Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2012, Side 30

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2012, Side 30
30 Fréttir 4.–10. apríl 2012 Páskablað Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 – www.utforin.is – Allan sólarhringinn Komum heim til aðstandenda ef óskað er ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Jón G. BjarnasonHermann Jónasson K onan var að viðra teppið og gleymdi að loka hliðinu. Tík- in fór út og hinn á eftir,“ seg- ir Kristján Á. Kristjánsson, eigandi Husky-hundanna sem drápu kisuna Lóló í Grafarvogi á sunnudag. Hann segir annan hund- inn vera rakka, stóran, mikinn og þungan en rosalega gæfan. „Hann var bara þarna að fylgjast með litlu systur sinni sem er snögg í hreyfingum og þær eru yfirleitt grimmari tíkurnar.“ Kristján segir tíkina hafa drepið köttinn en rakkinn hafi ekkert gert af sér. Hann viðurkennir að hann hafi áttað sig á því fyrir nokkru síðan að hann yrði að losa sig við tíkina en nú neyðist hann til þess að lóga henni eftir kattardrápið, þó það sé erfitt fyr- ir dóttur hans sem á hana. Á heimili Kristjáns eru fimm stórvaxnir Husky- hundar og atvikið á sunnudag var ekki í fyrsta skipti sem hundarnir hans drepa annarra manna gæludýr. Gróusögur um barnavagninn Kristján vill koma því á framfæri strax að það sé „tómt kjaftæði“ að systkinin hafi verið komin ofan í barnavagn eins og fjölmiðlar höfðu eftir lögreglunni. „Konan sem á þennan barnavagn seg- ir það sjálf að þeir hafi komið, þefað aðeins af vagninum og buxnaskálm- inni hjá henni og látið sig hverfa. Það eru gróusögur að þeir hafi farið ofan í vagninn.“ Kristján segir það hafa farið illa í hann að heyra söguna um barna- vagninn. „Ég get alveg sætt mig við að hundurinn minn hafi drepið kött. Ég er ekki stoltur af því en ég hef meiri skilning á því að það geti gerst. Ég hef sjálfur verið með hvítvoðung á heim- ilinu, sofandi í barnavögnum, hang- andi í þessum hundum þannig að þeir þekkja þetta og láta fólk vera. Og flesta aðra hunda nema kannski smáhunda með kjaft, þeir taka á þeim.“ Kristján telur einnig að ef köttur- inn Lóló hefði verið ungur og frískur hefði tíkin hans aldrei náð honum. Þetta eru úlfar Hundarnir sem Kristján á eru ekki síbírískir Husky eins og frá hefur ver- ið greint. Sjálfur lýsir hann þeim sem úlfum, ættuðum frá Norður-Kanada. „Þessi tegund kemur beint frá ind- jána af norðurslóðum Kanada, frá fyrsta legg. Þessir Husky-hundar hér á Íslandi eru með mjórra á milli eyrn- anna og styttra trýni og líkari íslensk- um fjárhundum. Þetta eru bara úlfar sem ég er með, rosalega flottir. Þetta eru gæf kvikindi en þeir sækja í mýs, héra, kanínur og ketti. Það er þeim eðlislægt,“ segir Kristján. Hann segir að sér hafi verið ráð- lagt að losa sig við tíkina sem drap læðuna Lóló á sunnudag. Hann hafi talið hana í sprækari kantinum og vanur hundaþjálfari frá Danmörku sem tengdur er fjölskyldunni hafi sagt honum að losa sig við hana. „Ég er búinn að vera að reyna að fá dótt- ur mína til þess en það gerist líklega sjálfkrafa núna. Ég þarf að lóga henni enda er mér hótað öllu illu annars. Þetta er voðalega sárt fyrir hana því hún og tíkin eru svo samrýndar. Dótt- ir mín er búin að vera með henni í all- an dag að láta hana draga sig á línu- skautum því ég lofaði að láta lóga henni í dag.“ Rifu smáhund á hol á Geirsnefi Eins og fram hefur komið kærðu eig- endur Lólóar árásina og verður Krist- ján að verða við beiðninni um að lóga hundinum. Ellegar verður hann sviptur leyfinu og hundarnir teknir af honum. Það vekur athygli að hann er með fimm svona stóra „úlfa“ á heimilinu og vaknar því óneitanlega spurning hvort það sé ekki of mikið. „Persónulega er ég með tvo hunda, konan er með einn og svo á ég börn sem eiga hvort sinn hundinn.“ En kattardrápið í Grafarvogi er ekki í fyrsta skipti sem hundar frá Kristjáni drepa dýr. Magnea Þórey Hilmarsdóttir varð fyrir því í maí 2010 að Papillon-smá- hundurinn hennar Keli var eins og hún orðar það „rifinn á hol“ af hund- um Kristjáns á hundasvæðinu á Geirsnefi. „Þetta var innfluttur hund- ur og tjónið um 600 þúsund krónur fyrir okkur en hann brúkaði bara kjaft og bauð okkur hundinn sem drap okkar hund í sárabætur.“ Kristján viðurkennir fúslega að hundur frá honum hafi drepið smá- hundinn. En telur að þar sem fórn- arlambið hafi verið óskráður hundur hafi eigandinn verið réttlaus í málinu. Losaði sig við hundamorðingjann „En ég gaf þann hund. Ég losaði mig við alla hunda sem voru eitthvað árásargjarnir. Papillon-hundurinn var óskráður og því varð ekkert úr því máli. Allir mínir hundar eru skráð- ir,“ segir hann og lýsir atvikinu þann- ig að hann hafi verið með þrjá hunda á svæðinu umrætt sinn, tvo rakka og eina tík. „Einn var í bandi og skipt- ist ég á að hafa hina tvo lausa. En þessi hundur birtist þarna allt í einu gjammandi í átt að mínum hundum. Þeir fóru í átt að honum og þá hrökkl- aðist hann til baka og við höldum áfram. Svo kemur kvikindið aftur á eft- ir okkur gjammandi og þá snéri einn minna hunda sér við, tók í hnakka- drambið á honum, hristi hann tvisv- ar og við það var hann steindauður,“ segir Kristján og það er ekki að greina mikla iðrun í orðum hans. Nú stendur hann frammi fyrir því að þurfa að lóga einum hunda sinna, tíkinni sem drap Lóló. Það atvik hafi verið kornið sem fyllti mælinn með þá tík. „Ég ætla ekki að láta þetta gerast aftur, það er bara þannig, en þetta eru æðislegir hundar og ótrúleg dýr.“ n Á hundinn sem drap læðuna Lóló n Hundarnir hafa áður drepið dýr „Þetta eru bara úlfar“ Sigurður Mikael Jónsson blaðamaður skrifar mikael@dv.is „Ég get alveg sætt mig við að hundur- inn minn hafi drepið kött. Rifinn á hol Papillon-hundurinn Keli var drepinn á Geirsnefi í maí 2010. Leið Ásdís, dóttir Kristjáns, er leið yfir örlögum tíkarinnar. Hún brotnaði saman í sjónvarpsviðtali á þriðjudag. Drepin í garðinum Læðan Lóló var drepin af Husky-tík Kristjáns eftir að hún slapp. Eigandinn var að vonum miður sín. Husky Hundurinn sem drap Lóló var svipaður þessum. Krist- ján segir þó að hann hafi verið ættaður frá Norður-Kanada. Óánægja á Selfossi: Banna sölu á bakkelsi Mikil óánægja er meðal nemenda 10. bekkjar Vallaskóla á Selfossi og foreldra þeirra. Ástæðan er til- kynning sem nemendurnir fengu frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands síðdegis á þriðjudag þar sem fram kom að bekknum væri bannað að selja tertur á flóamarkaði í Tryggvaskála á Selfossi á skírdag. Frá þessu var greint á fréttavefn- um dfs.is. Þar kemur fram að fimleika- hópur ætlaði líka að vera með kökubasar í Kjarnanum á í dag, miðvikudag, og hefur það líka ver- ið bannað. „Það sýður á mér, við erum búin að baka allar terturnar og gera allt klárt þegar þetta símatal kom, auk þess að vera búin að auglýsa flóamarkaðinn í blöðum. Ég hreinlega neita að trúa því að þetta sé satt, þvílíkt og annað eins þjóðfélag, sem við búum í. Það er greinilegt að Heilbrigðiseftirlitið mismunar hópum því það hafa verið haldnir kökubasarar reglu- lega í Kjarnanum í vetur, nú síðast um síðustu helgi þar sem konur úr kvenfélagi Hraungerðishrepps voru með kökubasar,“ sagði Rann- veig Anna Jónsdóttir í samtali við DFS en hún er einn af forsvars- mönnum nemenda 10. bekkjar. Hættir viðskipt- um við Ísland Deutsche Fischfang Union (DFFU) hefur ákveðið að hætta öllum við- skiptum við íslenska lögaðila tíma- bundið. Þetta kemur fram í tilkynn- ingu frá Samherja, en fyrirtækið er dótturfélag þess. Ástæðan er rann- sókn á meintum lögbrotum Sam- herja sem eru til rannsóknar hjá ís- lenskum stjórnvöldum. Þetta þýðir að DFFU mun ekki selja afurðir sínar í gegnum íslensk sölufyrir- tæki, sækja þjónustu eða landa úr skipum félagsins hér á landi. Fyrir- tækið hefur einnig sagt upp samn- ingi um afhendingu hráefnis til fisk- vinnslu Samherja á Dalvík en til stóð að DFFU myndi landa um 3.500 tonnum af ferskum slægðum þorski á Íslandi á tímabilinu 15. apríl til 1. september. Seðlabanki Íslands lagði hald á bókhaldsgögn DFFU, tölvu- pósta, rekstraráætlanir og önn- ur gögn sem vistuð hafa verið hjá tölvufyrirtækinu Þekkingu hf. vegna rannsóknar sinnar á brotum Sam- herja og annarra fyrirtækja. Gögnin voru sögð tengjast brotum á lögum um gjaldeyrismál.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.