar þetta gerðist þannig að ég þurfti á mikilli aðstoð að halda eftir þetta,“ segir Lína í samtali við DV. Eins og fram kom í fréttum í fyrra var Lína á leið upp að húsi með póst þegar æstur dalmatíuhundur, bundinn fyrir utan næsta hús, tók að gelta á hana. Eigandinn kom út og reyndi að draga hundinn inn fyrir hússins dyr en ekki vildi betur til en svo að hundinum tókst að slíta tauminn og hljóp rakleiðis í átt að Línu. Hundurinn beit hana í magann og keyrði hana um koll. Í fallinu heyrði Lína mikinn smell, það var fótleggurinn að brotna. Eigandinn handsamaði hundinn og var Línu komið undir læknishendur. Í ljós kom að við fallið hafði hún brotnað á sköflungi og sperrilegg auk þess að vera með mikið bitsár á maganum. Snýr aftur hægt og bítandi „Ég þurfti að fara aftur í aðgerð í nóvember og byrjaði aftur aðeins í vinnunni í desember en er ekki komin í fullan útburð ennþá. Ég er að vinna mig upp smám saman.“ Lína ákvað að kæra ekki árásina þar sem eigendurnir tóku þá ákvörðun að láta lóga hundinum strax. Hún er nú að vinna í sínum tryggingamálum og kveðst fara í lokaathugun hjá bæklunarlækni í næsta mánuði. „Ég er ekki komin með 100 prósent virkni í fætinum,“ segir Lína aðspurð um batann. „Það á eftir að koma í ljós hvort þetta sé varanlegt“ Hundar enn bundnir fyrir utan hús Lína segir að þessi skelfilega lífsreynsla hafi breytt lífi hennar og tekið á bæði líkamlega og andlega. Hún sé nú smeyk þegar hún heyri hundsgelt, nokkuð sem ekki hrjáði hana fyrir atvikið í fyrra. „Ég hef átt hunda sjálf og allt. En nú blundar þessi lífsreynsla í mér og ég hef allan varann á. Það er samt ótrúlegt hvað fólk bindur enn hundana sína beint fyrir framan dyrnar. Það virðist ekki mikið hafa breyst.“ Það eru hins vegar góðar fréttir að Lína sé komin aftur á ról. Hún er bjartsýn og þakklát fyrir það. „Þetta er allt að koma vonandi.“ n Tvífótbrotnaði og var bitin í magann n Hrædd þegar hún heyrir hundsgelt Lína snýr aftur eftir hundaárás Sigurður Mikael Jónsson blaðamaður skrifar mikael@dv.is Illa slösuð DV heimsótti Línu í fyrra þar sem hún lá á sjúkrahúsi. Hún brotnaði á sköflungi og sperrilegg og var bitin í kviðinn. Komin á ról Lína Sigríður er búin að ná sér að mestu leyti eftir alvarlega áverka sem hún hlaut eftir árás hunds í Mosfellsbæ í fyrra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.