Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2012, Blaðsíða 32
SVARTUR LISTI UNGRA
SJÁLFSTÆÐISMANNA
32 Fréttir 4.–10. apríl 2012 Páskablað
V
ið teljum þetta svo slæman
vitnisburð um dómgreind
þessara einstaklinga sem
standa að þessum póli-
tísku ofsóknum á hendur
Geir að við teljum að flokkurinn ætti
ekki að koma nálægt samstarfi við
þá einstaklinga,“ segir Davíð Þor-
láksson, formaður Sambands ungra
sjálfstæðismanna (SUS). Stjórn
sambandsins sendi frá sér ályktun
á þriðjudag þar sem segir að flokk-
urinn ætti að útiloka þann mögu-
leika að taka þátt í ríkisstjórn með
þeim þingmönnum sem greiddu at-
kvæði með því að draga Geir H. Ha-
arde fyrir landsdóm og þeim sem
stóðu í vegi fyrir efnislegri umfjöllun
á afturköllun ákærunnar sem Bjarni
Benediktsson, formaður Sjálfstæð-
isflokksins, lagði fram.
33 þingmenn vildu ákæra
En sé atkvæðagreiðslan á Alþingi frá
28. september 2010 skoðuð, þar sem
samþykkt var að ákæra Geir, myndi
við fyrstu sýn reynast erfitt fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn að mynda ríkisstjórn
eftir næstu kosningar. Staðreyndin
er nefnilega sú að 33 þingmenn
allra flokka nema Sjálfstæðisflokks-
ins greiddu atkvæði með ákærunni.
Sautján frá Vinstri grænum, átta frá
Samfylkingunni, sex frá Framsókn-
arflokknum og allir þrír þingmenn
Hreyfingarinnar. Af ályktun SUS að
dæma mætti því ætla að Sjálfstæðis-
flokkurinn þyrfti hreinan meirihluta
til að komast í ríkisstjórn.
Þurfa að endurnýja sig
En Davíð segir að SUS erfi atkvæða-
greiðsluna ekki við flokkana „ heldur
þá einstaklinga sem tóku þátt í
þessu,“ eins og hann orðar það í
samtali við DV. „Þetta þýðir ekki að
þessi flokkar geti ekki fengið upp-
reisn æru með því að endurnýja sig
með einhverjum hætti.“
Hann kveðst ekki ætla að halda
niðri í sér andanum við að bíða eftir
að Sjálfstæðisflokkurinn fái hreinan
meirihluta. Að auki telur hann að ef
kosningaúrslit verði með svipuðu
móti og kannanir gera ráð fyrir í dag
þá gæti vandamálið verið sjálfleyst.
„Stjórnarflokkarnir tveir og Hreyf-
ingin eru flokkar sem eru að minnka
mjög mikið og því ljóst að stór hluti
þessa fólks verður ekki á þingi eftir
næstu kosningar. Að hluta til er það
þá sjálfleyst mál.“
Í þessu samhengi ber að hafa í
huga að margir þeirra sem greiddu
atkvæði með því að Geir yrði dreg-
inn fyrir landsdóm hafa síðan skipt
um skoðun.
Flokkurinn eykur fylgi sitt
Ályktun SUS kemur í kjölfar niður-
staðna í þjóðarpúlsi Gallup sem
birtar voru á mánudag. Fylgi Sjálf-
stæðisflokksins mælist nú 38 pró-
sent og hefur hækkað um fimm
prósentustig milli mánaða. Á sama
tíma hrapar fylgi ríkisstjórnarflokk-
anna en aðeins 28 prósent segjast
styðja ríkisstjórnina. Aðeins einu
sinni hefur stuðningur við ríkisstjórn
mælst minni. Það var í kjölfar banka-
hrunsins þegar búsáhaldabyltingin
stóð sem hæst og krafan var að Geir
H. Haarde og ríkisstjórn Sjálfstæð-
isflokks og Samfylkingar færi frá.
Samkvæmt þjóðarpúlsinum mælist
Framsóknarflokkurinn með 13 pró-
senta fylgi, Samfylkingin 17 og Vinstri
græn 11. Sjálfstæðisflokknum vex því
fiskur um hrygg með hverjum mán-
uðinum og með hverri umdeildri og
óvinsælli ákvörðun ríkisstjórnarinn-
ar. Samkvæmt niðurstöðunum nú
gætu Sjálfstæðis- og Framsóknar-
flokkur myndað ríkisstjórn með 51
prósenta fylgi.
Aukið sjálfstraust
Þótt ályktun SUS endurspegli ekki
endilega afstöðu forystu og þing-
manna Sjálfstæðisflokksins þá sýn-
ir hún merki um breytt viðhorf og
aukið sjálfstraust flokksins að und-
anförnu. Flokkurinn sem var særð-
ur eftir hrunið og lét lítið fyrir sér
fara fyrst um sinn hefur eflst eftir
því sem frá líður. Sjálfstæðismenn
hafa náð vopnum sínum á ný þrátt
fyrir allt sem á undan er gengið og
geta nú með góðu móti farið að setja
leikreglurnar fyrir komandi kosn-
ingar. Nú síðast á mánudag greindi
DV frá því að Sjálfstæðisflokkurinn
hefði hafið vinnu að eigin frum-
varpi að breyttri stjórnarskrá. And-
staða sjálfstæðismanna við tillögur
stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá
er vel þekkt. Flokkurinn vill ekki
nýja stjórnarskrá frá grunni og ætl-
ar því að leggja fram eigið frumvarp
að breytingum. Þingmenn flokksins
hafa sagt eðlilegt að málefni stjórn-
arskrárinnar séu á forræði Alþingis
og stjórnmálaflokka.
Undir þetta tekur Birgir Guð-
mundsson, stjórnmálafræðingur
og dósent við Háskólann á Akur-
eyri. „Sjálfstæðismenn hafa, ólíkt
framsóknarmönnum, verið að ná
vopnum sínum. Þrátt fyrir lands-
dómsmálið, væringar í kringum
formanninn og umfjöllun hefur
Sjálfstæðisflokkurinn verið að fá
vind í seglin og ég held að það
endurspeglist bæði í málflutningi
þeirra og framgöngu. Þeir hafa
meira sjálfstraust en þeir höfðu.“
„Við teljum að
flokkurinn ætti ekki
að koma nálægt sam-
starfi við þá einstaklinga.
n Vilja að flokkurinn útiloki samstarf við þá sem vildu ákæra Geir
Sigurður Mikael Jónsson
blaðamaður skrifar mikael@dv.is
Síminn sektaður
um 440 milljónir
Samkeppniseftirlitið lagði á
þriðjudag 440 milljóna króna sekt
á fjarskiptafyrirtækið Símann fyrir
brot á samkeppnislögum. Stærstur
hluti sektarinnar, 390 milljónir,
er tilkominn vegna misnotkunar
fyrirtækisins á markaðsráðandi
stöðu á farsímamarkaði. Afgang-
urinn af sektinni er vegna rangrar
og misvísandi upplýsingagjafar í
málinu. Ákvörðun um sektina var
tekin í kjölfar rannsóknar á kæru
Nova vegna verðlagningar Sím-
ans á farsímamarkaði. Niðurstaða
Samkeppniseftirlitsins er á þá
leið að Síminn hafi misnotað að-
stöðu sína með því að rukka Nova,
og önnur símfyrirtæki, um hátt
lúkningargjald fyrir símtöl sem
enduðu í kerfi Símans. Á stærstum
hluta brotatímabilsins var þetta
heildsöluverð Símans til keppi-
nauta hærra en smásöluverð Sím-
ans á símtölum milli viðskiptavina
í farsímaþjónustu fyrirtækisins,
sem myndu flokkast sem innan-
kerfissímtöl.
Kjörsókn framar
væntingum
Góð kjörsókn hefur verið í rafræn-
um íbúakosningum í Reykjavík að
mati borgarinnar. Á þriðjudags-
morgun höfðu 6.500 einstakling-
ar greitt atkvæði í kosningunum.
Þeim lauk á miðnætti aðfaranótt
miðvikudags. Kosið er um 180
mismunandi verkefni í öllum
hverfum borgarinnar. Borgin ósk-
aði eftir hugmyndum að verk-
efnum á samráðsvefnum Betri
Reykjavík í byrjun árs og voru 350
tillögur sem komu þaðan kostn-
aðarmetnar af fagteymi á vegum
borgarinnar. Auk þessu höfðu
hverfaráð borgarinnar tækifæri til
að koma að sínum hugmyndum
að verkefnum á framfæri. Borgin
mun svo leggja 300 milljónir í
kostnað við framkvæmd þeirra
verkefna sem hafna efst í kosning-
unum en um er að ræða smærri
nýframkvæmdir og viðhaldsverk-
efni í öllum hverfum. Fjármun-
um var skipt á milli hverfa eftir
íbúafjölda. Kosningarnar eru þær
fyrstu sinnar tegundar hér á Ís-
landi.
Arctic Trucks
innkallar hjól
Neytendastofu barst tilkynning
frá Yamaha á Íslandi um inn-
köllun á Yamaha XV 1300A-
mótorhjólum vegna hættu
á bruna. Við reglubundna
skoðun hjá Yamaha kom í ljós
galli í bensínslöngu í hjól-
unum sem við sérstakar að-
stæður getur valdið því að
bensín undir þrýstingi lekur.
Á vef Neytendastofu kemur
fram að í öryggisskyni hafi Ya-
maha því ákveðið að innkalla
umrædd hjól og gera á þeim
viðeigandi lagfæringar. Skipt
verður um bensínslönguna
sem og bensínkrana og tengda
lögn. Viðgerðin tekur um tvær
klukkustundir og er eigendum
að kostnaðarlausu. Um er að
ræða hjól framleidd frá októ-
ber 2008 til ágúst 2011. Hlutað-
eigandi hefur þegar verið til-
kynnt um innköllunina.
Verðbólgan og skuldir heimila eins og „opið sár“
„Sjálfstæðisflokkurinn
er kominn aftur“
Þetta eru slæmar fréttir fyrir ríkis-
stjórnina,“ segir Birgir Guðmundsson
stjórnmálafræðingur um niðurstöðu
þjóðarpúls Gallup. „Þetta sýnir að
uppstokkunin og andlitslyftingin um
áramótin hefur ekki gert nein krafta-
verk fyrir fylgi ríkisstjórnarinnar. Fylgið
heldur áfram að dala.“ Birgir segir
þetta meðal annars skýrast af því að
stjórnin hafi þá ímynd, óháð því hver
veruleikinn er, að hún sé ekki að taka
á þeim málum sem heitast brenna á
fólki. Efnahagsmálin, verðbólgan og
skuldir heimilanna eru „eins og opið
sár á þjóðarlíkamanum,“ segir Birgir.
Hann segir niðurstöðu könnunarinnar
sýna að Sjálfstæðisflokkurinn sé nú
kominn fram sem raunverulegur val-
kostur og sé að taka til sín mikið fylgi.
„Sjálfstæðisflokkurinn er kominn aftur í stjórnmálin sem valkostur með fylgistölur sem
ekki hafa sést lengi hjá þeim.“
Að sama skapi segir Birgir athyglisvert að Framsóknarflokknum virðist ekki hafa tekist
að festa sig í sessi á þessum óánægjutímum sem raunverulegur valkostur við ríkis-
stjórnina. „Framsókn á í einhverjum vandræðum með að taka til sín af óánægju með
ríkisstjórnina. Þeim er ekki að takast að ná vopnum sínum.“
Birgir Guðmundsson Sjálfstæðisflokk-
urinn er aftur orðinn raunverulegur valkostur
fyrir kjósendur eftir hrun.
Geta snúið
við blaðinu
Davíð Þorláks-
son, formaður
SUS, vill að Sjálf-
stæðisflokkurinn
útiloki með öllu
samstarf við
þá þingmenn
sem mæltu fyrir
ákæru á hendur
Geir Haarde.
Flokkarnir sem
þeir tilheyra eru
þó ekki útilokaðir.
Mynd: SiGtryGGur Ari