Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2012, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2012, Blaðsíða 23
Fréttir 23Páskablað 4.–10. apríl 2012 E ignarhaldsfélag sem Bernhard Bogason, fyrrverandi for- stöðumaður skatta- og lög- fræðisviðs FL Group frá 2006 til 2009, átti og hélt utan um fasteignaviðskipti í Berlín hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta. Félagið heit- ir Kreuzberg Investments ehf. Þetta kemur fram í auglýsingu í Lögbirt- ingablaðinu. Skiptastjóri félagsins er Jón G. Briem. Aðrir hluthafar í Kreuzberg Invest- ments voru þeir Hrannar Hólm, körfu- knattleiksþjálfari og fyrrverandi fram- kvæmdastjóri viðskiptaþróunar og einn eiganda Capacent, Skúli Þór Gunnsteinsson, fyrrverandi landsliðs- maður í handknattleik og fyrrverandi forstjóri og eigandi Capacent, og Stein- grímur Davíðsson, húðsjúkdóma- læknir og einn eigenda Húðlækna- stöðvarinnar á Smáratorgi. Félagið skuldaði nærri 93 milljónir króna í árs- lok 2008 og var með neikvætt eigið fé upp á rúmlega 35 milljónir. DV fjallaði um málefni félagsins í ágúst í fyrra. Tollstjórinn bað um þrotið Skiptastjóri félagsins, Jón G. Briem, segir að Tollstjórinn í Reykjavík hafi farið fram á það að félagið yrði tekið til gjaldþrotaskipta. „Tollstjórinn í Reykjavík óskaði eftir gjaldþrotaskipt- unum.“ Krafan sem orsakaði gjald- þrotið var þó ekki mjög há, einungis um 2,4 milljónir króna. Jón segir að kröfulýsingarfresturinn vegna búsins sé ekki liðinn og bíða þurfi með frekari upplýsingagjöf um félagið þar til þá. Í viðtali við DV í fyrra sagði Bern- hard að Landsbankinn hefði lánað félaginu fyrir kaupum á íbúð í Berlín, nánar tiltekið í Kreuzberg-hverfinu í austurhluta borgarinnar. Í ársreikningi félagsins fyrir árið 2008 kom fram að fasteignin hefði verið metin á 57 millj- ónir króna í lok þess árs. Eignir félags- ins voru því umtalsvert lægri en skuld- ir þess, líkt og fram kemur hér að ofan. Í viðtalinu við DV í fyrra sagði Bern- hard, sem í dag á og rekur lögmanns- stofuna Nordik, að búið væri að selja fasteignina. „Kreuzberg Investments ehf. var með eitt lítið fasteignaverk- efni sem var ein íbúð í Berlín. Það er búið að selja þá fasteign og borga allar skuldir félagsins. Landsbankinn lánaði fyrir þessu en fasteignin var seld árið 2009,“ sagði Bernhard. Skuldaafskriftir vegna félagsins liggja því ekki fyrir að svo stöddu. Tengist nokkrum félögum í Berlín Bernhard kemur víðar við í Berlín en í umræddu félagi. Tengist Bern- hard ýmsum öðrum fasteignafélög- um Íslendinga í Berlín. Meðal ann- ars má nefna Wartenberger Strasse 24 GmbH, fyrir hönd Magnúsar Ár- mann, en Bernhard hefur verið að aðstoða fjárfestinn við skuldaupp- gjör þeirra. Þá situr Bernhard í stjórn fasteignafélagsins Golden Gate Berlin Eins GmbH og í félaginu Gol- den Gate Berlin Zwei GmbH, sem er félag í kringum leikhúsrekstur. Einn- ig á Bernhard persónulega lítinn hlut í fasteignafélagi sem á Admiral- palast-leikhúsið í Berlín. Félag Bernards orðið gjaldþrota „Tollstjórinn í Reykjavík óskaði eftir gjaldþrotaskiptunum. n Fyrrverandi framkvæmdastjóri FL fjárfesti í Berlín með láni frá Landsbankanum Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Fjárfestu í Austur-Berlín Hluthafar Kreuzberg fjárfestu í fasteign í Austur-Berlín með láni frá Landsbankanum. Bernhard Bogason var einn af hluthöfunum. Í bakgrunni sést þing- húsið í Berlín, Reichstag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.